Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 47
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 47 STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Sökum útgeislunar og vits- muna þinna er félagsskapur þinn eftirsóknarverður. Reyndu að treysta þau vin- áttubönd sem fyrir eru svo rúm gefist fyrir önnur. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur mikla þörf til sam- ræðna við aðra, sérstaklega ættingja. Vertu viss um að þessar samræður eigi sér stað. Þú þarft á þeim að halda. Naut (20. apríl - 20. maí)  Einbeittu þér að starfi þínu og frama. Gerðu þér grein fyrir því hvað skiptir máli svo þú vitir fyrir hverju þú ert að vinna. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gerðu eitthvað fyrir sjálfa(n) þig í dag. Þú þarft á því að halda. Njóttu dags- ins! Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft aukinn tíma til hvíldar og slökunar. Einnig væri aukið næði af hinu góða. Virtu þarfir þínar og gefðu þér tíma. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vinir þínir krefjast þess að fá athygli þína. Veittu þeim hana og ræktaðu þá vináttu sem er til staðar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Aukin ábyrgð er af hinu góða. Mundu þó að þú þarft ekki að sýna hetjulund til þess að ná árangri. Treystu á þig og vonaðu það besta. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Farðu í stutta ferð ef þú hef- ur kost á því. Breytt um- hverfi mun auka við þekk- ingu þína á heiminum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu að greiða úr vanda- málum sem rísa vegna skulda. Það gefst ekki vel að slá málunum á frest, það þarf að takast á við þau. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú gætur lært margt á því að skoða sambönd þín við vini og vandamenn. Taktu eftir því hvernig aðrir bregðast við þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Beittu færni þinni til þess að skipuleggja þig. Farðu alla leið. Láttu undan löngun þinni til þess að koma röð og reglu á hlutina því þér mun líða betur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Rómantík, ástarsambönd og samvera með börnum gera þér lífið léttara. Árangurinn skiptir ekki máli í þessum efnum, heldur að vera með. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einbeittu þér að fjölskyldu þinni í dag. Samræður við nákomna eru einkar mik- ilvægar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Á FERÐ Hátt í gnúpum hamra bláum hvein, sem fjúka mundu öll þau hin sterku, steini gráum studdu, gömlu Kjósar fjöll. Skall á bláum björgum froða – bifðist jörðin öll í kring – var sem mundi löðrið loða á loga-gullnum sólar hring. Magnús Grímsson LJÓÐABROT 80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. júní, er áttræður Einar Þórð- arson, Klapparstíg 7, Reykjavík. Eiginkona hans er Jensína Sigurðardóttir. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, hvítasunnu- dag 8. júní, verður Karl Skírnisson, dýrafræðingur, fimmtugur. Á afmælisdag- inn taka Karl og Ástrós Arnardóttir, kona hans, á móti vinum og vandamönn- um frá kl. 17 til 20 í Félags- heimili Kópavogs, Fann- borg 2. „VELDU og taktu afleiðing- unum!“ Það er leiðarstefið í dag eins og í gær, en við er- um að skoða spil frá Norð- urlandamótinu sem eru því marki brennd að möguleik- arnir eru margir, en óger- legt er að sameina þá. Norður ♠ D62 ♥ K863 ♦ ÁD62 ♣K8 Suður ♠ ÁK1043 ♥ ÁG ♦ 107 ♣Á1075 Suður spilar sex spaða og fær út lítinn tígul. Gerðu svo vel og taktu fyrstu ákvörðun. Auðvitað verður alltaf að leggja af stað með einhverja áætlun. Sú fyrsta sem kvikn- ar er einhvern veginn þann- ig: Reyna að stinga eitt lauf í borði og taka trompin. Ef þetta blessast gæti tólfti slagurinn komið með svín- ingu í tígli eða hjarta. Þetta er ekki slæmt, en margt ann- að kemur til greina. Þröstur Ingimarsson var í suðursætinu og hann hafði tilfinningu fyrir því að aust- ur ætti tígulkónginn (austur hafði hikað yfir fyrirstöðu- sögn norðurs í tígli) og ákvað að hleypa á tíuna. Austur tók á gosann og skipti yfir í tromp. Hvað nú? Á að setja tíuna, lítið eða ásinn? Norður ♠ D62 ♥ K863 ♦ ÁD62 ♣K8 Vestur Austur ♠ G8 ♠ 975 ♥ D9742 ♥ 105 ♦ 843 ♦ KG95 ♣D63 ♣G942 Suður ♠ ÁK1043 ♥ ÁG ♦ 107 ♣Á1075 Þröstur ákvað að prófa tíuna. Vestur lét gosann og drottningin átti slaginn. Í þessari stöðu svínaði Þröst- ur hjartagosa og fór því einn niður. Það hefði kannski ver- ið heldur nákvæmara að stinga fyrst lauf (til að dekka möguleikann á DGx), en svíningin í hjarta var þó einn helsti möguleikinn sem eftir stóð. Eins og spilið lá hefði Þröstur getað náð í tólfta slaginn með láglitaþvingun á austur. Þá er lauf stungið, trompin tekin af AV, ÁK í hjarta spilað og hjarta stungið. Síðasta trompið gæti virkað til þvingunar á ýmsan hátt, en hér er það austur sem lendir í vandræð- um með tígulkónginn og laufgosann. Ekki þarf að giska á tígulleguna, því vest- ur verður að valda hjartað og getur því ekki verið á nema einum tígli. En er þetta besta leiðin? Það er ómögulegt að segja. Í svona spilum er besta leiðin einfaldlega sú sem virkar. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. júní, er fimmtugur Þorvaldur Þór Maríuson, Dvergholti 11, Hafnarfirði. Hann er að heiman í dag. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6 5. Rf3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. Bd3 De7 8. O-O O-O 9. c5 Bc7 10. e4 dxe4 11. Rxe4 Rxe4 12. Bxe4 h6 13. He1 Hd8 14. Bd2 Rf6 15. Bd3 b6 16. b4 bxc5 17. bxc5 a5 18. Bc4 Ba6 19. Bb3 Bb5 20. a4 Ba6 21. Re5 De8 Staðan kom upp á Evrópumeistaramóti einstaklinga sem fram fer í Istanbúl þessa dagana. Þrír íslenskir skákmenn eru á meðal þátttakenda, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson og Ingvar Ásmundsson (2327) sem hafði svart í stöðunni gegn júgó- slavneska stórmeist- aranum Ivan Iv- anisevic (2569) sem tætti svörtu kóngsstöðuna í tætlur með næsta leik sín- um. 22. Rxf7! Kxf7 23. Hxe6 Dxe6 24. Bxe6+ Kxe6 25. Dg6! Hg8 26. He1+ Kd7 27. Df7+ Kd8 28. Bxh6 He8 29. Hxe8+ Rxe8 30. Bg5+ og svartur gafst upp. Hægt er að fylgjast með gangi máli á Evrópumeistaramótinu á www.skak.is. Stúlknamót Hellis hefst í Austurbæj- arskóla kl. 11.00 í dag. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 7. júní, er fimmtug Sigríður Friðný Halldórsdóttir. Í tilefni dagsins munu hún og eig- inmaður hennar til 30 ára, Benedikt Vilhjálmsson, taka á móti vinum og vanda- mönnum á heimili sínu frá klukkan 18.   FRÉTTIR ÞORPIÐ er nafn á hinu nýja kaffi- húsi er var opnað í húsakynnum Geirseyrarbúðarinnar á Patreks- firði nýlega. Miklar innanhúss- breytingar voru gerðar í húsnæð- inu. Eigendur Þorpsins eru Oddur Guðmundsson, Kolbrún Pálsdóttir, Rakel María Magnúsdóttir og Páll Heiðar Hauksson. Í tilefni opnunarinnar kom Hjört- ur Skúlason, sem er í landsliði kaffibarþjóna og hefur rekið stað- inn Kaffitár í Kringlunni til nokk- urra ára. Staðurinn tekur um 50 manns í sæti og er hann opinn frá kl. 10–22 á kvöldin. Í boði eru ýmsir kaffi- og súkkulaðidrykkir, tertur og smá- réttir, einnig hefur staðurinn vín- veitingaleyfi, segir í fréttatilkynn- ingu. Á myndinni er Hjörtur Skúlason kaffibarþjónn við barinn, ásamt eigendum Þorpsins. Nýtt kaffihús opnað á Patreksfirði Borgfirðingahátíð dagana 13.– 17. júní Það verður margt í boði fyrir alla fjölskylduna á Borgfirðingahátíð sem haldin verð- ur dagana 13.–17. júní nk.; mark- aðstorg, leiktæki, sýningar, tónlist, leiklist og uppákomur um allan Borgarfjörð. Nýtt tjaldsvæði er í Borgarnesi og einnig eru margir gistimöguleikar um allt hérað. Föstudag og laugardag verða sýnd- ar stuttmyndir eftir Óskar Þór Óskarsson þar sem sagt er frá líf- inu í Borgarnesi á stríðsárunum og frá netaveiðum í Hvítá. Um kvöldið verður Baðstofukvöld í Logalandi þar sem leikfélög í Borgarfirði og Halli og Laddi koma fram. Á laug- ardeginum hefst dagskráin með Brákarhlaupi. Einnig verður kvennaskokk í minningu Þorgerðar Brákar og þá er markaðstorg og fyrirtækjakynning í íþróttahúsinu og þar í kring. Leiktæki og andlits- málun verða fyrir börnin í Skalla- grímsgarði. Á sunnudag er öllum boðið í morg- unverð í Skallagrímsgarðinum og verður útimessa í framhaldi af því. Að messu lokinni er hægt að fylgj- ast með Röftunum – vélhjóla- klúbbnum, sem verður með sýningu eða skrá sig í þríþraut við Hrepps- laug. Í Skorradal verður hægt að skreppa í bátsferð á vatninu, fara í skógargöngu með skógarverði eða taka þátt í flugdrekamóti á Indriða- stöðum í Skorradal. Sellófón verður sýnt á Hótelinu í Borgarnesi um kvöldið og tónleikar verða í Borg- arnesi mánudaginn 16. júní. Hátíð- inni lýkur með því að haldið verður upp á 17. júní um allan Borgar- fjörð. Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á Borgarfjardarsveit.is og Borgarbyggd.is Á NÆSTUNNI ÁRNAÐ HEILLA Hinn þekkti orkuheilari RAHUL PATEL mun halda námskeið laugardaginn 21. júní nk. frá kl. 11:30-16:30 í Jógastöð Guðjóns Bergmann í Ármúla 38. Námskeiðsgjald er 100 USD. Rahul hef- ur um árabil helgað sig heilun og leitinni að andlegri visku og heldur hann reglulega námskeið víða um heim. Meðal bóka sem Rahul hefur gefið út er metsöluhljóðbók hans Energy Healing. Rahul mun að auki bjóða upp á einkatíma. Tímapantanir í síma 892 0724. Leitin að bættri heilsu, hamingju og velgengni Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, s. 565 1533, www.polafsson.is Stór og lítil trampolín í garðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.