Morgunblaðið - 07.06.2003, Síða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 49
SKIPULEGGJENDUR eru í óða önnað undirbúa hátíðarhöld um versl-unarmannahelgina sem í ár lendir áfyrstu dögum ágústmánaðar.
Sálin, Sólin og Skímó í Eyjum
Birgir Guðjónsson hjá ÍBV er aðalumsjón-
armaður Þjóðhátíðar, og segir hann undirbún-
ing hafa staðið yfir síðan í febrúar og ganga vel
og samkvæmt áætlun.
Stærstu böndin í Eyjum verða Sálin hans
Jóns míns, Skítamórall og Á móti sól og verið
er að semja við fleiri listamenn og skemmti-
krafta. Hippabandið og Dans á rósum munu
skemmta á litla pallinum.
Hátíðin verður með sama sniði og oft áður,
og vonandi að veðurguðirnir verði blíðari nú en
síðast, að sögn Birgis. Stærstu viðburðir eru
að vanda flugeldasýning, brekkusöngur og
tónlistardagskrá en boðið verður upp á ýmsa
afþreyingu fyrir börnin og aðra fasta liði eins
og bjargsig.
Von á GIS and the Big City?
Á Akureyri eru það Vinir Akureyrar og
ýmsir hagsmunaaðilar sem annast skipulag
hátíðarinnar „Ein með öllu“. Bragi Bergmann,
sem þar er í forsvari, segir skipulagningu
ganga vel og komna á fulla ferð. Búið er að
ganga frá samningum við helstu skemmti-
kraftana, en aðalnúmerin á Akureyri verða
Papar, Í svörtum fötum og Írafár. Þessar
hljómsveitir munu skemmta bæði í Sjallanum
og á Ráðhústorginu. Bragi segir hátíðina verða
með svipuðu sniði og áður: „Það er komin
nokkuð sterk hefð á þetta og við munum lítið
breyta til frá því sem þróast hefur síðastliðin
tvö ár. Þetta verður hátíð með fjölskylduvænu
yfirbragði fyrir alla fjölskylduna og alla ald-
urshópa,“ sagði Bragi.
Þannig verða ýmis skemmtiatriði, leiktæki
og barnaskemmtun á Ráðhústorginu, en há-
punkturinn verður fjöldasöngur og flug-
eldasýning á Akureyrarvelli
Bragi segir enn standa yfir samninga við
ýmsa skemmtikrafta, meðal annars hina ís-
lensk-amerísku GIS and the Big City (með
Gísla Jóhannsson innanborðs) sem áður hefur
leikið hér á landi við mikla lukku.
Galtalækur hefðbundinn
Aðalsteinn Gunnarsson sem hefur með fjöl-
skylduskemmtunina í Galtalæk að gera segir
undirbúning vel á veg kominn. Þar munu Íra-
fár og Í svörtum fötum skemmta auk þess sem
norsk kántrí- og línudanshljómsveit skemmtir
og margir fleiri.
Að öðru leyti verður hátíðin í Galtalæk með
hefðbundnu sniði. Línudansfár verður í kúl-
unni, leiktæki fyrir börnin og hátíðin að sjálf-
sögðu vímulaus.
Keimur af kántrýhátíð
Þó Kántrýhátíðin á Skagaströnd verði ekki
haldin, sem slík, segir Magnús Jónsson sveit-
arstjóri að einhver skemmtidagskrá verði í
staðinn. Til stendur að halda kántrýtónleika á
laugardagskvöldi og gospelmessu á sunnudeg-
inum. Hann segir tónleikana verða með öfl-
ugum tónlistarmönnum, en ekki er þó enn búið
að fastsetja nöfn sem má gefa upp.
Hljómar og Stormar á Sigló
Undirbúningur Síldarævintýris á Siglufirði
gengur vel að sögn Theodórs Júlíussonar. Að
hans sögn munu sjálfir Hljómar skemmta þar
en samningaviðræður standa yfir við Ragga
Bjarna. Von er á Stormum auk þess sem
hljómsveitin Miðaldamenn og skemmtihóp-
urinn Fílapenslar munu stytta gestum stundir.
Leikfélagið á staðnum verður með skemmti-
atriði fyrir börnin og leiktæki á staðnum.
Loks eru uppi fyrirætlanir um að haldið
verði hestamannamót samhliða Síldarævintýr-
inu og vonast Theodór til að fá stórknapa til að
keppa og sýna listir sínar. Eins er von til að
arfleifð síldarsöltunar og harmonikkuleiks
verði gerð góð skil.
Neistaflug að vanda
Enn er ekki búið að festa nein nöfn að sögn
Geirs Hlöðverssonar hjá Brján-klúbbnum
(Blús, rokk og djassklúbbnum á nesi) sem held-
ur utan um Neistaflug á Neskaupstað. Hann
segir unnið hörðum höndum að skipulagningu
og hátíðin verði með hefðbundnu sniði; fjöl-
skylduhátíð við allra hæfi, með tónleikum, leik-
tækjum og skemmtiatriðum. Meðal dagskrár-
liða verður Tónatitringur, dagskrá þar sem
heimamenn troða upp og skemmta gestum.
Skipulagning fyrir verslunarmannahelgi í fullum gangi
Írafár á Akureyri,
Sálin í Eyjum og
Hljómar á Siglufirði
Fjölbreytt skemmtiatriði og söngskemmtanir verða á boðstólum um verslunarmannahelgi.
Hér skemmta eldspúandi fjölleikamenn í Galtalæk.
asgeiri@mbl.is