Morgunblaðið - 12.08.2003, Page 8

Morgunblaðið - 12.08.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ræs, ræs… „Vakna þú nú, mín Þyrnirós.“ Málstofa um hjúkrunarfræði Valkostur fyrir íslensk sjúkrahús LANDSPÍTALI– háskóla-skjúkrahús og hjúkrunarfræði- deild Háskóla Ís- lands standa fyrir málstofu föstudaginn 15. ágúst næstkom- andi í Hringsal barnaspítalans. Fyr- irlesari verður dr. Anne Marie Raff- erty, forstöðumaður stefnumörkunar á sviði hjúkrunar við Heilsufræða- og hitabeltislækninga- skólann í London. Hún ræðir þar um rannsóknir á svoköll- uðum Magnet- sjúkrahúsum sem kappkosta að veita sjúklingum enn betri þjónustu. Meðal ann- ars ræðir hún hvort hjúkrunarfræðingar hafi fjar- lægst sjúklinga. Hvert verður umræðuefni mál- þingsins? „Ég mun kynna niðurstöður rannsókna sem ég hef verið í for- svari fyrir í Englandi og Skot- landi á hinum svokölluðu Magn- et-sjúkrahúsum. Magnet er sérstök viðurkenning sem sjúkrahús hljóta en samkvæmt rannsóknum einkenna þau áber- andi aukin gæði þjónustunnar og styðjandi stjórnun leiðtoga. Rannsóknirnar sem ég hef stýrt eru framlag til alþjóðlegrar rannsóknar sem Bandaríkin, Kanada og Þýskaland taka einn- ig þátt í. Er þeim ætlað að veita almennar upplýsingar um Magn- et-sjúkrahús, einkenni þeirra, batalíkur sjúklinga og álit hjúkr- unarfræðinga á gæðum umönn- unar og starfsánægju. Meðal rannsókna má nefna að banda- ríski rannsóknarhópurinn hefur undir stjórn Lindu Aiken, pró- fessors við Pennsylvaníuháskóla, gert könnun meðal hjúkrunar- fræðinga á tengslum milli ánægju og kulnunar í starfi og dánartíðni sjúklinga. Hópurinn hefur fundið út að betur mann- aðar deildir hafa lægri dánar- tíðni, eftir að allir aðrir þættir hafa verið teknir með í reikning- inn. Útkoman er því sú að betur mannaðar deildir stuðli að betri bata sjúklinga og þeim tengist ekki jafnmikil áhætta t.d. hvað varðar dauðsföll.“ Hverjar eru helstu niðurstöður slíkra rannsókna í Bretlandi? „Við höfum ekki enn kynnt niðurstöður kannana okkar á þessu tiltekna viðfangsefni þar sem þær eru ekki fullgerðar. Þó er ljóst að niðurstöður okkar eru ekki í mótsögn við bandarísku niðurstöðurnar. Við höfum kom- ist að því að sjúklingar ná frek- ari bata við útskrift af Magnet- sjúkrahúsum auk þess sem þar er samband hjúkrunarfræðinga við lækna gott og sjálfstæði þeirra í starfi er á háu stigi. Þegar litið er á niðurstöður okkar sem birtar voru árið 2001 má sjá, eins og ætla mátti, að samband er á milli sjálfstæðis hjúkrunar- fræðinga, kulnunar í starfi og gæða umönnunar. Það virðist vera svo að hópvinna og sjálf- stæði hjúkrunarfræðinga vegi hvort annað upp og fari vel sam- an frekar en að þeim sé stillt upp á móti hvort öðru. Ágreiningur er uppi um það hvort hjúkr- unarfræðingar hafni frekar sam- vinnu við lækna með auknu sjálf- stæði í starfi. Sú virðist þó almennt ekki vera raunin og skilaboð til forstöðumanna eru því þau að aukið sjálfstæði í hjúkrun geti bætt viðleitni hjúkrunarfræðinga sjúkrahús- anna til samvinnu.“ Hvað gerir Magnet svo alþjóð- legt? „Ég tel að hugmyndafræði Magnet höfði til allra þeirra sem koma að heilbrigðisþjónustu vítt og breitt um heiminn. Hugmynd- in höfðar til heilbrigðisyfirvalda, hún höfðar til hjúkrunarfræðinga því að Magnet-sjúkrahúsin eru góðir vinnustaðir og ég held að áhrif samvinnunnar og umhyggja fyrir sjúklingunum hljóti að telj- ast ávinningur og höfða til lækna. Þá er Magnet-stefnan skipulögð hugmynd sem stuðlar að vissu formi þróunar og um- breytinga innan sjúkrahúsanna. Hún hefur því jákvætt aðdrátt- arafl á þá sem móta stefnu heil- brigðisþjónustu og myndi ég segja að Magnet-hugmyndin væri allra hagur.“ Fellur Magnet-hugmyndin að rekstri íslenskra sjúkrahúsa? „Aðstæður til þess að reka Magnet-sjúkrahús á Íslandi eru góðar því þjóðin er fámenn og sjúkrahúsin fremur lítil. Það er einmitt meðalstærð sem ein- kennir Magnet-sjúkrahúsin, þau eru hvorki mjög stórar stofnanir né litlar. Ég tel stærð- ina mikilvæga, en á Ís- landi eru þó tæplega nógu mörg sjúkrahús til þess að kostir Magnet-stefnunnar geti nýst til fulls. Samt sem áður virðist sem að á Íslandi sé hægt að nota viðmiðanir Magnet- sjúkrahússins um verklag til þess að sjá hvar íslensk sjúkra- hús standa í alþjóðlegum sam- anburði. Það gæti reynst ís- lenska heilbrigðiskerfinu mjög nytsamlegt. Málþingið stendur frá klukkan 9.30–12. Anne Marie Rafferty  Anne Marie Rafferty er fædd árið 1958 í Skotlandi. Hún útskrifaðist með B.Sc.- gráðu í hjúkrunarfræði frá Há- skólanum í Edinborg og með M.Phil.-gráðu frá Háskólanum í Nottingham. Að því loknu lauk hún D.Phil.-gráðu í nú- tímasögu við Háskólann í Ox- ford. Hún hefur gegnt stöðu forstöðumanns stefnumörkunar á sviði hjúkrunar við London School of Hygiene & Tropical Medicine frá árinu 1995. Aukinn bati sjúklinga við útskrift MIKILL meirihluti reykvískra foreldra er ánægður með starf leikskólanna og samskipti við starfsfólk þeirra. Þetta kemur fram í könnun sem Leikskólar Reykjavíkur gerðu meðal foreldra á þrjátíu og sjö leikskólum dagana 17. til 22. mars sl. Í könnuninni kom meðal annars fram að 89 prósent foreldra sem svöruðu sögðust ánægð með upp- lýsingar sem þau fengu um leik- skólann í upphafi leikskólavistar barnsins. Ennfremur sögðust 89 prósent foreldra ánægð með dag- legar móttökur barnsins og 92 prósent foreldra sögðust ánægð með samskipti við starfsfólk deilda. Örlítið minni ánægja var með kynningu á nýju starfsfólki í leik- skólum en 41 prósent foreldra sögðust ánægð með kynningu á nýju starfsfólki á meðan 23 pró- sent foreldra voru óánægð. Mikillar ánægju gætti með þau foreldraviðtöl sem eru í boði í leik- skólum, en 89 prósent foreldra sögðust ánægð með þau og þar af sögðust 59 prósent mjög ánægð. Enn virðist þó eitthvað í að al- menn nýting upplýsingatækni nái fótfestu í leikskólastarfi, þar sem einungis 5,2 prósent foreldra sögð- ust fá upplýsingar um daglegt starf leikskólans á heimasíðu leik- skólans og 6,9 prósent í tölvupósti. Þó má væntanlega rekja þessa staðreynd til þess að leikskólar eru persónulegir vinnustaðir, þar sem foreldrar eru í nánum dag- legum samskiptum við starfsfólk. Mikill meirihluti foreldra, eða 90 prósent, taldi æskilegt að athug- anir og skráning á námi og þroska barnsins færi fram og töldu 75 prósent æskilegt að þær upplýs- ingar, sem þar kæmu fram, færu frá leikskólanum yfir til grunn- skólans. Sumarlokanir leikskólanna mæltust ekki vel fyrir og vildu 66 prósent foreldra hafa leikskólann opinn allt árið, en 21 prósent töldu æskilegt að honum væri lokað yfir ákveðið tímabil. Viðhorfskannanir meðal foreldra leikskólabarna hafa verið gerðar á hverju ári síðan 1999 og er að- almarkmið þeirra að safna upplýs- ingum um viðhorf foreldra í því skyni að efla samstarf og sam- skipti við foreldra. Almenn ánægja með leik- skólastarf í Reykjavík Morgunblaðið/Ómar Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.