Morgunblaðið - 12.08.2003, Qupperneq 14
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILL viðbúnaður er hjá
lögreglunni í London vegna
upplýsinga, sem henni hafa
borist um hugsanlegar hryðju-
verkaárásir al-Qaeda í borg-
inni. Koma þessar upplýsingar
frá FBI, bandarísku alríkislög-
reglunni, en að hennar sögn eru
margir al-Qaeda-menn saman-
komnir í London. Lundúnalög-
reglan segist vera vel undir það
búin að fást við hugsanlega
hryðjuverkamenn en Patrick
Mercer, talsmaður Íhalds-
flokksins í innanríkismálum,
sakar ríkisstjórnina um að taka
ekki ógnina nógu alvarlega.
Lögreglan hefur tvisvar áður
haft jafnmikinn viðbúnað og nú.
Í janúar á þessu ári þegar eit-
urefnið rísin fannst í íbúð í
borginni og í febrúar en þá voru
skriðdrekar og hermenn látnir
umkringja Heathrow-flugvöll.
Napalmi
beitt í Írak
BANDARÍSKIR herflugmenn
vörpuðu napalm-sprengjum á
Íraka í árásunum á Bagdad. Er
skýrt frá því í breska blaðinu
The Independent en napalm er
hlaupkennt efni, sem brennur
og límist við húð og annað, sem
fyrir verður. Pentagon eða
bandaríska hermálaráðuneytið
hafði áður neitað því að hafa
notað napalm en blaðið segir,
að bandarískir herflugmenn og
yfirmenn þeirra viðurkenni nú
að hafa notað nýja tegund af
napalm vegna þeirra sálfræði-
legu áhrifa, sem beiting þess
hafi. Sérstakur sáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna frá 1980 bann-
ar notkun napalms en Banda-
ríkin eru eitt fárra ríkja, sem
ekki hafa undirritað hann.
Hótaði Shar-
on dauða
UNGUR Ísraeli var handtek-
inn í gær skammt frá heimili
Ariels Sharons, forsætisráð-
herra Ísraels, eftir að hafa hót-
að að drepa hann. Zvia Cohen,
talsmaður lögreglunnar, sagði,
að um væri að ræða íbúa í lítilli
gyðingabyggð í borginni Hebr-
on á Vesturbakkanum. Sagði
hún, að maðurinn hefði verið
með mótmælaspjald rétt við að-
setur Sharons og þegar hann
var inntur eftir því hvað hann
væri að gera, svaraði hann:
„Forsætisráðherrann drap vin
minn og nágranna. Ég læt mig
ekki muna um að drepa hann.“
Að því sögðu reyndi maðurinn
að flýja burt en var handtekinn.
Mörg sjálfs-
víg í Rúss-
landi
UM 60.000 Rússar styttu sér
aldur á síðasta ári og er hlut-
fallið því 38,4 af 100.000. WHO,
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
telur hlutfallið 20 af 100.000
mjög alvarlegt en hæst er það í
Litháen, 52 af 100.000. Einn af
hverjum 1.000 rússneskum
karlmönnum á aldrinum 45 til
57 ára fyrirkom sér á síðasta
ári. Meginástæða flestra sjálfs-
víganna eru félagsleg vanda-
mál.
STUTT
Óttast
al-Qaeda-
árás í
London
DAVID Kelly braut trúnað við
bresku ríkisstjórnina er hann ræddi
við blaðamenn um skýrslu stjórn-
arinnar um gereyðingarvopnaeign
Íraka, að því er Richard Hatfield,
starfsmannastjóri í varnarmála-
ráðuneytinu, hélt fram í gær, við
vitnaleiðslur hjá nefnd sem rann-
sakar dauða vopnasérfræðingsins.
Samstarfsmaður Kellys bar einnig
vitni og lýsti hann Kelly sem „af-
burða“-vísindamanni sem með
starfi sínu hefði átt þátt í að af-
hjúpa leynilega sýklavopnaáætlun
Saddams Hussein á tíunda áratugn-
um.
Richard Hatfield sagði að Kelly
hefði átt að vera ljóst að hann hefði
farið út fyrir leyfileg mörk er hann
ræddi við Andrew Gillingan, frétta-
mann BBC. Í frétt stöðvarinnar var
því haldið fram að í skýrslu rík-
isstjórnarinnar um hættuna af ger-
eyðingarvopnum Íraka hefðu verið
ýkjur svo að réttlæta mætti herför
á hendur Saddam Hussein Íraks-
forseta. Bent hafði verið á Kelly
sem hugsanlegan heimildarmann að
frétt BBC og staðfesti varnarmála-
ráðuneytið það og var mikið gagn-
rýnt fyrir. Kelly mætti við yfir-
heyrslur hjá nefnd þingsins í júlí en
nokkrum dögum síðar stytti hann
sér aldur.
Hatfield benti á að samkvæmt
grundvallarreglum ráðuneytisins
hefði Kelly ekki mátt tjá sig um eða
gera leynilegar upplýsingar opin-
berar og ekki ræða „umdeild póli-
tísk málefni“. Hann viðurkenndi þó
að hluti af starfi Kellys hefði verið
að upplýsa fjölmiðla en svo virtist
þó sem hann hefði gengið of langt
er hann ræddi við Gilligan.
„Samkvæmt því sem hann hefur
sjálfur upplýst virðist hann hafa átt
tvo fundi með Gilligan og fóru báðir
fram utan bygginga varnarmála-
ráðuneytisins. Enginn vissi um
fundina og samkvæmt lýsingu Kell-
ys á því sem þar fór fram gekk
hann greinilega lengra en að upp-
lýsa um tæknileg atriði,“ sagði Hat-
field.
Lofaði Kelly óspart
Vitnaleiðslurnar sem búist er við
að taki marga mánuði eru taldar
munu hafa úrslitaáhrif á pólitíska
framtíð Tonys Blair í verkamanna-
flokknum en einnig séu þær próf-
steinn á áreiðanleika breska rík-
isútvarpins, BBC.
Terence Taylor frá Alþjóðlegu
herstjórnarstofnuninni í Wash-
ington og fyrrverandi samstarfs-
maður Kellys í Írak lofaði Kelly
óspart er hann bar vitni í gegnum
myndsíma frá Ástralíu. „Starf hans
í Írak var ótrúlega árangursríkt,“
sagði hann en Kelly tók þátt í 35
vopnaleitum í Írak á árunum 1991–
1998. Taylor sagðist hafa átt samtal
við hann fjórum dögum fyrir dauða
hans en það hefði snúist um þá
áætlun Kellys að taka þátt í
vopnaleitarstarfi í Írak undir stjórn
Bandaríkjamanna.
„Það var honum greinilega of-
arlega í huga þegar við töluðum
saman,“ sagði Taylor og bætti við
að Kelly hefði ekki minnst á deilu
ríkisstjórnarinnar og BBC.
Fyrstu vitnaleiðslurnar í Kelly-málinu eru hafnar
Segir Kelly hafa brotið
trúnað við stjórnina
Lundúnum. AP, AFP.
AP
Teikning úr réttarsalnum þar sem vitnaleiðslurnar fóru fram í gær. Hutt-
on lávarður sem stjórnar rannsókninni er fyrir miðju og hlustar á Terence
Taylor, samstarfsmann Davids Kellys, bera vitni um myndsíma.
BRESKIR vísindamenn hafa
fundið ensím sem þeir telja
að sé ein helsta orsök æða-
kölkunar og þar með hjarta-
sjúkdóma. Þeir telja að með
því að stöðva virkni ensíms-
ins megi hindra að fitulag
myndist innan á stórum slag-
æðum og þannig megi í
mörgum tilvikum koma í veg
fyrir hjartasjúkdóma, að því
er fram kemur á fréttavef
BBC.
Vísindamennirnir, sem
starfa við háskólann í Leeds
á Englandi, tóku eftir því að
magn ákveðins ensíms, ECE,
og próteinsins ET-1 sem það
framleiðir var meira hjá
þeim sem þjáðust af æða-
kölkun og háu kólesteróli en
heilbrigðu fólki. Með því að
hamla virkni ensímsins telja
þeir að hægt sé að minnka
magn próteinsins og þar með
hindra æðakölkun. Hyggjast
þeir reyna að þróa lyf sem
hefði þá virkni og ynni á
svipaðan hátt og æðavíkk-
andi lyf sem tilheyra flokki
svokallaðra ACE-hemla en
þeir virka á annað ensím í
líkamanum sem hækkar
blóðþrýsting.
Þróun lyfs
tekur fimm ár
Tony Turner prófessor við
lífefnafræðideild háskólans
segir að rannsóknum á ens-
íminu verði haldið áfram en
vonast er til að hér geti orðið
um nýja kynslóð æðavíkk-
andi lyfja að ræða. „Við
munum reyna að finna leiðir
til að hamla virkni ensíms-
ins,“ sagði hann og bætti við
að til væru efni sem gera
það. Hann sagðist vonast til
að hægt yrði að þróa slíkt lyf
og að hann byggist við það
gæti tekið um fimm ár.
Helsta or-
sök æða-
kölkunar
fundin?
flytjendum um heilbrigðisþjónustu
og aðgang að opinberum skólum.
Tillagan, sem var kennd við töluna
187, var afar umdeild en fjöldi ólög-
legra innflytjenda, aðallega frá
Mexíkó, býr í Kaliforníu og Davis
var tillögunni andvígur.
Olli þetta því að margir kjósendur
sem eiga rætur að rekja til Mexíkó
og fleiri spænskumælandi ríkja
sneru baki við Repúblikanaflokkn-
um sem studdi tillöguna. Hún var
samþykkt með miklum meirihluta
en síðar var úrskurðað að hún
stangaðist á við stjórnarskrána.
Talsmaður Schwarzeneggers,
sem sjálfur er innflytjandi frá Aust-
urríki, sagði að leikarinn hefði
fyllstu samúð með fólki sem færi til
Bandaríkjanna í leit að betra lífi,
hvort sem það hefði komið með lög-
legum eða ólöglegum hætti. „En
hann hvikar ekki frá því að fólk eigi
að komast hingað með löglegum
hætti,“ sagði talsmaðurinn, George
Gorton.
Hann rifjaði upp að Schwarzen-
egger hefði í fyrra barist fyrir tillögu
um að varið yrði 550 milljónum doll-
ara, meira en 40 milljörðum króna, til
að efla menntun þeirra sem litla
skólagöngu hafa fengið. Áðurnefndur
Cruz Bustamante sagði í gær í sjón-
varpsviðtali að samfélag innflytjenda
í Kaliforníu myndi vísa á bug þeirri
„mjög svo kaldranalegu stefnu“ að
kenna ólöglegum innflytjendum um
fjárhagsvanda ríkisins.
ritið The Economist segir að hann
eigi eftir að koma mörgum á óvart í
kosningabaráttunni. Hann sé vel gef-
inn og ágætlega að sér um mörg mál-
efni.
Höfðað til innflytjenda
Staðfest var í gær að Schwarzen-
egger greiddi árið 1994 atkvæði með
tillögu í þjóðaratkvæði þar sem
ákveðið var að meina ólöglegum inn-
ALLS hafa 193 manns boðið sig
fram í embætti ríkisstjóra Kaliforníu
en kosið verður 7. október. Núver-
andi ríkisstjóri, demókratinn Gray
Davis, er afar óvinsæll vegna þess að
fjármál ríksins eru í algerum hnút og
geigvænlegur halli á fjárlögum.
Hann var endurkjörinn í fyrra en
samt tókst andstæðingum hans að
safna á þessu ári nær milljón undir-
skriftum á yfirlýsingu þar sem kraf-
ist var að kosið yrði á ný.
Davis segir að væntanlegar kosn-
ingar séu „móðgun við þær átta
milljónir manna sem fóru á kjörstað í
nóvember sl. og ákváðu að ég skyldi
vera ríkisstjóri“. Meðal þeirra sem
gefið hafa kost á sér er helsti and-
stæðingur Davis í fyrra, repúblikan-
inn Bill Simon. En mun fleiri lýsa í
skoðanakönnunum yfir stuðningi við
kvikmyndaleikarann og repúblikan-
ann Arnold Schwarzenegger.
Davis missir embættið ef hann
nær ekki 50% fylgi. Sögðu 42% að-
spurðra í könnun sem gerð var fyrir
CNN og fleiri fjölmiðla vel geta
komið til greina að þeir kysu
Schwarzenegger. Næstur í röðinni
var demókratinn Cruz Bustamante,
sem er vararíkisstjóri, með 22% en
64% aðspurðra sögðust sammála því
að Davis ætti að víkja.
Mörgum þykir þó Schwarzenegger
að mörgu leyti óskrifað blað í stjórn-
málum þótt hann sé heimsþekktur
fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum
um Tortímandann. En breska tíma-
Demókratar sækja
að Schwarzenegger
Leikarinn greiddi atkvæði með tillögu um að meina
ólöglegum innflytjendum um félagslega þjónustu
Mynd af Arnold Schwarzenegger prýð-
ir forsíðu næsta heftis Ameríkuútgáfu
tímaritsins Time. Þar er gert góðlátlegt
grín að enskum framburði kappans.
Los Angeles, Sacramento, AP.
Reuters
LEITARSKIP á vegum norska rík-
isolíufélagsins Statoil hefur óvænt
fundið olíu í jarðlögum undir hafs-
botninum vestur af Þrændalögum,
á svonefndu Elliða-svæði, að sögn
Aftenposten. Áður var talið að á
þessum slóðum væri eingöngu um
gaslindir að ræða.
Hafdýpið á Elliða-svæðinu er
víða um 1200 metrar. Blaðið segir
að jarðfræðingar verði nú að endur-
skoða allar hugmyndir sínar um
hafsbotninn út af vesturströnd Nor-
egs og hefur eftir heimildarmönn-
um sínum að líklega sé þar að finna
mun meiri olíu en áður var talið.
Talsmaður Statoil vill þó ekki tjá
sig um málið og segir að enn sé
mikil óvissa um niðurstöður leit-
arinnar.
Olía út af
Þrændalögum
ÁFENGI kemur við sögu í fjórum af
hverjum 10 umferðarslysum sem
ungmenni á aldrinum 18-25 ára eiga
sök á í Heiðmerkur-fylki í Noregi, að
sögn Aftenposten. Ef litið er á hlut-
fallið meðal allra aldursflokka er það
aðeins um 20% eða helmingi lægra.
Rannsókn sem yfirvöld umferðar-
mála létu gera sýndi ennfremur að
um 75% slysanna urðu þegar ekið
var mjög hratt og aðeins þriðjungur
ungmennanna notaði bílbelti. Á hinn
bóginn nota 90% annarra ökumanna
í Noregi beltin.
Ungir stútar
við stýri
♦ ♦ ♦