Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 32

Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                        ! "# #  $    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á EFRI árum starfaði Halldór E. Sigurðsson í Búnaðarbankanum. Nú er bankinn kominn með að- stöðu í Hafnarstræti 5 og hefir gert brú yfir strætið. Nú stendur til að flytja Hringbrautina til að Landspítalinn geti verið áfram norðan götunnar. Hefði Halldór látið menn- ina gera göng undir göt- una? Það hefir allavega engum dottið í hug að það þyrfti að flytja Hafnar- strætið út í Tryggvagötu vegna þessara umsvifa bankans. Í Morgunblaðinu 9. ágúst er viðtal við Hrund Skarphéðinsdóttur sen nýlega lauk meistara- prófi í skipulagsfræðum frá KTH í Stokkhólmi. Hrund leggur til að Reyk- víkingar taki upp s.k. net- skipulag svona eins og er í Barcelona og New York, hætti með þetta blind- götu- og botnlangakerfi. Hrund er með hugmyndir um að þétta byggð við Miklubraut til að draga úr öku- hraða. Þetta er ekki hægt því gatan rétt annar umfeðinni eins og er. Umferðarljós eru stillt þannig að umferðarhraði jaðrar við að vera ólöglegur og eru limlestingar í hlut- falli við það, þegar óhöpp verða. Skipulagsyfirvöld gætu kíkt á Suð- urlandsbraut, þar má örugglega setja íbúðarhæðir ofan á vannýtt verslunarhús og svo má hafa „pent- house“ ofaná með útsýn yfir Laug- ardal, með Akrafjall og Skarðsheiði í bakgrunni. Annars er þetta botn- langakerfi ekki alvont, það er nefni- lega atvinnuskapandi, það skapar vinnu fyrir bílaframleiðendur, brotajárnssala, tryggingafélög, mal- bikunarstöðvar, lögreglu, og heil- brigðisgeirann. Svo nokkuð sé nefnt. Það má meira að segja sýna fram á að þetta auki hagvöxt því hann er miðaður við fjölda launaðra starfa. Ef eitt starf tapast vegna umferðarslyss verða til tvö í umönnun og hjúkrun. GESTUR GUNNARSSON, tæknifræðingur, Flókagötu 8, Reykjavík. Netskipulag Frá Gesti Gunnarssyni Morgunblaðið/Júlíus Umferð á Miklubraut. Á FUNDI borgarráðs þann 24. júní síðastliðinn var samþykkt að leggja niður gæsluvöllinn við Frostaskjól sem er síðasti gæslu- völlurinn í Vesturbænum. Vel má vera að endurskoðun á framtíðarskipan gæsluvalla sé tímabær. Aukin þjónusta leik- skólanna í Reykjavík hefur dregið úr eftirspurn þessarar þjónustu. Vel má vera að dræm aðsókn stafi líka af því að þessi valkostur er lítt kynntur fyrir foreldrum. Þeir foreldrar sem notfæra sér þessa þjónustu eru mjög ánægðir með hana. Á sumrin, þegar leikskólarnir loka vegna sumar- leyfa, er þörfin fyrir gæsluvelli augljós. Í Vesturbænum eru í dag starf- andi 19 leikskólar. Reykjavíkur- borg rekur 15 þeirra og 4 eru einkareknir. Kostnaðaraukinn við einn gæsluvöll getur varla riðið baggamuninn. Á fundi hverfisráðs Vesturbæj- ar, sem haldinn var föstudaginn 8. ágúst síðastliðinn, var samþykkt samhljóða eftirfarandi tillaga Árna Þórs Sigurðssonar borgarfulltrúa, en Árni er formaður Hverfisráðs- ins: „Hverfisráð Vesturbæjar hvetur leikskólaráð til að endurskoða ákvörðun um að enginn gæsluvöll- ur verði starfræktur í Vesturbæ frá og með 15. ágúst nk. Hverfisráðið telur nauðsynlegt að Vesturbæingar eigi áfram kost á þeirri þjónustu sem felst í starf- semi gæsluvallar í hverfinu.“ (Úr fundargerð hverfisráðsins á vef Reykjavíkurborgar). Ég veit að nokkrir áhyggjufullir foreldrar í Vesturbænum safna þessa dagana undirskriftum, þar sem borgaryfirvöld eru hvött til að leyfa gæsluvellinum við Frosta- skjól að starfa áfram. Ég vænti þess að borgarráð taki vel í ósk þeirra. GÍSLI RAGNARSSON, Aflagranda 27, Reykjavík. Gæsluvöllinn við Frostaskjól áfram Frá Gísla Ragnarssyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.