Morgunblaðið - 12.08.2003, Page 34
DAGBÓK
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Helgafell og Skóg-
arfoss koma í dag.
Oceanus og Christa
Kerstin fara í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 16–18.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, Hvassaleiti
56–58 og Hæð-
argarður 31. Farið
verður í Hvalfjörð,
Svínadal og að Hvann-
eyri nk. fimmtudag,
14. ágúst. Hvalfjörður
ekinn að Bjarteyj-
arsandi, þar verður
hlustað á tónlist og
skoðað Gallerí Álfhóll,
þaðan farið í kaffiveit-
ingar að Skessu-
brunni. Síðan farið að
Hvanneyri og síðast
stutt stopp í Borg-
arnesi. Leið-
sögumaður Anna
Þrúður Þorkelsdóttir.
Lagt af stað frá Norð-
urbrún 1, kl. 12.30 og
síðan teknir farþegar í
Furugerði. Uppl. og
skráning í Norð-
urbrún s. 568 6960, í
Furugerði s. 553 6040,
í Hvassaleiti s.
553 2720 og í Hæð-
argarði s. 568 3132.
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað, vinnustofa, kl. 13
vinnustofa. Sigvaldi
kynnir línudans kl.11
í hreyfisal, bankinn
kl.10.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 dans, kl.
10.30 leikfimi, Kl.
13.30 létt ganga. Pútt-
völlur opinn mánudag
til föstudags kl. 9–
16.30. .
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun,
hárgreiðslustofafn op-
in, kl. 10 samveru-
stund.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–16 vefnaður, kl. 10–
13 opin verslunin, kl.
13.30 myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
opin vinnustofa, leik-
fimi byrjar aftur 2.
sept., kl. 12.40 versl-
unarferð í Bónus, kl.
12 hárgreiðsla. Bóka-
bíllinn er í fríi til 9.
sept.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Brids kl 13, biljard kl.
13.30. Púttæfingar á
Hrafnistuvelli kl. 14–
16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Miðvikudagur: Göngu-
hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 9.45.
S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Opið frá kl.
9–16. 30 m.a. spilasal-
ur opinn frá hádegi, kl.
13 boccia. S. 575–7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17, kl. 14 ganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan
er opin frá kl. 9–17
virka daga, heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
kaffi, spjall, dagblöðin,
kl. 10 boccia, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 boccia. Fótaaðgerð-
ir, hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 13–16
frjáls spil.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20,
svarað í s. 552 6644 á
fundartíma.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju s. 520-1300
og í blómabúðinni
Holtablóminu, Lang-
holtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn, s. 555 0104,
og hjá Ernu, s. 565
0152 (gíróþjónusta).
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er þriðjudagur 12. ágúst,
224. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Því getum við öruggir sagt:
Drottinn er minn hjálpari, eigi
mun ég óttast. Hvað geta menn-
irnir gjört mér?
(Hebr. 13, 6.)
Á laugardaginn fórfram hin árlega
skrúðganga samkyn-
hneigðra í Reykjavík.
Þrátt fyrir að veðrið væri
ekki með besta móti er
talið að um tuttugu þús-
und manns hafi lagt leið
sína í miðbæinn til að
fylgjast með hátíðarhöld-
unum og sýna baráttu-
málum samkynhneigðra
stuðning.
Í ritstjórnarpistli á
Deiglunni.com er fjallað
um þessi hátíðarhöld.
„Sem betur fer hefur
réttindabarátta samkyn-
hneigðra skilað miklum
árangri á umliðnum ára-
tugum. Í dag eru það
ekki samkynhneigðir
sem þykja óeðlilegir,
heldur eru hinir, sem enn
sjá ástæðu til að amast
við ásthneigð annars
fólk, álitnir fremur
skrýtnir. Þetta er mikil
breyting frá því sem áður
var,“ segir í pistlinum.
Þar er einnig vitnað íhátíðarávarp Mar-
grétar Pálu Ólafsdóttur.
Hún sagði m.a.: „Krafta-
verk hafa unnist og eitt
þeirra á sér stað á þess-
ari stundu. Það krafta-
verk erum við öll sem
stöndum hér undir
regnbogafánunum og
staðfestum nýju heims-
mynd sem rúmar og leyf-
ir allt litróf mennskra til-
finninga. Það er
ótrúlegra en orð fá lýst
að hugsa tíu ár aftur í
tímann. Þá var fyrsta op-
inbera ganga samkyn-
hneigðra farin um götur
Reykjavíkurborgar.
Fyrsta gangan okkar –
og hún taldi aðeins 69
manns sem þá þorðu að
standa með lífi sínu og
vera sýnileg í íslenskri
dagsbirtu.“
Deiglan tekur undir aðbreytingin sé mikil
og bendir á að sennilega
sé meirihluti þeirra sem
nú tekur þátt í hátíð-
arhöldunum gagnkyn-
hneigður. Þá segir: „Þeir
sem trúa á einstaklinginn
og bera virðingu fyrir
náunganum hljóta að
viðurkenna rétt annarra
til að höfða lífi sínu eftir
eigin tilfinningum. Það
er eitthvað ankannalegt
við þann hugsunarhátt að
amast sérstaklega við því
að hópar fólks hafi ekki
sömu hneigðir í ásta-
málum og maður sjálfur.
Ef svo væri þá gæti hver
einasti karlmaður senni-
lega, með sömu rökum,
orðið æfur yfir því ef aðr-
ir karlmenn girntust ekki
eiginkonu þeirra af sömu
ákefð og hann sjálfur.“
Þá er vitnað á ný tilorða Margrétar Pálu.
Hún segir að nú þegar
samkynhneigðir séu
komnir út úr skápnum
séu það fordómarnir sem
hafi komið sér fyrir í
skápnum. Hún segir:
„Við, lesbíur og hommar,
vitum nefnilega öllum
betur að í skápnum
magnast allt sem nei-
kvætt er – þar þrífst ekk-
ert af viti; það er óttinn,
skömmin og hatrið sem
ræður ríkjum í skápn-
um.“
STAKSTEINAR
Fordómarnir komnir
inn í skápana
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur fylgst af áhugameð deilum um lokun gæsluvall-
ar í Vesturbæ enda einn þeirra er
hafa verið duglegir við að nýta sér
þjónustu vallarins í sumar. Þar sem
ekki reyndist unnt að samræma
sumarfrí fjölskyldunnar við sum-
arlokun Leikskóla Reykjavíkur má
segja að þessi gæsluvöllur hafi í
raun bjargað því sem bjargað varð.
Þjónusta á vellinum er til fyr-
irmyndar í alla staði og greinilegt að
börnunum finnst gaman að dvelja
þar.
Það kom því Víkverja líkt og
mörgum öðrum foreldrum spánskt
fyrir sjónir að heyra fréttir af því að
til stæði að loka vellinum enda eini
gæsluvöllurinn sem eftir er í Vest-
urbænum.
Víkverji hafði áður nýtt sér þjón-
ustu gæsluvallar við Vesturgötu
vegna eldra barns en sá völlur hefur
verið lokaður um nokkurt skeið.
Það mun vera stefna borgarinnar
að fækka gæsluvöllum í borginni
verulega þar sem dregið hefur úr
eftirspurn með auknu framboði leik-
skólarýma. Þeir eru hins vegar
margir sem reiða sig á þjónustu
gæsluvalla í lengri eða skemmri
tíma. Greinilegt er á samtölum Vík-
verja við aðra foreldra að mörgum
er mikið niðri fyrir vegna þessa
máls.
ÞAÐ var sorglegt að lesa frétt umað skemmdarverk hefðu verið
unnin á ljósmyndum fransks ljós-
myndara sem verið hafa til sýnis á
Austurvelli í sumar. Þótt Víkverji
hafi ákveðnar efasemdir um stað-
setningu sýningarinnar hefur hann
margsinnis í gönguferðum um mið-
borginnni staldrað við til að dást að
þessum fjölbreyttu og mikilfenglegu
myndum er sýna okkur fjölbreyti-
leika jarðarinnar í forvitnilegu ljósi.
Hvernig stendur á því að ekki er
hægt að láta listaverk sem þessi í
friði? Hvers vegna þurfa sumir að
ganga um miðborgina með þeim
hætti sem raun ber vitni? Víkverji
veltir því stundum fyrir sér hvort
þessi ungmenni ganga jafnilla um
heima hjá og þau virðast telja sjálf-
sagt er þau halda í miðborg Reykja-
víkur.
x x x
SÚ skemmdarfýsn sem þarnakemur í ljós er okkur öllum til
háborinnar skammar. Getur verið
að ekki sé einungis einstaka brengl-
uðum einstaklingum um að kenna
heldur það að viðhorfin í samfélag-
inu séu með þeim hætti að þetta sé
bara „allt í lagi“? Þeir sem einhvern
tíma hafa lagt leið sína um miðborg-
ina síðla kvölds á föstudegi eða
laugardegi hafa flestir orðið vitni að
þeim skrílshætti er virðist einkenna
framkomu margra. Brotnar flöskur,
brotnar rúður og önnur skemmd-
arverk eru það sem einkennir mið-
borgina flestar helgar. Vanvirðingin
fyrir eigum annarra er algjör. Það
sama má segja um veggjakrotið sem
alls staðar virðist vera að finna. Ef
við viðurkennum hegðun sem þessa
er ekki í langt í að líta á skemmdir á
útilistaverkum sem lítið mál.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Engin virðing fyrir eigum annarra.
Á ÚTVARPI Sögu er flutt
vandað og fræðandi efni,
einnig er tekið á ýmsum
málefnum á vandvirkan
hátt. Fólk getur hringt og
tjáð sig um það sem því
liggur á hjarta. Oft eru
fjörlegar og skemmtilegar
umræður í beinni útsend-
ingu, þar sem sýnist sitt
hverjum eins og gengur.
Alls konar fólk er hlustend-
ur, eldra fólk sem yngra,
vinnandi fólk jafnt sem þeir
sem heima sitja. Margir
eru einmana hér í sam-
félagi hraðans og er þessi
útvarpsstöð þessu fólki
kærkomin og er bókstaf-
lega vörður um sálarheill
þess. Því vil ég skora á yf-
irmenn Norðurljósa að
reyna allt sem þeir geta til
þess að þessi stöð geti hald-
ið áfram.
Ég veit að margir fylgja
mér að málum. Með kveðju,
Sigrún Ármanns
Reynisdóttir.
Lækkum tónlistina
MÉR þykir afskaplega
hvimleitt hve hátt tónlist er
stillt á skemmtistöðum og
kaffihúsum hér á landi.
Eftir ferð á skemmtistað
kem ég oftar en ekki út
með hellu og hvin fyrir eyr-
um. Þetta fær varla sam-
ræmst reglugerðum Vinnu-
eftirlitsins og er þess utan
fleirum en mér til ama.
Tónlist verður ekkert betri
við það að vera stillt svo
hátt að verkjar undan.
Miðbæjarrotta.
Svar við hundagrein
VELVAKANDA hefur
borist eftirfarandi athuga-
semd við grein um hunda-
hald í Hafnarfirði sem birt-
ist 10. ágúst: „Þú sagðir að
hundurinn hefði fengið að
vera án bands þarna, svo ég
verð að spurja hvort hinir
hundarnir hafi verið í
bandi. Getur verið að eft-
irlitsmaðurinn hafi verið að
setja út á það? Það eru allt-
of margir hundaeigendur
sem hafa hundana sína
lausa og enn fleira fólk sem
er hrætt við hunda. Hafn-
arfjarðarbær hugsar of lít-
ið um svona mál og þegar
einhvers konar hátíðir eru
á Víðistaðatúni þá er
hundahald yfirleitt ekki
leyft en alltof margir mæta
með hundana sína. Það er
þó gott að vita að sumir
hundaeigendur eru heiðar-
legir.“
Ein hrædd við hunda.
Allir á Enga óþekkt
ÁSTÆÐA er til að hvetja
fólk til að sjá uppfærsluna á
„Aint’ Misbehavin’“ í Loft-
kastalanum. Sýningin, sem
byggist á djassmúsík Fats
Wellers og nefnist á ís-
lensku „Engin óþekkt“, er
frábær skemmtun og svo
vel gerð að mér finnst hún
ekki gefa eftir upprunalegu
sýningunni sem ég sá fyrir
margt löngu erlendis.
Reynir T. Geirsson.
Til kattaeigenda
MUNIÐ að merkja kisurn-
ar ykkar. Ekki er nóg með
að kisa sé með ól eða eyrna-
merkt. Það verður að vera
merki með heimilisfangi og
símanúmeri. Látið líka
gelda kisurnar ykkar. Nóg
er framboðið af kettlingum.
Kisumamma.
Tapað/fundið
Rangt númer með
bláu skónum
Í VELVAKANDA birtist
um helgina orðsending frá
borgara sem fann bláa
barnaskó við Höfðabakka-
brekku. Svo virðist sem
símanúmer viðkomandi
hafi misritast en kona
nokkur hringdi og telur
þarna kominn skó sem son-
ur hennar á. Er sá sem
fann bláu skóna beðinn að
hringja í síma 868 1124.
Armband fannst
ARMBAND fannst í Ábæj-
arkirkju við Merkigil. Eig-
andi má hringja í síma
699 1813.
Sími týndist
við Selfoss
SVARTUR og hulsturslaus
sími af gerðinni Nokia 3310
týndist, væntanlega við
verslun Uppgripa á Sel-
fossi eða á leið þaðan í
Galtalæk. Ef einhver skyldi
hafa fundið símann má sá
hinn sami gjarna hringja í
Fregn í síma 557 5712.
Derhúfa og eyrna-
band fundust
TIMBERLAND derhúfa
fannst rétt hjá bænum
Stöng í Þjórsárdal við upp-
lýsingaskilti. Einnig fannst
dökkgrænt eyrnaband með
h-merki á sama stað. Upp-
lýsingar í síma 662 1844
milli kl. 14 og 17.
Þrífætur í óskilum
TVEIR þrífætur undan
kvikmyndatökuvél eru í
óskilum á lögreglustöðinni í
Keflavík. Fæturnir fundust
á Njarðarbraut á Fitjum í
Njarðvík sl. þriðjudag.
Upplýsingar má fá hjá lög-
reglunni í Keflavík í síma
420 2400.
Dýrahald
Tígri týndur
KÖTTURINN Tígri týnd-
ist frá Lækjarhvammi í
Hafnarfirði á fimmtudag.
Hann er brúnbröndóttur
með silfurlitaða ól, en á
henni er rautt merki. Ef
einhver sér til hans þá vin-
samlega komið honum
heim til sín. Símar eru
565 0143 og 698 1811.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Áfram
Útvarp Saga
LÁRÉTT
1 tilkynnir, 8 sleifin, 9
haldast, 10 ferskur, 11
laska, 13 annríki,
15 grunsemdar, 18 frá-
sögnin, 21 mjólk í mál, 22
metta, 23 viljugu, 24
álappalegt.
LÓÐRÉTT
2 gæsla, 3 systir, 4
menga, 5 liðormurinn, 6
afkvæmi, 7 nagli, 12 ætt,
14 spil, 15 næðing, 16
furða sig á, 17 fátæk, 18
sæti, 19 skarpskyggn, 20
þrenging.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hagur, 4 hopar, 7 gruns, 8 ómótt, 9 ann,
11 róar, 13 æska, 14 ældir, 15 tærð, 17 alda, 20 eik,
22 putti, 23 regns, 24 reisa, 25 tosar.
Lóðrétt: 1 hugur, 2 gaufa, 3 rósa, 4 hjón, 5 plógs,
6 rætna, 10 næddi, 12 ræð, 13 æra, 15 tapar, 16 rotni,
18 logns, 19 ansar, 20 eira, 21 Krít.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16