Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 36
PÆJUMÓT Á SIGLUFIRÐI
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Pæjumót Þormóðs ramma/Sæ-bergs var haldið á Siglufirði í 11.
sinn um helgina. Mótið hefur vaxið ár
frá ári og keppendur
í ár voru um 1.100
talsins og má áætla
að um 3–4 þúsund
gestir hafi komið til
Siglufjarðar til að fylgjast með þeim
liðlega 450 leikjum sem fram fóru í
einstakri veðurblíðu.
Fótboltamót sem þetta er í raun
einstök upplifun, bæði fyrir keppend-
ur og áhorfendur. Keppnin er mis-
mikil og skilningurinn á íþróttinni
sem slíkri líka, en allt gengur þetta út
á að spila fótbolta sem hver getur og
allir skilja ánægðir að lokum. Eitt af
því sem athygli vekur er að hvert mót
hefur sína eigin tísku. Flétturnar
nauðsynlegu eru útfærðar með mis-
munandi hætti ár frá ári og sama má
segja um andlitismálninguna, hvatn-
ingarhrópin og „fögnin“, sem greini-
lega hafa verið æfð í þaula áður en
farið var af stað.
Nokkuð hefur verið rætt um hegð-
un foreldra, liðsstjóra og þjálfara á
mótum sem þessu, en í einstaka til-
vikum hafa orð eða athafnir í hita
leiksins varpað skugga á gleðina. Þór-
ir Hákonarson mótstjóri sagði slík
vandamál ekki hafa komið upp nú.
Þórir sagði mótið hafa tekist framar
öllum vonum. Því miður væri hinsveg-
ar svo komið nú að mótið hefði náð há-
marksstærð og ekki möguleiki að
fjölga keppendum meira. Eftirspurn-
in væri svo mikil að það þyrfti að tak-
marka fjöldann. Hann sagði það sitt
mat að einn helsti lykillinn að vin-
sældum mótsins væri hversu mikil
áhersla hefði alla tíð verið lögð á að
allar tímasetningar varðandi leiki og
aðra atburði stæðust. Hann nefndi
sem dæmi að á laugardeginum hefðu
verð spilaðir um 250 leikir og seink-
unin hafi vart náð nema fjórum mín-
útum í heildina. Þórir sagði að líklega
hefðu um 250 manns komið með ein-
um eða öðrum hætti að mótinu og þar
væri unnið mjög óeigingjarnt starf.
„Ég verð reyndar að viðurkenna að
veðrið hjálpaði okkur töluvert því að
einhvern veginn vilja vandamálin
blása meira út í rigningu og roki,“
sagði Þórir og brosti hinn ánægðasti.
Morgunblaðið/Halldór Þormar
Stjörnustúlkur voru fjölmennar á Siglufirði og hér er hluti hópsins saman kominn fyrir utan höf-
uðstöðvar félagsins nyrðra.
Ungar knattspyrnudömur úr Fjölni brosa sínu blíðasta.
Hverju ári fylgir ákveðin andlitsmálun og hárið er greitt á sér-
stakan hátt. Hér er ein Haukadama gerð klár í slaginn.
Fjör hjá stelpunum í fimmta flokki Leiknis á Fáskrúðsfirði.Þessar stúlkur vita hvaða lið er best; auðvitað Þór frá Akureyri.
Það var æft og æft. HK-
dömur æfðu vel, líka á með-
an þær fóru í fótabað í Hólsá
Hafa auga á boltanum. Ungar stúlkur úr Stjörnunni og Þrótti
Neskaupstað horfa stíft á boltann.
Fjör á Pæjumóti
Það þarf að hita vel upp fyrir leiki og teygja eftir hvern leik. Hér
eru það Grafarvogsbúar sem gera nokkrar léttar teygjur.
Lífið er ekki bara fótbolti. Brugðið á leik við ungar Þórsstúlkur.
Halldór
Þormar
skrifar