Morgunblaðið - 12.08.2003, Side 43
BRESKI leikstjórinn Mike New-
ell, sem leikstýrði gamanmyndinni
Fjögur brúðkaup og jarðarför,
hefur verið fenginn til að leikstýra
fjórðu kvikmyndinni um galdra-
piltinn Harry Potter. Newell er
fyrsti Bretinn til að stýra mynd
eftir bókum samlanda síns, J.K.
Rowling. Newell mun hefjast
handa við Harry Potter og eldbik-
arinn í apríl.
Newell, sem leikstýrði einnig
myndinni Donnie Brasco þar sem
Johnny Depp fór með aðalhlut-
verk, hefur nýlokið tökum á mynd-
inni Bros Mónu Lísu, sem skartar
Juliu Roberts í aðalhlutverki.
Bandaríkjamaðurinn Chris Col-
umbus leikstýrði fyrstu tveimur
myndunum um Harry Potter og
Mexíkaninn Alfonso Cuaron þeirri
þriðju. Búist er við því að mynd
Cuarons, Harry Potter og fanginn
frá Azkaban, verði frumsýnd í júní
á næsta ári.
Harry Potter og eldbikarinn
verður framleidd af David Hey-
man og byggð á handriti Steve
Kloves líkt og áður. Stefnt er á að
frumsýna hana árið 2005.
„Áhorfendur eru farnir að
þekkja bækurnar betur og kvik-
myndirnar og því verður áskor-
unin sífellt meiri að þróa persón-
urnar og gera heim þeirra
raunverulegan á skjánum,“ sagði
Newell í yfirlýsingu og bætti því
við að það væri ánægja að feta í
fótspor Columbus og Cuarons.
Newell var fenginn til að leik-
stýra myndinni eftir að í ljós kom
að vinna við þriðju og fjórðu
myndina myndi skarast og ómögu-
legt væri fyrir sama leikstjórann
að stýra þeim báðum.
„Við höfum verið heppin að
vinna með svo frábæru kvik-
myndagerðarfólki að fyrstu þrem-
ur Harry Potter-myndunum og
hlökkum til að vinna með Mike,“
sagði Jeff Robinov frá Warner
Bros.
Mike Newell leikstýrir fjórðu myndinni um Harry Potter
Tökur hefjast í apríl
Reuters
Galdraskytturnar þrjár: Emma Watson, Daniel
Radcliffe og Rupert Grint í hlutverkum sínum
sem Hermione Granger, Harry Potter og Ron
Weasley í Fanganum frá Azkaban.
Hermione og Harry í hættu. Krakkarnir eru orðnir eldri
og þroskaðari í þriðju myndinni um Harry Potter, sem
frumsýnd verður á næsta ári.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 43
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 7, 9 og 11.
www.laugarasbio.is
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Fyndnasta mynd
sumarsins
frá leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
J I M C A R R E Y
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Miðaverð 500 kr.
Sýnd kl. 5. Ísl. tal.
B R U C E
R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is
S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0
M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i
Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð.
MYNDARLEGT TILBOÐ
3.24 milljón virkir dílar.
Ljósnæmi ISO 100.
6x aðdráttarlinsa (38-228mm).
Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn
meiri aðdrátt (342mm).
Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði.
Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30
sek á hverja mynd.
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að taka allt að 300 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Allt sem þarf til að byrja fylgir
Verð kr. 59.900,-
S304
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm,
runur osfrv.
Ljósnæmi ISO 200-800.
3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk
stafræns aðdráttar.
Með F hnapp sem auðveldar allar
myndgæða stillingar.
Tekur kvikmyndir 320x240 díla,
10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu.
Hægt að tala inn á myndir.
Lithium Ion hleðslurafhlaða og
hleðslutæki fylgir.
Notar nýju X-D minniskortin.
165 g án rafhlöðu.
Verð kr. 49.900,-
F410
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M).
3x aðdráttarlinsa (38-114mm).
Hægt að taka allt að 250 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs).
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að fá vöggu.
Allt sem þarf til að byrja fylgir.
155 g án rafhlöðu.
Verð kr. 39.900,-
A310
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Kvikmyndir.com
SV. MBLHK. DV
YFIR 24.000 GESTIR!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.regnboginn.is
Framhaldið
af hinni
frábæru
Legally
Blond
sem
sló í
gegn!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.40.
YFIR 30.000
GESTIR!
Fyndnasta mynd sumarsins
frá leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
J I M C A R R E Y
B R U C E
BANDARÍSKI steppdansarinn
og kvikmyndaleikarinn Greg-
ory Hines er látinn 57 ára að
aldri. Hines lést í Los Angeles
af völdum krabbameins. Hines
gat sér frægðar fyrir stepp-
dans og varð þekktur á al-
þjóðavettvangi á ungaaldri
þegar hann var annar helm-
ingur djass- og steppdans-
dúetts ásamt bróður sínum
Maurice. Árið 1992 hlaut hann
Tony-verðlaunin fyrir söngleik-
inn Jelly’s Last Jam.
Hines var í áberandi hlut-
verki í The Cotton Club og í
kjölfarið fékk hann hlutverk í
fleiri myndum. Hann lék á móti
rússneska dansaranum Mikhail
Baryshnikov árið 1985 í mynd-
inni White Nights sem fjallar
um dansara á kaldastríðs-
árunum. Þá lék hann á móti
Billy Crystal árið 1986 í mynd-
inni Running Scared og fór
með lítið hlutverk í myndinni
Waiting to Exhale en í þeirri
mynd léku m.a. Whitney Houston
og Angela Bassett.
Hines var trúlofaður Negritu
Jayde. Faðir hans og bróðir eru
enn á lífi. Þá lætur hann eftir sig
dóttur sína Dariu, soninn Zach,
afabarnið Lucian og stjúpdótt-
urina Jessicu Koslow.
Gat sér frægðar fyrir steppdans
Gregory
Hines
látinn
Reuters
Hér má sjá Hines í gestahlutverki í
þáttunum Will og Grace í sveiflu með
aðalleikkonunni Debru Messing.