Morgunblaðið - 12.08.2003, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 45
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.10 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 10 ára.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
Stórsmellur úr smiðju Jerry
Bruckheimer og Disney sem
stefnir hraðbyri að vera
vinsælasta mynd sumarsins
í USA.
98% aðspurðra í USA sem höfðu
séð myndina sögðu “góð”
eða“stórkostleg”!
í f
i
t tl !
SG. DVSG. DVÓ.H.T Rás2
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
MBL
SG DVSG DV MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIK YNDIR.CO ÓHT RÁS 2
09.08. 2003
6
2 9 0 7 9
7 8 1 0 2
19 21 23 29
2
06.08. 2003
13 17 21
25 44 46
14 26
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
HINN heimsþekkti söngvari Rog-
er Whittaker heldur tvenna tón-
leika á Broadway dagana 12. og 13.
september. Tveimur vikum síðar
koma aðrir góðir gestir til landsins,
nefnilega Sister Sledge og spila
einnig á Broadway, helgina 26. og
27. september. Bæði Whittaker og
Sister Sledge hafa komið áður til
Íslands, hann fyrir rúmum þremur
árum og systurnar í janúar 2001.
Ferill Rogers Whittakers spann-
ar meira en fjörutíu ár. Hann hefur
selt yfir 50 milljónir hljómplatna
um heim allan og eru tónleikar
hans enn í miklum metum og eft-
irsóttir. Mörg laga hans eru orðin
sígild og nægir þar að nefna „The
Last Farewell“ og „Streets Of
London“.
Whittaker fæddist í Nairobi í
Kenýa árið 1939. Hann sló fyrst í
gegn árið 1962 og reis frægðin
hæst við upphaf áttunda áratug-
arins þegar hann kom fjölmörgum
lögum inn á vinsældalista um heim
allan.
Einkenni hans eru djúp og þýð
rödd og einkar sérkennileg blíst-
urtækni sem hann notar á
skemmtilegan máta í mörgum laga
sinna. Blístrið er reyndar svo
frægt orðið að það er órjúfanlegur
hluti af ímynd hans og orðspori.
Stuðsveitin Sister Sledge var
stofnuð af systrunum Debbie, Kim,
Joni og Kathy Sledge árið 1971 í
Philadelphiu þegar systurnar voru
12–16 ára gamlar. Þær vor á há-
tindi frægðar sinnar á diskótíma-
bilinu og áttu hvern smellinn á fæt-
ur öðrum. Þetta eru lög sem
margir ættu að þekkja enn í dag,
eins og „Lost in Music“ og „We are
Family“. Plata samnefnd síðar-
nefnda laginu endaði jafnframt
sem ein mest selda diskóplata sög-
unnar.
Góðir gestir á Broadway í september
Roger Whittaker og Sist-
er Sledge með tónleika
Ferill Rogers Whittakers spannar
meira en fjörutíu ár og hefur hann
selt yfir 50 milljónir hljómplatna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Diskódrottningunum í Sister Sledge tókst vel upp á tónleikum sínum á
Broadway en þær eru á leiðinni til landsins á ný.
Venjulegur
(Normal)
Drama
Bandaríkin 2003. Skífan. VHS (110
mín.) Bönnuð yngri en 12 ára. Leikstjóri:
Jane Anderson. Aðalleikendur: Tom Wilk-
inson, Jessica Lange, Clancy Brown.
ROY (Wilkinson) og Irma Apple-
wood (Lange) eru að halda uppá silf-
urbrúðkaupið sitt. Aldarfjórðungur
að baki og klerkurinn þeirra á ekki
nógu sterk lýsingarorð til þess að
hæla mannbætandi návist þeirra í
söfnuðinum og fullkomleika hjóna-
bandsins. Dagurinn er ekki liðinn
þegar Roy segir konu sinni leyndar-
mál sitt. Hann,
bóndasonurinn,
landbúnaðartækja-
og dráttarvélasal-
inn er búinn að vera
í skápnum í öll þessi
ár. Breytinga er
þörf: Hann hyggst
láta gera á sér kyn-
skiptaaðgerð. Síðan
er fylgst með því
hvernig þessi afdrifaríka ákvörðunar-
taka og uppljóstrun Roys fer í konu
hans, fjölskyldu og vinnufélaga.
Því miður er of oft hrikalegur yfir-
borðsblær yfir atburðarásinni en há-
gæðaleikararnir Wilkinson og Lange
bjarga miklu með næmum og skiln-
ingsríkum leik og gera kaflaskiptu,
ofur viðkvæmu efninu eins góð skil og
efni standa til. Nokkur atriði, tekin úr
samhengi, líkt og samskipti Roys og
föður hans, eru trúverðug en inn á
milli hrapar þessi misjafna kapal-
mynd niður á lægsta plan illa skrif-
aðra, heimskulegra atriða.
Þá á áhorfandinn vafalaust erfitt
með að kyngja því að hjónaband geti
gengið snurðulaust í 25 ár og síðan
kemur allt í einu í ljós að eigin-
maðurinn hefur lifað tvöföldu lífi öll
þessi ár og er búinn að leggja á ráðin
út í smæstu smáatriði um kynskipta-
aðgerð. Ekki bætir úr skák hræðilegt
val á dægurlögum, hverra innihald á
að undirstrika hugarástand per-
sónanna. Það virkar líkt og reiknað sé
með að áhorfendur séu yfirhöfuð van-
vitar. (Dæmi: Þegar örlagastundin
rennur upp og Roy tjáir konu sinni
leyndardóm lífs síns kyrja Mills-
bræður „You Always Hurt the One
You Love“ og atriðið breytist í örg-
ustu sápu.) Margir þeirra fá hins veg-
ar á tilfinninguna að því sé öfugt farið.
Myndin réttir úr kútnum síðustu mín-
úturnar, eða frá því að sonurinn
Wayne kemur í heimsókn, og henni
lýkur á fallegum nótum. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Hvað er
eðlilegt?
EGYPSKI leikarinn Omar Sharif fær Gullljónið, sérstök
heiðursverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem
hefst 26. ágúst, fyrir framlag sitt til kvikmynda. Leikferill
Sharifs, sem er 71 árs að aldri, spannar nú hálfa öld.
Sharif lék m.a. í myndunum Doctor Zhivago og Arabíu-
Lawrence auk fjölda annarra kunnra kvikmynda. Nýjasta
mynd leikarans, Mr. Ibrahim and the Flowers of the Qur-
an, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum en þar
leikur Sharif aldraðan múslima sem tekur að sér gyðinga-
dreng.
Sharif komst í fréttirnar nýlega af öðru tilefni en hann
var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og sektargreiðslu
fyrir að skalla lögreglumann í spilavíti í úthverfi Parísar
eftir að hafa lent í deilum við starfsmann spilavítisins.
Sharif sagðist í rétti ekkert muna eftir atvikinu en það
náðist á myndband.
AP
Sharif komst í fréttirnar nýlega af öðru tilefni en
hann var dæmdur fyrir að skalla lögreglumann í
spilavíti í úthverfi Parísar.
Omar Sharif
fær Gullljónið
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Föt fyrir
allar konur