Morgunblaðið - 21.08.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 224. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hressó
endurreistur
Hressingarskálinn í Austurstræti
opnaður á ný Höfuðborg 16
Gagnrýni um þrjár sýningar í
Nýlistasafninu Listir 24
Útvarpinu
kennt um
Tvítugir Spaðar kenna Rás 2 um
vinsældir sínar Fólk 46
MAHMUD Abbas, forsætisráðherra Palestínu-
manna, skipaði öryggissveitum sínum í gær að
handtaka hryðjuverkamennina sem stóðu að baki
sjálfsmorðsárásinni
sem varð 20 manns að
bana og slasaði 105 á
þriðjudag. Þá hefur
Abbas jafnframt slitið
sambandi við harð-
línusamtökin tvenn
sem lýstu tilræðinu á
hendur sér, Hamas og
Íslamska Jihad. Tals-
maður forsætisráð-
herrans fordæmdi
hryðjuverkið enn-
fremur harðlega.
Greint var frá því í
gær að sjálfsmorðing-
inn hefði verið 25 ára
gamall trúarbragðakennari frá Hebron, meðlimur
Hamas.
Friðarumleitanir stöðvaðar
Ísraelsk stjórnvöld ákváðu í gær að stöðva við-
ræður við Palestínumenn um útfærslu hins svo-
kallaða vegvísis til friðar. Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, sagði tilræðið í Jerúsalem
ennfremur sýna að Abbas hefði með öllu mistekist
að hafa taumhald á palestínskum harðlínuhópum.
Að því er ísraelskar útvarpsstöðvar greindu frá
handtók ísraelska lögreglan 17 Palestínumenn
sem grunaðir eru um að vera meðlimir Hamas-
samtakanna í Hebron í gær, þ.á m. nokkra ætt-
ingja sjálfsmorðingjans. Sharon átti fjölda funda
með öryggisráðgjöfum sínum og ráðherrum rík-
isstjórnar sinnar í gær til að ráðgera viðbrögð við
árásinni. Talsmaður Ísraelshers sagði ennfremur í
viðtali við AFP-fréttastofuna að „almenn lokun“
palestínskra yfirráðasvæða hefði tekið gildi.
Abbas fyrirskip-
ar handtöku
tilræðismanna
Jerúsalem. AFP.
Yngsta fórnarlamb til-
ræðisins, 11 mánaða,
borið til grafar í gær.
ÍRASKA framkvæmdaráðið hafði undir höndum
upplýsingar um að sprengjutilræði væri yfirvof-
andi í Bagdad, höfuðborg Íraks. Þetta sagði Ahm-
ad Chalabi, leiðtogi ráðsins, í gær.
„Fregnirnar greindu frá því að stór árás væri
yfirvofandi … gegn veiku skotmarki, til að mynda
íröskum stjórnmálaflokki eða öðrum samtökum,
þ.á m. Sameinuðu þjóðunum (SÞ),“ sagði Chalabi.
Hann kvað framkvæmdaráðið hafa greint banda-
rískum leyniþjónustumönnum frá þessu en það
var hins vegar ekki ljóst hvort upplýsingarnar
hefðu borist SÞ. Kofi Annan, framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, sagði í gær að mistök hefðu átt sér
stað „um allt“ í öryggismálum í Írak. „Hernáms-
liðið ber ábyrgð á að tryggja að hér sé farið að lög-
um og reglu og að öryggi landsins sé tryggt,“ sagði
hann og gagnrýndi þar með Bandaríkin fyrir að
tryggja ekki nægilega vel öryggi alþjóðlegs liðs
sem vinnur að mannúðarmálum í Írak.
Að því er fram kemur í The New York Times að-
stoðar bandaríska alríkislögreglan, FBI, nú írösku
lögregluna við að rannsaka það hver hafi staðið að
baki sprengingunni en engin samtök hafa enn lýst
tilræðinu á hendur sér þrátt fyrir að grunur leiki á
að hryðjuverkahópur tengdur al-Qaeda, Ansar al-
Islam, beri ábyrgð á ódæðinu. Þegar hefur komið í
ljós að hergögn, þ.á m. 225 kg sprengja, hafi verið
notuð til að sprengja bækistöð SÞ í loft upp.
Framkvæmda-
ráðið hafði vitn-
eskju um árás
Bagdad. AFP.
Krefjast/12
UM LEIÐ og staðfest var að Ís-
lendingar hefðu skotið fyrstu
hrefnuna hratt bandaríska við-
skiptaráðuneytið af stað form-
legri rannsókn á því hvort grípa
ætti til viðskiptaþvingana vegna
hrefnuveiða Íslendinga. „Rann-
sóknin hófst í gær [þriðjudag]
þegar fyrsti hvalurinn hafði verið
drepinn. [–] Um leið og þeir höfðu
drepið fyrsta hvalinn hófum við
vinnuna,“ hefur AFP-fréttastofan
eftir Scott Smullen hjá banda-
rísku Sjávar- og umhverfismála-
stofnuninni en hún heyrir undir
bandaríska viðskiptaráðuneytið.
Hafa ekki látið
kné fylgja kviði
Stefán Ásmundsson, þjóðrétt-
arfræðingur í sjávarútvegsráðu-
neytinu, segir að undanfarin ár
hafi Bandaríkin brugðist við með
þessum hætti gagnvart hvalveið-
um bæði Japana og Norðmanna.
„Þau hafa fengið svokallaða stað-
festingu en Bandaríkin hafa ekki
látið raunverulegar viðskipta-
hindranir fylgja þeirri staðfest-
ingu. Ef þeir ákveða að ganga svo
langt gagnvart Íslandi væri tölu-
vert misræmi fólgið í því, ekki síst
í ljósi þess að veiðar okkar eru
mun minni en hvort heldur hjá
Japönum eða Norðmönnum og að
sjálfsögðu minni en Bandaríkja-
menn stunda sjálfir. En í ljósi
fyrri ummæla Bandaríkjanna
þarf ekki að koma á óvart að þeir
ákveði að skoða málið.“
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Scott Smullen að rannsókn-
arferlið væri rétt nýhafið. „Þetta
er flókið og margþætt ferli sem
við erum að hefjast handa við. Við
munum skoða hvort aðgerðir Ís-
lendinga hafi dregið úr áhrifum
samþykkta Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins. Sú skoðun gæti á endanum
hugsanlega haft í för með sér
staðfestingu Íslands samkvæmt
Pelly-ákvæðinu,“ segir Smullen.
Með staðfestingu er vísað til
svokallaðs Pelly-ákvæðis en
samkvæmt því á viðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna að gefa út
staðfestingu til Bandaríkjafor-
seta á því að hann telji að ríki
stundi veiðar á sjávardýrum sem
grafi undan friðunarmarkmiðum
alþjóðasamtaka og dragi úr
virkni þeirra.
„En niðurstöður úr rannsókn-
inni geta verið margs konar,“
segir Smullen. „Þær gætu þýtt
að alls ekki kæmi til staðfesting-
ar vegna Íslands. Ef til staðfest-
ingar kæmi gæti það hugsanlega
þýtt að gripið yrði til aðgerða
gegn Íslendingum, hvort heldur
er af viðskiptalegum toga eða
ekki. En það getur líka þýtt að
ekki verði gripið til neinna að-
gerða.“
Bandaríkin kanna beit-
ingu viðskiptaþvingana
Formleg rannsókn hófst um leið
og fyrsta hrefnan var skotin
AÐEINS u.þ.b. 60 eldislaxar af um 2.800
sem sluppu úr bráðabirgðasjókví við höfn-
ina í Neskaupstað í gærmorgun höfðu náðst
í net síðdegis í gær. Að sögn Björgólfs Jó-
hannssonar, forstjóra Síldarvinnslunnar, fór
gærdagurinn að mestu í að leggja netin um-
hverfis höfnina og í ósum Norðfjarðarár.
Búast má við að eitthvað af laxinum skili sér
í netin á næstu dögum.
Óðinn Sigþórsson, formaður Lands-
sambands veiðifélaga, segir að hér sé um að
ræða alvarlegt umhverfisslys og augljóst að
fyrirtækið hafi ekki farið að reglum. Hann
vill að fram fari úttekt og rannsókn á starf-
seminni í kringum laxeldi.
Gat á kvínni olli því að laxinn slapp og telja
sérfræðingar hættu á að laxinn, sem er norsk-
ur að uppruna, geti blandast villtum laxa-
stofnum og raskað þannig lífríki í ám.
Svo virðist sem ekkert formlegt leyfi hafi
verið gefið út fyrir notkun laxakvínnar sem
brast.
Morgunblaðið/Kristín ÁgústsdóttirMeðal annars var reynt að fanga laxinn í net af bátum, en með litlum árangri.
Einn af um 60 löxum sem tókst að fanga við
höfnina í Neskaupstað í gær.
Sextíu laxar á
land af 2.800
Þúsundir laxa sluppu úr sjókví í Neskaupstað
Óljóst/4
Samruni
margra miðla
♦ ♦ ♦