Morgunblaðið - 21.08.2003, Side 8

Morgunblaðið - 21.08.2003, Side 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Það er snjallt hjá R-listanum að hækka orkuverðið í takt við þær hitabreytingar sem verða í Alfredó í hitabylgjum. Draugaganga um Elliðaárdal Draugalegt fimmtu- dagskvöld HIN árlega drauga-ganga Árbæjar-safnsins um El- liðaárdalinn verður farin í kvöld. Helgi M. Sigurðs- son er leiðsögumaður göngunnar og mun hann leiða hópinn um slóðir drauga, álfa og skrímsla í Elliðaárdalnum. Hver var kveikjan að draugagöngunni ? Ég skrifaði bók um svæðið sem kom út árið 1998 og þá kynnti ég mér flest það sem tengist Elliðaárdalnum þar á meðal draugasögur af svæðinu. Ég byrjaði að fara með fólk í almenna sögugöngu um Elliðaár- dalinn árið 1990 og hafa þær verið farnar árlega síðan, á Jónsmessu. Hugmynd- ina að draugagöngunni fékk ég þegar ég var staddur í London. Þar fór ég í göngu sem heitir Jack the Ripper Trail en í henni kynnist fólk sögu London í gegnum illvirki Kobba kviðristu. Draugagangan í Elliðaárdalnum er byggð upp á sama hátt, sögu dalsins er komið á framfæri í gegnum draugasögurnar. Hvert verður farið í göng- unni? Leiðin liggur um neðra hluta dalsins og er farinn um klukku- tíma hringur. Ég stoppa með hópinn á góðum útsýnisstöðum þar sem hægt er að virða fyrir sér vettvang sagnanna. Það er til meira en nóg af draugasögum úr Elliðaárdalnum en flestar þeirra eru um þrjá ákveðna drauga. Auk þess tala ég líka um álfa og skrímsli sem þarna eru talin búa. Það gæti verið verðugt rannsóknarefni að athuga hversu margir draugar eru að meðaltali í hverju héraði á Íslandi, í Elliðaárdalnum er að minnsta kosti af nógu að taka. Lumar þú á eins og einni sögu handa lesendum? Sögurnar úr Elliðaárdalnum eru að ýmsu leyti svipaðar þeim draugasögum sem þekktastar hafa orðið. Draugum er gjarnan skipt upp í tvo flokka, aftur- göngur og uppvakninga. Upp- vakningarnir voru vaktir upp og sendir einhverjum til að valda tjóni. Afturgöngurnar, sem voru algengari, gengu hins vegar aft- ur vegna heiftar eða girndar til einhvers. Allir draugarnir í daln- um eru afturgöngur. Afdrif eins þeirra urðu þau að hann varð úti en annar var tekinn af lífi. Það er þessi sviplegi dauðdagi sem sem rekur þá upp úr gröfinni. Sá þeirra sem var deyddur var full- ur af hefnigirni og hinn, sem reyndar dó af eigin völdum sök- um ofdrykkju, skellti skuldinni á þá sem höfðu átt vínið. Í þeim þriðja á það að hafa verið eðl- islæg illska sem náði yfir gröf og dauða. Fjöldi fólks, sem ekki er á lífi í dag, sá þessa drauga. Draugar virð- ast ekki vera á sveimi í lengur en 100 ár eða svo. Það eru helst fylgjur, sem fylgja fjöl- skyldum þrjá eða fjóra ættliði sem eru „langlífari“, ef svo má segja, gera vart við sig í allt að 200 ár. Ein af forvitnilegri sög- um úr Elliðaárdalnum gerist í fjölbýlishúsi í Selásnum. Talið er að húsið hafi verið reist þar sem áður lá þjóðbrautin frá Reykja- vík austur yfir fjall. Hafa þrír af sex íbúum í einum stigagangi hússins séð svipi á reiki í gegn- um blokkina, það er eftir gömlu þjóðbrautinni. Trúa Íslendingar á drauga ? Já, að minnsta kosti stór hluti þeirra. Talið var að draugar yrðu til vegna myrkurs og fá- fræði og að draugatrú myndi hverfa með vísindum nútímans og hinum skæru rafmagnsljós- unum. Sú virðist þó alls ekki raunin en í nýlegri könnum segir að 40 prósent Íslendinga trúi á drauga. Hvað sem því veldur er draugatrú í það minnsta ekki á undanhaldi. Það er ekki laust við að Íslendingar vilji trúa á drauga sem greinir okkur frá öðrum þjóðum, t.d. Dönum. Draugatrú hefur sveiflast í gegnum aldirnar. Hún virðist hafa verið nokkuð útbreidd fyrstu aldirnar eins og kemur fram í Eirbyggju og Grettis- sögu. En það er eins og hún eigi á brattann að sækja þegar kaþ- ólska kirkjan eflist. Á 17. öld tekur draugatrú síðan aftur við sér og eru langflestar frásagnir í þjóðsagnasöfnum frá 18. og 19. öld. Tuttugasta öldin er síðan sér á parti hvað þessi mál varðar með tilkomu miðla sem hafa samband yfir í andaheim og bera þaðan skilaboð til eftirlifandi að- standenda. Hefur gangan verið vel sótt? Já, stundum of vel. Sögugöngur innan borgarmarkanna hafa orðið sífellt vinsælli. Fyrstu tvö árin komu í Jónsmessugönguna um 20 manns en í seinni tíð hafa komið allt að 300 manns í báðar þessar göngur. Draugagangan kallast hættulegasta skemmti- ganga ársins og ráðlagt að börn undir 12 ára séu í fylgd með full- orðnum. Mæting er á bílastæði Árbæjarsafnsins, þaðan verður lagt af stað klukkan 21.00. Helgi Sigurðsson  Helgi M. Sigurðsson fæddist árið 1953 á Akureyri. Hann lauk BA prófi í sagnfræði, cand mag. prófi í íslensku og kennslurétt- indaprófi frá Háskóla Íslands. Hann segir það loða við sig að reyna að koma fræðslu af ein- hverju tagi á framfæri. Helgi starfaði á munadeild Árbæj- arsafnsins í tólf ár, frá árinu 1989, við söfnun muna og skrán- ingu þeirra. Frá árinu 2001 hef- ur hann verið sjóminjavörður. Helgi er giftur Kristínu Soffíu Baldursdóttur og eiga þau fjóra syni. Draugatrú ekki á undanhaldi VÖRUÞOTA Icelandair, af gerð- inni Boeing 757, varð að lækka flugið í skyndingu úr rúmlega 30 þúsund fetum og niður í um 10 þús- und fet á leið til landsins frá Belgíu í nótt vegna bilunar í jafnþrýst- ingsbúnaði. Þotan lenti í Glasgow og hélt kyrru fyrir þar til í dag vegna hvíldartíma flugmanna og eins meðan viðgerð fór fram. Þotan er væntanleg til Keflavíkur um klukkan fjögur í dag. Pétur J. Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Flugleiða Frakt ehf., sem er dótturfyrirtæki Flugleiða hf., sagði í samtali við Morgunblað- ið að tveir flugmenn hafi verið um borð og hafi þeir ekki verið í hættu. Viðbrögð sem þessi væru eðlileg þegar loftþrýstingur félli í vélinni. Þá ættu flugmenn að lækka flugið og lenda á næsta flugvelli. Hann sagðist ekki vita hvað olli bil- uninni en hún væri ekki algeng. Vöruþota Icelandair á leið frá Belgíu til Íslands Varð að lenda í Glas- gow vegna bilunar LÍFSÝNI úr Hjálmari Björnssyni, 16 ára pilti sem fannst látinn á bökk- um árinnar Maaz í Rotterdam 29. júní 2002, sem senda átti til Íslands til frekari rannsóknar, reyndust ekki vera þau sýni sem íslenskur réttar- læknir hafði óskað eftir. Fjölskylda hins látna hafði barist fyrir því að sýni, sem tekin voru úr hinum látna við krufningu yrðu flutt til Íslands og náðist sá áfangi fyrir tilstuðlan ís- lenskra stjórnvalda. Þegar til kom reyndust sýnin ekki þau sem beðið var um. Framhald málsins er óljóst, en fjölskylda Hjálmars á fund með lögreglu og réttarlækni á morgun. Röng lífsýni send til Íslands TVÖ innbrot voru framin í austur- borginni í fyrrinótt, annað í leikskóla í Breiðholti en hitt í fyrirtæki í Árbæ. Handtók lögreglan mann sem grunaður er um annað innbrotanna. Þá stóð lögreglan í Reykjavík fyrir umferðarátaki í vikunni þar sem ástand ökumanna var kannað. Voru um hundrað og fimmtíu ökumenn stöðvaðir í miðborginni og ástandið yfirleitt þokkalegt, að sögn lögreglu. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að aka sviptir ökuréttindum. Handtekinn vegna innbrots ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.