Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 9
REYKJAVÍKURBORG ákvað
snemma á þessu ári að styrkja ekki
lengur tónlistarnemendur úr öðrum
sveitarfélögum sem stunda nám við
tónlistarskóla í Reykjavík og segir
borgarstjóri lagaheimild til þess
vera alveg skýra. Í lögunum sé gert
ráð fyrir að sé tónlistarskóli starf-
ræktur í einu sveitarfélagi en þjóni
öðrum sveitarfélögum skuli gerður
samningur um greiðslur fyrir nem-
endur sem búa utan þess sveitarfé-
lags sem skólinn er í. Sé slíkum
samningi ekki til að dreifa beri því
sveitarfélagi sem skólinn er í ekki að
greiða fyrir nemendur úr öðrum
sveitarfélögum. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í greinargerð borg-
arstjóra um málefni tónlistarskóla
en fyrr í þessum mánuði hafði Sam-
band sveitarfélaga á Austurlandi
skorað á Reykjavíkurborg að fresta
gildistöku ákvörðunarinnar.
Lausn vegna nemenda á
höfuðborgarsvæðinu
Borgarstjóri tekur og fram í
greinargerð sinni að það sé eindreg-
in ósk sveitarstjórna að ríkið axli al-
farið fjárhagslega ábyrgð á fram-
haldsmenntun í tónlist og viðræður
milli sveitarfélaganna og mennta-
málaráðuneytisins hafi hafist í liðinni
viku. Samtök sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu hafi sent tillögu til
umfjöllunar í sveitarstjórnum en í
henni segi m.a. að í ljósi þeirrar
stöðu sem uppi er og óvissu um nám
og skólahald á þeirri námsönn sem
sé að hefjast samþykki þau að taka
þátt í námsvistarkostnaði tónlistar-
nema úr sveitarfélaginu sem stunda
nám í tónlistarskólum í öðrum sveit-
arfélögum. Fyrirkomulagið gildi til
loka haustannar eða næstkomandi
áramóta með vísan til þess að innan
þess tíma verði viðræðum og samn-
ingum við ríkið lokið þannig að
greiðsluskylda ríkisins í tónlistar-
námi á framhalds- og háskólastigi
taki við frá og með næstu áramótum.
Ríkið greiði tónlistar-
nám á framhaldsstigi
MEÐFERÐARHEIMILI SÁÁ á
Staðarfelli í Dölum hefur verið lokað
í sex vikur í sumar, og sömu sögu er
að segja af göngudeild SÁÁ í Síðu-
múla í Reykjavík. Af þeim sökum
hefur engin frekari meðferð staðið
karlmönnum til boða meðan lokað
var. Á Staðarfelli er rúm fyrir 30
sjúklinga og á göngudeild eru um 11
þúsund heimsóknir á ári.
Ástæður lokananna eru að sögn
Þórarins Tyrfingssonar, fram-
kvæmdastjóra meðferðarsviðs SÁÁ,
þær að hvorki er nægt fjármagn til
ráðningar sumarstarfsfólks né auð-
velt að finna fólk til starfa.
„Lokanirnar hafa valdið sjúkling-
um miklum óþægindum,“ sagði Þór-
arinn í samtali við Morgunblaðið í
gær. Tíminn hefur verið nýttur til
endurbóta á húsnæðinu á Staðarfelli,
til dæmis við bað og hreinlætisað-
stöðu. Ráðgert er að heimilið á Stað-
arfelli verði opnað um næstu helgi,
og göngudeild strax eftir helgi.
SÁÁ getur ekki
haldið Staðarfelli opnu
árið um kring
Meðferðar-
heimili lokað
í sex vikur
í sumar
♦ ♦ ♦
UMRÆÐUÞÁTTURINN Silfur
Egils, sem verið hefur á dagskrá
Skjás eins frá því árið 1999, verður
ekki á dagskrá
sjónvarpsstöðv-
arinnar á kom-
andi vetri. Þátt-
urinn, sem verið
hefur á dagskrá á
sunnudögum,
hefur að mestu
fjallað um stjórn-
mál og önnur
málefni líðandi stundar. Alls hafa
næstum tvö hundruð þættir af Silfri
Egils verið sýndir á Skjá einum.
Egill Helgason, stjórnandi þáttar-
ins, segir að nýir eigendur hafi ekki
haft sama áhuga á þættinum og fyrri
eigendur. „Þeir sem voru áður virtu
ritstjórnarlegt sjálfstæði mitt, sem
ég taldi vera mjög mikilvægt,“ segir
Egill.
Silfur Egils
ekki á dag-
skrá í vetur
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Laugavegi 63
sími 551 2040
Glæsileg sending af haustblómum
Mikið úrval
Ný sending
Stakir jakkar og buxur
Laugavegi 34, sími 551 4301
Útigallar
sem virka
Vatnsheldir og
flísfóðraðir,
hlýir og þægilegir
fallegir litir
Laugavegi 56, sími 552 2201
Ný sending
Flauelsbuxnadragtir,
apaskinnsjakkar og -pils
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 10.00—18.00, laugardag frá kl. 10.00—16.00.
Nýjar
haustvörur
Síðar peysur 3.900
Síð gallapils 3.500
Síðir gallajakkar 4.500
Hallveigarstíg 1
588 4848
Ótrúlegt úrval - Föt - lampar - styttur - púðar - rúmteppi o.m.fl.
2 fyrir 1 af öllu
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15, sunnudag 24. ág. kl. 13-17.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
ÚTSALA - Allt á hálfvirði
Blómasandalar í stærðum frá 35-41. Margir litir. Verð kr. 1.290
Skarthúsið • Laugavegi 12 • Sími 562 2466
Sendum í póstkröfu
Netasandalar Satínsandalar