Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 10

Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Axelsson fv. kaupmaður í verslun- inni Nonna og Bubba í Keflavík og Sandgerði lést þriðjudaginn 19. ágúst sl. Jón fæddist í Sandgerði þann 14. júní 1922 og var sonur hjónanna Axels Jóns- sonar verslunarmanns og Þorbjargar Einars- dóttur húsmóður en þau bjuggu á Borg í Sandgerði. Jón lauk fullnaðar- prófi frá Héraðsskól- anum að Laugarvatni 1937. Vann hjá Lofti Loftssyni og Haraldi Böðvarssyni í Sandgerði við ýmis störf. Jón vann frá 22. ald- ursári við verslunar- störf í Sandgerði og stofnaði ásamt meðeig- anda sínum Þorbirni Einarssyni Keflavík verslunina Nonna og Bubba bæði í Sandgerði og í Keflavík og ráku þeir hana um 40 ára skeið. Jón var einn af stofn- félögum Lionsklúbbs Sandgerðis og var gerð- ur að Melvin Johns fé- laga af félögum sínum í Lionsklúbbnum. Jón kvæntist eftirlifandi eigin- konu sinni Bergþóru Þorbergsdótt- ur 1953 og eignuðust þau 5 börn. Andlát JÓN AXELSSON Í HAUST hefst kennsla með fyr- irkomulagi dreifmenntunar í Vest- urbyggð og á Tálknafirði en grunn- skólar þar eru fámennir og skólahald því dreift. Tómas Ingi Ol- rich menntamálaráðherra, Brynjólf- ur Gíslason, bæjarstjóri Vestur- byggðar, og Ólafur Magnús Birgisson, sveitarstjóri Tálknafjarð- arhrepps, undirrituðu samning um verkefnið. Dreifmenntun blandar saman fjarkennslu og staðbundinni kennslu og nýtir þannig betur sérþekkingu kennara óháð búsetu. Það stuðlar jafnframt að því að jafna möguleika nemenda til náms. Markmið verkefnisins er að nýta upplýsingatækni til að auka gæði og framboð náms ásamt því að draga úr kostnaði við rekstur grunnskóla í dreifbýli. Þannig verður hægt að kenna nemendum í sömu aldurshóp- um saman án þess að þeir þurfi að ferðast langar vegalengdir. Vesturbyggð og Tálknafjörður standa saman að verkefninu en það er liður í byggðaáætlun ríkisstjórn- arinnar og samkomulagi mennta- málaráðuneytisins og iðnaðarráðu- neytisins um átak á sviði byggðamála. Unnið hefur verið að undirbúningi verkefnisins í eitt ár en Kennarahá- skóli Íslands hefur komið að vinnu við kennslufræðilega útfærslu. Til- heyrandi búnaði hefur verið komið upp en fjárframlag til verkefnisins er 15 milljónir króna á ári í þrjú ár. Morgunblaðið/Sverrir Brynjólfur Gíslason, Tómas Ingi Olrich og Ólafur Magnús Birgisson und- irrituðu samning um dreifmenntun í gær. Samningur um dreif- menntun undirritaður METAÐSÓKN er í Menntaskólann á Ísafirði í vetur og hafa 340 nem- endur skráð sig til náms við skól- ann. Til samanburðar má nefna að í fyrra voru 303 nemendur skráðir í skólann og árið þar áður voru 280 nemendur í skólanum, þannig að nemendum hefur fjölgað um 21% á tveimur árum. Samhliða fjölgun nemenda við skólann verða fleiri nemendur á heimavist í vetur en áður, eða 26 nemendur en þeir voru aðeins 9 fyr- ir tveimur árum. Spurð um ástæðu aukinnar að- sóknar í skólann segir Ólína Þor- varðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, að al- mennt hafi aðsókn í menntaskóla farið vaxandi undanfarin ár og kunni það að skýrast af aðstæðum á vinnumarkaði. „Aukningin hjá okk- ur er hins vegar það mikil að fleira hlýtur að koma til. Aukin bjartsýni og uppgangur á Vestfjörðum og tiltrú á menntaskólanum eru vafa- lítið meginskýringarnar. Skólinn hefur verið mikið í umræðunni síð- ustu tvö ár, af honum fer gott orð og vinsældir hans hafa aukist,“ seg- ir Ólína. Hún segir skólann ekki hafa auglýst sig meira en venjulega og að ekki hafi verið staðið fyrir sérstakri kynningarherferð í vor. Ýmsar nýjungar verða í skóla- starfinu í vetur, á vorönn verður boðið upp á nám við svokallaða fjöl- menningarbraut, sem er ný náms- braut hugsuð fyrir nemendur af er- lendum uppruna. Nýnemum í verknámi stendur einnig til boða nýr áfangi, grunnnám bygging- argreina, þar sem gefin verður inn- sýn í ýmsar greinar byggingariðna. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Menntaskólinn á Ísafirði Aldrei fleiri nemendur AÐ MATI stjórnenda Landspítala –háskólasjúkrahúss (LSH) eru fjár- heimildir til sjúkrahússins í engu samræmi við langtímaþróun í aldurs- samsetningu þjóðarinnar, bú- setuþróun og tækniþróun sem veldur m.a. hækkun á ýmsum rekstrarliðum s.s. lyfjum og lækninga- og hjúkrun- arvörum. Þetta kemur m.a. fram í nýbirtri greinargerð Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga LSH. „Á þessu ári eru fjárheimildir 750 millj- ónum kr. lægri en á árinu 2000 á föstu verðlagi,“ skv. útreikningum LSH eða um 3,3% lægri, segir hún. Anna Lilja segir í samtali við Morgunblaðið að það sé ekki raun- hæft að lækka framlög til spítalans á sama tíma og eftirspurn sé að aukast. Skv. rekstraruppgjöri LSH fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs eru út- gjöld spítalans 549 milljónir kr. um- fram fjárheimildir, eða sem nemur 4,1% umfram heimildir á tímabilinu. Anna Lilja segir að rekstrarstaða nokkurra sviða spítalans sé mjög erf- ið og að í mótun séu tillögur LSH um samdrátt í rekstri hans svo laga megi rekstrarkostnað að fjárlögum. Ljóst sé að verið sé að veita meiri þjónustu á spítalanum en vilji er fyrir hjá stjórnvöldum miðað við að fjárheim- ildir fari lækkandi. Þá er verið að fara yfir þessa stöðu með heilbrigð- isráðuneytinu. Hún bendir á að ýmsir biðlistar eftir þjónustu spítalans hafi styst en bið eftir augnaaðgerðum, bakflæðis- aðgerðum og liðskiptaaðgerðum séu sérstakt áhyggjuefni. „Augnaað- gerðum hefur fækkað en liðskiptaað- gerðum hefur fjölgað mjög milli ára.“ Í fyrrgreindri greinargerð er minnt á að aldurssamsetning þjóðar- innar sé að breytast og að sú þróun muni halda áfram skv. spá Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands. „Hlutfall eldri borgara í samanburði við þá sem eru á vinnualdri var 16% árið 1999 og spáð er að það hlutfall verði 24% árið 2025 og 32% árið 2050. Þetta hlutfall eldri borgara mun því tvöfaldast á næstu 50 árum.“ Þetta þýðir m.ö.o. að sögn Önnu Lilju að þjóðin sé að eldast en sú staðreynd kallar á meiri heilbrigðisþjónustu. „Eftir því sem fólk eldist þarf það á meiri og sérhæfðari heilbrigðisþjón- ustu að halda. Gætir þess nú þegar í allri starfsemi spítalans,“ útskýrir hún. Hækkun lyfjakostnaðar Anna Lilja bendir einnig á að íbú- um á höfuðborgarsvæðinu hafi fjölg- að um 1,83% á ári síðan 1990 eða um nær 25% á tímabilinu. Ekki sé útlit fyrir að dragi úr þeirri þróun. „Þótt LSH sé spítali allra landsmanna þá er hann einnig að veita íbúum á höf- uðborgarsvæðinu almenna þjón- ustu,“ segir hún. Fjölgun íbúa á höf- uðborgarsvæðinu þýði því kröfu um meiri þjónustu hjá spítalanum. Þá segir Anna Lilja að lyfjakostn- aður hafi hækkað um 6% frá síðasta ári en á sama tíma hafi fjárframlög vegna þessa þáttar, á fjárlögum árs- ins, hækkað um 1,3%. „Þessi kostn- aðarliður, ásamt lækninga- og hjúkr- unarvörum, hefur hækkað árlega talsvert umfram hækkanir neyslu- verðsvísitölu sem er viðmið í fjárlög- um,“ segir í greinargerðinni. Aðspurð segir Anna Lilja að hækkun lyfjakostnaðar megi m.a. rekja til nýrri og dýrari lyfja. Sömu sögu megi segja af lækninga- og hjúkrunarvörum. Hún segir annan rekstrarkostnað innan verðlags- breytinga. Fjárheimildir LSH 750 milljónum króna lægri en árið 2000 á föstu verðlagi Framlög eru ekki í samræmi við aldurssamsetningu þjóðarinnar ALLAR líkur eru á að ekki verði slátrað framar í sláturhúsum Sláturfélags Austurlands á Fossvöllum og í Breiðdalsvík. Sömuleiðis er útlit fyrir að engin slátrun verði á vegum Ferskra afurða í Búðardal og á Hvamms- tanga, en óvissa ríkir um fram- hald kjötvinnslu í Búðardal. Ráðgert er að halda kjötvinnslu áfram á Hvammstanga í sam- vinnu við kaupfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag að veita 170 milljónir króna til úreldingar sláturhúsa, en sláturhúsanefnd hafði áður lagt til að 220 milljónum yrði varið til úreldingar. Forsvars- menn sláturhúsa hafa frest til áramóta til að tilkynna áform sín. Alls var sauðfé slátrað í 17 sláturhúsum síðastliðið haust, en aðeins sex þeirra uppfylla kröfur Evrópusambandsins um útflutning. Lá fyrir að þeim slát- urhúsum, sem ekki uppfylltu kröfurnar, yrði mörgum lokað á næstu árum. Halda áfram rekstri Í samtölum við Morgunblaðið sögðu margir forsvarsmenn sláturhúsa ekki liggja fyrir að svo stöddu hvaða ákvörðun yrði tekin. Aðrir, til dæmis hjá slát- urhúsi Sláturfélags Vopnfirð- inga, munu slátra í haust, en meta stöðuna í framhaldinu. Sláturfélag Fjallalambs á Kópa- skeri mun sömuleiðis halda áfram starfsemi, enda var þar ákveðið að byggja sláturhúsið upp til að það uppfyllti kröfur Evrópusambandsins. „Við höld- um ótrauðir áfram rekstri,“ sagði Garðar Eggertsson, fram- kvæmdastjóri Fjallalambs. „Við ákváðum síðastliðinn vetur að auka hlutafé félagsins og byggja sláturhúsið upp. Fjallalamb er ein lífæða byggðarlagsins, og viljum við eindregið halda áfram starfsemi. Ef við myndum loka myndum við fá um 25 milljónir úr Úreldingarsjóði. Okkur finnst rökréttara að veita okkur féð til uppbyggingar félagsins og munum við leita leiða til þess,“ sagði Garðar. Úrelding sláturhúsa Nokkrum sláturhús- um lokað BORGARRÁÐ staðfesti í gær til- lögu að deiliskipulagi Landssíma- lóðarinnar við Sóleyjarrima. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingar- nefndar, segist telja að með tillög- unni hafi verið komið til móts við sjónarmið íbúa að því leyti að hæð húsa hafi nú verið minnkuð og íbúð- um fækkað örlítið auk þess sem græn svæði hafi stækkað umtals- vert. „Það er í raun búið að ljúka skipulaginu en það voru miklar breytingar gerðar, sérstaklega vegna stækkunar á grænu svæði, sem fer nú aftur í auglýsingu,“ seg- ir Steinunn. Útivistarsvæðið sem bætist við er 1,4 ha og svipað að stærð og Arn- arhóll. Hún segist vonast til að sæmileg sátt geti orðið um upp- byggingu á Landssímalóðinni þótt einhverjir íbúar hefðu eflaust viljað ganga lengra. Áhersla á að samráð verði haft við íbúa Í bókun D-lista er því fagnað að komið hafi verið til móts við sjálf- sagðar óskir íbúa í hverfinu, barátta þeirra hafi varað í nærri tvö ár og á ýmsu hafi gengið á þeim tíma. Í bókun Sjálfstæðisflokks er enn- fremur lögð áhersla á að samráð verði haft við íbúa hverfisins við uppbyggingu á reitnum. Sérstak- lega sé mikilvægt í því sambandi að vanda vel samvinnu í skólamálum en einnig umhverfis- og umferðar- málum. Deiliskipulag Landssímalóðar í Grafarvogi var staðfest í borgarráði Útivistarsvæði verði stækkað um 1,4 hektara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.