Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 15

Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 15 KÚRDASVEITIR í Norður-Írak handtóku Taha Yassin Ramadan, fyrrverandi varaforseta Íraks og hægri hönd Saddams Huss- eins, á mánudag. George W. Bush Bandaríkjaforseti fagnaði handtök- unni en Ramad- an var númer 20 af lista Banda- ríkjamanna yfir 55 eftirlýsta meðlimi fyrrum Íraksstjórnar. Ramadan náðist í borginni Mosul og hefur nú verið færður í hendur hers bandamanna, samkvæmt upp- lýsingum frá ónefndum embættis- manni í Bandaríkjaher. Ramadan varð varaforseti Íraks árið 1991 og átti sæti í bylting- arráði Saddams Husseins. Hann er fæddur 1938, fyrrverandi banka- starfsmaður og var talinn jafn grimmur og Saddam Hussein, en hann var einn helsti ráðgjafi forset- ans í utanríkismálum. Ramadan handtekinn Bagdad. AFP. Ramadan TAÍLENSKAR lögreglusveitir skutu níu meinta fíkniefna- smyglara til bana og særðu 11 til viðbótar í átökum við landamæri Taílands og Myanmar í gær. Smyglararnir höfðu í fórum sín- um eina milljón metaamfetam- íntaflna sem taílenskir lögreglu- menn í dulargervi höfðu samið um kaup á við Rauða Wa-hóp- inn, herskáan hóp útlaga í Chiang Mai-héraði. Í brýnu sló með fyrrgreindum afleiðingum þegar lögreglu- menn hugðust handtaka sölu- mennina við afhendingu fíkni- efnisins. Metaamfetamín er mjög útbreitt í Taílandi en talið er að um fimm prósent þjóðar- innar, rúmar þrjár milljónir Taí- lendinga, noti efnið sem smyglað er í stórum stíl frá Myanmar, öðru nafni Burma. Taílenski herinn hefur spáð því að millj- arði slíkra taflna verði smyglað yfir til Taílands á þessu ári. Felldu níu fíkni- efnasala í Taílandi Bangkok. AFP. FJÓRIR íslamskir hryðjuverka- menn voru dæmdir til dauða í Mar- okkó á þriðjudag fyrir sprengjuárás í maí í fjármálahverfi borgarinnar Casablanca í maí þar sem 45 létu lífið. Tugir manna hlutu langa fang- elsisdóma en 200 manns eru grun- aðir um beina og óbeina aðild að til- ræðinu. Gerðar voru fimm árásir á sama tíma, bílsprengjur sprungu fyrir ut- an alþjóðlegt hótel, menningarmið- stöð gyðinga og ítalskan veitinga- stað og sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu sig við spænskan skemmtistað og yfirgefinn kirkju- garð gyðinga. Allt eru þetta staðir í miðborg Casablanca en árásin átti sér stað föstudagskvöldið 16. maí á bænadegi múslima, og tíma þegar Vesturlandabúar í borginni fara venjulega út til að lyfta sér upp eft- ir vinnuvikuna. Í sprengingunum lést 41 strax en fjórir síðar af sárum sínum. Um 100 manns særðust. Átta hinna látnu voru útlendingar. Þetta var fyrsta sjálfsmorðs- sprengjuárásin sem framin er í Marokkó en ráðamenn þar stæra sig af því að landið sé hófsamt og friðelskandi íslamskt ríki. Þjóðin var afar slegin og í marga daga á eftir þustu tugir þúsunda manna út á götur til að mótmæla hryðjuverk- um. Tilræðismennirnir, flestir ungir marokkóskir karlar, eru meðlimir í íslömskum öfgasamtökum en talið er að sumir þeirra hafi haft tengsl við al-Qaeda-samtökin. Fengu dauðadóm fyrir sprengjuárás Réttað vegna árása í Mar- okkó í maí ISIC-debetkortið er bara í Námsmannalínunni. ISIC-debetkortið er allt í senn debetkort, skóla- skírteini í skólanum þínum, afsláttarkort og alþjóðlegt stúdentaskírteini auk þess að vera félagskort í Námsmannalínunni.* m.v. vaxtatöflu Búnaðarbankans í ágúst 2003 hver viðskiptavinur okkar er einstakur Bestu námsmannakjörin! 100.000 – 250.000 kr. yfirdráttarheimild á 11,5% vöxtum* Mánaðarlegt framfærslulán tengt LÍN á 8,5% vöxtum* Allt að 300.000 kr. tölvukaupalán á 8,5% vöxtum* og fartölvutaska fylgir hverju láni. Skólatilboð bjóðast námsmönnum í flestum tölvuverslunum Frítt stofngjald og fyrsta árgjaldið af kreditkorti Flottar inngöngugjafir Sérstök tilboð, s.s. miðar í bíó www.namsmannalinan.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.