Morgunblaðið - 21.08.2003, Qupperneq 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 17
Upphaf
skólastarfs
á haustönn
Stundatöflur verða afhentar mánudaginn 25. ágúst 2003
milli kl. 13:00 og 16:00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
þriðjudaginn 26. ágúst kl. 9:55.
Nýnemar, bæði þeir sem eru að koma beint úr grunnskóla
og þeir sem eru að koma úr öðrum framhaldsskólum, eru
boðaðir til fundar með stjórnendum og
umsjónarkennurum kl. 8:30 á þriðjudag.
Nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðu skólans.
Skólameistari
SUÐURNES
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar felldi tillögu minni-
hlutans um að fresta gerð samnings
um sölu á Vatnsveitu Reykjanesbæj-
ar til Hitaveitu Suðurnesja hf. þar til
væntanlegt frumvarp um breytingar
á lögum um vatnsveitur verði sam-
þykkt á Alþingi. Jóhann Geirdal, odd-
viti Samfylkingarinnar, boðaði við
umræðurnar að hann myndi óska úr-
skurðar félagsmálaráðuneytis um
lögmæti væntanlegs samnings.
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar í fyrradag var tekin fyrir sam-
þykkt meirihluta bæjarráðs á drög-
um að samningi við Hitaveitu
Suðurnesja um sölu á Vatnsveitu
Reykjanesbæjar. Eins og áður hefur
komið fram mun Hitaveitan kaupa
veituna á 360 milljónir kr.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
og Framsóknarflokks stóðu saman að
tillögu um frestun sölunnar. Jóhann
Geirdal sagði þegar hann mælti fyrir
tillögunni að hann sæi ekki að það
stæðist lög að fela Hitaveitu Suður-
nesja hf. að annast vatnsveitu og
ákvarða gjöld sem sveitarfélagið síð-
an innheimti með fasteignagjöldum.
Hann sagðist telja líkur á að frum-
varp um breytingar á lögum um
vatnsveitur yrði samþykkt á næsta
þingi. Hins vegar yrðu væntanlega
ákvæði í lögunum um skilyrði sem
slíkir samningar þyrftu að uppfylla.
Teldi minnihlutinn því óráð að fresta
ekki afgreiðslu samningsins þar til
lög sem heimiluðu hann hefðu tekið
gildi. Kjartan Már Kjartansson,
fulltrúi Framsóknarflokksins, sagðist
ekki sjá að sérstök hætta væri á ferð-
um þótt beðið yrði með því að ganga
frá sölu vatnsveitunnar þar til það
yrði algerlega á hreinu að menn væru
að gera rétt.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins felldu tillögu minnihlutans um
frestun og stóðu að samþykkt samn-
ingsins við Hitaveitu Suðurnesja eins
og hann lá fyrir. Tekur hann vænt-
anlega gildi 1. september næstkom-
andi.
Vísað til fordæma
Í umræðum um málið og bókun
sem sjálfstæðismenn lögðu fram kom
fram að mörg fordæmi væru fyrir yf-
irtöku orkufyrirtækja á vatnsveitum
sveitarfélaga. Sambærileg mál hefðu
verið afgreidd jákvætt í Reykjavík, á
Akureyri, í Vestmannaeyjum, á
Akranesi og víðar á landinu. Löggjaf-
inn hafi þegar afgreitt slík mál með
beinum lagaákvæðum um tilteknar
orkuveitur og skapað augljóst for-
dæmi fyrir Hitaveitu Suðurnesja.
Meðal annars hafi Hitaveita Suður-
nesja keypt vatnsveitumannvirki
Vestmannaeyjabæjar og engin at-
hugasemdi verið við það gerð. Mál-
efni Hitaveitunnar væru í engu frá-
brugðin umræddum fordæmum. Þá
hefði hún á sínum snærum vatnsöflun
og flutning vatns að bæjarmörkum og
með þessum nýja samningi færðist
dreifing innan bæjarmarka á sömu
hendur. Af því hlytist óvírætt hag-
ræði vegna framkvæmda við neyslu-
vatns- og raforkulagnir í bænum.
Sjálfstæðismenn vöktu einnig at-
hygli á því að Reykjanesbær ætti 40%
hlutafjár í Hitaveitu Suðurnesja og að
þeir vildu tryggja að svo yrði áfram.
Hitaveitan væri í eigu ríkis og sveit-
arfélaga og því ekki verið að gera
samning við eitthvert hlutafélag úti í
bæ, eins og Böðvar Jónsson, formað-
ur bæjarráðs, orðaði það. Böðvar
sagðist ekki geta heyrt annað en
menn væru sammála um að fara þá
leið að selja vatnsveituna og velti því
fyrir sér af hverju minnihlutinn væri
að fara í neikvæða lögfræðitúlkun til
að stöðva málið. Af því tilefni tók Jó-
hann Geirdal fram að hann sæi margt
jákvætt við samninginn en ítrekaði að
Reykjanesbær yrði að fara að lögum.
Kvaðst hann myndu leita úrskurðar
félagsmálaráðuneytisins á lögmæti
samningins.
Árni Sigfússon gerði samkeppnis-
umhverfi á orkumarkaði að umtals-
efni og lagði áherslu á mikilvægi
Hitaveitu Suðurnesja í uppbyggingu
atvinnulífs á svæðinu. Sagði að ef það
yrði stöðvað að Hitaveita Suðurnesja
gæti keypt vatnsveitur og þá jafn-
framt ógnað samningum sem á sínum
tíma voru gerðir um kaup Hitaveit-
unnar á veitumannvirkjum Vest-
mannaeyjakaupstaðar og þar með
vatnsveitu bæjarins en engar athuga-
semdir gerðar við kaup annarra orku-
veitna á vatnsveitum myndi sam-
keppnisfærni Hitaveitu Suðurnesja
skerðast.
Tillaga minnihlutans um frestun á sölu vatnsveitu
Reykjanesbæjar til Hitaveitu Suðurnesja felld
Boðar kæru til fé-
lagsmálaráðuneytis
Reykjanesbær
UM 50 fyrirtæki gengu í Samtök
um betri bæ á stofnfundi sem fram
fór í vikunni. Tilgangur samtak-
anna er að vinna að markaðs-
setningu Reykjanesbæjar og kynn-
ingu á verslun og þjónustu.
„Umhverfið í bænum okkar er að
taka stakkaskiptum. Þannig er
Hafnargatan að verða ein falleg-
asta verslunargatan í landinu. Við
þurfum að fylgja þessu eftir enda
er nú tækifærið til að rífa starfsem-
ina upp,“ segir Rúnar Ingi Hannah
úrsmiður sem verið hefur formaður
undirbúningssamtaka að samtök-
unum sem upphaflega voru hugsuð
sem kaupmannasamtök í mið-
bænum en hafa þróast upp í að vera
samtök áhugafólks og fyrirtækja í
öllu bæjarfélaginu.
Samtökin stóðu fyrir lítilli hátíð,
sem kölluð var lifandi laugardagur,
á dögunum og segir Rúnar Ingi að
margt fólk hafi komið í bæinn og
hátíðin heppnast vel. „Það sýnir að
þegar eitthvað er gert þá tekur fólk
þátt í því,“ segir hann. Rúnar segir
fyrirhugað að halda lifandi daga
oftar, þegar tilefni gefst og taka þá
fyrir mismunandi þætti í samvinnu
við fyrirtæki og félagasamtök í
bænum. Ætlunin er að gefa út dag-
skrá fyrir árið.
Áhugi er á að gefa út sameig-
inleg gjafakort sem gilda í öllum
verslunum og þjónustufyrirtækjum
bæjarins. Fleiri hugmyndir hafa
komið upp. Nefnir Rúnar að nauð-
synlegt sé að kynna fyrirtæki bæj-
arins betur á Keflavíkurflugvelli.
Á stofnfundi samtakanna sem
fram fór á veitingastaðnum Ránni á
mánudagskvöld gerðust 50 fyr-
irtæki aðilar. Rúnar segir að fé-
lagaskráin verði opin áfram og von-
ast til að sem flest fyrirtæki í
bænum taki þátt.
Með Rúnari í stjórn eru Kristín
Kristjánsdóttir, Fjóla Þorkels-
dóttir, Steinþór Jónsson, Hermann
Helgason, Ævar Ingólfsson og Ey-
steinn Eyjólfsson.
Tækifæri til að rífa starfið upp
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Árni Sigfússon ávarpar fund Samtaka um betri bæ. Fjóla Þorkelsdóttir gull-
smiður og Rúnar Ingi Hannah, formaður samtakanna, sitja við háborðið.
Reykjanesbær
Á FUNDI skólanefndar Akureyrar-
bæjar sl. mánudag var Karli Guð-
mundssyni, sviðsstjóra félagssviðs,
og Gunnari Gíslasyni, deildarstjóra
skóladeildar, falið að ganga til samn-
inga við Allskonar TF ehf. um skóla-
akstur í bænum. Um er að ræða
samning til eins árs og tekur hann til
skólaaksturs og aksturs í vettvangs-
ferðum á vegum leik- og grunnskóla
bæjarins.
Akureyrarbær bauð skólaakstur-
inn út nýverið til þriggja ára og voru
tilboð opnuð 8. ágúst sl. Tvö tilboð
bárust; frá SBA-Norðurleið ehf. og
Allskonar TF ehf. Útboðsskilmál-
arnir þóttu nokkuð umdeildir og
kærði Allskonar TF skilmálana til
kærunefndar útboðsmála á þeim for-
sendum að þeir væru sniðnir að
stórum fyrirtækjum og minni fyrir-
tækjum gert ókleift að uppfylla þá.
Skólanefnd tók afstöðu til tilboðanna
á fundi sínum 15. ágúst og ákvað þá
að hafna þeim báðum, því þau væru
of há.
Eftir þennan fund var báðum
bjóðendum gefinn kostur á að skila
inn nýju tilboði, sem tæki einungis til
næsta skólaárs og í raun ekki grund-
vallað á útboðsskilmálunum. Gunnar
Gíslason segir að skammur tími hafi
verið til stefnu og því hafi bærinn
ákveðið að fara þessa leið og bjóða
aksturinn síðan aftur út næsta vor.
„Tilboðunum var báðum hafnað, því
þau voru töluvert hærri en sá kostn-
aður sem við höfum borið af þessum
akstri undanfarin ár. Núna höfðum
við nákvæmari upplýsingar undir
höndum frá skólunum en þegar út-
boðið fór fram og á grundvelli þeirra
var báðum bjóðendum boðið að skila
inn nýju tilboði í akstur næsta skóla-
árs í lokuðu útboði,“ segir Gunnar.
Hann gerir ekki ráð fyrir öðru en
samningar náist við Allskonar TF
áður en skólahald hefst en grunn-
skólar Akureyrarbæjar hefja starf-
semi á morgun.
„Fengum mun
betri upplýsingar“
Þórhallur V. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Allskonar TF ehf., var
mjög ánægður með að samningar við
hans fyrirtæki væru í augsýn. Hann
var ekki ánægður með hvernig stað-
ið var að útboðinu í upphafi en var
sáttur við hvernig málin þróuðust.
„Forsendur breyttust; bæði fengum
við mun betri upplýsingar en fyrir
lágu við útboðið, auk þess sem slegið
var nokkuð af þeim kröfum sem
gerðar voru til varabíla í því. Við
gerðum athugasemdir við það að ef
t.d. fimm bílar væru í akstri þá lásum
við út úr útboðsgögnum að aðrir
fimm þyrftu að vera til vara. Við gát-
um alls ekki samþykkt að það væri
forsvaranleg krafa. Núna verða bara
nægilega margir bílar til vara til að
tryggt sé að ekkert komi upp á; 1–2
eða jafnvel þrír eftir þörfum. Þessar
breyttu forsendur gerðu okkur kleift
að gera annað tilboð sem var enn
lægra en fyrra tilboðið.“ Þórhallur
sagði að fyrirtækið hefði dregið kær-
una til kærunefndar útboðsmála til
baka, þar sem ekki var talið að for-
sendur fyrir henni væru lengur fyrir
hendi. „Akureyrarbær sýndi áhuga á
því að lagfæra galla sem hugsanlega
væru á þessum útboðsgögnum og
ætlar sér að bjóða þetta út aftur í vor
með betri upplýsingum. Það er ekki
vafi að það hafði áhrif að við kærðum
þessi gögn til útboðsnefndarinnar,“
sagði Þórhallur en áréttaði að Ak-
ureyrarbær hefði hafnað upphaflegu
tilboðunum vegna kostnaðar en ekki
vegna þess að útboðið hefði verið
gallað.
Skólaakstur á Akureyri
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Það þarf að huga að mörgu þegar á að kaupa nýja skólatösku og þá er gott
að hafa mömmu með í ráðum.
Gengið til samn-
inga við Alls-
konar TF ehf.
Skákfélag Akureyrar. Hið árlega
Borgarsölumót fer fram í göngugöt-
unni nk. laugardag kl. 14:00. Mótið
er opið öllum 16 ára og yngri og er
keppt um farandbikar en núverandi
handhafi bikarsins er Ágúst Bragi
Björnsson.
Á NÆSTUNNI
Hljómsveitin Brimkló mun leika í
Sjallanum á Akureyri, laugardags-
kvöldið 23. ágúst næstkomandi. Þar
hafa þeir ekki leikið um árabil og
vonast þeir eftir mikilli stemmningu
fyrir norðan um helgina