Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 23

Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 23 Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is á mann m.v. tvo í herbergi me› hálfu fæ›i í 7 nætur. á mann m.v. tvo í herbergi me› hálfu fæ›i í 7 nætur. á mann m.v. tvo í herbergi me› hálfu fæ›i í 7 nætur. 59.930kr. 65.730kr. 59.930kr. Hótel Melia á Benidorm 27. ágúst, 3., 10., 17. og 24. september 28. ág., 4. og 11. sept. 28. ágúst, 4. og 11. september Hótel El Cid - Playa de Palma á Mallorca Hótel Mirador - Palma á Mallorca * Innif.: Flug, flugvallaskattar, gisting, akstur og íslensk fararstjórn. Aukavika, uppl‡singar á www.urvalutsyn.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 19 82 0 8/ 20 03Dekra›u vi› flig og bú›u á huggulegu hóteli me› morgunver›i e›a hálfu fæ›i. Bjó›um 4ra stjörnu hótel á Benidorm og Mallorca í lok ágúst og byrjun september á sérstöku tilbo›sver›i. Haf›u strax samband og bóka›u draumahóteli›. Skólastjóraskipti urðu fyrr í þessum mánuði í Tónlistar- skólanum í Reykjavík þegar Kjartan Ósk- arsson tók við starf- inu af Halldóri Har- aldssyni píanóleikara sem gegnt hefur starfinu undanfarin 10 ár. „Hér í Tónlistar- skólanum er mikið af góðum kennurum og starfsfólki og lít ég ráðninguna björtum augum. Ég er nátt- úrlega búinn að kenna hérna lengi og þekki inn- viði skólans nokkuð vel, þannig að þetta leggst mjög vel í mig,“ segir Kjartan í samtali við Morg- unblaðið. „Ég mun væntanlega halda áfram að kenna með, en ekki eins mikið og ég hef gert. Það yrði eftirsjá að því að hætta að kenna, því mér finnst það vera ákveðin forréttindi að kenna ungu fólki á hljóðfæri. Þeir nem- endur sem við höfum hér eru af- skaplega gott og skemmtilegt fólk og mjög gefandi að fá að starfa með þeim.“ Að sögn Kjartans voru rúmlega 220 nemendur við skól- ann í fyrra og reikn- ar hann með að svip- aður fjöldi komi til með að sækja skól- ann í vetur. „Tónlistarskólinn í Reykjavík er bæði elsti tónlistarskóli og elsti listaskóli lands- ins. Allt frá stofnun, árið 1930, hefur skól- inn myndað grunninn að tónlistarkennslu og tónlistarlífi hér á landi. Allflestir þeir sem starfa við tónlist á Íslandi í dag hlutu sína menntun í Tónlist- arskólanum í Reykjavík.“ Fram til þessa hefur Tónlist- arskólinn bæði útskrifað einleik- ara og tónlistarkennara á há- skóla- jafnt sem menntaskólastigi. „En með tilkomu tónlistardeildar við Listaháskólann hefur hlut- verk okkar að nokkru leyti breyst og í framtíðinni munum við fyrst og fremst einbeita okk- ur að framhaldsstigi tónlistar- menntunar. Og eftir sem áður verður mikil samvinna milli Tón- listarskólans í Reykjavík og Tón- listardeildar Listaháskólans t.d. í tengslum við kammertónlist og hljómsveitir.“ Aðspurður segist Kjartan finna fyrir aukinni ásókn í tónlistarnám almennt. „Gæði tónlistarkennsl- unnar og tónlistarlífsins hafa líka aukist gífurlega á síðustu árum. Það er unnið mikið starf í tónlist- arskólum úti um allt land og við sjáum hvernig það endurspeglast í tónlistarlífinu almennt. Við bú- um við það hér á Íslandi að fólk hefur mikinn áhuga á tónlist enda væri erfitt að ímynda sér lífið án tónlistar,“ segir Kjartan. Kjartan lauk einleikaraprófi á klarínettu og blásarakenn- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1976 og stundaði framhaldsnám við Tónlist- arháskólann í Vínarborg þaðan sem hann lauk prófum vorið 1981. Kjartan hefur verið fastráð- inn klarínettuleikari við Sinfón- íuhljómsveit Íslands frá hausti 1982 og kennari við Tónlistar- skólann í Reykjavík frá 1986. Hann hefur verið deildarstjóri blásarakennaradeildar og stjórn- að hljómsveit og blásarasveit Tónlistarskólans. Skólastjóraskipti í Tónlistarskólanum í Reykjavík Almennt aukin ásókn í tónlistarnám Kjartan Óskarsson RÁÐSTEFNAN Bók- menntir og sjónmenn- ing hefst í Háskóla Ís- lands á morgun og stendur fram til sunnu- dags, en það eru Sam- tök bókmenntafræð- inga á Norðurlönd- unum sem standa að ráðstefnunni í sam- vinnu við Hugvísinda- stofnun. Dagskráin skiptist í þrennt en á morgun verður fjallað um bókmenntir og sjónmenningu í sög- unni, á laugardaginn verður 20. öldinni í fyr- irrúmi og á sunnudag er það 21. öld- in. Að sögn Dagnýjar Kristjánsdótt- ur, prófessors við Háskóla Íslands, og eins skipuleggjenda er von á tæp- lega 60 erlendum gestum sem taka munu þátt í fyrirlestrum og málstof- um sem fram fara næstu þrjá daga. „Við verðum með átta aðalfyrirles- ara sem koma víðs vegar að, bæði frá Norðurlöndunum, Bandaríkjun- um, Kanada og Þýskalandi. Við völd- um fyrirlesara sem hafa verið að skrifa mjög spennandi hluti um tengsl bókmennta og sjónmenning- ar. Þetta eru allt fyrirlesarar í yngri kantinum sem eru engu að síður afar þekktir innan fræðiheimsins. Aðalfyrirlesararnir átta eru Toril Moi, Henrik Wivel, Thomas Fechn- er-Smarsly, Arne Melberg, Karin Sanders, Gitte Mose, Caitlin Fisher og Úlfhildur Dagsdóttir. Auk þess verðum við með sex málstofur, tvær á hverjum degi, þar sem fjallað er um allt milli himins og jarðar. Í eldri bókmenntum má greina virðulegt samband milli bók- menntanna og sjón- menningarinnar. Það eru aðallega málverk og höggmyndalist sem bækurnar segja frá og þetta er líkt og tvö stórveldi séu að tala saman. Á tuttugustu öldinni verður hins vegar vart aukinnar spennu milli sjón- og ritmenningar. Þá er komin meiri pressa á bókmenntirnar frá kvikmyndum, ljósmyndum og öllum þessum nútímalegu mynd- miðlum. Og á þriðja skeiðinu koma tölvur og stafrænir textar til sög- unnar.“ Aðspurð segir Dagný tengsl bók- mennta við sjónmenninguna vera mikið á döfinni. „Menn spyrja sig hvort myndmiðlarnir séu að yfirtaka frásagnarþörf okkar. Getum við látið okkur nægja að horfa bara á kvik- myndir og sjónvarp? Eða eru bók- menntirnar á einhvern hátt að svara þrýstingnum frá myndmiðlunum með því bregðast við þeim, endur- nýja sig og koma sterkari til baka? Okkur finnst mjög spennandi að skoða hvernig myndmiðlarnir eru að breyta ritmiðlunum og öfugt.“ Allar nánari upplýsingar um ráð- stefnuna má finna á vefslóðinni www.hugvis.hi.is/norlit, en þar er einnig hægt að skrá þátttöku sína. Ráðstefna um bókmenntir og sjónmenningu Dagný Kristjánsdóttir Á HÁDEGISTÓNLEIKUNUM í Hallgrímskirkju kl. 12 í dag koma fram þau Veronika Osterhammer sópransöngkona og Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari. Veronika er þýsk að ætt og uppruna en hefur bú- ið hér á Íslandi undanfarin 10 ár og frá árinu 2000 hefur hún verið kór- stjóri kirkjukórsins í Ólafsvík. Frið- rik Vignir er organisti Grundarfjarð- arkirkju og skólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar. Á efnisskrá þeirra er tónlist eftir meistara Bach. Fyrst á efnisskránni er sálmforleikurinn Wachet auf, ruft uns die Stimme (Vaknið, Síons verð- ir kalla), sem er einn af hinum sex svokölluðu Schübler-forleikjum, sem voru gefnir út undir lok ævi Bachs. Þá leikur Friðrik Prelúdíu og fúgu í C-dúr, BWV 545. Síðan leikur hann sex sálmforleiki úr sálmforleikja- safninu Orgelbüchlein og inn á milli syngur Veronika vers úr sálmunum á íslensku. Veronika Osterhammer sópran og Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari. Snæfellingar á hádegistónleikum Listasafn Íslands kl. 20 Kamm- ersveitin Ísafold flytur verk eftir Charles Ives, Anton Webern, Igor Stravinsky, Edgar Varése, Withold Lutoslawsky og Hauk Tómasson. Ísafold er skipuð 15 ungum hljóð- færaleikurum sem allir stunda fram- haldsnám en þeir stofnuðu sveitina fyrr á þessu ári. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.