Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 25

Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 25 ÞAÐ vakti nokkra athygli fyrir skemmstu þegar við Ungir jafn- aðarmenn í Reykjavík gengum á fund kaþólsku kirkjunnar hér á landi og báðum hana fyrir bréf til Jóhannesar Páls páfa II. Ætl- unarverk okkar var að vekja athygli á þeirri fornaldarlegu yfirlýsingu gegn staðfestum sam- vistum samkynhneigðra sem nokkrum dögum áður hafði komið frá Páfagarði. Upp úr þessu öllu saman spratt mikil umræða um réttindi samkynhneigðra sem náði hámarki á Hinsegin dögum þar sem tugþúsundir Íslendinga sýndu skoðun sína í verki með því að fagna Gay pride göngunni þrátt fyrir mígandi rigningu í miðborg Reykjavíkur. Hlustar páfi? Einhverjir spurðu mig hvort við ættum von á að fá svar við bréfi okkar til hans heilagleika. Enn aðrir efuðust um áhrifamátt okkar hér á litla Íslandi og héldu því fram að allar tilraunir til að bregð- ast við fréttum úr heimspressunni væru tilgangslausar. Þessu er ég ósammála. Ég viðurkenni fúslega að ég býst ekki við að fá persónu- legt svar við bréfi okkar enda er páfi í opinberu hlutverki og eðli- legt að allar stefnubreytingar Páfagarðs komi fram með form- legum hætti. Ég vonast hins vegar til þess að bréfi okkar verði komið áleiðis til þeirra sem hafa með þessi mál að gera og að það hljóti að minnsta kosti sömu meðferð og öll önnur bréf stíluð á páfa. Drop- inn holar steininn og ég er sann- færður um að litla bréfið okkar er ekki það eina sem berst í Páfagarð vegna þessa máls. Það er stutt á milli húsa í heims- þorpinu. Það hefur sýnt sig að nauðsynlegt er að grasrótarhreyf- ingar í þróaðri löndum heimsins veki athygli innlendra fjölmiðla á ýmsu misrétti sem á sér stað ann- ars staðar í veröldinni. Þannig fara fréttir í heimspressunni oft á tíð- um af stað en ekki af því að frétta- ritarar séu að senda þær út frá hverjum stað. Upplýsing Vest- urlandabúa fer fram hér hjá okk- ur, og er hún oft það eina sem dugar til að stjórnmálamenn og al- þjóðastofnanir hefji aðgerðir til að stöðva voðaverk eða hjálpa nauð- stöddum. Fréttir og hjálparbeiðnir frá stöðum eins og Austur-Tímor, Búrma og Tíbet hafa löngum kom- ið frá útlögum eða mannréttinda- samtökum á Vesturlöndum sem hafa aðrar leiðir til að afla þeirra. Heimurinn er að skreppa saman. Það er því hættuleg röksemd að smæð þjóðarinnar hindri áhrif okkar á þróun heimsmála. Íslend- ingar bera þvert á móti mikla ábyrgð sem upplýst og velmegandi þjóð að koma öðrum til hjálpar og að reyna að breiða út velsæld sína sem víðast. Það er spurning hversu lengi Ísland viðheldur þeim sessi að vera annað besta land í heimi til að búa í ef við lokum okk- ur af með auðæfi okkar. Sælla er að gefa en að þiggja, segir í góðri bók. Íslenskar konur hreinsa til í Aþenu Nýlegt dæmi um möguleika Ís- lendinga til að hafa áhrif á þróun mála annars staðar í heiminum er þegar feminístafélagið vakti at- hygli íslenskra fjölmiðla á fyrirætl- unum borgarstjórnar Aþenu um að fjölga vændishúsum fyrir Ólympíu- leikana sem haldnir verða í borg- inni á næsta ári. Þetta mun hafa komið fram á ráðstefnu sem haldin var hér á landi og urðu mótmæli íslenskra kvennasamtaka til þess að fluttar voru fréttir af málinu daglega um alla Evrópu og líklegt þykir nú að Aþenuborg hrökklist til baka með ákvörðun sína. Sagt er að oft velti lítil þúfa þungu hlassi og þykir mér það hafa sann- ast hér. Ég hvet til þess að við Ís- lendingar tökum okkur tak og lát- um fleiri mál okkur varða og oftar í okkur heyra. Getum tekið páfa okkur til fyrirmyndar Þrátt fyrir að við höfum verið ósammála síðasta útspili Páfagarðs þá getum við fúslega tekið Jóhann- es Pál páfa II til fyrirmyndar hvað ýmislegt annað varðar, s.s. baráttu hans fyrir friði í heiminum. Páfinn hefur á undanförnum árum beitt sér fyrir sáttum í ýmsum deilum s.s. eins og í Palestínu og hefur jafnframt gagnrýnt ýmsan stríðs- rekstur Vesturlandaþjóða á liðnum árum, jafnvel þegar ljóst mátti vera að hann gæti ekki stöðvað hann. Þessi góðviljaði og merkilegi maður sem heimsótti okkur árið 1989 hefur sett okkur það mik- ilvæga fordæmi að standa ávallt við sannfæringu okkar og að okkur beri að gera okkar besta til að búa til betri heim. Guð blessi hann fyr- ir það. Páfa sent bréf Eftir Andrés Jónsson Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík. ÉG SÁ fallega mynd af Horn- bjarginu í Morgunblaðinu 27. júlí sl. og með henni var frásögn Ragnars Jak- obssonar þegar hann kleif Horn- bjarg frá fjöru og upp á brún. Þetta var vissulega vel gert á þeim tíma. Ég tel þó nauðsyn- legt að bæta nokkrum stað- reyndum við þessa frásögn sem á köflum er mjög hástemmd og farið með nokkrar rangfærslur. Ég þyk- ist vita að þessir ágallar séu á ábyrgð greinarhöfundar. Sjálfur hef ég næstum árvisst allt frá 1960 og fram á síðustu ár stundað eggjatöku í Harðviðrisgjá (kölluð Gjáin meðal bjargmanna) og á ég því að þekkja nokkuð vel til aðstæðna þar. Eftir að hætt var að síga eftir eggjunum af brún var farið niður Gjána frá brún, eggin borin saman af þræðingunum og upp í Gjáarhillu. Þaðan voru þau í fyrstu borin í hvippum upp á brún en síðar var farið að fygla þeim upp á streng frá Gjáarhillu. Um miðjan sjöunda áratuginn var hætt að taka eggin upp á brún, heldur voru þau borin niður Gjána og austur með Gjáarstandi eða niður með Urðarnefi alla leið í fjöru og sótt þaðan á bát. Eggjatekjan fór því fram á öllu því svæði sem Ragnar átti leið um þegar hann kleif bjargið. Efri þræðingur og neðri þræðingur undir Gjárhillunni hafa alla tíð verið tæpir á köflum, en samt fóru menn eftir þeim með 150–200 egg í hvippu, svo fyrir lausan mann að ganga um efri þræðinginn í góðu veðri var engin hættuför að frátöldum strengnum sem klippir í sundur báða þræð- ingana og útilokar för um neðri þræðing og torveldar mjög för um efri þræðing. Það er hins vegar ranghermt í greininni í Morg- unblaðinu um Ragnar að eggjum hafi á seinni árum verið fýrað nið- ur í bát. Sá háttur var hafður á í Gránefjum í Hælavíkurbjargi en aldrei í Hornbjargi. Ragnar er hvorki sá fyrsti né eini maðurinn sem hefur farið yf- ir strenginn í efri þræðingi. Arn- ór Stígsson frá Horni, sem að öðrum fyglingum ólöstuðum er líklega færasti bjargmaður sem stundað hefur Hornbjarg, var fyglingur þeirra Hornmanna á ár- unum 1939 til 1946 og seig að segja má allt bjargið frá Ystadal og austur í Almenningsskarð. Lengsta sig Arnórs var frá efsta Gísla-miðhöggi í Kálfatindum nið- ur í Hvolf austan Rana, en það sig mun vera rúmir 300 metrar, því bæta þurfti vel við festina sem var 120 faðmar. Margir menn voru á festinni og þegar dregið var upp hlupu menn með festina niður á dal. Þá var eins gott að fyglingurinn hefði fæt- urna í lagi. Arnór seig einnig nið- ur á báða þræðingana í Gjánni, fór úr festinni og gekk þræð- ingana. Fór hann þá meðal ann- ars laus úr festi yfir strenginn í efri þræðing sem Ragnar fór yfir. Arnór flutti árið 1946 til Ísafjarð- ar og fór að smíða mublur. Hann kom norður til bjargsiga tvö vor eftir það, 1947 og 1948, en hefur ekki klappað Hornbjargsmubl- unni síðan. Síðustu áratugina hafa Tryggvi Guðmundsson, lögfræðingur, syst- ursonur minn, Einar Valur Krist- jánsson, nú forstjóri HG, og Rós- mundur Skarphéðinsson stýrimaður, verið manna harðastir í eggjatöku á Gjáarsvæðinu. Fleiri hafa verið með þeim annað slagið. Hafa sumir þessara manna farið yfir strenginn í efri þræðingnum, meira að segja með egg í hvippu. Kristmundur Skarphéðinsson, bróðir Rósmundar, fór sem ungur og óreyndur maður yfir strenginn með á annað hundruð egg í hvippu, en hann hafði ekki áttað sig á því að hann átti að snúa við þar sem strengurinn tók þræðing- inn í sundur. Eftir að komið er yf- ir strenginn er ekki stórmál fyrir vana bjargmenn að fara austur þræðinginn inn í Gjá og þaðan upp Gjána og upp á brún. Hafa margir gert þetta þótt þeir hafi ekki farið í einum áfanga frá fjöru upp á brún. Merkilegust er þó sagan af Sig- urði Magnússyni, bjargfélaga mínum (hann fórst í Hælavík- urbjargi 1974) þegar hann fjórtán ára gamall fór sömu leið og Ragnar Jakobsson fór áður. Sig- urður var á Hornbjargsvita hjá Jóhanni Péturssyni vitaverði. Jó- hann sendi Sigurð til fugla- og eggjatekju í Hólm undir Horn- bjargi. Sigurður hafði lítinn mat meðferðis og svaf undir segldúks- dulu sem hann strengdi milli tveggja steina. Þegar Jóhann ætl- aði að sækja Sigurð á þriðja degi gerði norðaustan garð og rign- ingu og varð Jóhann frá að hverfa. Sigurður, eða Siggi eins og hann var jafnan kallaður, var orðinn matarlaus, blautur og kaldur og átti ekki annars úr- kosta en að reyna að komast upp á brún bjargsins og þaðan til Látravíkur. Á þeim tíma þekkti hann lítið til bjargsins en ramb- aði á að fara sömu leið og Ragnar fór upp glufuna austan Urð- arnefs. Þar reyndi hann að kom- ast alla leið upp í Gjáarhillu, en síðustu faðmarnir eru úr sléttu meitilbergi svo hann komst ekki lengra. Munaði litlu að hann hrapaði þegar hann fór niður aft- ur. Á leiðinni niður sá hann efri þræðinginn og fetaði sig austur eftir honum og kom þar að þess- um margumtalaða streng. Glor- soltinn og kaldur klóraði hann sig yfir rennblautan strenginn. Hann sagði mér síðar að þarna hefði litlu mátt muna að hann hrapaði alla leið niður í fjöru. Hann gekk síðan þræðinginn austur í Gjá og þaðan komst hann upp Gjána og heim í Látravík. Þetta hefur sennilega verið árið 1961. Siggi var einn mesti afreksmaður í bjargi sem ég hef þekkt, ótrúlega sterkur og fimur og kunni ekki að hræðast. Að lokum vil ég ítreka að grein- arkorn þetta er ekki skrifað á nokkurn hátt til að gera lítið úr af- reki Ragnars Jakobssonar er hann kleif Hornbjarg heldur til að gefa mönnum gleggri mynd af þessu svæði í Hornbjargi og þeirri starf- semi bjargmanna sem þar átti sér stað á vorin og nú fer senn að heyra sögunni til. Harðviðrisgjá í Hornbjargi Eftir Kjartan Sigmundsson Höfundur er skipstjóri og býr á Ísafirði og kennir sig við Hælavík. Hlíðasmári 1-3 Til leigu/sölu Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smáranum í Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um sig ca 4.000 fm. Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bílastæði. Frábært útsýni. Sér- lega vönduð og fullbúin sameign. Allar nánari uppl. gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á skrifstofu. Þorbjörn Pálsson - símar 520 9555/898 1233 thorbjorn@remax.is - Hans Pétur Jónsson lögg. fastsali Heimilisfang: Jórusel 18 Stærð eignar: 326 fm Brunab.mat: 32.484 Byggingaár: 1981 Áhvílandi: Ekkert Verð: 28.000 Eitt virðulegasta HÚSIÐ í Seljahverfi, innst í botnlanga, mjög vel við haldið. 6 herbergi, 3 stofur. Mjög stórt rými um 75 fm á jarðhæð sem mætti breyta í litla íbúð. Sérstæður bílskúr. Mjög stutt í grunnskóla og aðra þjónustu. Komið nú og gerið tilboð. Sjáið sjálf og sannfærist. Öll skipti koma til greina. Einbýlishúsið er til afhendingar í september. Tekið er á móti gestum á milli kl. 20 og 21 í kvöld. Þorbjörn sölufulltrúi RE/MAX Mjódd Símar 520 9555, 898 1233 thorbjorn@remax.is Opið hús í dag - Jórusel 18 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Hákon, sími 898 9396. ÞJÓNUSTUÍBÚÐ ÓSKAST Mér hefur verið falið að leita eftir 2ja–3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi ætluðu fólki 60 ára og eldri. Æskileg staðsetning er miðsvæðis í Reykjavík, þó ekki skilyrði. Verðhugmynd 13-18 millj. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Hafðu samband - það kostar ekkert! Vorum að fá í sölu heilan stigagang með fjórum íbúðum. Um er að ræða eina 2ja herbergja 46,6 fm íbúð í kjallara og þrjár 3ja herbergja íbúðir á 1. og 2. hæð og í risi frá 82 til 95 fm að stærð. Verð á 2ja her- bergja íbúðinni er 8,0 m. 3ja herbergja íbúðirnar eru frá 12,0-12,5 m. Endurnýjað rafmagn, yfirfarið skólp og nýjar rennur. Frábær staðsetn- ing. Húsið lítur vel út að utan. Íbúðirnar eru lausar fljótlega. 3567 Eiríksgata - Fjórar íbúðir á eftirsóttum stað við Landspítalann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.