Morgunblaðið - 21.08.2003, Side 26

Morgunblaðið - 21.08.2003, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F ORSTJÓRI Slátur- félags Suðurlands sagði í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku að hann byggist við að SS greiddi sauðfjárbændum 6–10% lægra verð fyrir lömb í haust en í fyrrahaust. Flest bendir einnig til að útflutningshlutfall lambakjöts verði hækkað í haust, en það hefur í för með sér lægra afurðaverð. Sauðfjárbændur standa því frammi fyrir verulegri tekjulækkun. Þessi tekjusamdráttur sem sauð- fjárbændur virðast standa frammi fyrir er að stærstum hluta afleiðing þess ástands sem verið hefur á kjöt- markaðinum síðustu 1–2 árin. Framleiðsla á svínakjöti og kjúk- lingum hefur aukist meira en mark- aðurinn hefur tekið við. Þetta hefur síðan leitt til verðlækkunar á þess- um vörum sem aftur hefur stuðlað að verðlækkun á öðru kjöti. Offramleiðsla og verðlækkun Verð á kjúklingum lækkaði mikið vorið 2001 en hækkaði aðeins aftur þegar leið á árið. Verðið lækkaði svo aftur mikið tímabundið í sumar en hefur nú hækkað á ný. Verð á svínakjöti hefur lækkað gríðarlega í sumar. Verðlækkunin á einu ári er meiri en 25%. En þó að verð á svínakjöti og kjúklingum sé lágt og salan mikil er samt um birgðasöfnun að ræða í þessum tveimur greinum. Á síðustu 12 mánuðum hafa birgðir á kjúk- lingum aukist um 550 tonn og fram- leiðsla á svínakjöti umfram sölu er um 310 tonn. Og afkoma framleiðenda í þess- um tveimur greinum er allt annað en góð. Bændur eru núna að fá 120– 130 krónur fyrir kílóið af svínakjöti og telja þeir sjálfir að verðið þyrfti að vera 100 krónum hærra til að hægt sé að segja að þeir fái fyrir framleiðslukostnaði. Óhætt er að fullyrða að nánast öll svínabú á far nauðasamninga og gj Íslandsfugls á Dalvík, en veitenda þessara tveggj tækja í ár er ekki undir 6 ónum. Mjög hefur þrengt að fó fyrirtækjum á síðustu miss bændur hafa átt í erfiðleik að standa í skilum með fyrir fóður samhliða lækk urðaverði. Ekki liggur fyrir hvað lá anir hafa tapað miklu á lá um í kjúklingarækt og sví síðustu árum. Það er þó bankar og fóðursölufyrirt búin að afskrifa hundruð vegna taps í þessum greinu þarf mikla reikningskúns finna út að hætt er við a fjármunir tapist á næstu m ef taprekstur búanna stöðv En þó að mikið reyni n hagslegan styrk svínabæ landinu séu því rekin með miklu tapi um þessar mundir. Ekki hefur náðst samstaða innan atvinnugrein- arinnar um að draga úr framleiðslu, en bændur telja að ef vel ætti að vera þyrfti að fækka gyltum í land- inu um 500. Afkoma í kjúklingarækt hefur í nokkur ár verið mjög slök. Allir stærstu framleiðendur kjúklinga, nema einn, hafa á síðustu árum gengið í gegnum fjárhagslega end- urskipulagningu, þ.e. gjaldþrot, niðurfellingu skulda eða aukningu á hlutafé. Samkvæmt ársreikningum stærstu búanna töpuðu þau 240 milljónum árið 2000 og 820 millj- ónum árið 2001. Taprekstur var einnig á síðasta ári þó að endanleg- ar tölur liggi ekki fyrir eða hve mik- ið tapið var. Ljóst er að tap á þessu ári verður mjög mikið þó að ekki sé horft á annað en niðurfellingu skulda kjúklingabúsins Móa í kjöl- Verð til sauð bænda læk og sala minn Í því umróti sem verið hefur á kjötmark- aðinum hafa sauð- fjárbændur átt erfitt með að verja stöðu sína. Flest bendir til að þeir standi nú frammi fyrir verulegri tekju- rýrnun. Egill Ólafsson skoðaði stöðu bænda og hvernig verð og sala hefur þróast. „STAÐAN er hrikaleg. Það er ekkert hægt að orða það á ann Kjötmarkaðurinn er allur í uppnámi vegna offramboðs á kjöt Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Íslands um stöðu sauð fjárbænda. Miklar lambakjötsbirgðir séu í l salan hafi dregist saman og fyrirsjáanlegt verð til bænda verði lægra í haust en í fyrr Ari sagði að verð á öllu kjöti hefði lækka framleiðenda. Lækkunin væri mest hjá svín um. Enn sem komið væri hefði lækkun á ve lambakjöts mest bitnað á sláturleyfishöfum bænda kæmi fram nú í haust. „Þetta offram svínakjöti á lágu verði hefur orðið til þess selst minna af lambakjöti. Birgðir eru of m Það þyrfti að ákveða útflutningsskyldu me til þess og flytja þessar birgðir út, en það ákveðin uppgjöf gagnvart markaðinum að láta svínakjötið flæ á undirverði og flytja út lambakjöt í staðinn.“ Aðspurður sagði Ari að ef byggt væri á sömu forsendum vi reikning á útflutningsskyldu og gert hefði verið á síðustu áru útflutningsskyldan að vera 35%. „Þörfin er ekki minni en það er verið að tala um að reyna að vinna á birgðum,“ sagði Ari. Ari Teitsson, formaður Bændasamtakann „Staðan er hrikaleg Ari Teitsson ENDANLEGAR tölur Hagþjónustu landbúnaðarins um afkom fjárbænda á síðasta ári liggja ekki fyrir, en á árinu 2001 voru allaun sauðfjárbænda af fjárbúskap um 69.000 krónur á mánu Þessi tala er byggð á reikningum 103 sauðfjárbúa, en meðalb var 316 vetrarfóðraðar kindur. Afkoma stærri búanna er tals betri en minni búanna. Þannig eru laun bænda sem eru með kinda bú um 104 þúsund á mánuði. Í þessum tölum er búið að taka tillit til afskrifta, en þær ná meðaltali 617 þúsund krónum á ári. Heildarvelta búanna árið var að meðaltali 3,5 milljónir króna. Sauðfjárbúin hafa að meðaltali 391 þúsund krónur í aðrar ári. Þar munar langmest um tekjur af hlunnindum, en þær sk að sjálfsögðu ærið misjafnt niður á búin. Hver sauðfjárbóndi skuldaði í lok ársins 2001 að meðaltali ónir króna. Stærri búin skulduðu meira en minni búin. Bókfæ eignir búanna námu hins vegar 8,4 milljónum. 69 þúsund í meðallaun ÞUNG HÖGG Veruleiki Mið-Austurlanda felluryfirleitt illa að kenningum ogáætlunum. Bjartsýnum spám um frið hafa oft verið veitt þung högg þegar líkur virðast á að þær kunni að rætast. Með nokkurra klukkustunda millibili sprungu á þriðjudag öflugar sprengjur annars vegar í miðborg Bagdad og hins vegar í miðborg Jerúsalem. Í báðum tilvikum var um að ræða sjálfsmorðs- árásir er miðast að því að grafa undan tilraunum til að koma á friði og stöð- ugleika á viðkomandi svæði. Í Bagdad var steypubifreið hlaðinni sprengiefnum ekið inn í höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni. Meðal þeirra sem lágu í valnum var Sergio Vieira de Mello, aðalfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Írak. Árásinni var ekki beint gegn hernámsliði Bandaríkjanna heldur starfsfólki alþjóðasamfélagsins sem vinnur að því að byggja landið upp á nýjan leik. De Mello hafði við komu sína til Bagdad lýst yfir að hann liti svo á að hlutverk sitt væri að tryggja hags- muni almennings í Írak. Að undanförnu hafa hryðjuverka- menn einnig framið skemmdarverk á vatnsleiðslu, sem veitir vatni til Bagd- ad, og olíuleiðslu. Fyrr í mánuðinum féllu sautján er sprengja sprakk við sendiráð Jórdaníu í Bagdad. Í Jerúsalem sprengdi maður sig í loft upp í tveggja hæða strætisvagni fullum af fólki. Tuttugu féllu og rúm- lega hundrað særðust, allt óbreyttir borgarar, þar af fjöldi barna. Mikilvæg kaflaskil eiga sér nú stað í Mið-Austurlöndum. Með falli stjórnar Saddams Husseins og efldum tilraun- um til að ná samkomulagi milli Ísraela og Palestínumanna gefst sögulegt tækifæri til að koma á friði í þessum heimshluta. Þar getur hins vegar brugðið til beggja átta. Markmið tilræðismanna í Bagdad og Jerúsalem er að grafa undan því ferli sem nú er í gangi. Flest bendir til að þarna hafi verið að verki skipulögð hryðjuverkasamtök og hafa verið leidd- ar líkur að því að al-Qaeda tengist til- ræðum undanfarinna daga í Bagdad. Fregnir hafa borist af því undanfarna daga að öfgamenn streymi til Íraks í því skyni að valda þar usla. Með of- beldisverkum sínum reyna þeir að valda upplausn er gæti kæft þann vísi að stöðugleika er verið hefur til staðar. Það er mikilvægt að brugðist verði við af festu. Vegvísirinn að friði er sögulegt tækifæri til að draumur Pal- estínumanna um sjálfstætt ríki verði að veruleika. Til að svo megi verða er hins vegar nauðsynlegt að Palestínumenn sjálfir sýni að þeir líði ekki að fjölda- morðum sé beitt sem vopni í þeirra nafni. Að sama skapi verða Bandaríkin að sýna að þeim er alvara í því að byggja upp lýðræðislegt og velmegandi þjóðfélag í Írak. Það mun ekki takast nema hægt sé að tryggja öryggi í land- inu. Þar verða þeir að taka höndum saman við írösku þjóðina og Sameinuðu þjóðirnar með markvissari hætti en gert hefur verið til þessa. Með sam- stilltu átaki er hægt að halda áfram að þoka þróuninni í rétta átt. Sú leið verð- ur torsótt og vafalaust eiga atburðir á borð við þá á þriðjudag eftir að end- urtaka sig á næstunni. Uppgjöf gagn- vart þeim öflum er hafa hatrið að leið- arljósi er hins vegar ekki kostur í stöðunni. UMHVERFISSLYS Í NORÐFIRÐI Atvikið í Neskaupstað í gær, þar semþúsundir eldislaxa sluppu úr geymslukví Síldarvinnslunnar í höfninni og út í sjó, verður að teljast verulegt um- hverfisslys. Aðeins hefur tekizt að ná broti af laxinum aftur í net. Enginn veit hvernig öllum hinum reiðir af, en engan veginn er hægt að útiloka hættuna á því að eldislaxinn gangi upp í ár og mengi villta laxastofna. Það er mikið til í því, sem Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir í Morgunblaðinu í dag, að mesta tjónið í þessu slysi felist í þeim álits- hnekki, sem laxeldið verður fyrir. Þeir, sem hafa viljað takmarka sjókvíaeldi á laxi í því skyni að vernda villta laxinn í ánum, hafa spáð því að slys af þessu tagi yrðu, og m.a. vísað til nágrannaland- anna, þar sem víða er talið að eldislax hafi spillt mjög villtum laxastofnum og skemmt laxveiðiár. Talsmenn laxeldis- stöðvanna hafa svarað með því að segja að þeir hafi lært af reynslu annarra og beiti nýjustu tækni og þekkingu við at- vinnugrein sína, þannig að hættan á slík- um slysum sé hverfandi. Slysið nú er augljóslega nokkurt áfall fyrir málstað þeirra. Verndarsinnar hafa einkum haft áhyggjur af því að eldiskvíar bresti í vondum veðrum, en þetta slys varð í ágætu veðri og ekki í eldiskví sem slíkri, heldur í kví þar sem lax var geymdur á meðan hann beið slátrunar. Í Morgun- blaðinu í dag kemur fram að ekkert formlegt starfsleyfi hafi verið gefið út fyrir kvínni og vísa embætti veiðimála- stjóra og Fiskistofa þar hvort á annað. Þar er augljóslega gloppa í eftirliti með starfsemi sem þessari. Hafi verið farið að gildandi reglum við slátrun laxins í Nes- kaupstað vaknar líka sú spurning, hvort ekki þurfi að herða reglurnar til þess að koma í veg fyrir að slys af þessu tagi end- urtaki sig. Árni Ísaksson veiðimálastjóri bendir á það í Morgunblaðinu í dag að til séu drög að nýrri reglugerð um búnað og innra eftirlit í laxeldisstöðvum. Björgólfur Jóhannsson segir í blaðinu í dag að kvíin í höfninni hafi verið „bráða- birgðaaðstaða“, en verið sé að vinna að varanlegri lausn, þannig að sláturfiskur- inn verði á landi á meðan hann bíður eftir slátrun. Þetta bendir til að Síldar- vinnslumenn hafi sjálfir talið að kvíin væri ekki nógu örugg. Þó hljóta menn að hafa áttað sig á mikilvægi þess að notast ekki við „bráðabirgðalausnir“ í jafnvið- kvæmum rekstri. Sú varúðarráðstöfun hefur verið gerð af hálfu stjórnvalda að banna kvíaeldi á laxi nema á svæðum, þar sem ekki eru náttúrulegar laxveiðiár í nágrenninu. Vonandi er að sú ráðstöfun komi að gagni í þetta sinn. Af hálfu veiðimálastjóra- embættisins hefur hins vegar verið bent á að rannsóknir skorti á kortlagningu farleiða laxa í hafinu og með ströndum landsins, auk þess sem erfðafræðilegar rannsóknir á villtum laxi og eldislaxi skorti. Þekking á þessum þáttum er nauðsynleg til að meta áhrif eldislax á villta laxinn og slys á borð við það, sem varð í Norðfirði í gær, hljóta að vera mönnum hvatning til að leggja aukna áherzlu á rannsóknir á þeim. Miklir framtíðarmöguleikar eru í lax- eldi við Ísland en vegna villtu laxastofn- anna verður að fara að mjög ströngum reglum við sjókvíaeldið. Vonandi læra menn af þessari reynslu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.