Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 38
DAGBÓK 38 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Paloma I og Shotoku Maru no 78 koma og fara í dag. Poseidon kemur í dag. Akraberg, Goðafoss og Arnarfell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Halifax kemur í dag. Westland fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Skrán- ing í vetrarstarf hefst mánudag 25.ágúst í myndmennt, postu- línsmálun, línudans, leikfimi og boccia. Handavinnustofa opin alla daga frá 9–16.30. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Smíðastofan er lokuð til 11. ágúst. Handavinnustofan op- in, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia. Kl. 13.30 lengri ganga. Púttvöllur opinn mánu- dag til föstudags kl. 9– 16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 14 dans. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10– 13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 aðstoð við böðun, hárgreiðslu- stofan opin, púttvöll- urinn opin kl. 9-16.30. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16.30 postu- línsmálning, kl. 9–16 opin vinnustofa, kl. 13.30 söngtími. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. bingó kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsib. brids í dag 13. Skaftafellssýslur 27. ágúst 4 dagar, laus sæti. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl.10.30 helgistund fá hádegi vinnusalur og spilasal- ur opinn. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum kl. frá kl. 9– 15. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur á staðnum, og opin handavinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 10 boccia, 13.30 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótaaðgerðir. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 ganga. Vesturgata. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia. Á morgun föstudag kl.15 verður ferðakynning á vegum Úrval Útsýn.Lilja Jónsdóttir kynnir haust og vetrarferðir, dregið verður úr lukkupotti, pönnukök- ur með rjóma, dansað við lagaval Sigvalda, allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia æfing, kl. 13 frjáls spil. Minningarkort Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561- 5622. Minningarkort Sjúkraliðafélags Ís- lands eru send frá skrifstofunni, Grens- ásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9– 17. S. 553-9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minningarkortin fást nú í Lyf og Heilsu verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar kr.500.- Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæj- arskrifstofu Seltjarn- arness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Í dag er fimmtudagur 21. ágúst, 233. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Lækna mig Drottinn, að ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að mér verði hjálpað, því að þú ert minn lofstír. (Jer. 17, 14.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI þarfoft að fletta upp í gagnasafni Morgunblaðsins sem og annarra fjölmiðla. Stund- um kemur einnig fyrir að þörf er á að draga fram ára- tugagömul Morg- unblöð og þá er vissara að vera ag- aður og gleyma sér ekki og fara að lesa hitt og þetta sem kemur málinu alls ekkert við. En það er hægara sagt en gert, enda margt skemmti- legt að finna frá liðinni tíð. Orðalag í auglýsingum er kostulegt, jafnan er textinn orðmeiri en nú til dags og háttsemi, sem er vandfundin í dag, svífur þar yfir vötnum. Hér er ein frá 1956: „Er ekki betra að kaupa bláu Gillette-blöðin í málm- hylkjunum? Þér sparið tíma og fyr- irhöfn – og þau eru ekkert dýrari.“ Þá kemur upp í hugann gamalt og gott slagorð frá Land Rover úr þeirra eigin bæklingi: „Fjölhæfasta farartækið á landi“ stóð þar. Hugsa sér. Það var mynd af jeppa og samt var tekið fram að nota ætti far- artækið á landi. Annað dæmi: „Eversharp, – brautryðjendur kúlupenna bjóða yður penna, sem eru fleiri kostum búnir en nokkrir aðrir kúlupennar.“ Orðalag í auglýsingum hefur auð- vitað breyst í áranna rás, rétt eins og í fréttum að meðtöldum sjón- varpsviðtölum og fleiru, hversdags- legum samræðum fólks ef út í það er farið. Það finnst ekki öllum þró- unin jákvæð og sumir halda því fram að auglýsingatextar nú til dags séu afarfrekir og ágengir. Vík- verja finnst jú sumar auglýsingar yfirgengilega ágengar, eða hvað finnst fólki um þessa t.d.: „Ef þú hlustar ekki á FM (útvarpsrás) þá verður hundurinn þinn skotinn.“ Það má skjóta því að að textinn var bannaður og viðkomandi auglýs- anda skipað að taka niður skilti þar sem hann sást. Þetta gerðist bara fyrir örfáum árum. x x x ALLTAF koma fram nýjar tísku-bylgjur í auglýsingaritun. Nú er í tísku að segja að ákveðin bíla- sala sé „öruggur staður til að vera á“. Víkverji hefur ekki sannreynt þessa fullyrðingu en hitt veit hann, að Blóðbankinn er dæmi um örugg- an stað til að vera á. Þar fær maður hvíld á heimsins þægilegustu bekkjum og kaffi og með því á eftir. Ef bílasalan getur sannfært Vík- verja um að hún sé öruggari staður en Blóðbankinn má skíra hund í höfuðið á Víkverja. Það slær engin bílasala Blóðbankann út, bara svo það sé á hreinu. Bara um daginn var Víkverji þar nokkrum vikum fyrr á ferðinni en æskilegt var. Dömurnar í Blóðbankanum sendu hann ekki bara burt og báðu hann um að koma aftur seinna. Auðvitað var boðið upp á hádegismat og blóð- þrýsingsmælingu. Þetta kallar Vík- verji sko öruggan stað til að vera á. Nokkuð ágeng auglýsing? ÉG vil taka undir skrif í sambandi við vegaxlir á Reykjanesbraut. Ég held að það sé gert of mikið af því að hvetja fólk til að víkja fyrir þeim sem vilja aka hraðar. Ég keyri oft brautina og keyri eftir aðstæðum, yfir- leitt á 90 en viðurkenni samt að ég á það til að fara í 100 ef aðstæður eru góðar. Oft fór ég út á axlirnar til að hleypa þeim sem voru að flýta sér þvílíkt, að þeir virðast einskis svífast, t.d. að fara hægra megin fram- úr, en ég er steinhætt því nema í einstaka tilfellum, sem ég met þannig að það sé betra að víkja. Keyrandi á 90–100 km hraða tel ég mig ekki þurfa að fara út á öxl, en um leið og aðstæður leyfa gef ég stefnuljós um að í lagi sé að taka framúr. Annað efni. Er ekki hægt að gefa rjúpnaskyttum skotleyfi á mávana sem eru að verða meiri háttar plága víða á landinu. Ég geri mér grein fyrir að skotveiði- menn borða þá líklega ekki, en byssurnar er sennilega hægt að nota. Kg. Skemmtiskokk og tímamæling LESANDI hafði samband við Velvakanda og sagðist hann hafa tekið þátt í 3 km skemmtiskokki á Menning- arnótt og segir hann að þátttakendur hafi ekki fengið að vita tímana sem þeir hlupu á. Finnst honum að það megi bæta þetta og leyfa fólki að vita á hvaða tíma það hleypur. Alvöru beyglustaður Á LAUGAVEGINUM er kominn alvöru beyglustað- ur eins og ég hef kynnst í Bandaríkjunum. Finnst mér þetta æðislegt og bendi ég fólki á að prufa staðinn. Guðrún Einarsdóttir. Borgarráð og Sinfónían BORGARRÁÐ er um þess- ar mundir að frábiðja sér Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í því sambandi rifjast upp að fyrir nokkrum ára- tugum samþykkti þing- flokkur Framsóknarflokks- ins stjórnarfrumvarp varðandi fjárveitingu til hljómsveitarinnar. Einn mætur þingmaður flokksins utan af landi gerði grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi orð- um: „Ég vil ekki gerast flokksskítur og samþykki því fjárveitinguna gegn því að hún komi aldrei í mitt byggðarlag.“ Reykvíkingur. Tapað/fundið Svart veski týndist SVART veski týndist við Lindargötu sl. laugardag. Íbúar í götunni og nágrenni eru beðnir um að svipast um eftir veskinu. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562 1510. Fermingarúr týndist ÉG var svo óheppin að týna fermingarúrinu mínu í mið- borg Reykjavíkur á Menn- ingarnótt. Ef einhver hefur fundið það, vinsamlegast hringið í Ingu Rún í síma 566 7166 eða 898 9045. Campers-skór teknir í misgripum SVARTIR Campers-karl- mannaskór voru teknir í misgripum í Sundlauginni á Seltjarnarnesi og aðrir svipaðir með upphækkun skildir eftir. Skilvís finn- andi hafi samband við Val- geir í síma 552 4690. Gullhringur í óskilum GULLHRINGUR fannst í Ísbúð Vesturbæjar við Hagamel. Eigandi getur haft samband í síma 552 3330 eða 896 3330. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Enn um vegaxlir Morgunblaðið/Árni Torfason LÁRÉTT 1 heiðrar, 4 ánægð, 7 blíðuhótum, 8 borða, 9 beita, 11 einkenni, 13 vaxi,14 óþekkt, 15 stúfa, 17 spil, 20 löngun, 22 meðalið, 23 frí, 24 hinn, 25 hljóðfærið. LÓÐRÉTT 1 miða byssu, 2 kasta rek- unum, 3 víða, 4 fjögur, 5 andlegt atgervi,6 tölu- staf, 10 athyglis, 12 fugl, 13 sendimær Friggjar, 15 kýr, 16 lágfótan, 18 sjáv- ardýr, 19 skottið, 20 kvæði, 21 höfuð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 skákdæmið, 8 flakk, 9 lemur, 10 nóa, 11 nakta, 13 rýrna, 15 kapps,18 sakna, 21 vit, 22 lykti, 23 æstar, 24 bakaranna. Lóðrétt: 2 kjark, 3 kikna, 4 ætlar, 5 ilmur, 6 ofan, 7 arka, 12 tap, 14 ýta, 15 kalt, 16 pakka, 17 svipa, 18 stæla, 19 kátan, 20 aurs. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16     Ásta R. Jóhannesdóttir,þingkona Samfylk- ingarinnar, er stórorð í pistli á heimasíðu sinni.     Hún segir: „Sumariðhefur einkennst af svikum og ábyrgðarleysi þegar ríkisstjórnarflokk- arnir eru annarsvegar. Hvert kosningaloforðið af öðru virðist vera orðin tóm. Vart var búið að telja upp úr kjörköss- unum umdeildri talningu, sem ekki mátti end- urtaka, þegar loforð fuku fyrir lítið. Fyrst voru það Héðinsfjarðargöngin og síðan línuívilnunin, hvort tveggja loforð sem sóp- uðu atkvæðum til stjórn- arliða og tryggðu þeim nauman meirihluta í kosningunum í vor, að margra mati.     Fjársvikamál og fjár-málahneyksli reka hvert annað og enginn ber ábyrgð á neinu. Fyrstan skal nefna fjár- málastjóra Símans, sem skaut undan hátt á þriðja hundrað milljóna króna úr fyrirtækinu. Enginn bar ábyrgð á því, þótt helstu rök fyrir him- inháum launum forstjór- anna þar hafi verið hin mikla ábyrgð þeirra í starfi.     Síðan kom skýrsla Sam-keppnisstofnunar, þar sem fram kemur að olíufélögin virðast hafa með ólöglegu samráði haft um 4 milljarða á ári – ef ekki enn meira – af al- menningi, og enn er eng- inn ábyrgur. Ríkislög- reglustjóri telur ekki ástæðu til að lögsækja þá sem viðurkenna að hafa þarna brotið lög.     Nú síðast er almenn-ingur látinn bera tap á eina síðdegisblaðinu upp á heilar 700 milljónir – eins og ekkert sé – með því að hinn nýseldi rík- isbanki Landsbankinn af- skrifar skuldir fyritæk- isins, sem nema reyndar mun hærri upphæð en þeim 700 milljónum sem samið var um að kaup- verð bankans myndi að hámarki lækka eftir á. Og helst vill bankinn fá meiri afslátt á kaupverðinu þannig að almenningur í landinu – þ.e. ríkið – borgi allt tapið á blaðinu! Hvernig stendur á því að bankinn lánar síðdeg- isblaðinu á þriðja milljarð án þess að hafa tilskilin veð á bak við lánin? Er nokkur ábyrgur fyrir því heldur?     Þetta hljómar allt einsog lygasaga – og ekki að furða þótt einhverjir velti fyrir sér í hverskon- ar samfélagi við búum. Einhverstaðar hafa topp- ar mátt fjúka af minna til- efni,“ segir Ásta.     Þetta eru alvarlegarásakanir hjá þing- manninum. Reyndar má spyrja, hvort allar full- yrðingar þingmannsins geti talist fullsannaðar. STAKSTEINAR Ásakanir Ástu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.