Morgunblaðið - 21.08.2003, Qupperneq 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 43
Mótið er höggleikur með og án forgjafar,
hámarks grunnforgjöf karla 24 og kvenna 28.
Verðlaun veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki
auk nándarverlauna á par 3 brautum.
Dregið verður úr skorkortum viðstaddra í mótslok.
Rástímar frá kl. 9-11 og frá kl. 14-16.
Upplýsingar og skráning á golf.is og í síma 483 3009 og 696 1370.
Mótsgjald kr. 3.000.
Styrktaraðilar mótsins eru: Hafið bláa ehf. Hótel Örk, Mjólkurbú Flóamanna,
Karl Guðmundsson úrsmiður, Humarvinnslan-Portland ehf., Hafnarnes hf.,
Þormóður rammi Sæberg hf., Ferðaþjónustan Núpum og Eðalvín ehf.
Golfklúbbur Þorlákshafnar heldur
opið golfmót á Þorlákshafnarvelli
laugardaginn 23. ágúst
Opna Þorlákshafnarmótið!
EIÐUR Smári Guðjohnsen setti
nýtt markamet hjá Íslandi í Evrópu-
keppni landsliða þegar hann kom Ís-
landi yfir á 5. mínútu í Þórshöfn. Það
var sjötta mark hans í keppninni og
þar með komst hann framfyrir Atla
Eðvaldsson, sem skoraði 5 mörk fyr-
ir Ísland í Evrópukeppninni. Þriðji
er Eyjólfur Sverrisson með 4 mörk.
EIÐUR skoraði jafnframt sitt 9.
mark fyrir A-landslið Íslands í Þórs-
höfn í gærkvöld. Þar með hefur hann
gert 9 mörk í 25 landsleikjum og er
kominn í 9.–12. sæti yfir marka-
hæstu leikmenn landsliðsins frá upp-
hafi. Jafnir honum eru feðgarnir
Þórður og Teitur Þórðarsynir og
Tryggvi Guðmundsson.
PÉTUR Marteinsson skoraði hins-
vegar sitt fyrsta mark fyrir A-lands-
lið Íslands í gærkvöld en hann lék
sinn 26. landsleik.
PATREKUR Jóhannesson, lands-
liðsmaður í handknattleik, hefur
ekki enn fengið staðfest félagaskipti
frá þýska handknattleikssamband-
inu frá Essen til Bidasoa á Spáni.
Sambandið telur að hann sé í banni
til 24. nóvember, þrátt fyrir að dómi
sambandsins hafi verið hnekkt í
vinnuréttindadómstóli Þýskalands.
Lögmaður Patreks hefur óskað eftir
að Handknattleikssamband Evrópu
taki á málinu.
ARSENAL hefur gert samning
við 16 ára strák frá Spáni – Cesc
Fabregas. Barcelona reyndi að
halda stráknum á Spáni, en hann
valdi frekar að skrifa undir sex ára
samning við Arsenal. Fabregas hef-
ur verið fastamaður í 17 ára landsliði
Spánverja.
SOL Campbell varnarmaðurinn
sterki hjá Arsenal hefur verið
ákærður af aganefnd enska knatt-
spyrnusambandins fyrir að sparka í
Djemba-Djemba leikmann Man.
United í leik liðanna um samfélags-
skjöldinn á dögunum. Ef Campbell
verður fundinn sekur á hann yfir
höfði sér þriggja leikja bann.
EYÞÓR Atli Einarsson leikmaður
Grindvíkinga leikur ekki meira með
þeim á yfirstandandi leiktíð. Eyþór
hélt í vikunni til Bandaríkjanna þar
sem hann mun stunda nám í Flórída.
Eyþór lék 12 leiki fyrir Grindavík í
deildinni og skoraði eitt mark.
BRASILÍSKI sóknarmaðurinn
Elber telur að Bayern München ætti
að selja sig fljótlega því annars fer
hann á frjálsri sölu frá félaginu eftir
tímabilið. Elber hefur margoft sagt
að hann ætli ekki að leika meira með
München eftir að samningi hans lýk-
ur en það gerist næsta sumar. Elber
er 31 árs gamall og á ekki lengur
öruggt sæti í byrjunarliði München
eftir tilkomu Roy Makaay.
FÓLK
reyndar gott að koma inn strax og
við skoruðum, 2:1, því það var skorað
upp úr horninu á meðan ég beið eftir
skiptingunni,“ sagði Arnar Grétars-
son sem kom inn á fyrir Brynjar
Björn Gunnarsson og lék á miðjunni.
„Það kom smáhik á okkur þegar
ég var að koma inn á, staðan var
breytt og ég þurfti því að fá öðruvísi
fyrirmæli en annars. Við fengum á
okkur pressu eftir markið og féllum
til baka. Færeyingarnir eru líkam-
lega sterkir og við lentum í basli með
þá, í staðinn fyrir að vera rólegri á
boltanum og reyna að spila okkur út
úr vandræðunum. Við vorum full
taugaóstyrkir, en ég er fyrst og
fremst ánægður með að hafa unnið.
Það er ekkert auðvelt að koma hing-
að og hirða þrjú stig, auk þess sem
það var mikil pressa á okkur. En það
er frábært að standa uppi eftir leik-
inn í efsta sætinu í riðlinum þegar
aðeins tveir leikir eru eftir í keppn-
inni. Nú fáum við fullan völl gegn
Þjóðverjunum 6. september. Þeir
Það var erfitt að gera eitthvað viðmarkinu því þetta gerðist allt
mjög hratt. Fyrirgjöfin var góð, fast-
ur bolti að stönginni
fjær, skallað í Þórð
sem var hinum meg-
in, ég var kominn úr
jafnvægi þegar
skallinn kom að
markinu. Ég var samt nálægt því að
verja, en vantaði herslumuninn upp
á að ég næði til boltans. Það fór um
mig í stöðunni 1:1, hún var óþægileg,
en við náðum sem betur fer að skora
fljótlega og höfðum þetta af. En pan-
ikin í þeirri stöðu var of mikil, það
hefði verið betra að halda áfram að
pressa Færeyingana framar á vell-
inum. Það var hættulegt að hleypa
þeim svona langt,“ sagði Árni Gaut-
ur.
Erfitt að koma inn
„Það var erfitt að koma inn í þenn-
an leik á lokakaflanum því við vorum
undir töluverðri pressu. Það var
hafa ekki spilað vel að undanförnu,
við getum reyndar ekki sagt mikið
sjálfir eftir þennan leik því við vorum
frekar slakir, en það verður allt ann-
að uppi á teningunum þegar við
mætum þeim á eigin heimavelli. Þá
verður liðið í toppstandi, og ef hlut-
irnir falla fyrir okkur þar er alveg
möguleiki á að hirða þrjú stig þar.
Núna er pressan ekki lengur á okk-
ur, hún verður á Þjóðverjunum.
Flestir búast við því að við töpum en
við mætum í þann leik til að sigra.
Takist það, verðum við í frábærri
stöðu.
Ég er mjög sáttur við hópinn,
stemmningin hefur verið mjög góð í
liðinu og svona verður þetta vonandi
áfram í tveimur síðustu leikjunum.
Þá endum við þetta með stæl,“ sagði
Arnar Grétarsson.
„Ólýsanleg tilfinning“
„Það er ólýsanleg tilfinning að við
skulum vera komnir í þessa stöðu.
Mér finnst þetta vera söguleg stund
því þótt þetta sé í sjálfu sér ekkert
endatakmark, þá er þetta í fyrsta
skipti í sögunni sem við vinnum þrjá
leiki í röð í riðlakeppni EM eða HM,
og í fyrsta skipti sem við erum á
toppi í riðli í stórmóti. Þar verðum
við allavega þar til við spilum við
Þjóðverja, og nú eru það þeir og
Skotarnir sem þurfa að sækja á okk-
ur,“ sagði Eggert Magnússon, for-
maður Knattspyrnusambands Ís-
lands, við Morgunblaðið í Þórshöfn
eftir leikinn.
„Við erum efstir í augnablikinu, nú
höfum við allt að vinna og engu að
tapa. Þetta er draumastaða, hún er
ótrúleg, og ég verð að hrósa leik-
mönnunum og þjálfurunum. Það
virðist hafa myndast ný stemmning
og ný trú á það sem við erum að
gera, og það var það sem við von-
uðumst eftir. Úrslitin sýna og sanna
að það hafa orðið miklar hræringar í
landsliðinu.
Strákarnir hafa getuna og hæfi-
leikana, nú er komið að því að spila
stærsta leik sem við höfum nokkru
sinni spilað, og það við silfurliðið á
HM í Japan og Suður-Kóreu. Ég tel
að þetta landslið okkar og allir sem
að því standa hafi sýnt og sannað
hvað við getum staðið fyrir,“ sagði
Eggert Magnússon.
Morgunblaðið/Kristinn
Rúnar Kristinsson á fullri ferð í leiknum gegn Færeyingum í Þórshöfn í gærkvöldi.
„Rosaleg barátta“
„ÞETTA var rosaleg barátta eins og við vissum og fyrir mestu að við
fengum stigin þrjú en ég er ekki sáttur við leikinn sem slíkan. Við
bökkuðum allt of mikið. Markið kom snemma og við vorum of varn-
arsinnaðir í síðari hálfleiknum, fórum alltof aftarlega á völlinn.
Þetta var erfitt, stress í gangi, menn vissu hvað var í húfi og það
hafði sín áhrif. Svo bauð völlurinn ekki upp á mikið spil. Aðalatriðið
var að berjast og fá þrjú stig og það tókst,“ sagði Árni Gautur Ara-
son, markvörður Íslands, við Morgunblaðið, raddlítill eftir mikil köll
seinni hluta leiksins.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
frá Þórshöfn
Árni Gautur Arason sagði að leikurinn í Þórshöfn hefði tekið á taugarnar
KVENNALIÐ ÍBV og Vals mættust
öðru sinni á nokkrum dögum í Eyj-
um í gærkvöldi en liðin léku til úr-
slita í VISA-bikarnum á sunnudag
þar sem Valsstúlkur sigruðu nokk-
uð örugglega. Það snerist heldur
betur við í gær þar sem Eyjastúlkur
hreinlega völtuðu yfir gestina og
sigruðu örugglega 5:0.
Strax frá fyrstu mínútu var ljóst
hvort liðið ætlaði sér sigur og virk-
uðu Valsstúlkur frekar áhugalitlar
um leikinn á meðan ÍBV-liðið barð-
ist um hvern bolta. Olga Færseth
var í miklu stuði framan af og skor-
aði fyrstu tvö mörk leiksins. Karen
Burke sem var að leika sinn síðasta
leik fyrir ÍBV í sumar bætti við
þriðja markinu fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri, Eyjastúlkur mun
ákveðnari og Margrét Lára Viðars-
dóttir bætti tveimur mörkum við
fyrir leikslok og þar við sat.
Valsstúlkur hresstust þó eilítið
síðustu mínútur leiksins en náðu
aldrei að ógna Eyjamarkinu að
neinu viti. Þar með er ÍBV eina liðið
sem getur fræðilega náð KR af stig-
um en Vesturbæjarliðið getur
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn
með sigri á Stjörnunni í næstu um-
ferð.
Einstefna Eyjastúlkna