Morgunblaðið - 21.08.2003, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.08.2003, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10. Miðaverð 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i.12 ára. Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Fyndnasta mynd sumarsins frá leikstjóra Liar Liar og Ace Ventura Sýnd kl. 6. Síðustu sýningar Yfir 25.000 gestir HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Miðaverð 500 kr. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. kl. 5.30, 8 og 10.20. Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Yfir 25.000 gestir Þessi gamli góði Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar Grensásvegi 7, sími 517 3530 Nýtt dansatriði HLJÓMSVEITIN Spaðarnir hefur átt sinn fasta aðdáendahóp í gegn- um tíðina en síðasta plata þeirra, Skipt um peru, naut mikilla vin- sælda. Var það ekki síst fyrir tilstilli smellsins „Obb, bobb bobb“, sem hljómaði mikið í útvarpinu. Það gleður aðdáendur sveitarinnar, bæði gamla sem nýja, væntanlega, að heyra að tvöföld plata er á leiðinni frá Spöðunum á þessu afmælisári en hljómsveitin fagnar tvítugsafmæli sínu í ár. „Við erum að vinna að hálfgerðum safndiski. Það verður eitthvað nýtt og eitthvað endurtekið. Þetta er af- mælisútgáfa en við verðum 20 ára í ár,“ segir Guðmundur Ingólfsson, bassaleikari sveitarinnar, sem verð- ur fyrir svörum. Diskurinn verður tvöfaldur en Guðmundur útskýrir að það sé „varla pláss fyrir þetta á ein- um diski“. „Við höfum verið að vinna þetta eitthvað með Þorkeli Heiðars- syni Geirfugli. Annars erum við ekki mjög langt komnir,“ segir hann en þeir stefna á útgáfu fyrir næstu jól. Hvað stílinn á plötunni varðar segir Guðmundur að þeir hafi „breyst ósköp lítið“. Efni af gömlum spólum Spaðarnir hafa gefið út um 40 lög á þremur spólum og verður hægt að nálgast hluta af því á þessari nýju plötu. Sú fyrsta kom út árið 1987 og segir Guðmundur að efnið á henni hafi verið eitthvað eldra. „Þetta voru aldrei eiginlegar út- gáfur heldur settum við þetta saman handa vinum og kunningjum,“ segir hann. Spólurnar fóru víða. „Það hafði einhver tekið kassettu af kassettu sem annar hafði tekið af annarri kassettu. Það hafa ekki verið mikil gæðin á því,“ nefnir hann sem dæmi. Sumar af þessum gömlu upptök- um verða notaðar á væntanlegri plötu en önnur lög ætla Spaðarnir að taka upp aftur auk nýrra laga. Hvað vinsældir síðustu plötu varðar segir hann að útvarpið beri fulla ábyrgð á þeim. „Það er þeim að kenna þarna í útvarpinu, þau spiluðu þetta svo mikið á Rás 2,“ grínast hann. Spaðarnir spiluðu í Norræna hús- inu á Menningarnótt og segir Guð- mundur að það hafi gengið vel. „Það var alveg troðfullt og einhverjir þurftu frá að hverfa,“ segir hann en Spaðarnir gera ekki mikið af því að halda tónleika. „Það eru allir á kafi í einhverju öðru,“ segir Guðmundur og bætir við að þetta sé bara tóm- stundagaman hjá þeim. „Þegar aðr- ir koma saman að spila bridds þá komum við saman að spila músík.“ Spaðana skipa Guðmundur Andri Thorsson, Magnús Haraldsson, Aðalgeir Arason, Gunnar Helgi Kristinsson, Guðmundur Pálsson, Hjörtur Hjart- arson, Guðmundur Ingólfsson og Sigurður G. Valgeirsson. Nýtt og gamalt í bland Spaðarnir á leiðinni með tvöfalda plötu á afmælisári ingarun@mbl.is UNDIRBÚNINGUR er í fullum gangi fyrir keppnina um titilinn Dragdrottning Íslands 2003 sem fara mun fram 13. september næst- komandi á Nasa. Skráning stendur enn yfir og þátttaka er öllum efnilegum drag- drottningum heimil: „Þátttaka er ekki háð samkynhneigð frekar en gagnkynhneigð,“ segir Georg Erl- ingsson sem í félagi við Björn Gunnlaugsson skipuleggur keppn- ina. „Það hefur alltaf verið einhver gagnkynhneigður keppandi í hópn- um. Annars er þetta ofboðslega reglulaus keppni og þátttaka fáum skilyrðum háð.“ Það er þó ekki á hvers manns færi að sýna gott drag en kepp- endur þurfa að sýna skemmtiatriði og búa til trúverðuga persónu sem annars má vera á hvaða formi sem keppanda þykir best. Þemað utan um keppnina að þessu sinni verður Óskarsverðlaunin en í fyrra var Evróvisjónbragur á keppninni. „Það er ekki skilyrði að atriði tengist Óskarsverðlaununum bein- línis enda er það bara hjúpurinn utan um keppnina. Keppendur munu samt þurfa að flytja nokkurs konar leikatriði með kvikmynda- brag og allir fá að flytja þakk- arræður.“ Þetta er í sjöunda skipti sem keppnin er haldin en keppnin fór fyrst fram árið 1997 á Nelly’s. Það- an fór hún á Ingólfscafé og svo aft- ur á Nelly’s næsta ár. Síðustu þrjú ár hefur keppnin farið fram á Spot- light en verður nú, eins og fyrr var getið, á dansstaðnum Nasa. Síðustu keppni sigraði sjón- varpsmaðurinn og tísku-gúrúinn Skjöldur Eyfjörð en hann krýnir drottninguna í ár auk þess sem hann flytur siguratriðið frá síðustu keppni. Kynnir á keppninni í ár er Páll Óskar en leynd hvílir yfir hverjir skipa dómnefnd. Það er þó svo á keppninni, nú sem endranær, að áhorfendur hafa veruleg áhrif á úrslit keppninnar. Frá keppninni í fyrra. Skjöldur Ey- fjörð sigraði í harðri keppni en fær núna að krýna sigurvegarann. Viltu verða drottning? Keppnin Dragdrottning Íslands 2003 fer fram á Nasa 13. sept- ember. Áhugasamir geta skráð sig hjá Georgi í síma 897 8232 eða Birni í síma 690 5391. Loks geta væntanlegir kepp- endur gefið sig fram við Skjöld á Kaffi Cózy í Austurstræti. Skráning stendur yfir í keppnina Dragdrottning Íslands 2003 Röng mynd með tónleikadómi Í gær birtist gagnrýni um tónleika hljómsveitarinnar Total F***ing Destruction og fleiri sveita. Með dómnum átti að koma mynd, þar sem þeir fé- lagar í TFD stilla sér upp, en þeir eru þrír. Röng mynd var birt en með á myndina slæddist eini meðlimur hljómsveitarinn- ar The Motherf***ng Clash og stendur hún lengst til vinstri á myndinni. Velvirðingar er beð- ist á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.