Morgunblaðið - 23.09.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UNNIÐ er að undirbúningi þess að
hefja vinnslu á léttsöltuðum bolfisk-
afurðum, fyrst og fremst úr þorski, í
húsnæði frystihúss Jökuls á Raufar-
höfn, og er þess vænst að vinnslan
geti hafist í kringum næstu mánaða-
mót. Á vordögum var ákveðið að
hætta vinnslu á tvífrystum afurðum
úr svokölluðum Rússaþorski á Rauf-
arhöfn og var öllu starfsfólki Jökuls
sagt upp störfum. Jafnframt var
ákveðið að hefja vinnslu á léttsölt-
uðum bolfiskafurðum núna á haust-
dögum.
Vinnslan á Raufarhöfn verður
hluti af starfsemi fyrirtækisins GPG
á Húsavík, sem fyrst og fremst vinn-
ur blautverkaðan saltfisk. Gunnlaug-
ur K. Hreinsson, framkvæmdastjóri
GPG, segir að nú séu iðnaðarmenn á
fullu í húsnæði Jökuls, enda þurfi að
breyta því töluvert áður en vinnslan
getur hafist. Sem dæmi þarf að taka
burtu vinnslubúnað fyrir uppsjávar-
fisk og koma niður öðrum lausfrysti.
Í þessa vinnslu þarf smærri fisk en í
hina hefðbundu blautverkun. Gunn-
laugur segir að unnið hafi verið að
hráefnismálunum að undanförnu og
hann væntir þess að unnt verði að fá
nægilega mikið hráefni til þess að
standa undir vinnslunni á Raufar-
höfn. „Við höfum verið að vinna í
þessum málum og erum opnir fyrir
því að taka við hráefni í þessa
vinnslu,“ segir Gunnlaugur og býst
við að hefja vinnsluna með um 20
starfsmenn.
Gunnar Jónasson, sem verið hefur
framleiðslustjóri hjá Jökli, verður
vinnslustjóri í hinni nýju saltfisk-
vinnslu á Raufarhöfn, en eins og áð-
ur segir verður þessi vinnsla hluti af
rekstri GPG á Húsavík.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Áætlað er að fiskvinnsla hefjist á ný á Raufarhöfn um næstu mánaðamót.
Vinnsla undirbúin
á Raufarhöfn
GUNNAR Felixson hefur sagt sig úr
bankaráði Íslandsbanka. Hann seg-
ist telja að það samræmist ekki stöðu
hans sem forstjóra Tryggingamið-
stöðvarinnar að sitja í bankaráðinu
eftir að Íslandsbanki hefur keypt
ráðandi hlut í Sjóvá-Almennum
tryggingum.
Að sögn Gunnars sat hann banka-
ráðsfundinn í síðustu viku þegar
fjallað var um kaup Íslandsbanka á
hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum.
Hann segir hins vegar að hann hafi
ekki tekið þátt í afgreiðslu málsis. Að
öðru leyti vill Gunnar ekki tjá sig um
þetta mál.
Spurður um hvort fyrirhugað sé
að Tryggingamið-
stöðin taki upp
nánara samstarf
við Landsbank-
ann í kjölfar
þeirra breytinga
sem orðið hafa á
verðbréfamark-
aði segir Gunnar
að um það hafi
ekki verið rætt.
Tryggingamiðstöðin vilji þó eiga
gott samstarf við Landsbankann
eins og sem flesta.
Gunnar segir að ákvörðun hafi
ekki verið tekin um hvort Trygg-
ingamiðstöðin muni selja þau hluta-
bréf sem félagið á í Íslandsbanka.
Félagið á um 4,5% hlut í bankanum.
Guðrún Helga tekur við
Guðrún Helga Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stálskipa í Hafnar-
firði, mun taka sæti Gunnars Felix-
sonar sem aðalmaður í bankaráði
Íslandsbanka. Guðrún Helga var
kjörin varamaður í bankaráð Ís-
landsbanka á síðasta aðalfundi bank-
ans í mars síðastliðnum.
Stálskip hafa gert út skip frá árinu
1971 og hefur Guðrún Helga starfað
hjá fyrirtækinu alla tíð. Fyrirtækið
gerir nú út tvö vinnsluskip og starfa
rúmlega 50 sjómenn hjá fyrirtækinu.
Gunnar Felixson hættir í
bankaráði Íslandsbanka
Gunnar Felixson
ÍSLANDSBANKI hefur lækkað
verðtryggða og óverðtryggða út-
láns- og innlánsvexti. Á sama tíma
heldur Íslandsbanki innlánsvöxtum
á verðtryggðum lífeyrissparnaðar-
reikningum óbreyttum, að því er
segir í tilkynningu frá Íslands-
banka.
Íslandsbanki lækkar að þessu
sinni vexti á óverðtryggðum útlán-
um án þess að til komi vaxtalækk-
un að hálfu Seðlabanka Íslands.
Þannig lækka kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa um 0,10 pró-
sentustig í 8,40%. Vextir á verð-
tryggðum útlánum hafa jafnframt
verið lækkaðir í samræmi við
vaxtaþróun á verðbréfamarkaði og
lækka kjörvextir verðtryggðra
skuldabréfa um 0,20 prósentustig
og verða 6,45%. Fastir vextir verð-
tryggðra langtímalána verða áfram
6,35%.
Vextir flestra innlánsreikninga
lækka jafnframt. Sem dæmi má
nefna eru vextir Verðbréfareikn-
ings nú 4,40%, en sá reikningur
tekur mið af ávöxtun á verðbréfa-
markaði. Vextir verðtryggðra
reikninga eru á bilinu 4,20% til
4,80%. Hins vegar er vöxtum á líf-
eyrissparnaðarreikningum haldið
óbreyttum, eða 6,25%, sem og
vöxtum á Framtíðarreikningi.
Kjörvextir óverðtryggðra
skuldabréfa hjá Kaupþingi-Búnað-
arbanka eru 8,45% og verð-
tryggðra skuldabréfa 6,40%, en
bankinn lækkaði vexti á inn- og út-
lánum 11. september síðastliðinn.
Kjörvextir á óverðtryggðum
skuldabréfum hjá Landsbankanum
eru 8,90% og 6,45% á verðtryggð-
um skuldabréfum.
Íslands-
banki lækk-
ar vexti
ÞRÍR af tíu stærstu hluthöfum í
Tryggingamiðstöðinni (TM), fyrir
kaup Kaldbaks hf. á tæpum 12,4%
hlut í félaginu í síðustu viku, eru ekki
lengur meðal stærstu hluthafa. Þetta
eru Lífeyrissjóðir Bankastræti 7,
Verðbréfastofan hf. og Íslandsbanki
hf.
Kaldbakur jók hlut sinn í TM á
fimmtudeginum í síðustu viku úr
20,41% í 32,76%. Nafnverð hlutabréf-
anna var um 115,1 milljón krónur og
samkvæmt upplýsingum af vef Kaup-
hallar Íslands fóru kaupin fram á
genginu 13,4–13,5. Heildarkaupverð-
ið var því rúmir 1,5 milljarðar króna.
Ef bornir eru saman hluthafalistar
yfir stærstu hluthafa í TM fyrir og
eftir viðskiptin síðastliðinn fimmtu-
dag, kemur í ljós að Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7 seldu rúmlega 4% hlut
í TM, Verðbréfastofan rúm 3% og Ís-
landsbanki rúm 2%. Þar að auki seldu
MP Verðbréf, sem voru ellefti stærsti
hluthafinn í TM fyrir viðskiptin, um
2% hlut í félaginu.
Breytingar
á hlut-
höfum TM
!
!" #
$$%%
&'$% ()%
% $
*$ +, - ./
0+ $! 1/ ,
%
* $&
!
+,$
2
UPPSKIPTI síðustu viku í við-
skiptalífinu hafa leitt til þess að lín-
ur eru orðnar nokkuð skýrar á þeim
vettvangi. Segja má, að fyrirtæki,
sem áður voru talin til hins svo-
nefnda Kolkrabba hafi skiptzt upp á
milli tveggja fylkinga, sem standa
annars vegar að Íslandsbanka og
hins vegar að Landsbanka. Báðar
þessar fylkingar hafa sterk tengsl
við Sjálfstæðisflokkinn.
Áður hafði S-hópurinn svonefndi
styrkt stöðu sína mjög með því að
ná yfirráðum yfir SÍF, sem verður
að teljast til afreka miðað við, að
fyrir nokkrum vikum var það sam-
eiginlegur ásetningur Landsbanka
og Íslandsbanka að sameina SH og
SÍF. Þau áform bankanna tveggja
runnu út í sandinn. S-hópurinn, sem
viðskiptablokk, hefur sterk tengsl
við Framsóknarflokkinn.
Kaupþing-Búnaðarbanki er
kapítuli út af fyrir sig. Svo virðist
sem þessi öflugi banki leitist við að
breikka ímynd sína og halda meiri
fjarlægð á milli sín og stórra við-
skiptavina en áður.
Á hliðarlínum eru aðrir við-
skiptahópar svo sem Baugs-
hópurinn, sem einbeitir sér aug-
ljóslega að fjárfestingum í Bret-
landi og Kaldbakur á Akureyri, sem
Þorsteinn Már Baldvinsson í
Samherja er mesti ráðamaður í.
Tryggingamiðstöðin hefur geng-
ið til náins samstarfs við Björgólf
Guðmundsson og athyglisvert er að
fylgjast með vaxandi styrkleika
Bykó-manna undir forystu Jóns
Helga Guðmundssonar.
Nú beinist athyglin að tvennu:
hvað verður um Brim hf., sjávar-
útvegsfyrirtæki Eimskips og hvað
verður um ráðandi hlut Eimskips í
Flugleiðum, sem Straumur, sem nú
er að mestu í eigu Íslandsbanka,
hefur eignazt?
Sjálfsagt eiga hinir nýju ráða-
menn í Eimskipafélaginu fyrst og
fremst um tvennt að velja að því er
varðar Brim hf. Annars vegar að
setja fyrirtækið á markað og hins
vegar að leysa það upp að hluta eða
öllu leyti og selja eignir þess til
nýrra eigenda. Ekki er ólíklegt að
Akurnesingar velti því fyrir sér
hvort þeir geti eignazt Harald
Böðvarsson hf. á nýjan leik. Þeir
hafa áreiðanlega takmarkaðan
áhuga á því, að fyrirtækið sameinist
Granda og höfuðstöðvar þess flytji
til Reykjavíkur. Sams konar áhugi
gæti vaknað varðandi Skagstrend-
ing og ÚA fyrir norðan.
Hvað verður um Flugleiðabréfin í
höndum Straums/Íslandsbanka?
Ganga má út frá því sem vísu að
vandlega verði fylgzt með því. Ís-
landsbankamenn lögðu áherzlu á að
Flugleiðabréfin kæmu í þeirra hlut.
Líklegt má telja, að þau verði ekki
seld á næstunni. Baugsmenn hafi
sýnt Flugleiðum augljósan áhuga.
Þeir og bandamaður þeirra Pálmi
Haraldsson eru komnir með umtals-
verðan hlut í Flugleiðum. Talið er
að þeir hafi nýlega leitað eftir því,
að kaupa hlut Eimskipafélagsins í
Flugleiðum.
Gangi það eftir að hlutur
Straums í Flugleiðum verði ekki
seldur á næstunni eða í fyrirsjáan-
legri framtíð beinist athyglin að því
hverjir verði kjörnir fulltrúar
Straums í stjórn Flugleiða. Á vali
þeirra fulltrúa getur byggzt hvaða
meirihluti myndast í stjórn Flug-
leiða í kjölfar eigendaskipta á bréf-
um Eimskips í Flugleiðum. Þess
vegna má gera ráð fyrir, að banka-
ráðsmenn í Íslandsbanka fylgist
vandlega með því hverjir verði fyrir
valinu í stjórn Flugleiða af hálfu
stjórnarmanna í Straumi. Ætla
verður að það sé verkefni stjórnar
Straums að velja þá fulltrúa en
hvorki framkvæmdastjóra Straums
eða forstjóra og framkvæmdastjóra
Íslandsbanka.
Innherji skrifar
innherji@mbl.is
FJÖLSKYLDA Sigurðar Helgason-
ar hefur selt allt sitt hlutafé í Stein-
smiðju S. Helgasonar ehf. Kaupend-
ur eru hjónin Finnbogi Alfreðsson
og Sesselja Pétursdóttir. Finnbogi
starfaði áður sem framkvæmdastjóri
Fiskimjöl og lýsis hf. í Grindavík og
Fóðurblöndunnar hf.
Sigurður Helgason lætur nú af
störfum eftir 50 ára starf við stein-
smíði.
Nýir eigendur
S. Helgasonar
!
♦ ♦ ♦