Morgunblaðið - 23.09.2003, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 17
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317.
Verð með hádegisverði er 3.000 kr. fyrir félagsmenn og 4.800 kr. fyrir aðra.
Fyrirlesarar:
Árni Harðarson, lögfræðingur
hjá Deloitte & Touche.
Stefán Svavarsson, löggiltur
endurskoðandi og dósent við HÍ.
Fundarstjóri:
Árni Snævarr
Ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda fyrirtækja:
afleiðingar vanrækslu, mistaka og lögbrota
Umfjöllunarefni:
Lögbundið og ólögbundið hlutverk stjórnarmanna
og framkvæmdastjóra hlutafélaga.
Hvenær reynir á ábyrgð stjórnarmanna, stjórnenda
eða undirmanna þeirra?
Hræringar á Íslandi og erlendis hvað varðar
ábyrgð stjórnenda, hvar er úrbóta þörf?
Hlutverk og skyldur endurskoðenda, að hverjum
beinast skyldur þeirra?
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga og
Deloitte & Touche verður haldinn fimmtudaginn 25. sept. nk.
í Gullteigi, Grand Hótel Reykjavík, kl. 12-13:30.
Árni
Snævarr
Árni
Harðarson
Stefán
Svavarsson
Fundurinn er öllum opinn!
GERT er ráð fyrir að lögðverði göngugata á milliAusturstrætis ogSkólabrúar auk þess sem
reist verði nýtt fimm hæða verslunar-
og skrifstofuhús á lóð Hressingar-
skálans og Hótel Borgar, í nýrri til-
lögu Páls Hjaltasonar arkiteks. Hún
er ein þeirra hugmynda sem liggja
frammi á sýningu Aflvaka um upp-
byggingu í miðbænum en hún er hald-
in í Bankastræti 5 um þessar mundir.
Verði tillagan að veruleika mun
ásýnd miðbæjarins breytast mikið.
T.d. kemur til greina að færa elsta
hluta Hressingarskálans um 45 gráð-
ur svo hann opnist út í nýju göngugöt-
una. Þá myndi göngugatan liggja frá
suðri til norðurs og ætti því að geta
verið sólargata með útikaffihúsum, að
sögn Páls Magnússonar hjá Sundi hf.
sem á lóð Hressingarskálans.
Hann tekur fram að gert sé ráð fyr-
ir að hluti byggingarinnar verði
stækkun á Hótel Borg en undir öllu
saman verði byggður 3.000 fm bíla-
kjallari. „Þá höfum við hug á að gera
upp húsið á horni Lækjargötu og
Austurstrætis þar sem Kaffi Ópera er
nú, svo það verði í svipuðum stíl og
Torfan hinum megin við götuna.“
Páll bendir á að tillagan hafi fengið
góðar undirtektir. Ekki hafi þó verið
tekin ákvörðun um hana og liggur
hún hjá skipulagsyfirvöldum.
Veitingastaður út í tjörnina
Önnur hugmynd sem sjá má á sýn-
ingunni miðar að því að gera Hljóm-
skálagarðinn að betur nýttu útivist-
arsvæði en hann er nú, að sögn
höfundar hennar, Ívars Arnar Guð-
mundssonar arkitekts. Þar er gert
ráð fyrir að sett verði upp lítið svið í
garðinum fyrir tónleika og að byggð-
ur verði veitingastaður á stöplum út í
tjörnina þar sem hægt væri að sitja
úti á góðviðrisdögum. „Við þurfum að
fá fólk niður í garðinn en hingað til
hafa ekki nógu margir notað hann.“
Ívar segir hugmyndina í ætt við svip-
uð svæði erlendis, t.d. Hyde Park í
London og Central Park í New York.
„Fyrst við höfum slíka náttúruperlu í
miðri borginni er um að gera að nýta
hana. Hluti af því að þroska borgina
er að gera mannlífið að stærri þætti.“
Sundlaugargarður í miðbæinn
Önnur hugmynd Ívars miðar að því
að Sundhöllin á Barónsstíg verði gerð
upp og við hana bætt sundlaugar-
garði, líkams- og heilsuræktarstöð
auk veitingaaðstöðu.
„Sundhöllin er merkileg bygging
og því viljum við ekki breyta henni
heldur byggja við hana á þann hátt að
hún fái enn að njóta sín.“ Hann segir
að Sundhöllin sé ekki jafnvinsæl og
aðrar sundlaugar borgarinnar þar
sem hún uppfylli ekki kröfur og þarfir
gesta á sama hátt og nýrri laugar.
„Við verðum að hafa góða sundlaug í
miðbænum. Nú búa 14 þúsund manns
í 101 og þeim mun fjölga um hundruð
eða þúsundir á næstunni, þeir eiga að
geta gengið í sund en ekki þurfa að
fara keyrandi í úthverfin.“
Hugmyndir að nýju skipulagi miðborgar Reykjavíkur kynntar á sýningu í Bankastræti
Ný göngu-
gata og sund-
laugargarður
í miðbæinn
Tillaga Ívars Arnar Guðmundssonar arkitekts um veitinga- og kaffihús sem byggt yrði á stöplum út í tjörnina. Hugmyndin er að fá meira mannlíf í garðinn en nú er.
Hugmynd Páls Hjaltasonar arkitekts að fimm hæða byggingu á lóð Hressingarskálans og nýrri göngugötu.
!"!# ) *+,
- .,+ ) *
/01
*
2 .,+
34 506 578
9
;7
5;
<.
*
;
-
= .,+
= 0* /
=-
> ,+;
-
'(''
> ,+
-
4;276
Göngugata á milli Austurstrætis og Skólabrú-
ar, veitingastaður í Hljómskálagarði og fimm
hæða íbúðar- og verslunarhúsnæði á lóð Aust-
urbæjarbíós eru á meðal hugmynda á nýopn-
aðri sýningu um uppbyggingu í miðborginni.
EIN hugmyndanna á sýningunni
tekur til hins umdeilda svæðis við
Snorrabraut 37 þar sem Austurbæj-
arbíó stendur nú, en Nexus arki-
tektar hönnuðu tillöguna. Þar er
ráðgert að reisa 5 hæða íbúðarhús
með 1.100 fm verslunar- og þjón-
ustuhúsnæði á neðstu hæðinni og
tveggja hæða bílakjallara undir
með 120 stæðum. Um er að ræða 82
íbúðir.
Gert til að þétta
byggðina á svæðinu
Ívar Örn Guðmundsson arkitekt
segir sjálfsagt að horfa á heild-
armyndina þegar kemur að þessu
svæði. „Það er nauðsynlegt að þétta
byggðina en ekki láta heilu svæðin
drabbast niður. Óhjákvæmilega
myndast skuggi og meiri návist við
nágranna en það er einmitt hluti af
því að borgin þroskist og mannlífið
eflist.“
82 íbúðir á fimm
hæðum í stað
Austurbæjarbíós
NÝJAR íbúðir fyrir um 7–800
manns í 101 Skuggahverfi eru á
meðal þess sem kynnt er á sýn-
ingu Aflvaka. Fullbyggt mun
hverfið stuðla fjölgun íbúa í mið-
bænum um 30% en framkvæmd-
irnar kosta á sjötta milljarð
króna. Fram kemur að ódýrustu
íbúðirnar í hverfinu kosti 14,5
milljónir króna og er þar átt við
69 fm íbúðir með stæði í bíla-
geymslu. Hins vegar munu 126
fm íbúðir með bílastæði kosta um
25,3 milljónir króna. Sala íbúða
er þegar hafin en fyrstu íbúð-
irnar verða afhentar í september
á næsta ári.
Ódýrustu
íbúðir á 14,5
milljónir í
Skuggahverfi