Morgunblaðið - 23.09.2003, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 37
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert full(ur) af lífi, spennu
og sköpunargleði. Fyrir vik-
ið nærð þú góðum árangri.
Ekki láta líkamlega erfið-
leika halda aftur af þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert sérlega viðkvæmur og
samúðarfullur gagnvart vin-
um þínum í dag. Það er eins og
þú skynjir hvað öðrum finnst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sá hæfileiki þinn að gera hlut-
ina aðlaðandi gæti skipt sköp-
um í vinnunni í dag. Ekki vera
hrædd(ur) við að leggja fram
tillögur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ást við fyrstu sýn gæti orðið
að veruleika í dag. Með sama
hætti munt þú kunna að meta
og eiga auðvelt með að um-
gangast börn. Hjarta þitt er
opnara í dag en oft áður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir fengið gjöf, sem gæti
lífgað upp á heimilið eða orðið
til að hjálpa fjölskyldumeðlim.
Þú gætir einnig verið sá/sú
sem gefur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er mjög auðvelt að eiga
samskipti við aðra í dag og þú
skilur hvað þeir eru að fara.
Þú ættir að nota tækifærið til
samninga, kennslu eða ann-
arra samskipta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þig langar að kaupa eitthvað
verulega fallegt í dag, jafnvel
einhvern dýran munað. Ef þú
hefur efni á því án þess að
skuldsetja þig skaltu láta af
verða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert í skapi til að umgangast
fólk. Þér finnst þú vera snið-
ug(ur) og það er rétt. Notaðu
hvert tækifæri til að skemmta
þér og gleðja aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt kunna að meta allan
þann tíma, sem þú hefur fyrir
sjálfa(n) þig í dag. Einvera í
fallegu umhverfi mun koma
friði á hugann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gagnkvæm samúð milli vina
mun gera þér auðvelt að
hjálpa öðrum, eða auðvelda
öðrum að hjálpa þér. Vanda-
málin eiga ekki að vaxa í aug-
um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Öðrum finnst þú sérlega
glæsileg(ur) í dag. Einhver
gæti öfundað þig. Svo virðist
sem allt gangi þér í haginn,
jafnvel þótt þú áttir þig ekki á
því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að skynja
fegurð í dag og ættir að fara í
bókabúð, listaverkabúð, al-
menningsgarð eða listasafn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú finnur til með öðrum og
skynjar þjáningu þeirra. Þess-
ar tilfinningar eru sérstaklega
sterkar í dag og þú ættir að
nýta tækifæri til að koma til
hjálpar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FYRIR ÁTTA ÁRUM
Ennþá brennur mér í muna,
meir en nokkurn skyldi gruna,
að þú gafst mér undir fótinn.
Fyrir sunnan Fríkirkjuna
fórum við á stefnumótin.
En eg var bara, eins og gengur,
ástfanginn og saklaus drengur.
Með söknuði ég seinna fann, að
við hefðum getað vakað lengur
og verið betri hvort við annað.
Svo var það fyrir átta árum,
að ég kvaddi þig með tárum,
daginn sem þú sigldir héðan.
Harmaljóð úr hafsins bárum
hjarta mínu fylgdi á meðan.
En hver veit nema ljósir lokkar,
lítill kjóll og stuttir sokkar
hittist fyrir hinumegin?
Þá getum við í gleði okkar
gengið suður Laufásveginn.
Tómas Guðmundsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
100 ÁRA afmæli. Ídag, þriðjudaginn
23. september, er 100 ára
Bergljót Þorsteinsdóttir,
vistmaður á Skjólgarði í
Höfn í Hornafirði.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23.
september, er fimmtug Vig-
dís Erla Grétarsdóttir tann-
tæknir. Eiginmaður hennar
er Helgi R. Gunnarsson.
Þau verða að heiman í dag.
ALSLEMMA gæti hæglega
unnist, en suður fær það
hófstillta verkefni að spila
sex spaða:
Norður
♠ 53
♥ 1083
♦ ÁK1098
♣762
Suður
♠ ÁKDG10
♥ ÁD97
♦ D2
♣ÁK
Útspilið er laufdrottning.
Hvernig er best að spila
til að tryggja tólf slagi?
(Trompið er 4-2.)
Það eru þrettán slagir á
borðinu ef tígulgosinn kem-
ur í þrjá efstu. En hins veg-
ar er ónákvæmt að spila
tíglinum beint af augum. Ef
gosinn er fjórði úti verður
sagnhafi að fara í hjartað og
getur ekki svínað nema einu
sinni.
Norður
♠ 53
♥ 1083
♦ ÁK1098
♣762
Vestur Austur
♠ 9764 ♠ 82
♥ G54 ♥ K62
♦ 76 ♦ G543
♣DG104 ♣9853
Suður
♠ ÁKDG10
♥ ÁD97
♦ D2
♣ÁK
Til að fullnýta hjartað og
komast hjá ágiskun þarf
tvær innkomur í borð. Og
þær má fá með því að spila
tígultvisti á tíuna! Ef austur
tekur á gosann er tígullinn
frír og svíning í hjarta óþörf.
Besta vörn austurs er því að
dúkka. Sagnhafi notar þá
innkomuna á tígultíu til að
svína fyrir hjartagosa. Síðar
yfirdrepur hann tígul-
drottningu og prófar tíg-
ulinn, en þegar gosinn kem-
ur ekki, er svínað aftur í
hjarta, nú fyrir kónginn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessar duglegu stúlkur, Sólveig Rán Stefánsdóttir og
Gunnhildur Einarsdóttir, söfnuðu kr. 2.170 til styrktar
Rauða krossi Íslands.
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4.
Rf3 dxe5 5. Rxe5 c6 6. Bd3
Rd7 7. Rxd7 Bxd7 8. 0-0 g6 9.
He1 Bg7 10. c3 0-0 11. Bg5
He8 12. Rd2 Dc8 13. Rc4 Bf5
14. Be2 Dc7 15. Bf3 Had8 16.
Db3 Be6 17. Hxe6 fxe6 18.
He1 b5 19. Re5 Hf8 20. Bg4
Hd6 21. Rd3 h6 22. Bh4 Kh7
23. Bg3 e5 24. dxe5 Hdd8 25.
Rc5 Db6 26. Re6 h5
Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2.560) hefur að
undanförnu staðið sig
með mikilli prýði. Hann
vann öflugt alþjóðlegt
mót í Danmörku, sigraði
með fáheyrðum yfirburð-
um í landsliðsflokki og
endaði í þriðja sæti á
Skákþingi Norðurlanda.
Á síðastnefnda mótinu
tefldi hann skák gegn
norska stórmeistaranum
Einari Gausel (2.533)
sem er með þeim glæsi-
legri á hans skákferli.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Eftir sérstaka byrjunartafl-
mennsku beggja keppenda
fórnaði Hannes skiptamun í
17. leik og bætti síðan stöðu
sína hægt og sígandi. Þegar
hér var komið í sögu var orðið
tímabært að greiða svörtum
náðarhöggið. 27. Bxh5! gxh5
28. Dc2+ Kh6 28. … Kg8
gekk ekki upp vegna 29. Dg6
Hf7 30. Rg5 og hvítur vinnur.
29. Bh4 Bf6 30. exf6 exf6 31.
Df5 Hg8 32. He5!! Stórkost-
legur lokahnykkur á frábærri
skák. Svartur gafst upp enda
getur hann ekki varist máti.
HLUTAVELTA
12 spora starf
í Áskirkju
KYNNING á tólf spora starfinu fer
fram í kvöld, þriðjudaginn 23. sept-
ember, kl. 19 í neðri safnaðarsal Ás-
kirkju við Vesturbrún.
Þetta starf er ætlað fólki sem
kann að hafa orðið fyrir erfiðri
reynslu eða er að ganga í gegnum
erfitt tímabil í sínu lífi og vill
styrkja sig andlega á jákvæðum
forsendum með bænina og boðskap
Biblíunar að leiðarljósi.
Næstu þrjá þriðjudaga á sama
tíma verða opnir tólf spora fundir
og eru allir áhugasamir hvattir til
að koma og kynna sér þessa upp-
byggjandi leið til sjálfshjálpar.
Starfsfólk Áskirkju.
Alfa-námskeið
í Íslensku
Kristskirkjunni
Í KVÖLD, þriðjudaginn 23. sept-
ember, kl. 19 hefst Alfa-námskeið í
Íslensku Kristskirkjunni. Þetta er í
tólfta sinn sem söfnuðurinn heldur
slíkt námskeið. Þátttakendur hafa
látið í ljós mikla ánægju með nám-
skeiðið.
Alfa stendur yfir í tíu þriðjudags-
kvöld frá kl. 19–22 í hvert skipti.
Alfa er gott fyrir þá sem eru leit-
andi og vilja skoða andlegu málin,
enda er spurningin: Hver er til-
gangur lífsins? yfirskrift nám-
skeiðsins. Alfa er líka gott fyrir þá
sem vilja rifja upp ferming-
arlærdóminn eða hressa upp á
barnatrúna. Námskeiðið kostar
5.000 kr. og í því er innifalið
kennsluhefti og kvöldmatur öll
kvöldin. Þeir sem hafa áhuga geta
mætt í kirkjuna, Bíldshöfða 10, 2.
hæð, kl. sjö í kvöld og skráð sig þar.
Eins er hægt að lesa nafn sitt inn á
símsvara kirkjunnar. Nánari upp-
lýsingar er að finna á heimasíðu
safnaðarins, www.kristur.is.
Biblíulestrar
í Seljakirkju
MIÐVIKUDAGINN 24. september
hefst röð biblíulestra kl. 19.30 í
Seljakirkju. Farið verður í Davíðs-
sálma, þeir lesnir og ræddir í hóp-
um. Sr. Valgeir Ástráðsson sér um
fræðslu og leiðir umræður. Verið
velkomin.
Bústaðakirkja –
starf aldraðra
HAUSTLITAFERÐ í starfi aldr-
aðra verður farin miðvikudaginn
24. september kl. 13.00 frá Bústaða-
kirkju. Skráning hjá kirkjuvörðum
í Bústaðakirkju í síma 553 8500 til
klukkan 17.00 í dag, þriðjudag.
Morgunblaðið/Ólafur K. MagnússonÁskirkja
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunn-
ar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lok-
inni bænastund gefst þátttakendum kostur
á léttum hádegisverði. Allir velkomnir.
Kynningarfundur á 12 spora vinnunni –
hinu andlega ferðalagi verður í kvöld, þriðju-
daginn 23. septeber, kl. 19 í neðri safn-
aðarsalnum. Allir velkomnir.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Pútt alla
morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Laugarneskirkja. TTT-starfið kl. 16.15.
(5.–7. bekkur). Umsjón Þorkell Sigurbjörns-
son, Sigurbjörn Þorkelsson og Andri Bjarna-
son. Fullorðinsfræðsla Laugarneskirkju kl.
19.30. (Athugið breyttan fundartíma!) Í
kvöld fræðir sr. María Ágústsdóttir, héraðs-
prestur. Þema kvöldsins Trú og tilfinningar.
Gengið er inn um dyr, bakatil, á austurgafli
kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl.
20.30. Þorvaldur Halldórsson leiðir lof-
gjörðina við undirleik Gunnars Gunnarsson-
ar á flygilinn og Hannesar Guðrúnarsonar
sem leikur á klassískan gítar. Gengið er inn
um aðaldyr kirkju, eða komið beint inn úr
Fullorðinsfræðslunni.
Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15. Vetr-
arnámskeið. Uppl. og skráning í síma
511 1560. Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir
velkomnir. Alfa-námskeið kl. 20. Alfa er
námskeið sem fjallar á athyglisverðan hátt
um grundvallaratriði kristinnar trúar. Um-
sjón hefur sr. Örn Bárður Jónsson. Skrán-
ing í síma 511 1560 eða neskirkja@nes-
kirkja.is
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16. Starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 19.30. Bænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja: Kirkjustarf aldraðra. Leik-
fimi ÍAK kl. 11.15. Léttur hádegisverður,
helgistund, sr. Magnús B. Björnsson, sam-
verustund og kaffi. KFUM&K fyrir 10–12
ára börn kl. 17–18.15. Húsið opnað kl.
16.30. Alfa-kynning kl. 20. (Sjá nánar
www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Strákastarf fyrir
stráka í 3.–7. bekk kl. 16.30.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl.
9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA yngri deild kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag
kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára
(TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stundir
fyrir hressa krakka. Æskulýðsfélagið (Meg-
as) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í
kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa
hafa Anna Hulda Einarsdóttir og Sigríður
Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er op-
ið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er op-
ið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16. Spilað
og spjallað. Nanna Guðrún mætt aftur eftir
frí galvösk að vanda.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
kirkjuprakkarar, 6–8 ára krakkar í kirkjunni.
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. Kl.
16 Litlir lærisveinar Landakirkju. Fyrsta kór-
æfing hjá yngri hóp, 1.–4. bekkur. Þátttaka
ókeypis. Kórstjóri Joanna Wlaszcsyk, um-
sjónarmaður Sigurlína Guðjónsdóttir. Kl.
17. Litlir lærisveinar Landakirkju. Fyrsta
kóræfing eldri hóps, 5. bekkur og eldri.
Þátttaka ókeypis. Kórstjóri Joanna
Wlaszcsyk, umsjónarmaður Sigurlína Guð-
jónsdóttir. Kl. 20.30 kyrrðarstund í Landa-
kirkju. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og organisti
Guðmundur H. Guðjónsson. Góður vett-
vangur frá erli hversdagsins.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir velkomn-
ir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 18.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík