Morgunblaðið - 23.09.2003, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 45
STUNDUM á það sér stað, oftar en
nokkurn grunar, að valdamenn í
Hollywood reyna að koma í veg fyrir
að ákveðnar bíómyndir séu gefnar
út. Það er erfitt að ímynda sér hvað
stjórarnir hjá Universal hafi verið að
pæla þegar þeir gáfu grænt ljós á að
láta viðundrið Rob Zombie, leiðtoga
rokksveitarinnar White Zombie, fá
peninga til að gera hrollvekju í nafni
fyrirtæksins og greinilegt að þeir
hafi ekki kynnt sér bakgrunn hans
nægilega. Auðvitað reyndist útkom-
an einhver blóði drifnasta hrollvekja
sem sögur fara af – enda var það
leynt og ljóst markmið Zombies leik-
stjóra að nota tækifærið til að gera
hrollvekju allra hrollvekja. Kom því
vart á óvart er myndin var klár árið
2000 að farið var fram á 17 ára ald-
urstakmark, sem heldur er ekkert
tiltökumál því margar myndir hafa
verið bannaðar innan 17 ára og samt
gefnar út. En tímasetningin gat bara
ekki verið óheppilegri. Morðin í Col-
umbine-menntaskólanum höfðu þá
nýverið átt sér stað og umræða var
hávær í bandaríska þinginu um að
einn meginsökudólgurinn á auknu
ofbeldi meðal ungmenna í Banda-
ríkjunum væri Hollywood og ofbeld-
isdýrkunin sem þar væri alið á. Þeir
hjá Universal fóru alveg í kerfi, köll-
uðu Zombie á fund til sín og sögðust
frekar myndu stinga myndinni ofan í
skúffu og henda lyklinum í Kyrra-
hafið en dreifa myndinni. Zombie
stakk því filmunni á sig, gekk út og
þurfti að finna sér annan aðila sem
vildi dreifa myndinni. Og það er
þrautin þyngri, að finna einhvern til
að dreifa hrollvekju sem meinuð er
fólki undir 17 ára aldri, helsta mark-
hópi hrollvekja. MGM sló fyrst til en
hann móðgaði stjórana hjá MGM
með því að lýsa yfir á MTV að þeir
hefðu greinilega enga siðgæðis-
kennd fyrst þeir ætluðu að dreifa
svona mynd. Þannig reyndist Zomb-
ie sjálfur sér verstur og allt stefndi í
að myndin kæmi aldrei út. En svo
gerðist það eftir mikið streð að
myndin var frumsýnd í apríl á þessu
ári. Auðvitað gekk öll markaðs-
setningin út á að þetta væri myndin
sem fólki var aldrei ætlað að sjá og
hvað er betur til þess fallið að vekja
forvitnina. Enda fór svo að myndin
rauk beint í annað sætið og hefur nú
skilað Zombie vænum tekjum. Hús
hinna þúsund líka (House of 1000
Corpses) kemur á leigurnar í dag.
Aðrar myndir sem koma út í vik-
unni eru bardagamyndin Frá vöggu
til grafar (Cradle 2 Grave) með Jet
Li og DMX sem kom út í gær,
Strandvarðamyndin Baywatch
(Hawaiian Wedding) með Pamelu
Anderson, David Hasselhoff, Yasm-
in Bleeth, Carmen Electra og öllu
gamla strandvarðagenginu sem
kemur út á morgun. Fyrsta leik-
stjórnarverkefni Georges Clooneys
Játningar háskalegs hugar (Con-
fession of a Dangerous Mind) kemur
einnig út á morgun, Disney-
teiknimyndin Gullplánetan á
fimmtudag, sem og Disney-
unglingadramað Tuck-fjölskyldan. Í
dag koma svo út spennumyndin
Ljónagrenið (Den of Lions) með
Stephen Dorff og þýska unglinga-
dramað Stórar stelpur gráta ekki
(Große Mädchen weinen nicht/Big
Girls Don’t Cry).
Myndbandaútgáfa vikunnar
Myndin sem þér var
ekki ætlað að sjá
Hús hinna þúsund líka er versta
martröð Hollywood-jöfranna.
skarpi@mbl.is
!" #
$
#
$
!" $
$
$
!"
!" $
$
$
#
$
%
$
!"
!" $
&
'
'
&
&
&
&
(
'
&
'
&
&
&
'
(
(
'
(
(
!
"
#
"
$
%
&
'%
$
#
"
#
()'*+
%
,
-
.
.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Nordisk
Panorama, fer fram dagana 23.–28.
september í Malmö í Svíþjóð. Þessi
helsta stutt- og heimildarmyndahátíð
Norðurlanda er haldin árlega og að
þessu sinni keppa fjórar íslenskar
myndir, tvær stuttmyndir og tvær
heimildarmyndir. Stuttmyndirnar eru
tölvuteiknimyndin Litla lirfan ljóta eft-
ir Gunnar Karlsson og dansmyndin
Burst eftir Reyni Lyngdal, eftir dans-
verki Katrínar Hall. Heimildarmynd-
irnar eru Möhöguleikar, mynd um
listamanninn Sigurð Guðmundsson
gerð af Ara Alexander og Í skóm drek-
ans eftir Hrönn Sveinsdóttur og Árna
Sveinsson, handhafa Edduverð-
launanna, sem besta heimildarmynd-
in.
Samhliða hátíðinni hefur farið fram
kaup- og kynningarstefna á stutt- og
heimildarmyndum. Þar kynnir Kvik-
myndamiðstöð Íslands formlega þrjú
íslensk verkefni sem eru í vinnslu. Þor-
björn Guðmundsson er þar með Bítla-
bæinn Keflvík, sem kvikmyndafélagið
Glysgirni framleiðir, Afríka United er
um afrískt fótboltalið á Íslandi, gerð af
Ólafi Jóhannessyni og framleidd af
Poppolí, A Writer With A Camera er
heimildarmynd framleidd af Trölla-
kirkju, þar sem Helga Brekkan vinnur
úr myndefni sem Guðbergur Bergsson
skaut í Portúgal fyrir 30 árum og fylgir
skáldinu á gömlu tökustaðina. Að auki
eru á stefnunni þau Hjálmtýr Heiðdal,
Ásthildur Kjartansdóttir og Steinþór
Birgisson. Ber og að nefna að á mynd-
bandamarkaði sem haldin er í
tengslum við hátíðina eru nú 15 ís-
lenskar stutt- og heimildarmyndir.
Kristín Pálsdóttir, kvikmyndaráð-
gjafi Kvikmyndamiðstöðvar fyrir
stutt- og heimildarmyndir, er stödd á í
Malmö og segist vera þar í hópi u.þ.b.
20 Íslendinga, höfunda myndanna á
keppninni og þeirra sem taka þátt í
kaup- og kynningarstefnunni. Kristín
segir kaupstefnuna mjög mikilvæga
fyrir íslenska stutt- og heimildar-
myndagerð en til marks um það hafi
veltan þar í fyrra, það fjármagn sem
kvikmyndagerðarmenn náðu að afla
myndum sínum, numið 850 milljónum
evra.
Nordisk Panorama verður haldin að
ári á Íslandi.
Norræna stutt- og heimildarmyndahátíðin
Fjórar íslenskar
myndir í keppni
Ljósmynd/Jóhannes Bjarnason
Dansararnir Katrín Á. Johnson og
Guðmundur Elías Knudsen eru í
aðalhlutverki í Burst.
20.09. 2003
6
3 0 5 7 1
2 9 5 9 5
20 25 28 30
31
17.09. 2003
2 7 21
23 36 46
19 42
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
ÁLFABAKKI
kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.
KRINGLAN
kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
AKUREYRI
kl. 8 og 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
kl. 5.55, 8 og 10.10.
KEFLAVÍK
kl. 8.
.
AKUREYRI
kl. 6 og 8.
Stórkostleg
gamanmynd sem
er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Antonio Banderas, Johnny Depp og Salma
Hayek í mögnuðu framhaldi af hinni
geysivinsælu mynd Desperado.
DV
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
Sjáið sannleikann!
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
Ný mynd frá breska
leikstjóranum Alan Parker
með tvöföldum
Óskarsverðlaunahafa,
KevinSpacey.
KEFLAVÍK
kl. 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
ATH! EINGÖNGU SÝND
Í LÚXUS VIP
KL. 5.30, 8 OG 10.30. B.I. 16 ÁRA
ÁLFABAKKI
kl. 8 og 10.10. B.i. 12.
KRINGLAN
kl. 6 og 8. B.i. 12.
AKUREYRI
kl. 6. B.i. 12.
Yfir
41.000
gestir
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÓHT RÁS 2
SG DV MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
Skonrokk FM 90.9
Bæjarbíó, Hafnarfirði Kvikmynda-
safn Íslands sýnir mynd Rainer
Werner Fassbinder Brúðkaup Mar-
íu Braun (Die Ehe der Maria Braun)
frá 1979. Hanna Schygulla hlaut
Silfurbjörninn á Berlínarhátíðinni
fyrir túlkun sína á Maríu Braun
ungri konu sem er gift þýskum her-
manni. Myndin er sýnd kl. 20.
Goethe-Zentrum, Laugavegi 18
Þýska gamanmyndin Erleuchtung
garantiert eftir Doris Dörrie sýnd
kl. 20.30 . Myndin er frá árinu 1999
og er með enskum texta. Segir af
tveimur bræðrum í „miðaldurs-
kreppu“ og leit að innri ró. Er konan
yfirgefur annan slæst hann í för með
hinum til Tókýó, í þeim erindum að
læra hugleiðslu í zen-klaustri. En
allt gengur á afturfótunum og ferðin
virðist misheppnuð – eða hvað?
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is