Morgunblaðið - 29.09.2003, Page 14
DAGLEGT LÍF
14 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
* 5 línur, tilboðið gildir til 31. desember 2003
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Alltaf á laugardögum
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.*
Almennt verð er 1.689 kr.
Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum.
Hafðu samband!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins
sími 569 1111 eða augl@mbl.is
LISTIR
UNGT fólk sem er að stíga sínfyrstu fullorðinsskref út ílífið er leitandi og gjarnan
með höfuðið fullt af spurningum.
Spurningarnar tengjast öllu milli
himins og jarðar. Þær geta verið um
ástarmál og kynlíf, fjármál, skóla og
próf, heimilisaðstæður, þunglyndi,
kynhneigð, vímuefni, nám eða vinnu
erlendis, húsnæðismál og svo mætti
lengi telja.
Undanfarinn áratug hefur Hitt
húsið verið með ráðgjafaþjónustu
fyrir fólk á aldrinum 16–25 ára. Sál-
fræðingar, félagsfræðingar og
hjúkrunarfræðingar hafa verið á
staðnum til að taka á móti þeim sem
vilja leita til þeirra, en síðustu tvö ár
hefur einnig verið hægt að spyrja
sérfræðinga ráða á Netinu á svokall-
aðri Tótalráðgjöf.
„Tótalráðgjöfin hefur þann ótví-
ræða kost að sá sem leitar þangað er
óþekkjanlegur, þarf ekki að gefa
upp nafn eða kennitölu og enginn
sér að hann eða hún eru að leita sér
aðstoðar. Þar af leiðir að fleiri þora
að leita sér ráða,“ segir Margrét
Gauja Magnúsdóttir rannsókn-
armær og lestarstjóri hjá Hinu hús-
inu. „Hjá Tótalráðgjöfinni svara
allskonar sérfræðingar spurningum,
við erum í samvinnu við Fé-
lagsþjónusturnar, Samtök um kynlíf
og barneignir, sálfræðing, fjár-
málaráðgjafa og námsráðgjafa o.fl.
Þetta er ókeypis þjónusta og hugsuð
sem einhvers konar stökkpallur til
að opna hlið og vísa fólki leiðirnar
áfram.“
Ekki eingöngu vandamál
Margrét Gauja segir að nánast
allir lendi einhverntíma í einhverri
kreppu þótt hún líti kannski ekki út
fyrir að vera alvarleg á yfirborðinu.
„Ástarsorg eða fall á prófi getur til
dæmis verið meiri háttar áfall fyrir
suma. Við leggjum áherslu á hlut-
leysi okkar og að ekkert vandamál
eða spurning er ómerkileg. Við ger-
um líka út á það að bregðast skjótt
við, því lund unga fólksins er bráð.
Ef þau eru með verk í móðurlífinu
eða á sálinni hafa þau ekki biðlund í
margar vikur þar til þau fá tíma hjá
sérfræðingi. Allir sem leita til Tótal-
ráðgjafarinnar fá svar innan þriggja
daga,“ segir Margrét Gauja og legg-
ur áherslu á að þessi þjónusta sé
samstarfsverkefni þar
sem ekki sé einvörðungu
verið að taka á vanda-
málum, heldur sé þetta
einnig upplýsingaþjón-
usta þar sem hægt er að
fá svör við hverskonar
spurningum eins og t.d.:
Hvert á ég að snúa mér
ef mig langar að læra
ljósmyndun, gefa út blað eða fara í
skóla til útlanda?
Framtíðarkvíði og neysluhyggja
Margrét Gauja er að vinna ásamt
öðrum að rannsókn fyrir Tótalráð-
gjöfina á því hvers konar ráðgjöf
ungt fólk telur sig þurfa. „Við fyrstu
sýn virðist mér niðurstaðan meðal
annars sýna að framtíðarkvíði er
nokkuð ríkjandi hjá ungu fólki. At-
vinnumálin og námsvalið hvílir
þungt á því. Allur þessi fjöldi val-
kosta virðist gera þau óörugg og þau
eru sífellt hrædd við að þau séu að
taka rangar ákvarðanir. Einnig er
ríkjandi ótti við að
standa sig ekki nógu
vel, því kröfur nútíma-
samfélags eru svo mikl-
ar, allir eiga að „meika
það“ og vera full-
komnir. Fjármálin eru
vaxandi vandamál hjá
ungu fólki enda gera
bankarnir út á fram-
haldsskólanema með gyllitilboðum
um kort, yfirdráttarheimildir og
endalaus lán án ábyrgðar, sem getur
verið erfitt að standa við að borga
þegar kemur að skuldadögum.
Neysluskilaboðin eru svakaleg, allir
virðast þurfa að eiga fokdýrar far-
tölvur svo eitthvað sé nefnt.“
Foreldrar leita líka svara
Í rannsókninni er einnig athugað
af hverju ungt fólk sækir sér ekki
hjálp sem það þó telur sig þurfa.
„Svörin sem við fengum eru nokkuð
athyglisverð. Tuttugu og fimm pró-
sent sögðust ekki vita hvert þau
ættu að fara, tuttugu prósent sögð-
ust ekki þora að leita sér hjálpar og
mjög stór hópur sagðist ekki telja
vandamál sín nógu alvarleg til að
leita ráða hjá sérfræðingum,“ segir
Margrét Gauja sem telur mikla þörf
fyrir þá þjónustu sem Tótalráðgjöfin
veitir. „Það hafa alls ekki allir að-
gang að fullorðnum til að leita svara
heima hjá sér og auk þess hafa for-
eldrar ekki alltaf svör við öllum
þeim spurningum sem brenna í huga
ungs fólks,“ segir Margrét Gauja og
tekur fram að foreldrar hafi mikið
nýtt sér Tótalráðgjöfina því þeir
þurfi ekki síður að leita svara í öllum
þeim málum sem upp geta komið í
tengslum við ungt fólk.
RÁÐGJÖF | Svör við spurningum um allt milli himins og jarðar
Engin spurning
er ómerkileg
Morgunblaðið/Ásdís
Tótalráðgjöf: Rannsóknarmærin og lestarstjórinn Margrét Gauja.
Ef þau eru með
verk í móðurlífinu
eða á sálinni hafa
þau ekki biðlund í
margar vikur þar
til þau fá tíma hjá
sérfræðingi.
TENGLAR
..............................................
www.totalradgjof.is
www.hitthusid.is
khk@mbl.is
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson
blés til afmælistónleika í íslensku
óperunni í tilefni af 35 ára afmæli
sínu, honum til halds og trausts var
Jónas Ingimundarson, píanóleikari.
Það sem þessir tveir frábæru tón-
listarmenn eiga sameiginlegt er að
þeir nálgast verkefni sín og tónlist-
ina yfirleitt af virðingu og lítillæti,
sem gerir þá stóra listamenn og ár-
angurinn er syngjandi falleg tónlist
sem flýtur eins og af sjálfu sér og
hrífur alla með sér. Þannig stemn-
ing var í óperunni á miðvikudags-
kvöldið var.
Efnisskráin fyrir hlé var af alvar-
legra taginu. Fimm söngvar um ást-
ina eftir Tchaikovsky sungnir á
rússnesku. Sleza drazhyt. (Tár titr-
ar) op. 6 nr. 4, Sred’ shumnogo bala
(Í miðjum dunandi dansleik) op. 38
nr. 3, Lied der Mignon (Söngur
Mignonar) op. 6. nr. 6, Blagoslovl-
iaiu var, lesa (Ég blessa ykkur skóg-
ar) og Mansöngur Don Juans op. 3
nr. 1. Allir textarnir eru eftir Tolstoj
nema Söngur Mignonar sem er eftir
Goethe í rússneskri þýðingu A. Mej.
Íslenskri þýðingu Reynis Axelsson-
ar var varpað á tjald á meðan á
flutningi stóð. Ólafur var tælandi og
sannfærandi í túlkun sinni þegar
það átti við og Jónas studdi hógvær
við bakið á honum. Þar næst fylgdu
Fjórir alvarlegir söngvar op. 121
sem Johannes Brahms samdi 1896
undir áhrifum veikinda og dauða
Clöru Schumann. Í þrem fyrstu ljóð-
unum notar Brahms texta úr Bibl-
íunni sem fjalla um fallvaltleika
mannsins og í því síðasta um lífið
með og án kærleika. Tónlist Brahms
fellur mjög vel að textanum og flutn-
ingurinn góður og sannfærandi, dró
fram angist og tómlæti þar sem það
átti við og huggun þar sem það átti
við. Textinn sem varpað var á tjaldið
var sóttur í Guðbrandsbiblíu, á þess
tíma máli með nútímastafsetningu
og fór vel á.
Eftir hlé var komið að afmælis-
hluta tónleikanna og slegið á léttu
strengina, með spjalli og glensi sem
þó fylgdi nokkur alvara. Mozart átti
fyrstu lögin, Deh vieni alla finestra
úr Don Giovanni og Komm, liebe
Zither. Í báðum lögunum lék Ólafur
með á mandolín, ásamt píanóinu í
því fyrra en gaf Jónasi frí í því síð-
ara. Því næst söng Ólafur án undir-
leiks gamankvæði Þórarins Eld-
járns, Hringhendur Prinsins sem
fjallar á gamansaman hátt um hinar
ýmsu líkamsbreytingar unglingsins
við lag Sigurðar R. Jónssonar. Síðan
geystu þeir félagar á sprett í
Sprengisandi Kaldalóns og róuðu
sig niður með hinni gullfallegu Nótt
Árna Thorsteinssonar, síðan reis
Hamraborg Kaldalóns í glæsilegum
flutningi.
Gamanlögin The Stuttering Lov-
ers, sem er írskt þjóðlag, enska
þjóðlagið The foggy, foggy dew, lag
Clutsams Ma Curly Headed Babby
og I bought me a cat eftir Copland
voru í hreint ógleymanlegum flutn-
ingi Ólafs með dyggum stuðningi
Jónasar og til að róa mannskapinn
niður fluttu þeir aríuna Non più
andrai úr Brúðkaupi Figaros eftir
Mozart. Ekki var komist hjá auka-
lögum og söng Bergþór Pálssson
dúett með Ólafi í því fyrsta.
Fjölbreyttir
afmælistónleikar
TÓNLIST
Íslenska óperan
Ólafur Kjartan Sigurðarson, bariton og
Jónas Ingimundarson, píanóleikari.
Miðvikudaginn 24. september kl. 20.00.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Jón Ólafur Sigurðsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Jónas Ingimundarson og Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Súpersex –
krassandi kyn-
líf er handbók
eftir kynlífs-
ráðgjafinn Trac-
ey Cox. Bókin
er ríkulega
skreytt ljós-
myndum eftir
John Davis.
Ævar Örn Jósepsson þýddi.
Tracey Cox er einn helsti höfundur
heims á sviði kynlífs- og pararáð-
gjafar. Hún fæddist í Bretlandi en bjó
um margra ára skeið í Ástralíu þar
sem hún ritstýrði áströlsku útgáfunni
af Cosmopolitan auk þess sem hún
stýrði vikulegum útvarpsþætti. Hún
flutti til London þegar hún tók að sér
að stýra spjallþættinum Hot Love,
sjónvarpsþætti um samskipti
kynjanna. Hotter Love fylgdi í kjölfar-
ið, sex þátta röð þar sem hún leit-
aðist við að leysa úr kynlífsvanda-
málum 24 hjóna og para.
Tracey nam sálfræði í háskóla og
hefur ráðið pörum heilt í hinum ýmsu
fjölmiðlum í meira en áratug.
Útgefandi er JPV-útgáfa. Verð
3.980 kr.
Kynlíf