Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 30
30 C MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir
N
ÝTT skipulag Lundar var
fyrir nokkru samþykkt
frá bæjaryfirvöldum í
Kópavogi til kynningar,
sem stendur til 10. nóvember nk., en
þá þurfa athugasemdir og ábending-
ar að hafa borist bæjarskipulagi
Kópavogs.
Lundur er um tíu hektara svæði
neðan Nýbýlavegar í Kópavogi. Þar
var frá 1945 og fram undir þetta rek-
inn hefðbundinn búskapur. Áður
höfðu komið fram tillögur að nýrri
byggð á þessu svæði en fallið var frá
þeim tillögum og nýjar gerðar, þær
sem nú er verið að kynna. Höfundur
skipulagsins er Kristinn Ragnarsson
arkitekt.
Í síðustu viku, á fimmtudaginn var,
kynnti Birgir Sigurðs-
son, skipulagsstjóri
Kópavogs, þetta skipu-
lag á almennum kynn-
ingarfundi í Félags-
heimili Kópavogs.
„Þar rakti ég þessar
nýju tillögur í máli og
myndum,“ segir Birgir
Sigurðsson.
„Ég byrjaði þó á því
að nefna hugmyndir
sem uppi höfðu áður
verið um „þekkingar-
þorp“ í Lundi, en menn
sáu fyrir sér að reisa
byggð sem myndi hýsa
atvinnustarfsemi,
tengdri upplýsingaiðn-
aðinum. Fallið var frá
þessum hugmyndum þegar ljóst varð
að mikil niðursveifla var í þessum
geira og mikið framboð á góðu skrif-
stofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu,
er jafnvel talað um hrun í þessu sam-
bandi. Í annan stað er framboð á
slíku húsnæði langt umfram eftir-
spurn þar sem mikið hefur verið
byggt af sérhönnuðu skrifstofuhús-
næði, m.a. í Kópavogi. Af ofanskráðu
er því ljóst að fjárfesting í dýru skrif-
stofuhúsnæði er ekki vænlegur kost-
ur á næstu árum fyrir fjárfesta og
fyrirtæki sem starfa í þekkingariðn-
aðinum,“ segir Birgir Sigurðsson
ennfremur.
„Í tillögunni fyrrnefndu var gert
ráð fyrir verslunum og skrifstofum
ásamt íbúðarhúsnæði í byggð sem
hugsuð var næst Nýbýlaveginum.
Húsin voru 7 til 12 hæða og samtals
milli 50 og 60 þúsund fermetrar að
flatarmáli.
Byggðin í Lundi sem nú stendur er
farin að láta mjög á sjá og því verða
þau hús sem nú standa flest öll rifin.
Húsin sem eiga að standa eru íbúðar-
húsin Nýi-Lundur og Lundur III.
Byggt verður íbúðarhúsnæði
fyrir almennan markað
Í byrjun þessa árs kom fram ný til-
laga frá Lundi ehf. um byggð í kring-
um þessi hús og verður helmingur
Lundarsvæðisins tekinn undir nýja
byggð. Í hinum nýju tillögum felst að
byggt verður íbúðarhúsnæði á þessu
svæði fyrir almennan markað. Lund-
arsvæðið er vel fallið til íbúðarbyggð-
ar, það er miðsvæðis og þjónar því
vel markmiðum, bæði svæðisskipu-
lags og aðalskipulags um þéttingu
byggðar.
Byggðin yrði í jaðri Fossvogsdals,
eins eftirsóknarverð-
asta útivistarsvæðis
höfuðborgarsvæðisins,
aðgengið er gott að
svæðinu og fjölbreytt
og góð þjónusta í næsta
nágrenni þess. Útsýni
er mikið til fjalla og
sjávar, út á Fossvoginn
til vesturs og yfir Foss-
vogsdalinn í norður og
austur. Dalurinn er
veðursæll. Með íbúðar-
byggð á Lundarsvæð-
inu yrði til nýr kostur
til mótvægis við jaðar-
byggðir höfuðborgar-
svæðisins.
Umferðartengsl
svæðisins verða frá Ný-
býlavegi um hringtorg gegnt Auð-
brekku. Áætla má að umferð á tengi-
götu til og frá svæðinu verði á milli
fjögur og fimm þúsund bílar á sólar-
hring.
Tillagan gerir ráð fyrir um 480
íbúðum á svæðinu í 8 fjölbýlishúsum,
sem yrðu níu til þrettán hæðir, auk
inndreginnar þakhæðar og kjallara.
Þéttleiki svæðisins er áætlaður um
50 íbúðir á hektara. Á hverri hæð er
reiknað með fimm íbúðum og síðan
tveimur íbúðum á þakhæðinni. Ef
miðað er við 2,7 íbúa á íbúð kæmu um
1.300 manns til með að búa á svæðinu
eða um 130 íbúar á hektara.
Samanlagt flatarmál lóða er 56
þúsund fermetrar og byggingamagn
án bílageymslna er um 74 þúsund
fermetrar eða nýtingarhlutfall sem
samsvarar 1,3.
Nýtingarhlutfall einstakra nýrra
byggingarlóða er áætlað 1,5 til 2,0.
Samkvæmt tillögunni verða um
900 bílastæði á svæðinu og verður
stór hluti þeirra í bílageymslum neð-
anjarðar. Áhersla var lögð á að hafa
sem mest af bílastæðum neðanjarðar
til þess einkum að bæta ásýnd svæð-
isins.
Rík áhersla lögð
á trjárækt og opin svæði
Í tillögunni er lögð rík áhersla á
aukna trjárækt og góð, opin svæði.
Meðal annars meðfram umferðaræð-
um og við bílastæði. Í henni er jafn-
framt gert ráð fyrir leikskóla á svæð-
inu, ásamt sparkvelli og minni
leiksvæðum. Þá er gert ráð fyrir að
þar rísi hverfisverslun og í tengslum
við hana er ráðgert að hafa endur-
vinnslugáma fyrir m.a.pappír og
fleira. Einnig er gert ráð fyrir bens-
ínstöð í suðvesturhorni deiliskipulags
svæðisins, með aðkomu frá Nýbýla-
vegi.
Gönguleiðir verða víða í nýju
byggðinni og tengjast þær stígakerfi
Fossvogsdalsins. Í tillögunni kemur
jafnframt fram að gert er ráð fyrir
fernum nýjum undirgöngum í
tengslum við uppbyggingu svæðis-
ins, einum til vesturs, undir Hafnar-
fjarðarveg sem tengja Fossvogsdal
og Kársnesið, önnur undir afrein af
Nýbýlavegi inn á Hafnarfjarðarveg
og tvenn verða undir Hafnarfjarðar-
veg.
Börn úr hverfinu munu eiga skóla-
göngu í Snælandsskóla. Lauslega
áætlað geta um 200 íbúanna á Lund-
arsvæðinu verið á grunnskólaaldri.
Staðsetning bygginga á Lundar-
svæðinu var valin með það í huga að
byggingarnar varpi ekki skugga yfir
nálæga byggð yfir sumartímann og
útsýni frá byggðinni skerðist sem
minnst. Því er fyrirhuguð byggð í
Lundi staðsett eins vestarlega á
svæðinu og kostur er. Þannig mynd-
ast opið svæði milli þeirra byggðar
sem fyrir er og þeirrar nýju.
Lundur við Fossvog er sem sagt
nýtt íbúðarhverfi í jaðri Fossvogs-
dals. Þar sameinast íbúðarbyggð og
grænt útivistarsvæði í námunda við
allar helstu þjónustu- og samgöngu-
leiðir.
Tilvalið fyrir þá sem vilja
hreiðra um sig miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu
Hverfið verður tilvalið fyrir ein-
staklinga og fjölskyldufólk; þá sem
Dæmi um útlit byggðar í Lundi, séð frá Hafnarfjarðarvegi.
Nýtt skipulag Lundar
Kynnt hefur verið nýtt skipulag Lundarsvæðisins fyrir
neðan Nýbýlaveg í Kópavogi. Birgir H. Sigurðsson,
skipulagsstjóri Kópavogs, gerir hér Guðrúnu
Guðlaugsdóttur grein fyrir hinu nýja skipulagi.
Horft í vestur yfir hina fyrirhuguðu byggð í Lundi. Húsin eru 9 til 13 hæða og koma til með að standa vestast á svæðinu.
Birgir Sigurðsson, skipu-
lagsstjóri Kópavogs.