Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 40
STEINLJÓSIN koma í mörgum
formum, hvert öðru nýstárlegra.
Kuðungurinn er listaverk einn og
sér og gefur dýrindis myndlist
ekkert eftir. Þennan lampa þarf að
setja upp þar sem hann fer ekki
framhjá neinum sem inn í húsið
kemur.
Lýsandi
kuðungur
40 C MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir
Dvergholt - 2ja herb. 51,2 fm
ósamþykkt íbúð á neðri hæð í 3-býlishúsi með
fallegu útsýni. Íbúðin skiptist í góða stofu með fal-
legu útsýni, eldhúskrók, borðkrók, svefnherbergi
og baðherbergi m/sturtu. Stutt í þjónustu, skóla
og hesthúsahverfið. Verð kr. 6,2 m. Áhv. 3,4 m.
Leirutangi - neðri hæð *NÝTT
Á SKRÁ* Rúmgóð 2ja-3ja herbergja íbúð á
neðri hæði í litlu fjórbýli í gróinni götu. Íbúðin
er alls 92,5 fm, en hluti hennar er með lægri
lofthæð. Gott svefnherbergi, stofa með plast-
parketi, eldhús með borðkrók, lítið herbergi
og forstofa í aðalrými en stórt baðherbergi
með baðkari og ágætt svefnherbergi og
geymsla í aukarýminu. Þetta er vel staðsett
eign á barnvænum stað. Verð 11,2 m. Áhv.
3,0 m. LAUS STRAX
Urðarholt - 3ja herb. 91 fm íbúð á
jarðhæð í 3ja hæða fjölbýli á mjög góðum stað í
Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í stóra stofu, eldhús
með borðkrók, stórt hjónaherbergi og gott barna-
herbergi, baðherbergi með baðkari og sturtuklefa.
Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús á sömu
hæð. Stór timburverönd með skjólgirðingu er við
íbúðina. Mjög stutt í alla þjónustu og verslanir.
Verð kr. 12,9 m. Áhv. 7,5 m.
Súluhöfði - neðri hæð í tví-
býli *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 115 fm
íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi innst í botnlanga
við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í
stofu, eldhús, 2 góð svefnherbergi, baðher-
bergi m/hornbaðkari og sauna, þvottahús og
geymslu. Íbúðin er í byggingu í dag, en miðað
er við að afhenda húsið fullbúið án gólfefna
og lóð verður grófjöfnuð. Verð 14,9 m.
Þverholt - 3ja herb. Erum með fal-
lega 114 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í miðbæ
Mosfellsbæjar. Eldhús með góðum borðkrók, stór
stofa, baðherb. m/kari og sturtu. Ágætt barnaher-
bergi og stórt hjónaherbergi með fataherbergi. Úr
eldhúsi eru svalir í suðvestur með útsýni yfir
óbyggt svæði. Eikarparket er á allri íbúðinni, en
marmari á baði og forstofuholi. Verð kr. 12,1 m.
Áhv. 6,3 í byggsjóði 4,9% vextir.
Dalatangi - stórt einbýli
m/aukaíb. 361 fm einbýlishús á 2 hæðum
ásamt 52,5 fm bílskúr, með möguleika á aukaí-
búð. Aðalhæðin er 155 fm auk bílskúrs og skipt-
ist í eldhús, stofu, sjónvarphol, 4-5 svefnherb.,
baðherb., gestasalerni og þvottahús. Kjallarinn er
207 fm með sérinng. og 4 herb., baðherbergi
m/sturtu, stofu og stórri geymslu. Steypt bílaplan
og verönd með heitum potti. Verð 33,5 m.
Hlíðarás - einbýli/tvíbýli Stórt og
mikið 407 fm einbýlishús á tveimur hæðum með
tvöföldum bílskúr. Fallegt einbýli í botnlanga við
óbyggt svæði með gríðarmiklu útsýni yfir Mos-
fellsbæ. Hugmyndir eru um að skipta húsinu í
tvær 150 fm íbúðir auk 44 fm bílskúrs og kjallara
undir bílskúr. Verð 29,5 m.
Jörfagrund - endaraðhús
m/bílskúr 145 fm endaraðhús ásamt 31 fm
innbyggðum bílskúr á stórri hornlóð með miklu
útsýni. Í íbúðinni eru 3 mjög stór svefnherbergi,
baðherbergi m/kari, sérþvottahús, stór og björt
stofa og gott eldhús með borðkrók. Stór og mikil
lóð er afgirt með góðri girðingu. Timburverönd er
við stofu og eldhús. Verð 16,9 m. Áhv. 8,5 m. í
húsbr.
Flugumýri Erum með í sölu snyrtilegt iðn-
aðarhúsnæði við Flugumýri í Mosfellsbæ. Húsið
er samtals 545 fm, þar af 301 fm vinnslusalur
með 5-7 m lofthæð, 3 innkeyrsludyr, (4 x 4,5 m).
Mögulegt er að stækka vinnslusalinn um ca 300
fm. Samtengt vinnslusalnum er 244 fm skrifstofu-
og starfsmannabygging á 2 hæðum. Mjög gott
útipláss er við húsið. Húsið afhendist tilbúið að
utan, vinnslusalur er fullbúinn en skrifstofuálma er
tilbúin undir tréverk. Verð 33.400.000
Súluhöfði - efri hæð í 2býli
m/bílskúr *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að
fá 181,7 fm íbúð á 2 hæðum ásamt 41 fm bíl-
skúr innst í botnlanga við golfvöllinn í Mos-
fellsbæ. Á aðalhæð er gert ráð fyrir stofu, eld-
húsi, borðstofu, 2 svefnherbergjum, baðher-
bergi, þvottahúsi og geymslu og á neðri hæð
eru tvö svefnherbergi og sjónvarpshol. Húsið
er í byggingu í dag, en miðað er við að af-
henda húsið fullbúið án gólfefna. Lóð verður
grófjöfnuð. Verð 24,9 m.
VANTAR EIGNIR Í MOSFELLSBÆ
• Erum með ákveðinn kaupanda að einbýlis- eða tvíbýlishúsi í
Tanga- eða Holtahverfinu með 5-6 svefnherbergjum og 35-50 fm
bílskúr.
• Erum einnig með kaupanda að 120-140 fm einbýlishúsi ásamt bíl-
skúr í Holta- eða Tangahverfinu.
• Vantar 4ra herbergja Permaform-íbúð á jarðhæð í Hjallahlíð, Huldu-
hlíð, Skeljatanga eða Björtuhlíð fyrir konu, sem búin er að selja
sína íbúð.
• Óskum eftir 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með bílskúr í Fálkahöfða,
Blikahöfða eða Björtuhlíð fyrir hjón á besta aldri.
• Vantar einbýlis- eða raðhús í Höfðahverfi fyrir áhugasaman aðila
sem búinn er að selja.
ÞEGAR enginn fatnaður hangir á
fatatrénu skiptir miklu máli að það
líti vel út. Þetta glæsilega fatatré
er stílhreint og smekklegt og fer
vel hvar sem er. Uglurnar sjálfar
eru breiðar og ávalar og fara vel
með fatnaðinn sem hengdur er
upp.
Fallegt
fatatré
UM skeið var enginn maður með mönnum nema að
eiga hraðsuðuketill. Nú er öldin önnur, mjög margt
fólk eldar orðið á gasi og katlar með fremur þunnum
botni hitna með eldingarhraða á gashellunni. Gjarnan
gefa katlar frá sér hátt hljóð þegar vatnið tekur að
hitna og gufan að lyfta lokinu á ketilopinu. Krafturinn
í gufunni varð mönnum á öldum áður að umhugs-
unarefni, þeim bauð í grun að hægt væri að nota
þessa orku ef það tækist að beisla hana. Og það
tókst. James Watt, sem fæddist 1736 og dó 1819,
var skoskur uppfinningamaður og tækjasmiður að
mennt. Hann vann að endurbótum á gufuvélinni en
fleiri menn eru nefndir til sögunnar hvað þróun gufu-
vélarinnar áhrærir. Þeir Thomas Savery, enskur her-
verkfræðingur og uppfinningamaður og Thomas
Newcomen járnsmiður voru í brautryðjendastétt í
þessum efnum, þá fyrrnefndur James Watt, sem lík-
lega er þeirra þekktastur og svo Benjamin Franklin
Tibbets. Þessi þróun kom mönnum m.a. í áföngum
upp á að nota gufu til að knýja áfram skip.
Gamli og góði
gufuketillinn