Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 C 49Fasteignir
Vönduð ryðfrí húsaskilti
Fjölbreytt myndaval
Pantið tímanlega
til jólagjafa
HÚSASKILTI
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
3ja herb.
Stórholt 3ja herb íbúð. Mikið
endurnýjuð og notaleg. Efri hæð
í 4ra íbúða parhúsi á þessum vinsæla stað.
Tvær stofur hafa verið sameinaðar í eina
stóra stofu. Stórt svefnherbergi með horn-
glugga út að uppgrónum garði. Í kjallara er
16 ferm herbergi með aðgangi að salerni.
Lögð hefur verið mikil alúð og smekkvísi í
endurnýjun íbúðarinnar Verð 12.9 millj.
Vesturberg - 3ja - LAUS
STRAX Gott tækifæri til að fá sér ódýra
3ja herbergja íbúð. Tvö góð herbergi. Stofa
með útgangi út á svalir með miklu útsýni yf-
ir borgina. Getur verið laus strax. Mjög góð
áhvílandi húsbréf 7,5 millj. BETRA VERÐ
9,9 MILLJ. FÍN FYRSTU KAUP.
Flyðrugrandi Mjög góð 3ja herbergja
íbúð með gott skipulag. Mjög stórt hjóna-
herbergi með útgangi út á svalir. Parket á
stofu og herbergjum. Sérþvottahús á hæð-
inni fyrir aðeins 5 eignir. Getur verið laus
fljótlega. Mjög góð áhv. lán 8,3 millj.
Betra verð 10,9 millj.
4ra herb.
Seljabraut - 4ra + bílskýli Mjög
góð 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í bíl-
skýli. Þrjú svefnherb. og rúmgóð stofa. Flís-
ar og parket á gólfum. Gott útsýni úr íbúð-
inni. Áhv. 6,7 millj. húsbr. Verð 13,2 millj.
Rað- og parhús
Arnartangi - Mosfellsbæ -
raðhús m. bílskúr - 122 fm
Mikið endurnýjað hús á þessum vinsæla
stað, 2-3 svefnherbergi, stórar stofur,
glæsilegt bað, nýtt parket, nýtt járn. Hér
þarf ekkert að gera. Verð 15,5 millj.
Atvinnuhúsnæði
Hafnargata- Keflavík. Erum með ca 270
fm atvinnuhúsnæði í miðbæ Keflavíkur.
Húsnæðið skiptist í stóran sal, setusofu ,
eldhús og nokkur herbergi. Möguleiki að
breyta húsnæðinu í íbúðir. LAUST STRAX.
VEGNA MIKILLAR EFTIRSPURNAR
ÞÁ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
HRINGDU Í OKKUR, VIÐ KOMUM SAMDÆGURS OG
SKOÐUM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU.
ERUM MEÐ FJÖLDA KAUPENDA Á ÓSKASKRÁ XHÚSA.
Erum með kaupendur að eftirtöldum eignum:
• Einbýlis-, par- eða raðhúsi með 5-6 svefnh. fyrir stóra fjölskyldu sem vill minnka
við sig. Ekki fleiri en 2 hæðir koma til greina. Verðbil 20-30 millj.
• 3ja herberja íbúð í miðbæ Rvíkur austan Snorrabrautar. Verð allt að 12 millj.
• Einbýli á einni hæð í Grafarvogi. Eru sjálf með gott raðhús í Grafarvogi.
• 2-3ja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík með svölum, helst í litlu fjölbýli eða
þríbýlishúsi. Verðbil allt að 13 millj.
• Sérhæð, rað/parhúsi í Grafarvogi eða miðsvæðis í Rvík upp að 23 millj.
• Byggingalóðum fyrir fjölbýlishús eða par/raðhús.
• 2ja til 3ja herbergja íbúð í vesturbæ, austurbæ eða Hraunbæ fyrir aðila sem bú-
inn er að fara í greiðslumat, á verðbilinu 7-10 millj.
• 2ja herbergja íbúð á svæði 104-105 eða 108, má kosta allt upp í 11 millj.
• Raðhúsi eða litlu sérbýli í Garðabæ eða Hafnafirði fyrir allt að 20 millj.
• 4ra herbergja íbúð í Grafarvogi, helst með bílskýli fyrir kaupanda sem kominn er
með greiðslumat.
• Einbýli eða raðhúsi í Mosfellsbæ, fyrir fjársterkan aðila sem búinn er að selja.
Þarf helst að vera laust fyrir 1 feb. ‘04.
• 3ja herbergja íbúð í Breiðholti, helst í Hólunum eða Bergum.
• Sérhæð rað/parhúsi miðsvæðis í Rvík. Verður að vera útsýni. Verðbil 17-25 m.
• 4ra-5 herbergja íbúð í rað- eða þríbýlishúsi. Allt skoðað. Verðbil 14-18 millj.
• Góðri 3ja herbergja íbúð í Grafarvogi - Kópavogi eða Breiðholti.
Upplýsingar gefa sölufulltrúar XHÚSA
ÓSKALISTINN
SUMARBÚSTAÐIR
Jón Magnússon
Hæstaréttarlögmaður
löggiltur fasteigna og skipasali
Bergur Þorkelsson
Sölufulltrúi
gsm: 860 9906
Valdimar R. Tryggvason
Sölufulltrúi
gsm: 897 9929
Valdimar Jóhannesson
Sölufulltrúi
gsm: 897 2514
Gunnur Inga Einarsdóttir
Ritari
Hlíðarnar - Falleg sérhæð
Mjög vel skipulögð sérhæð í steinsteyptu húsi sem búið er að endurnýja mikið. Stórt
hjónaherbergi og gott barnaherbergi. Rúmgóð borðstofa og stofa, sérlega skemmti-
legur bogagluggi er í stofu. Björt og vel skipulögð íbúð þar sem allar vistarverur eru
rúmgóðar. Getur verið laus fljótlega. Góð áhv. lán 6,8 millj.
Erum með fjölda lóða rétt við Flúðir og á Grímsstöðum á Mýrum.
Lóðirnar eru leigulóðir og eru á verðbilinu frá 300 þ.-2,5 millj. eftir
stærð. Hægt að fá mjög stórar lóðir og allt niður í 0,5 hekt. Kjarri-
vaxið land er á Grímsstöðum í faðmi fagurra fjalla. Við Flúðir er
landið mishæðótt og með miklu víðsýni, þar er heitt og kalt vatn.
Vaxandi sumarhúsabyggð er á báðum stöðum. Stutt er á golfvelli
og verslanir. Frekari upplýsingar á skrifstofu.
Hafnarfirði — Hraunhamar fast-
eignasala er með í einkasölu ein-
býlishúsið Erluás 58, 220 Hafnar-
firði. Þetta er steinhús, byggt árið
2002 og er það samtals 263,6 fer-
metrar, þar af er innbyggður bíl-
skúr 42,9 fermetrar.
„Þetta er með allra glæsilegustu
húsum á höfuðborgarsvæðinu,“
sagði Helgi Jón Harðarson hjá
Hraunhamri.
„Um er að ræða tvílyft einbýli á
frábærum stað á hornlóð með miklu
og fögru útsýni. Húsið er heilteikn-
að, úti og inni, af Loga Einarssyni
arkitekt.
Gengið er inn á efri hæð. Þar er
forstofa rúmgóð með tvöföldum
skápum, innangengt er þaðan inn í
rúmgóðan bílskúr með geymslu inn-
af. Gólf bílskúrs og geymslu er lagt
epoxy. Sér hurð er inn í bílskúrinn
auk stóru bílskúrshurðarinnar.
Úr gangi er opið inn í stórt og
bjart hol, þaðan er gengt í 24 fer-
metra herbergi með útgang út á
svalir. Á gangi er einnig stórt sal-
erni með sturtu. Eldhúsið er stórt
og glæsilegt með vönduðum innrétt-
ingum og tækjum. Inn af því er
borðstofa og stofa með arni.
Gluggar eru stórir í stofum og 3,5
metra lofthæð er í stofurýmunum
og í eldhúsi.
Úr eldhúsi er gengt út á svalir, en
þær eru 34 fermetrar. Á neðri hæð
er stór og bjartur stigapallur en
stiginn leiðir niður í stórt alrými
sem er með tvöfaldri hurð út á ver-
önd. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru
niðri, tvö þeirra eru með tvöföldum
skápum. Útgengt er á 100 fermetra
hellulagða verönd frá holi. Búið er
að leggja fyrir heitum potti á ver-
önd.
Á hæðinni er líka þvottahús og
geymsla og glæsilegt baðherbergi
með stórri sturtu og baði. Búið er að
leggja fyrir sauna á baðherberginu.
Þess má geta að allar innrétt-
ingar og hurðir eru úr kirsuberja-
viði, eikarparket er á öllum svefn-
herbergisgólfum – en annars staðar
eru 30X30 granítflísar, svargráar á
lit. Mikil flísalögn er í húsinu, m.a.
er heill veggur á gangi flísalagður
og hliðar í stigapalli. Böðin eru flísa-
lögð í hólf og gólf og í eldhúsi er eld-
unareyja flísalögð, bæði borð og
hliðar, auk flísa á veggjum.
Nýleg tæki, Miele, eru í eldhúsi
og voila-blöndunartæki.
Upphengd salerni eru á baðher-
bergi og stórt baðkar 80X180. Allir
milliveggir eru hlaðnir eða steyptir.
Öll gólf eru með 10 sentimetra ein-
angrunarplasti undir gólfhitalögn-
um. Allur hiti er í gólfum með úti-
skynjara sem sjálfkrafa eykur eða
minnkar vatnsrennsli ef veðurfar
breytist – auk termo í hverju rými.
Þak er með dúk frá Fagtúni hf.
sem lögðu hann einnig og þakkant-
ur er úr stáli. Lóðin er frágengin
með hellulögðu bílaplani, húsið er
steinað að utan, – svart, grátt og
hvítt. Gluggar og hurðir eru úr
maghony og K-gler með sólvörn er í
gluggum. Þetta er ný, fullbúin eign í
algjörum sérflokki. Ásett verð er 39
millj. kr.“
Erluás 58 er til sölu hjá Hraunhamri, þetta er glæsileg 263,6 fermetra eign, ásett verð er 39 millj. kr.
Erluás 58
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111