Morgunblaðið - 14.11.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Keil-
ir og Laugarnes koma í
dag. Arnarfell Rich-
mond Park og Goða-
foss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Richmond Park kemur
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í sal.
Félagsvist kl. 13.30.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund,
kl. 9–16.30 púttvöll-
urinn opinn þegar veð-
ur leyfir.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús
spilað á spil.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ basar
og kaffisala á Hlað-
hömrum laugardaginn
15. nóv. kl. 13.30.
Margt fallegra muna,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, Vorboðar,
syngur.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9 og kl.
13 vinnustofa, gler, kl.
13 félagsvist í Garða-
bergi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 9, leikfimi í
Bjarkarhúsi kl. 11.30,
tréútskurður og brids
kl. 13, leikhúsferð á
Grænalandið, rútur frá
Hraunseli kl. 18.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp Saga
99,4 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni eldri
borgara.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar m.a.
bókband kl. 13, kl. 10
„gleðin léttir limina“,
létt ganga o.fl. kl. 14.30
kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, kl. 14–15 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla.
Bingó kl. 14.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–12 postulínsmálning,
kl. 14.30 spænska,
framhald.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrídans, kl. 13.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30 dansað.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Heitt á
könnunni. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Framsóknarfélag Mos-
fellsbæjar. Félagsvist í
köld kl. 20.30 í Fram-
sóknarsalnum í Háholti
14, 2. hæð. Allir vel-
komnir.
Seyðfirðingafélagið,
Vinafagnaður verður
haldinn í Gjábakka,
Fannborg 8, á morgun,
15. nóvember, kl. 19.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík. Spiluð fé-
lagsvist laugardag 15.
nóv. kl. 14 í Síðumúla
37.
Kristskirkja Landa-
koti. Viðhaldssjóður
orgels Kristskirkju,
Landakoti, verður með
sölubás í Kolaportinu
laugardaginn 15. nóv.
Mikið af ódýru jóladóti
til sölu o.fl.
Í dag er föstudagur 14. nóv-
ember, 318. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Sá sem trúir á mig,
frá hjarta hans munu renna lækir
lifandi vatns, eins og ritningin
segir. (Jh. 7, 38.)
Vefþjóðviljinn gerirmeinta skoð-
anakúgun innan R-listans
að umtalsefni: „Það kem-
ur alltaf betur og betur í
ljós hvernig svo kallaður
meirihluti í borgarstjórn
Reykjavíkur, R-listinn,
vinnur … Undanfarnar
vikur hefur Steinunn
Birna Ragnarsdóttir,
fyrrverandi varaborg-
arfulltrúi R-listans og
varaformaður menning-
armálanefndar Reykja-
víkurborgar, upplýst
hvernig svokallaðir fé-
lagar hennar í borg-
arstjórnarflokki R-listans
bönnuðu henni að taka til
máls í borgarstjórn og
segja skoðun sína á til-
teknu máli sem til um-
ræðu hefur verið á liðn-
um mánuðum.
Þetta mál sýnir meiraen margt annað
hversu illa R-listinn
stendur, hversu sjálfum
sér sundurþykkur hann
er og hversu lítið má út af
bregða til að ævintýrið
verði úti. Það er svo mik-
ið kapp lagt á að fela
ágreininginn sem er inn-
an R-listans að menn þora
ekki að leyfa að nokkur
minnsti ágreiningur vitn-
ist. Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir varaborg-
arfulltrúi má ekki einu
sinni lýsa sjálfstæðri
skoðun á því hvort að það
eigi eða eigi ekki að rífa
tiltekið kvikmyndahús.“
Vefþjóðviljinn vitnar ífréttatilkynningu sem
Steinunn Birna sendi frá
sér í liðinni viku. Þar hafi
meðal annars komið fram
að Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, formaður
skipulags- og bygging-
arnefndar, og Alfreð Þor-
steinsson, formaður borg-
arráðs, hafi mælst til þess
að Steinunn Birna tæki
ekki til máls á borg-
arstjórnarfundi um mál-
efni Austurbæjarbíós.
Vefþjóðviljinn helduráfram: „Og Steinunn
Valdís, hún vildi sam-
kvæmt þessu ekki leyfa
Steinunni Birnu að tjá sig
svo ekki kæmi fram á
fundinum að ólík sjón-
armið væru um þessi mál
innan R-listans. Það er
ekki eins og það hafi átt
að ráða málinu endanlega
til lykta þarna, nei Stein-
unn Valdís vill einfald-
lega alls ekki að borg-
arbúar fái að vita um ólík
sjónarmið innan R-
listans. Alfreð Þor-
steinsson, hann hótar að
„bregðast harkalega við“
og spyr bara „til hvers?“
þegar varaborgarfulltrúi
úr hans eigin liði vill
segja sína skoðun á létt-
vægu máli. Hvernig ætli
fjölmiðlar létu ef þessar
aðferðir tíðkuðust annars
staðar en innan R-listans?
Hvernig þykir fólki að
heyra að kjörnir fulltrúar
banna eigin samherjum
að setja fram sínar skoð-
anir af þeirri ástæðu að
það þjónar engum til-
gangi, öllum málum hafi í
raun verið ráðið til lykta
áður en umræðurnar hafi
hafist og engu verði
breytt, hvað sem hver
segir?“
STAKSTEINAR
Vinnubrögð R-listans
Víkverji skrifar...
Víkverji kvartaði yfir því á dög-unum að þrátt fyrir að hafa tekið
út áskrift að Breiðbandinu næði
hann ekki öllum þeim stöðvum er
fylgdu í pakkanum. Þá voru svör hjá
þjónustudeild Símans misvísandi og
líklegasta skýringin talin að ein-
hverjar „bylgjur“ væru að trufla út-
sendinguna.
x x x
Eftirfarandi svar hefur borist fráSímanum: „Þann 4. nóv. lýsti
Víkverji vandamálum sem hann lenti
í við móttöku stafræns sjónvarps
gegnum Breiðband Símans. Staf-
rænt sjónvarp, eins og önnur staf-
ræn vinnsla, er annað hvort í lagi
eða sést alls ekki ef truflun fer yfir
ákveðið mark. Ástæður fyrir slíkum
truflunum eru oftast þær að loft-
netakerfi hússins stenst ekki lág-
markskröfur eða sjónvarpssnúrur
úr veggtengli til sjónvarps eru orðn-
ar lélegar.
Hið lagalega og viðskiptalega um-
hverfi er þannig að Síminn viðheldur
breiðbandstengingunni að húsinu en
húseigandi viðheldur innanhúss-
lögnum. Því á Síminn mjög erfitt
með að bregðast við kvörtunum sem
verða til vegna innanhússtenginga.
Innanhússkerfin eru einkaeign hús-
eigenda og inngrip í þau eru Síman-
um einfaldlega óheimil nema að
beiðni rekstraraðila kerfisins. Þetta
á sérstaklega við í fjölbýlishúsum en
þar er það alfarið húsfélagsins að
sinna viðhaldi á innanhússkerfum
eins og annarrar sameignar.
En rót vandans liggur þó í því að
loftnetakerfi húsa eru hvorki eft-
irlits- né úttektarskyld. Því hafa
menn sem ekki hafa fagþekkingu í
loftnetakerfum alltof oft unnið að
uppsetningu þeirra. Þar að auki er
of algengt að þau séu illa hönnuð
þannig að þegar loksins fagmenn
koma að þeim er skaðinn skeður og
lagfæringar það dýrar að húseig-
endur láta sig hafa það að horfa á
snjókomu eða rendur og rákir á
sjónvarpsskjánum. Í stafrænu sjón-
varpi geta slíkar truflanir eyðilagt
einstakar rásir.
Síminn bendir Víkverja á að hafa
samband við fagmann í loftnetalögn-
um eða þann sem skráður er fyrir
kerfinu í húsinu. Í fjölbýlishúsum
þurfa húsfélög að sinna viðhaldi á
innanhússkerfum.
Eva Magnúsdóttir, kynning-
arfulltrúi Símans.“
x x x
Víkverji þakkar fyrir þessi svör.Þar sem allar lagnir í húsinu eru
nýjar og lagðar af fagmönnum hefur
hann staðið í þeirri trú að vanda-
málið hlyti að mega rekja til annarra
þátta. Hann mun hins vegar láta
gera úttekt á lagnakerfi sínu og
ganga úr skugga um hvort þar sé
ekki allt með felldu.
Morgunblaðið/Kristinn
Rjúpnaveiðibann
MIG langar til að lýsa
vissri ánægju minni með
bannið á rjúpnaveiði. Þó
hefði kannski verið hægt
að útfæra bannið á ein-
hvern máta sem hefði verið
málamiðlun milli hags-
munaaðila (skotveiði-
manna).
Ég hef mikla ánægju af
því að sjá rjúpuna í nátt-
úrunni, hún er áberandi
fugl, fallegur og spakur.
Ég hef mikla ánægju af sil-
ungsveiði og veiði þar ein-
ungis í matinn fyrir mig og
mína. Því skil ég gremju
hófveiðimanna yfir rjúpna-
veiðibanninu.
Nú herja nokkrir vargar
á rjúpuna, t.d. minkur, tófa
og magnveiðimenn. Ég skil
og samþykki veiði fálkans á
rjúpunni, enda er hann
glæsilegur fugl og yrði
sjónarsviptir að honum ef
jafn mikilvæg fæða og
rjúpan hyrfi. Nú flaug að
mér hugsun sem kannski
hljómar einfeldningslega,
en ég læt hana flakka.
Rjúpnaveiðimenn vantar
eitthvað til að veiða, (enda
veiðiferðin aðalatriðið) og
boða aukna ásókn á gæs-
ina. Hví ekki að senda skot-
veiðimenn á minkinn og
tófuna (þó ekki á magn-
veiðimenn), einnig vil ég
sjá þá minnka eitthvað af
svartbaknum, sem vegna
skorts á fiskúrgangi leggst
í síauknum mæli á egg og
unga æðarfugla auk ann-
arra fuglategunda.
Þetta gæti fækkað óvin-
um rjúpunnar stórlega og
aukið stofnstærð hennar
verulega, öllum til hags-
bóta. Skotveiðimenn gætu
skilað inn vissu magni af
hverri tegund og áunnið
sér kvóta eða dagafjölda til
veiða á rjúpu. T.d. 30 svart-
bakar, 10 minkar eða 5 tóf-
ur gætu leyft veiðar t.d. á
10 rjúpum.
Þessi hugsun kom nú
upp er ég horfði á alþing-
isumræður í sjónvarpinu
og ósættið sem greinilega
er um rjúpnaveiðibannið.
Ég tek það fram að ég er
ekki skotveiðimaður, er
unnandi náttúrunnar og
elska að hlusta á fuglasöng
og rop rjúpunnar á sumrin.
En ef hægt er að ráðast
gegn tófu og mink og verð-
launa með því takmarkaðar
veiðar á rjúpu held ég að
visst jafnvægi gæti náðst.
Óskar Pálsson.
Er þetta löglegt?
MIG langar til að vekja
máls á þeirri ómannúðlegu
meðferð sem Fréttablaðið
viðhefur við blaðberana
sína. Launin eru skammar-
leg, langtum lægri en t.d.
Morgunblaðið greiðir sín-
um blaðberum. Dóttir mín
ber út Fréttablaðið sam-
viskulega alla virka daga
og fær rúmlega 13.000 kr.
fyrir. (Morgunblaðið greið-
ir ca. 26.000 fyrir örlítið
færri blöð á sama svæði.)
Flesta daga eru auka-
bæklingar og blöð sem
ekkert er greitt fyrir auka-
lega. Stundum er þetta svo
þungt og mikið að hún ræð-
ur ekkert við þetta og við
verðum að fara með henni.
Sunnudaginn 9. nóvem-
ber bauð Fréttablaðið blað-
berum sínum á árshátíð á
Broadway sem mér fannst
frábært hjá þeim (það er
meira en Mogginn gerir).
Blaðberarnir fengu svo
þær „gleðilegu fréttir“ að
nú muni DV bætast við
blaðburðinn gegn 10%
aukalega ofan á launin.
Samtals 1.300 kr. sem áður
greiddust tæplega 10.000
kr. fyrir á sama svæði (son-
ur minn bar það út fram að
gjaldþroti).
Finnst mér þetta sví-
virðileg meðferð á börnum
sem geta ekki leitað réttar
síns því þeim er ekki boðið
að vera í neinu stéttar-
félagi eins og Morgunblað-
ið býður uppá.
Ég spyr er þetta löglegt
eða bara löglegt og sið-
laust? Eitt er víst að ég læt
ekki lítilsvirða mitt barn
svona meira og skora á
aðra foreldra að gera slíkt
hið sama.
Móðir.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust á
planinu við Jörfabakka 22
sl. þriðjudag. Upplýsingar í
síma 557-1138.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 bætir hvað eftir annað,
8 stjórna, 9 landspildu, 10
ekki marga, 11 álíta, 13
hlaupa, 15 reifur, 18
borða, 21 glöð, 22 hrópa,
23 fæddur, 24 heimskur.
LÓÐRÉTT
2 snjáldur, 3 jarða, 4 óð-
ar, 5 duglegur, 6 ár-
mynnum, 7 duft, 12 tangi,
14 sprækur, 15 verkfæri,
16 styrkti, 17 fugl, 18
staut, 19 matnum, 20
kvenmannsnafn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 dynts, 4 gisin, 7 lútan, 8 álkur, 9 nýr, 11 rúmt,
13 orri, 14 ókind, 15 fólk, 17 drós, 20 ána, 22 mókar, 23
geyma, 24 lærir, 25 arinn.
Lóðrétt: 1 dílar, 2 notum, 3 senn, 4 gjár, 5 sekur, 6
narri, 10 ýkinn, 12 tók, 13 odd, 15 fámál, 16 lokar, 18
reyfi, 19 stafn, 20 árar, 21 agga.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16