Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 9
Flottir svartir toppar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Fóðraðar kápur úr micro efni
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Bróderuð,damask
og mislit
Vandið valið
Vöggusett
og barnasett
í úrvali
olsen
Laugavegi 25, sími 533 5500
Nýjar vörur í
útsölukjallaranum
Sérstök
kynning
18.11-22.11
stærðir 40-52
Hverfisgötu 6 sími 562 2862
sími 544 2140
www.lifoglist.is
Kristalsglös— mikið úrval
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opið laugardaga
kl. 10-16
Yfirhafnir
í úrvali
Mokka- og ullarkápur
Hattar og húfur
„ÞAÐ var gaman að tefla, hitta Larsen og rifja upp
gamla tíma,“ sagði Friðrik Ólafsson, en hann vann
öruggan sigur í skákeinvígi við Bent Larsen sem lauk
með verðlaunaafhendingu á laugardag. Fyrir einvígið
höfðu þeir félagar teflt 34 skákir frá árinu 1951 og sigr-
að í jafn mörgum hvor.
Að sögn Friðriks hefur alltaf farið vel á með honum og
Larsen þrátt fyrir að þeir hafi oft mæst í hörðum við-
ureignum. Í þetta skiptið var harkan þó ekki eins mikil
og áður enda ekki um titil að keppa og má kannski sjá
það á því að sex skákum af átta lyktaði með jafntefli.
„Við vorum friðsamari núna. Áður hefðum við teflt
skákirnar til hlítar. Tíminn var líka knappari og því
ákveðin áhætta að tefla áfram. Við erum ekki eins miklir
hraðskákmenn og áður.“
Friðrik segir þá ekki vera jafn öfluga skákmenn nú á
eldri árum og þeir voru þegar þeir mættust áður. „Mað-
ur er náttúrulega öflugri tvítugur en þegar farið er að
nálgast sjötugt. Ég segi ekki að við séum ekki jafn góðir
en okkur vantar kannski þrekið og kraftinn sem við
höfðum þegar við vorum ungir. En það jafnar sig
kannski upp með reynslu og þekkingu. Það krefst mik-
illar orku að sitja lengi yfir skák.“
Friðrik segir enga ákvörðun hafa verið tekna um
hvort þeir mætist aftur yfir skák en það mun tíminn ef-
laust leiða í ljós.
Morgunblaðið/Ómar
Slegið á létta strengi að lokinni baráttu á hvítum reitum og svörtum: Bent Larsen, Guðmundur G. Þórarinsson,
Hrafn Jökulsson, Haraldur Blöndal og Friðrik Ólafsson á lokaathöfn einvígisins á laugardag.
Friðrik Ólafsson eftir sigur í einvíginu við Bent Larsen
Gaman að rifja upp gamla tíma
FRAMBOÐ á botn-
fiski úr veiðum er
nú væntanlega að
aukast eftir stöðug-
an samdrátt á und-
anförnum árum.
Þetta var meðal
þess sem kom fram
á Groundfish Forum
sem er sameiginleg
ráðstefna og fundur
helstu botnfiskkaup-
enda og -seljenda í
heiminum og var
haldinn í Barcelona
á Spáni fyrir
skömmu.
Á fundinum
skiptast framleiðendur og kaup-
endur botnfisks víðs vegar að úr
heiminum á hvers konar upplýs-
ingum, m.a. um ráðstöfun afla og
viðskipti milli landa en slík gögn
eru hvergi tekin saman nema á
þessum vettvangi.
Alda Möller er ritari Groundfish
Forum. Hún segir að á fundinum í
Barcelona hafi í fyrsta sinn verið
lögð fram gögn um heimsframboð
af eldislaxi, vinnslu hans og á
hvaða ræða hvorki meira né minna
er eina milljón tonna af Atlants-
hafslaxi og á fundinum hafi greini-
lega komið fram að menn líti nú á
eldislax sem samkeppni við villtan
botnfisk. Menn líti hins vegar
einnig svo á að eldislax hjálpi til
við að fylla í þær eyður sem mynd-
ast hafa á mörkuðunum á und-
anförnum árum. Þó virðist nú sem
framboð af botnfiski sé orðið stöð-
ugt eftir samdrátt undanfarinna
ára og meira að segja sé um lítils-
háttar aukningu að ræða frá fyrra
ári. Þannig hafi framboð af ýsu og
ufsa úr Norður-Atlantshafi verið
að vaxa og muni halda áfram að
aukast á næstunni. Eins hafi fram-
boð af lýsingi frá Suður-Ameríku
og alaskaufsa frá Bandaríkjunum
aukist og þessir stofnar í góðu
ástandi. Aðrir helstu botnfisk-
stofnar, þar á meðal þorskur, virð-
ist vera í jafnvægi nú um stundir.
Á fundinum var einnig kynnt yf-
irlit um surimiframleiðslu og -við-
skipti í heiminum. Alda segir að
þar hafi komið fram athyglisverð-
ar upplýsingar, meðal annars
hversu surimiframleiðsla úr hlý-
sjávartegundum fisks hefur aukist
en fram til þessa hafi surimi eink-
um verið unnið úr alaskaufsa fyrir
Japansmarkað. Nú sé Evrópu-
markaður vaxandi þar sem varan
fari fersk á markað en Japans-
markaður hafi frekar rýrnað.
Skiptar skoðanir
um umhverfisvottun
Alda segir að á fundinum hafi
einnig verið talsverð umræða um
umhverfisvottun sjávarfangs og
þar hafi fundarmenn haft mjög
mismunandi skoðanir. „Það sýnd-
ist sitt hverjum um það hvort iðn-
aðurinn ætti að vinna
með samtökum um um-
hverfisvottun, samtök-
um á borð við Marine
Stewardship Council.
Groundfish Forum mun
örugglega ekki taka
sérstaka afstöðu til
þessa máls. Þarna voru
hins vegar fulltrúar
fyrirtækja sem eru
mjög hlynnt MSC en
aðrir hafa miklar efa-
semdir. Það liggur hins
vegar fyrir að Banda-
ríkjamenn stefna á að
fá vottun fyrir alaska-
ufsaveiðar fljótlega en
þar er um að ræða afla sem er
margfalt meiri en til dæmis þorsk-
afli okkar Íslendinga. Eins er unn-
ið að því að votta lýsingsveiðar
Suður-Afríku og undirbúningur
hafinn að vottun lýsings frá Chile
en Nýsjálendingar fengu vottun á
hokinhalaveiðar sínar fyrir þremur
árum,“ segir Alda.
Framboð botn-
fisks að aukast
Greinilegt að litið er á eldislax sem
samkeppni við villtan botnfisk, segir
Alda Möller, ritari Groundfish Forum
Alda Möller