Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 10
GRUNDFIRÐINGAR minntust þess í gær að fimmtíu ár
eru liðin frá því síldveiðiskipið Edda fórst í ofsaveðri inni
á firðinum. Níu af sautján manna áhöfn skipsins fórust í
slysinu. Óskar Vigfússon, fyrrverandi forseti Sjómanna-
sambands Íslands og einn þriggja úr áhöfninni sem enn
eru á lífi, afhjúpaði minnismerki af þessu tilefni.
Minnismerkið er eftir Árna Johnsen, sem ekki hefur
setið auðum höndum á meðan á dvöl hans í Grundarfirði
hefur staðið. Fimm flutningabíla þurfti undir listaverk
eftir hann þegar hann hélt frá Grundarfirði í gær.
Fimm flutninga-
bíla þurfti undir
listaverkin
Morgunblaðið/RAX
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SVIGRÚM Baugs Group til fjárfest-
inga er enn töluvert, segir Jón
Scheving Thorsteinsson, yfirmaður
erlendrar fjárfestingar hjá Baugi, en
Baugur hefur í félagi við stjórnendur
Oasis Stores og Kaupþing Búnaðar-
banka keypt fataverslanakeðjuna
Oasis Stores í Bretlandi fyrir 19,6
milljarða króna. Hlutur Baugs í
keðjunni er tæplega 60%, hlutur
stjórnenda er rúmlega 30% og hlutur
Kaupþings Búnaðarbanka er um
10%, en kaupin eru gerð í gegnum
fyrirtækið Noel Acquisitions Lim-
ited.
Jón Scheving Thorsteinsson segir
aðspurður að svigrúm Baugs til fjár-
festinga sé enn töluvert og mikill
áhugi sé meðal annars á frekari upp-
byggingu innan Oasis Stores. Hann
segir að innan keðjunnar séu reknar
verslanir undir tveimur merkjum,
Oasis og Coast. Oasis-merkið sé
rótgróið með fjölda verslana í Bret-
landi. Möguleikar á frekari vexti
þess séu því takmarkaðir þar í landi,
en áhugi sé á að auka umsvif þess ut-
an Bretlands. Mikil tækifæri séu
hins vegar til að láta Coast vaxa inn-
an Bretlands og sú keðja sé fjarri því
að vera fullþroska þar í landi. Auk
þessara möguleika til vaxtar segir
Jón að ákjósanlegt geti verið að bæta
fleiri vörumerkjum við undir hatti
Oasis Stores. Félagið ráði vel við
frekari umsvif af því tagi og upp-
byggingu þess gæti þá svipað til upp-
byggingar Arcadia, en Baugur átti
um hríð fimmtungs hlut í því félagi
og reyndi að taka þátt í yfirtöku þess
síðastliðið haust.
Mikið leitað til Baugs með
fjárfestingarhugmyndir
Aðspurður segir Jón að Baugur sé
orðinn vel þekktur fjárfestir á sínu
sviði í Bretlandi og félagið fái til sín
margar hugmyndir að fjárfestingum
í hverri viku. Stjórnendur fyrirtækja
eða þeir sem fengnir hafi verið til að
sjá um sölu þeirra leiti gjarna til
Baugs með hugmyndirnar. Stjórn-
endurnir vilji frekar fá fjárfesti á
borð við Baug inn í félögin heldur en
fjárfestingarsjóði sem séu einungis
að leita að skammtímafjárfestingum
og selji hlut sinn gjarna skjótt.
Jón segir að haldið hafi verið lokað
uppboð á Oasis Stores í september,
en Baugi hafi áður verið sagt að ætl-
unin væri að selja fyrirtækið. Baug-
ur hafi því verið vel undirbúinn, en
lokað uppboð sé þó erfitt fyrirkomu-
lag, því ekki sé vitað hverjir bjóði eða
hversu hátt. Í október hafi komið í
ljós að Baugur hafi unnið uppboðið
og þá hafi farið fram áreiðanleika-
könnun sem hafi lokið í öllum aðal-
atriðum fyrir hálfum mánuði.
Þá hófst samningavinna og gengið
hafi verið frá fjármögnun. Þessu hafi
fylgt mikil pappírsvinna og síðustu
dagana hafi um 60 lögfræðingar frá
fjórum lögfræðistofum komið að
samningagerðinni. Þrír meginsamn-
ingar hafi verið gerðir. Í fyrsta lagi
kaupsamningur við fyrri eigendur,
en þar ábyrgist þeir meðal annars
efnahag félagsins. Í öðru lagi hafi
verið gert hluthafasamkomulag milli
Baugs, stjórnenda og Kaupþings
Búnaðarbanka en stjórnendur hafi
fjárfest töluvert í félaginu. Í þriðja
lagi hafi verið samningar um fjár-
mögnun við tvo banka, Halifax Bank
of Scotland og Kaupþing Búnaðar-
banka.
Frábær fjárfestingarkostur
Derek Lovelock, forstjóri Oasis
Stores, tók þátt í kaupunum með
Baugi og verður hann forstjóri
áfram. Í fréttatilkynningu frá Baugi
er haft eftir honum að frá því að fé-
lagið hafi verið tekið af markaði árið
2001 hafi sala hjá Oasis-vörumerkinu
aukist verulega og aukningin hjá
Coast hafi verið enn meiri.
„Kaup Baugs á meirihluta í félag-
inu gera okkur kleift að stefna að
frekari vexti utan Bretlands og leita
eftir kaupum á nýjum vörumerkjum
sem styðja við þau sem fyrir eru.
Stjórnendur Baugs búa yfir mikil-
vægri þekkingu og reynslu og eru
sammála sýn okkar um það hvernig
hægt er að gera Oasis Stores að enn
stærra og betra fyrirtæki,“ er haft
eftir Lovelock.
Í fréttatilkynningunni er einnig
haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
forstjóra Baugs, að Oasis Stores sé
spennandi félag og frábær fjárfest-
ingarkostur sem falli vel að stefnu
Baugs. „Oasis er þekkt vörumerki og
við teljum það eiga verulega vaxtar-
möguleika. Ekki síður hefur verið
gaman að fylgjast með velgengni
Coast sem við teljum að eigi mikið
inni. Velgengni félagsins undanfarin
tvö ár sýnir hvað býr í stjórnendum
félagsins og það er tilhlökkunarefni
að takast á við þetta verkefni,“ er
haft eftir Jóni Ásgeiri.
Mikil söluaukning
Í fréttatilkynningunni segir að
Oasis Stores eigi og reki 342 Oasis og
Coast tískuvöruverslanir í Bretlandi,
auk 218 verslana í 12 löndum. Þá hafi
félagið nýlega hafið starfsemi í Kína.
Vöruvelta verslananna er sögð
hröð og vöruúrvalið taki hröðum
breytingum í takt við nýjustu
strauma í tískunni. Frá því í júní í ár
hafi söluaukning verið 10% og er þá
undanskilin söluaukning vegna
nýrra verslana. Vörumerkið Coast
er þróað af núverandi stjórnendum
Oasis Stores og það hefur vaxið hratt
undanfarin tvö ár og félagið rekur nú
124 slíkar verslanir. Frá 2001 hefur
söluaukning, ef horft er framhjá
aukningu vegna nýrra verslana, ver-
ið um 39%. Coast sérhæfir sig í fínni
fatnaði fyrir konur á aldrinum 25-40
ára, en Oasis er hugsað fyrir konur á
aldrinum 18-30 ára.
Núverandi stjórnendur Oasis
Stores tóku þátt í því árið 2001,
ásamt fjárfestingarfélaginu PPM
Ventures, sem er hluti trygginga-
félagsins Prudential, að kaupa félag-
ið af markaði og afskrá það úr kaup-
höllinni í London. Frá þeim tíma
hefur sala félagsins aukist um 23%
og hagnaður þess nær tvöfaldast úr
rúmum 1,1 milljarði króna í rúma 2
milljarða króna.
Þegar Oasis var keypt út úr kaup-
höllinni kostaði það 56 milljónir
punda, rúma sjö milljarða króna,
sem er rúmlega þriðjungur af kaup-
verði þess nú, en eins og áður sagði
hefur fyrirtækið stækkað mikið frá
þeim tíma.
Töluvert svigrúm til
frekari fjárfestinga
Baugur með 60% hlut í Oasis Stores
sem var keypt á 19,6 milljarða króna
Derek
Lovelock
Jón Scheving
Thorsteinsson
Jón Ásgeir
Jóhannesson
VETNISKNÚNIR strætisvagnar
og málefni norðurslóða voru meðal
umræðuefna í viðtali sem CNN sjón-
varpsstöðin tók við Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands. Viðtalinu
var sjónvarpað í gær.
Ólafur Ragnar sagði stefnu Ís-
lands vera þá, að koma á vetnisum-
ferð og til að aðrar þjóðir gætu tekið
Ísland sem fyrirmynd sem vistvænt
land þyrfti að koma til ákveðin hug-
arfarsbreyting.
Ólafur Ragnar benti á að það gæti
haft kosti í för með sér að vera lítil
þjóð því þá væri hægt að gera til-
raunir með ýmsa hluti. „Ég held
jafnframt að við sem þjóð þráum að
leggja eitthvað af mörkum til heims-
ins, prófa nýja hluti og hafa áhrif.“
Aðspurður um samskipti landa í
norðri sem Ólafur Ragnar sagði
hann nýja stöðu vera hjá löndum í
norðri eftir að kalda stríðinu lauk
þar sem ógnin af kjarnorkuvopnum
vofir ekki lengur yfir. Þetta sagði
hann opna ótal möguleika fyrir
Bandaríkin og Rússland ásamt Kan-
ada og lönd í norðri til að þróa sam-
skipti sín á milli.
Ólafur Ragnar Gríms-
son í viðtali hjá CNN
Vetnisknú-
in umferð
það sem
koma skal
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
lagt fram frumvarp um breytingu á
lögum um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna. Í leiðara Morg-
unblaðsins sl. laugardag sagði m.a. að
frumvarpið fæli í sér nauðsynlega og
tímabæra samræmingu á starfsum-
hverfi opinberra starfsmanna og
starfsmanna einkafyrirtækja.
Þrúður Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra nátt-
úrufræðinga, segir að „leiðarahöf-
undur geri því skóna að
ríkisstarfsmenn geti ekki farið fram á
að njóta sömu kjara og einnig er talað
um að komið sé áleiðis í þá veru. Stað-
an er sú að það er mikill munur á
launum opinberra starfsmanna og
þeirra sem eru á almennum vinnu-
markaði. Mér finnst sjálfsagt að það
komi skýrt fram.
Við höfum stuðst við KOS (Kjara-
rannsóknanefnd opinberra starfs-
manna) og ef skoðaðir eru háskóla-
menntaðir sérfræðingar á almennum
markaði sér maður gífurlegan launa-
mun. Í Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga eru 20 fagstéttir og þar erum við
að tala um mun á dagvinnulaunum og
forsendurnar eins líkar og hægt er í
samanburði milli KOS og kjararann-
sóknanefndar á almennum vinnu-
markaði. Þar er okkar fólk með um
250.000 krónur í meðallaun, meðan
þau eru um 350.000 krónur á almenn-
um vinnumarkaði. Munurinn er að-
eins minni í heildarlaunum, en ekki
þó þannig að orð sé á gerandi,“ segir
hún.
„Annar misskilningur er líka á
ferðinni og hann er sá að það sé svo
óskaplega erfitt að segja upp fólki hjá
ríkinu, en það er ekkert erfitt. Því
miður höfum við rekið okkur á það, að
þau mál sem hafa komið upp og kost-
að ríkið hvað mest eru vegna þess að
fólk hefur ekki kunnað til verka.
Fólk fær skriflega áminningu og
tækifæri til andmæla. En ef í ljós
kemur með málefnalegum rökum að
viðkomandi hefur ekki staðið sig sem
skyldi eða gerst brotlegur í starfi er
hægt að segja honum strax upp eftir
þessa fyrstu áminningu, svo ferlið er
ekkert ólíkt því sem gerist á almenn-
um vinnumarkaði, það er bara form-
legra,“ segir Þrúður Haraldsdóttir.
Segir mik-
inn mun
á launum