Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 12
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
12 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Stykkishólmur | Íbúaþing var ný-
lega haldið í Stykkishólmi undir
yfirskriftinni „Tökum höndum
saman“. Þingið er liður í eins árs
verkefni, sem miðar að því að stilla
saman strengi íbúa, fyrirtækja, fé-
lagasamtaka og bæjaryfirvalda, til
að styrkja stöðu Stykkishólms.
Þingið sóttu um 140 manns en
auk þess unnu allir nemendur
Grunnskóla Stykkishólms glæsileg
verkefni sem tengdust viðfangsefni
þingsins og var afrakstur þeirrar
vinnu til sýnis í Félagsheimilinu
þar sem þingið var haldið og
nokkrir nemendur kynntu nið-
urstöður. Þá unnu nemendur fram-
haldsdeildar verkefni og unnið er
með þemað „bærinn okkar“ í allan
vetur á leikskólanum.
Þinginu stýrði ráðgjafarfyr-
irtækið Alta, sem hefur sérhæft
sig í samráðsverkefnum af ýmsu
tagi og var þetta 15. íbúaþingið
sem Alta stýrir.
Umræðan um atvinnumál var
fyrirferðarmikil á þinginu, en þau
hafa brunnið talsvert á íbúum eftir
að tilkynnt var um bann við veið-
um á hörpuskel, sem hefur verið
veigamikill þáttur í atvinnulífi bæj-
arins.
Svartsýni virðist á undanhaldi,
en þátttakendur lögðu þó mikla
áherslu á mikilvægi þess að allir
legðust á eitt við eflingu atvinnu-
lífs, þar sem stefnt yrði að aukinni
fjölbreytni og nýtingu sóknarfæra
í ferðaþjónustu og annarri nýsköp-
un.
Ferðaþjónusta var sá atvinnu-
vegur sem þátttakendur töldu
bjóða upp á mesta möguleika, ekki
síst á sviði heilsuferðaþjónustu.
Unnið hefur verið að verkefni á því
sviði, af hálfu Heilsueflingar
Stykkishólms ehf.
Verðmæti í sögu og menningu
Af öðrum sóknarfærum var með-
al annars nefnd virkjun sjávarfalla
í Breiðafirði og aukin fullvinnsla í
sjávarútvegi.
Greinilega kom fram að íbúar
telja mikil verðmæti felast í sögu
og menningu bæjarins og telja
mikilvægt að meira verði gert úr
þeirri auðlind. Mikil áhersla var á
safnamál og komu fram fjölmargar
hugmyndir um söfn af ýmsu tagi
og leiðir til að miðla sögunni, t.d.
með merkingum og leiðsögn.
Varðandi opinbera þjónustu voru
þátttakendur sammála um að
bygging nýs leikskóla sé forgangs-
verkefni en að í framhaldi af því
væri æskilegt að marka stefnu um
að Grunnskólinn fari undir eitt
þak, skólinn er einsetinn en kennt
er á tveimur stöðum. Fram kom að
framtíðarskipulag Grunnskólans
þurfi einnig að taka mið af starf-
semi og húsnæðisþörfum Tónlist-
arskólans.
Um 7–8% íbúðarhúsnæðis í
Stykkishólmi eru svokölluð frí-
stundahús. Fyrir þingið var eig-
endum þessara húsa sent bréf og
þeir hvattir til að taka þátt í
þinginu. Því kalli var vel sinnt og
var fróðlegt að heyra sjónarmið
þessara íbúa. Meðal annars kom
fram að þeim þætti það góður
kostur ef leyfilegt væri að greiða
útsvar í tveimur sveitarfélögum
svo framarlega sem það skerti ekki
rétt til þjónustu í heimasveit-
arfélaginu.
Fram kom áhugi á stofnun Holl-
vinasamtaka Stykkishólms, sem
gæti höfðað til brottfluttra Hólm-
ara, núverandi íbúa, eigenda frí-
stundahúsa og annarra velunnara.
Samstaða íbúa ekki næg
Á íbúaþinginu kom fram að það
veiki stöðu Stykkishólms að sam-
staða íbúa sé ekki næg. Með já-
kvæðni og bjartsýni geti íbúar, fé-
lagasamtök, fyrirtæki og
bæjaryfirvöld lyft grettistaki, ef
þessir aðilar taka höndum saman.
Mikill áhugi kom fram á þinginu
að kanna kosti þess að sameina öll
sveitarfélög á Snæfellsnesi, því þar
geti falist afl til að styrkja byggð á
svæðinu.
Í gegnum tíðina hafa, líkt og
annars staðar, skipst á skin og
skúrir í Stykkishólmi. Nýjar at-
vinnugreinar hafa komið upp og
vaxið eða dáið eftir atvikum.
Óhætt er þó að segja að að Stykk-
ishólmur hefur staðið af sér þau
áföll sem fylgt hafa breyttum tím-
um. Nú standa Hólmarar enn á ný
frammi fyrir breyttum tímum, en
með því að taka höndum saman
mun Stykkishólmur óhikað snúa
vörn í sókn og búa sig undir þau
tækifæri sem framtíðin ber í skauti
sér.
Virkjun sjávarfalla ein af
hugmyndum á íbúaþingi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þátttakendum var skipt niður í hópa og hver hópur tók til umfjöllunar
ákveðinn málaflokk. Í þessum hópi voru umhverfismálin rædd.
ákveða alla starfsemi þar endanlega.
Til að byrja með flytur barnastarfið
TTT úr kirkjunni í safnaðarheimilið
og fermingarfræðslan verður þar að
hluta. Ennfremur verður húsið
áfram leigt til námskeiðahalda og
funda. Skrifstofa kirkjunnar hefur
þegar verið flutt í húsið. Á annað
hundrað manns tóku þátt í athöfn-
inni og nutu gestrisni kirkjunnar
sem bauð upp á veislukaffi í tilefni
dagsins.
Borgarnes | Félagsbær hefur tekið
við nýju hlutverki og er nýja safn-
aðarheimili Borgarneskirkju sem
keypti húsið af Verkalýðsfélagi
Borgarness. Safnaðarheimilið var
vígt með viðhöfn nýlega þar sem
sóknarpresturinn, sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason, blessaði húsið.
Formaður safnaðarnefndarinnar
Arna Einarsdóttir hélt tölu og sagði
að almenn ánægja ríkti með nýja
húsnæðið þótt ekki væri búið að
Félagsbær orðinn
að safnaðarheimili
Hvanneyri | Margt var um mann-
inn á Hvanneyri á föstudaginn þeg-
ar ný skrifstofubygging sem Borg-
arfjarðarsveit lét reisa á staðnum
var formlega tekin í notkun. Ýmsar
landbúnaðarstofnanir og félög og
eitt einkafyrirtæki hafa þegar kom-
ið sér fyrir í húsinu.
Í ávarpi Sveinbjörns Eyjólfs-
sonar, oddvita Borgarfjarðarsveit-
ar, kom meðal annars fram að það
þyki bæði skynsamlegt og gott að
setja niður starfsemi tengda land-
búnaði, náttúru og umhverfismálum
á Hvanneyri. Það hafi hins vegar
verið þröngt setinn bekkurinn og
löngu orðið ljóst að það þyrfti að
byggja yfir þá starfsemi sem þang-
að var komin og ekki síður gera það
mögulegt að þær stofnanir sem hér
vildu vera hefðu húsnæði við hæfi.
Hann sagði að þótt sveitarstjórn
hafi ekki beina aðkomu að starfinu
á Hvanneyri bæri henni að styðja
við bakið á þessu fjöreggi sveitar-
innar.
Samið var við Loftorku í Borg-
arnesi um að byggja húsið og sá
fyrirtækið um að teikna það og
hanna í samráði við fulltrúa sveit-
arstjórnar. Loftorka skilaði húsinu
um áramótin 2002-2003. Aðrir sem
komu að byggingu hússins voru
m.a. PJ byggingar ehf. á Hvann-
eyri, Glitnir í Borgarnesi, Stefán
Ólafsson, smiður í Litlu-Brekku,
Haukur Júlíusson, jarðverktaki á
Hvanneyri, Híbýlamálun á Akra-
nesi og Vatnsverk í Borgarnesi.
Borgarfjarðarsveit ákvað að
mynda einkahlutafélag um bygging-
unna, Hvannir ehf. Nú hafa þar að-
setur Hagþjónusta landbúnaðarins,
Framleiðnisjóður landbúnaðarins,
Vesturlandsskógar, héraðssetur
Landgræðslu ríkisins og Landssam-
band kúabænda. Landbúnaðarhá-
skólinn var ekki með í byrjun en
hefur nú tekið í notkun tölvuvert á
þriðju hæð byggingarinnar í sam-
starfi og með stuðningi frá Orku-
veitu Reykjavíkur, sem hefur einnig
skrifstofuaðstöðu við hlið tölvuvers-
ins. PJ byggingar er eina einkafyr-
irtækið sem hefur aðstöðu í bygg-
ingunni.
Sveinbjörn sagði að lengi hafi
verið mikill áhugi á því á Hvanneyri
og víðar að Búnaðarsamtök Vest-
urlands flyttu starfsemi sína þang-
að. Það hafi því verið ánægjulegt
þegar samningar náðust um að þau
keyptu hluta af húsinu og fluttu
starfsemi sína í það. Enn er þó stór
hluti hússins óleigður en Sveinbjörn
taldi að menntunar- og rannsókn-
arumhverfið á Hvanneyri kallaði
stíft í aðrar stofnanir eða héraðs-
setur. Hann væri því bjartsýnn á að
fljótlega yrði hvert rúm skipað og
farið að huga að næstu byggingu
sem búið er að teikna við hlið nýja
hússins.
Ráðherra vill að starfsemi á
Keldum flytji til Hvanneyrar
Undir þessi orð tók Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra sem var
viðstaddur ásamt nokkrum þing-
mönnum Norðvesturkjördæmis.
Hann taldi að þær stofnanir land-
búnaðarins sem staðsettar væru t.d.
á Keldnaholti í Reykjavík ættu
heima á Hvanneyri og hvatti þing-
mennina til að stuðla að flutningi
þeirra þangað. Hann minnti einnig
á að Hvanneyri væri miðstöð þekk-
ingar í landbúnaði og á mikilvægi
slíkra þekkingarsetra úti á lands-
byggðinni.
Margir gestir ávörpuðu samkom-
una og færðu gjafir í tilefni dagsins.
Eftir athöfnina var opið hús og
kom margt fólk til að skoða nýju
bygginguna og þiggja veitingar
kvenfélagskvenna í glæsilegri kaffi-
stofu á þriðju hæð.
Fjölbreytt starfsemi í nýju húsi
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Fjölmenni: Vestlendingar fjölmenntu á formlega opnun hins nýja skrifstofuhúss á Hvanneyri.
Grundarfjörður | Kaupfélag Borg-
firðinga hefur keypt verslunina
Tanga í Grundarfirði af Árna Elv-
ari Eyjólfssyni sem rekið hefur
hana sl. 5 ár. Að sögn Árna er
hann ánægður með það verð sem
hann fær fyrir verslunina, þ.e.
húsnæðið og reksturinn. Tangi
hefur um nokkurt skeið verið eina
matvöruverslunin í Grundarfirði.
Verslunarrekstri Tanga lauk kl.
19 miðvikudagskvöldið 12. nóv-
ember. Lokað var síðan á fimmtu-
dag vegna vörutalningar en á
föstudagsmorgun kl. 9 opnaði síð-
an KB verslunina Grundaval í
Grundarfirði.
Í dreifibréfi sem sent var til
íbúa Grundarfjarðar kemur fram
að kaupfélagið ætli sér ekki að
vera nema tímabundið í þessu
húsnæði því fyrirhugað sé að
byggja yfir starfsemina í Grund-
arfirði. Húsnæði Grundavals er
nokkuð komið til ára sinna og
hýsti á árum áður útibú frá Kaup-
félagi Stykkishólms og síðar
Kaupfélagi Grundarfjarðar.
Grundfirðingum var því tamt að
tala um að fara niður í kaupfélag
þótt nafn verslunarinnar breyttist
fyrst í Ásakjör og síðan í Tanga.
Með tilkomu KB hingað geta
menn ótrauðir haldið sínu striki
og farið í kaupfélagið þótt það
heiti nú Grundaval.
Grundaval í stað Tanga
Morgunblaðið/Gunnar
Kaupmaðurinn í Tanga afgreiðir síðasta viðskiptavininn.