Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 13
Geymdu það ekki til morguns
sem við getum gert í dag.
Eins
og
skot
Sími: 505 0400
Fax: 505 0630
www.icelandaircargo.is
Ný
sending!
100 ferðir á viku til 13
áfangastaða í USA og Evrópu
tryggja þér stysta mögulega
flutningstíma með
hagkvæmasta hætti
sem völ er á.
Hér fyrir neðan sérðu dæmi
um verð frá USA og Evrópu
og upptalningu á þeirri
þjónustu sem innifalin er í
verðinu. Við veitum þér
alhliða þjónustu í öllum
þáttum, s.s. gerð tollskjala og
við færum þér vöruna beint
upp að dyrum.
Geymdu það ekki til
morguns sem við getum
gert í dag.
Verðdæmi
New York
17.000kr./100 kg
m.v. flug frá JFK til Keflavíkur.
Afgreiðslugjald á báðum
flugvöllum innifalið.
Tökum einnig að okkur
tollskýrslugerð og heimakstur
gegn vægu gjaldi.
CARGO
!"
#$
% ! ! &! '"$"$
( )* % " (
( " +,( , %$
!
"
# $
%
&' &( )*+' , (&*+'
-* +&''' STJÓRN Eimskips hefur ákveðið að
flytja alla skrifstofuaðstöðu félags-
ins á athafnasvæði þess í Sundahöfn,
en að sögn Magnúsar Gunnarssonar,
stjórnarformanns Eimskipafélags-
ins, er nú þegar um helmingur
starfsseminnar þar til húsa. Flutn-
ingurinn mun eiga sér stað fljótlega
upp úr áramótum. Fram að þessu
hefur stærsti hluti Eimskipafélags-
hússins í Pósthússtræti 2 verið nýtt-
ur fyrir flutningastarfsemi félags-
ins. Með flutningnum verður öll
starfsemi Eimskips staðsett í Sunda-
kletti í Sundahöfn og einnig verður
Vöruhótelið nýtt fyrir hluta starf-
seminnar. Burðarás verður áfram
með aðstöðu í Eimskipafélagshúsinu
þar til annað verður ákveðið.
Stjórn Eimskipafélagsins er með í
skoðun framtíðarnýtingu á Póst-
hússtræti 2 í leigu eða sölu, þar sem
m.a. verður hugað að því hvernig
nýta megi húsið á sem hagkvæm-
astan hátt og jafnframt tengja það
framtíðarþróun miðborgarsvæð-
isins.
Að sögn Magnúsar hefur ekki ver-
ið tekin ákvörðun um hvort húsið
verður leigt út eða selt. Stefnt hafi
verið að flutningi starfseminnar í
Sundahöfn í nokkurn tíma og jafnvel
verið uppi hugmyndir um að byggja
frekar á athafnasvæði félagsins þar.
Nú sé verið að færa fjárfesting-
arstarfsemi félagins, Burðarás, frá
flutningastarfseminni, Eimskip, og
móðurfélagið verður lagt niður. Við
það munu sparast töluverðir fjár-
munir, að sögn Magnúsar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Eimskipafélagið lét reisa Pósthússtræti 2 árið 1921.
Eimskip flytur úr
Pósthússtræti
STAÐLARÁÐ Íslands heldur nám-
skeið 19. og 20. nóvember undir heit-
inu Örugg meðferð upplýsinga –
Stjórnun upplýsingaöryggis sam-
kvæmt ISO 17799.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum
sem bera ábyrgð á meðferð upplýs-
inga og að innleiða stjórnkerfi upp-
lýsingaöryggis í fyrirtækjum, starfs-
fólki sem tekur þátt í innleiðingu
slíks stjórnkerfis, ásamt tæknifólki
og ráðgjöfum á sviði upplýsingaör-
yggis.
Markmið námskeiðsins er að þátt-
takendur geti gert grein fyrir
áherslum og uppbyggingu staðlanna
ISO 17799 Upplýsingatækni –
Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýs-
ingaöryggis og BS 7799-2 Stjórn-
kerfi upplýsingaöryggis.
Námskeið um
öryggi upplýsinga
FARÞEGUM í milli-
landaflugi Icelandair,
dótturfélags Flugleiða
hf., fjölgaði um 4,7% í
október samanborið við
sama mánuð í fyrra.
Farþegum á leiðum til
og frá Íslandi fjölgaði
um 3,6%, en farþegum
sem ferðast á leiðum yf-
ir Norður-Atlantshafið
með viðkomu á Íslandi
fjölgaði um 6,3%. Í heild
voru farþegar tæplega
96 þúsund í mánuðinum,
en 92 þúsund í fyrra. Sætaframboð
var nánast hið sama og í október á
síðasta ári þannig að sætanýting
jókst um 3,8% og var 72,5% í sam-
anburði við 68,7% í fyrra.
Á fyrstu tíu mánuðum ársins
fækkaði farþegum í millilandaflugi
um 6,9% frá sama tímabili í fyrra.
Fjölgun í innanlandsflugi
Í innanlandsflugi Flugfélags Ís-
lands fjölgaði farþegum um 23,3%
í október og sætanýting jókst um
6,8 prósentustig. Í innanlandsflugi
gætir meðal annars áhrifa af upp-
byggingu á Austurlandi á flug milli
Reykjavíkur og Egilsstaða.
Fyrstu tíu mánuði ársins fjölg-
aði farþegum í innanlandsflugi um
7% frá sama tímabili í fyrra.
Þá varð mikil aukning í flutn-
ingum Flugleiða Fraktar í október
í samanburði við fyrra ár. 26,2%
aukning varð í heildarflutningum
og 21,6% aukning á flutningum til
og frá landinu. Samdráttur varð í
flutningum yfir Norður-Atlantshaf
um 18,5%.
Flutningar til og frá Íslandi hafa
aukist um 13,6% á fyrstu tíu mán-
uðum ársins en fluttum tonnum
um Ísland hefur fækkað um 58,1%.
Því hafa heildarfraktflutningar
Flugleiða-Fraktar dregist saman
um 1,1% á fyrstu tíu mánuðum
ársins.
Fjölgun farþega hjá
Flugleiðum í október
Flutningar Flugleiða Fraktar til og frá Íslandi
hafa aukist á fyrstu 10 mánuðum ársins.
TAP Sláturfélags Suðurlands nam
30 milljónum króna á fyrstu níu
mánuðum ársins, en á sama tímabili
árið áður var tapið 14,5 milljónir
króna. Afkoma fyrir fjármagnsliði
batnar um 38 milljónir, fer úr 7 millj-
ónum í 45 milljóna króna hagnað, en
aukin fjármagnsgjöld og tap af
rekstri hlutdeildarfélaga leiða til 15
milljóna króna lakari afkomu milli
ára, að því er segir í tilkynningu til
Kauphallar Íslands. Eigið fé SS var í
lok september 1.188 milljónir og eig-
infjárhlutfallið var 46%. Veltufjár-
hlutfall var 1,7 í lok september en
var 0,9 árið áður.
Rekstrartekjur Sláturfélags Suð-
urlands voru 2.398 milljónir á fyrstu
níu mánuðum ársins, en 2.667 millj-
ónir á sama tíma í fyrra og minnkuðu
um rúm 10% aðallega vegna mikillar
verðsamkeppni á kjötmarkaðnum,
samkvæmt tilkynningu. Veltusam-
drætti hefur verið mætt með lækkun
rekstrarkostnaðar.
Rekstrargjöld án afskrifta námu
2.238 milljónum samanborið við
2.546 milljónum árið áður og minnka
um 12%. Afskriftir rekstrarfjár-
muna voru 115 milljónir sem er
óbreytt frá fyrra ári. Afkoma félags-
ins á fyrri árshelmingi ársins 2003
var óviðunandi og einkenndist af
mikilli verðsamkeppni og offramboði
á kjöti á markaðnum sem hafði nei-
kvæð áhrif á afkomu félagsins. Ekki
er gert ráð fyrir að aukið jafnvægi
náist á kjötmarkaðnum fyrr en kem-
ur fram á árið 2004, að því er segir í
tilkynningu.
Tap SS 30 milljónir