Morgunblaðið - 17.11.2003, Page 17

Morgunblaðið - 17.11.2003, Page 17
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 17 Jólablað Morgunblaðsins Laugardaginn 29. nóvember 2003 Pantanafrestur fyrir augl‡singar er fyrir kl. 12.00 flri›judaginn 18. nóvember. Nánari uppl‡singar um augl‡singar og ver› veita sölu- og fljónustufulltrúar á augl‡singadeild í síma 569 1111 e›a á augl@mbl.is Jólabla› fylgir frítt til áskrifenda. MIK ILVÆG SKILABO‹ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 22 76 3 11 /2 00 3 Þegar þig langar frá kr. 3.800 á mann Næturgisting með morgunmat frá aðeins 3.800 kr.* á mann. *Tilboðið miðast við tvo í herbergi og gildir í nóvember og desember. • Flughótel • Flúðir • Rangá • Loftleiðir • • Nordica • Hérað • Kirkjubæjarklaustur • Selfoss • Sími: 444 4000 www.icehotels.is ÁGÚST Geir Ágústsson ritar ágæta grein í síðasta hefti Tíma- rits lögfræðinga í september 2003, sem nefnist „Eign- arréttarleg vernd veiðiheimilda“. Ég er í meginatriðum sammála flestu, sem kemur fram í þessari grein. Í inn- gangi greinar Ágústs er þó fullyrðing, sem ég tel að þarfnist frekari umfjöllunar, en hún er svona: „Þótt ekki sé talið að í því felist að ríkið verði talið eigandi al- menninganna í hefðbundnum eign- arréttarskilningi er ljóst að hand- hafar ríkisvaldsins geta í krafti valdheimilda sinna tekið til sín all- ar þær heimildir sem almennt eru taldar felast í eignarrétti og því má segja að það sé eingöngu fræðilegt viðfangsefni, sem hefur ekki þýðingu í reynd, hvaða nafni við kjósum að nefna þau réttindi.“ Athugum málið nánar. Þó að ríkið geti í krafti valdheimilda sinna tekið til sín margar heim- ildir yfir almenningum, þá jafn- gildir það ekki því að það sé að- eins minniháttar fræðilegt mál að gera ríkisvaldið að eigendum haf- almenninga (landhelginnar). Þvert á móti er þetta stórpólitískt mál. Það viðhorf að ekki skipti máli hvort ríkið ráði yfir almenning- unum eða sé eigandi þeirra geng- ur út frá því að eignarrétt- arákvæði stjórnarskrárinnar (72. gr.) sé aðeins bókhaldsregla en ekki þau grundvallarmannréttindi sem þau eru. Eignarrétturinn er einn af hornsteinum þeirra mann- réttinda sem vestrænt lýðræði byggist á. Önnur mannréttindi eru: Kosn- ingaréttur, kjörgengi, trúfrelsi, jafnrétti, ríkisborgararéttur, mannhelgi, ferðafrelsi, réttur til að leita til dómstóla, friðhelgi einkalífs, skoðanafresi, tjáning- arfrelsi, félagafrelsi og atvinnu- frelsi. Þessi mannréttindi eru öll ein heild og bæta hvert annað upp. Ekkert þeirra má vanta eða skerða. Þau eru kjósendum til varnar gegn ríkisvaldinu, rík- isvaldi, sem áður var í höndum einveldiskonunga en er nú í hönd- um lýðræðislegra kjörinna full- trúa. Eftir sjálfstæðisyfirlýsingu Am- eríkumanna 1776 stofnuðu þeir lýðveldi. Fyrst héldu sumir að mannréttindi væru óþörf í lýðræð- isríki þar sem ríkisvaldið sækti vald sitt til kjósenda í kosningum. En brátt gerðu menn sér ljóst að drottnunarsýki og kúgunarvilji fylgir mannkyninu hvert sem stjórnarkerfið er. Þess vegna yrðu einstaklingarnir að fá í hendur óafturkallanleg, óskerðanleg rétt- indi til að verjast tilhneigingum yfirvalda til að ráða of mikið yfir þeim. Mannréttindi voru ekki óþörf í lýðræðisríki heldur bráð- nauðsynleg til að kjóstendur gætu varið lýðræðislegt afl sitt og lýð- ræðislega stjórnarhætti, gegn valdi meirihlutans. En öll heimsins réttindi duga skammt ef menn eru ekki sífellt á varðbergi gagnvart því að yfirvöld dragi þessi réttindi úr höndum þeirra. Þetta er eilíf barátta og lúmsk. Einna harðast sækjast ráða- menn að eignarréttinum og tján- ingarfrelsinu. Með því að ná eign- um undir ríkisvaldið og greiða kjósendum fé geta þeir haft áhrif á kosningaréttinn. Bitur reynsla manna frá síðustu öld færir þeim sanninn um það að fái menn ekki aðhald geta sumir þeirra breyst í villidýr, sem breyta lýðræðisríkjum í einæðisríki. Það er lýðræðinu því lífs- nauðsyn að eigarréttur lands- manna, sem og önnur mannrétt- indi séu yfirleitt í höndum kjósenda, persónulega, en ekki að- allega í höndum kjörinna fulltrúa þeirra fyrir þeirra hönd til úthlut- unar. Á þann hátt verður kosninga- réttur virkari í raun og mannrétt- indi fá einnig meira vægi. Sá eðlismunur, sem er á því hvort ríkisvaldið hafi lögsögu yfir eignum eða beinan eignarrétt hef- ur grundvallarþýðingu fyrir lýð- ræðislegt stjórnarfar. Ríkisvaldið hefur ekki eingöngu lögsögu yfir eigin eignum og al- menningum heldur öllum eignum landsmanna, einkaeignum einnig. Ríkisvaldið setur lög og reglum um allar eignir í landinu. Það er þess hlutverk. Það setur reglur um samskipti landsmanna inn- byrðis en ekki aðeins við ríkið og ríkisins við þá. Ríkið er valdbundin stofnun. Þversögnin kemur í ljós þegar lög- gjafinn og valdhafinn er jafnframt eigandinn. Fullyrða má að lýðræði minnki hlutfallslega eftir því sem ríkiseign vex á hlut einkaeigna og öfugt. Margir benda á að það sé ekk- ert betra fyrir lýðræðið þegar einkaeignir safnist of mikið á fárra manna hendur. Vissulega er mikið til í því að of mikil samþjöppun eigna hjá einkaaðilum getur haft svipuð áhrif og samþjöppun í op- inberri eigu. Niðurstaðan er sú að of mikil samþjöppun hvort sem hún er hjá hinu opinbera eða einkaaðilum getur haft slæm áhrif á lýðræðislega þróun. Samþjöppun eigna í einkageiranum er þó ekki eins varanleg og opinber sam- þjöppun. Menn fæðast og deyja giftast og skilja, kaupa og selja, tapa og græða eða verða gjald- þrota.. Efnahagsþróun nú til dags er orðin miklu hraðari og meiri en áður fyrr. Ný tækifæri skapast hraðar og oftar en áður. En satt er það að best fer á því að öllum eignum landsmanna sé hlutfalls- lega og tiltölulega sem jafnast skipt á milli allra sem persónu- legra eigna, þannig að flestir verði eigendur og kunni með fé að fara. Á þann hátt skapast sá auður sem við þurfum til að leysa þau mörgu göfugu verkefni, sem við eigum fyrir höndum. Er eignarréttur landhelg- innar eingöngu fræðilegt viðfangsefni? Eftir Jóhann J. Ólafsson Höfundur er stórkaupmaður. FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.