Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Arina Arctica kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ludvik Anderson og
Brúarfoss koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist, hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13–16.30
smíðar, útskurður, kl.
13–16.30 handavinna,
kl. 13.30 félagsvist kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11, samverustund, kl.
13.30–14. 30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9, aðstoð
við böðun og alm.
handavinna. kl. 13, létt
leikfimi og kl. 14 sagan.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30, kl. 9–12 hár-
greiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30 biljardsal-
urinn opinn til 16. Kór-
æfing Gaflarakórsins
kl. 10.30, tréútskurður
kl 13, félagsvist kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13. Handmennt,
spjall og kaffi kl. 13.30.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellssveit.
Spænska kl. 16, línu-
dans kl. 17.30, postu-
línsmálun.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Vinnustofur
opnar frá 9–16.30,
spilasalur opinn frá há-
degi. Á morgun kl. 13
boccia. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
lín, kl. 13 skák, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia, kl. 13 leirmótun
og brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín, keramik og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
sögustund og spjall, kl.
13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
13–16 spilað.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun, þriðjudag,
kl. 9.30 sundleikfimi í
Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1. kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 op-
in vinnustofa, mynd-
list.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9–12 mósaik,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl. 11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík, öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar í fé-
lagsheimilinu, Gull-
smára 13, mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spilamennska
hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, , Hátúni
12. Kl. 19 brids.
Minningarkort
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM & K og
víðar. Þau eru einnig
afgreidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýja testamentinu
sem gefið verður 10 ára
skólabörnum eða kom-
ið fyrir á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum,
hótelum, fangelsum og
víðar.
Í dag er mánudagur, 17. nóv-
ember, 321. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Til frelsis frelsaði
Kristur oss. Standið því stöðugir
og látið ekki aftur leggja
á yður ánauðarok.
(Gl. 5, 1.)
Stefán Ottó Stefánssongerir samkeppn-
ismál, einokun og fá-
keppni að umræðuefni á
frelsi.is, heimasíðu Heim-
dallar. Hann telur að
Samkeppnisstofnun ætti
að beina spjótum sínum
að einokun ríkisins, ef
stofnunin hefði hug á að
vera samkvæm sjálfri sér
og fylgja samkeppn-
islögum.
Stefán Ottó segir: „Meðstofnun Samkeppn-
isstofnunar sýndi ríkið
einlægan vilja til að
skipta sér beint af frjáls-
um markaði hér í landi,
berjast gegn svoköll-
uðum markaðsbrestum,
svo sem fákeppni og ein-
okun.
Samkeppnisstofnunhefur nú þegar beitt
ýmiss konar ofbeldi gegn
fyrirtækjum, til að
mynda innrásum í höf-
uðstöðvar og gert upp-
tæk skjöl í eigu þeirra.
Óhætt er að segja að
þetta raski starfsemi fyr-
irtækja gríðarlega.
Setjum það þannig uppað þetta sé allt gott
og blessað, að þessi
stofnun eigi fullan rétt á
sér. Af hverju hefur
Samkeppnisstofnun ekki
skoðað einokun ríkisins á
sölu áfengis? Hún er
mjög gróft dæmi um
harðræði af höndum
stjórnvalda. Það er sem
sagt ekki nóg að rík-
isfyrirtæki séu með því
sem næst óendanlega
sjóði í formi skattpen-
inga heldur verða sér-
stakar reglur að gilda
fyrir þau líka.
Er það eðlilegt að rík-isfyrirtæki hljóti sér-
stakar undanþágur? Er
það eðlilegt að einkaað-
ilum sé bannað að versla
með áfengi í smásölu?
Það er vitanlega óeðli-
legt.
Samkeppnisstofnunskal samkvæmt sam-
keppnislögum gæta þess
að aðgerðir opinberra
aðila takmarki ekki sam-
keppni og benda stjórn-
völdum á leiðir til að
gera samkeppni virkari
og auðvelda aðgang
nýrra samkeppnisaðila
að markaði. Einnig segir
að lögin taki til hvers
konar atvinnustarfsemi,
svo sem framleiðslu,
verslunar og þjónustu,
án tillits til þess hvort
hún er rekin af ein-
staklingum, félögum, op-
inberum aðilum eða öðr-
um.
Það er semsagt í sam-ræmi við þann vilja
og tilgang löggjafans
sem birtist með setningu
samkeppnislaga að
einkavæða ÁTVR. Auk
þess eru fullorðnir ein-
staklingar fullfærir um
að versla sín á milli með
hvers kyns vörur, jafnvel
áfengi.
Þá spyr maður sig, eft-
ir hverju er verið að
bíða?“
STAKSTEINAR
Samkeppnisstofnun og
einokunarverslun
Víkverji skrifar...
Nokkrir vinir Víkverja hafa komiðsér upp þráðlausu netsambandi
á heimilum sínum. Víkverji efar
ekki að mikil þægindi eru fólgin í
slíku sambandi við Netið. Með far-
tölvu er nú hægt að nýta til fulln-
ustu þá óendanlegu möguleika sem
Netið býður upp á án þess að sú
notkun sé bundin við ákveðið her-
bergi eða tengingu á heimilinu.
Víkverja finnst athyglisvert að
vinir hans lofa sérstaklega að nú
geti þeir hlustað á erlendar útvarps-
stöðvar á Netinu hvar sem þeir
kjósa á heimilum sínum. Mikill
fjöldi vandaðra erlendra útvarps-
stöðva sendir út um Netið. Og sú
þjónusta er ókeypis.
x x x
Víkverji verður að viðurkenna aðhann blóðöfundar þessa vini
sína sem nú hafa aðgang að rétt-
nefndu úrvalsefni hvenær sem þeir
kjósa.
Víkverja hefur löngum þótt það
sérstakt rannsóknarefni hversu ein-
hæfu framboði á sviði útvarpsmála
fjölmiðlafrelsið hefur skilað á Ís-
landi. Nærri lætur að Víkverji fyll-
ist örvæntingu þegar hann hamast á
útvarpstökkunum í leit að vönduðu
og áhugaverðu efni. Sem dæmi má
nefna að síðastliðið fimmtudags-
kvöld bauð Rás 1 hlustendum upp á
rúmlega ársgamlan, norskan út-
varpsþátt sem að mestu snerist um
ófríska mongólska konu í Norður-
Noregi. „Súrrealismi“ hefur löngum
höfðað til Víkverja en þessari birt-
ingarmynd menningarinnar náði
hann ekki.
x x x
Víkverji hefur lengi undrast þettametnaðarleysi einkaframtaks-
ins. Hann hélt að markaðsfrelsið
ætti að geta af sér fjölbreytileika.
Raunin hefur orðið önnur á Íslandi.
Dapurlegt þótti honum þegar Norð-
urljós hættu að varpa Heimsþjón-
ustu breska ríkissútvarpsins (BBC
Worldservice) út á FM-bylgju. Þar
var lokað á bestu útvarpsstöð í
heimi sem rekur öflugustu frétta-
stofu í heimi til að annálaðir íslensk-
ir grínkallar gætu látið gamminn
geisa.
Miðað við þau lög sem í gildi eru
um Ríkisútvarpið stendur það trú-
lega þeirri stofnun næst að miðla
slíku úrvalsefni sem Heimsþjónustu
BBC til landsmanna. En metnaður-
inn þar á bæ virðist standa til þess
eins að auka hlut stofnunarinnar á
auglýsingamarkaði. Þar kann að
vera fundinn hluti skýringarinnar á
því hversu erfiðlega einkaframtak-
inu hefur gengið að koma á fót
frambærilegum útvarpsstöðvum.
Víkverji telur algjört hörmung-
arástand ríkjandi í íslenskum út-
varpsmálum. Hann ætlar því að fá
sér þráðlausa nettengingu. Og um
leið bera upp þá spurningu sem vin-
ir hans gera nú á hverjum degi:
Fyrir hvað eru þeir að borga sem
telja Ríkisútvarpið ekki bjóða upp á
áhugavert efni og kjósa að nýta sér
ekki þjónustu þess?
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Íslensk tunga
djásn og gersemi
FYRIR nokkrum árum
flutti Sólveig Einarsdóttir,
rithöfundur í Ástralíu, er-
indi í útvarpi þar sem hún
sagði að kollegar sínir,
ástralskir rithöfundar,
væru fullir aðdáunar á því
að svona lítil þjóð norður í
höfum ætti sér eigið full-
komið bókmenntamál sem
hægt væri að nota til allra
hluta. Það væri dálítið ann-
að en það sem þeir byggju
við, tungumál sem væri
allra gagn enda hefur mikl-
um fjölda tungamála þar í
álfu verið útrýmt.
Mér finnst að Íslending-
ar mættu vera þess minn-
ugir í þessu sambandi hví-
líkt djásn og gersemi
íslensk tunga er.
Gamall Reykvíkingur.
Englasöngur
ÉG heyrði og sá nokkuð
magnað um daginn. Var að
sækja dóttur mína á kóræf-
ingu hjá Stúlknakór
Reykjavíkur sem æfir nú
fyrir jólatónleikana sem
verða 8. og 11. desember.
Þar sem ég skrölti þreytt
upp stigann í söngskólan-
um Domus Vox heyri ég
þvílíkan söng. Ekki fannst
mér þetta vera einungis
barnaraddir svo ég varð þó-
nokkuð forvitin.
Þegar inn í sal húsnæð-
isins var komið blasti við
stórfengleg sjón. Þarna
stóðu saman allir þrír
Stúlknakórarnir, Gosp-
elsystur Reykjavíkur og
Vox Feminae og sungu
Heims um ból af þvílíkum
krafti og fegurð að ég fékk
margfaldan hroll um allan
kropp. Og í þvögunni miðri
stóð Margrét Pálmadóttir
og stjórnaði öllum hópnum
eins og ekkert væri.
Ég fylltist stolti og að-
dáun. Stolti yfir að dóttir
mín væri hluti af þessu frá-
bæra starfi og aðdáun yfir
þessari einstöku konu sem
Margrét er. Ég furða mig á
því hvers vegna starf henn-
ar er ekki metið meira af
ríki og borg. Ef Margrét
væri hlutafélag myndi ég
kaupa ógrynni af hlutabréf-
um í henni, því ég veit að
starf hennar er meira en
þess virði.
Ég get ekki beðið eftir
jólatónleikunum í ár í Hall-
grímskirkju þar sem allir
þessir glæsilegu kórar
munu koma saman og búa
til ógleymanlegar minning-
ar fyrir mig. Þetta verður
magnað!
Særún Harðardóttir.
Bestu þakkir
MIG langar að koma á
framfæri þökkum til Gísla
Helgasonar, þjónustufull-
trúa Búnaðarbankans í
Garðabæ, fyrir frábæra
þjónustu og kurteisi og það
mættu margir sem starfa
við þjónustu við fólk taka
þennan mann sér til fyrir-
myndar!
Elín.
Tapað/fundið
Myndavél í óskilum
MYNDAVÉL (stafræn)
fannst fyrir utan flugstöð
Leifs Eiríkssonar sl.
sunnudagskvöld. Upplýs-
ingar í síma 893 9520.
Gullhringur í óskilum
GULLHRINGUR fannst
fyrir nokkrum mánuðum í
miðbæ Reykjavíkur. Upp-
lýsingar gefur Lind í síma
551 1122 milli kl. 16-18
virka daga.
Dýrahald
Nói vill flytja
FALLEGA kisustrákinn
okkar, Nóa, vantar gott
heimili vegna flutninga eig-
enda. Hann er blíður úti-
köttur, geltur og ný bólu-
settur. Þeir sem vilja
bjarga Nóa vinsamlega
hringi í 869 7002 og
820 0704.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
LÁRÉTT
1 bólstur, 4 kraft, 7 fæði,
8 snákur, 9 rödd, 11
galdrakvendi, 13 vaxa,
14 gamla, 15 rykhnoðrar,
17 tréílát, 20 spor, 22
styrkti, 23 ilmur, 24
stundum, 25 fugl.
LÓÐRÉTT
1 ánægja, 2 sér, 3 sjá eft-
ir, 4 þurrð, 5 óðar, 6
þekja með torfi, 10
bleyða, 12 tók, 13 op, 15
rýrð, 16 handlegg, 18 góð
skipan, 19 tæla, 20 tölu-
stafur, 21 staur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 teinóttur, 8 linur, 9 lætur, 10 Róm, 11 terta, 13
aurum, 15 þröng, 18 balar, 21 lóa, 22 rudda, 23 kopar, 24
hrímþakin.
Lóðrétt: 2 Einar, 3 narra, 4 tálma, 5 urtur, 6 hlýt, 7
hrum, 12 Týr, 14 una, 15 þörf, 16 öldur, 17 glaum, 18
bakka, 19 Lappi, 20 rýra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16