Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. RÚMLEGA þrítugur maður bíður dóms fyrir skilorðsrof og þjófnað. Hann hefur stolið úr verslunum í nokkur ár, oftast munum sem hann hefur litla sem enga þörf fyrir og gæti keypt sér ef hann vildi. Hann á við geð- röskun að stríða sem kallast stelsýki, eða kleptomania, og segir þessa sýki erfiðari viðfangs en spilafíkn og áfeng- issýki. Hann er í „straffi“ í nokkrum versl- unum vegna þjófnaða og er umsvifa- laust rekinn út ef öryggisverðir sjá hann þar. Nú er svo komið að hann forðast verslanir af ótta við að freistast til að stela, en mest af öllu þráir hann að losna undan þessu oki og byrja nýtt líf. Hann hefur leitað sér aðstoðar hjá geðlæknum og sálfræðingum og hyggst taka þátt í stofnun stuðnings- hóps stelsjúkra á vegum Geðhjálpar. Fremur fátítt vandamál Að sögn Björns Harðarsonar sál- fræðings er stelsýki vandamál sem getur varað í mörg ár, en sýkin virðist þó fremur fátítt vandamál. Erfitt er að hemja stelsýkina vegna þeirrar vellíð- unar sem gripdeildin veitir hinum stel- sjúka. Stelsjúkur einstaklingur reynir yfirleitt að fela stelsýkina fyrir vinum og fjölskyldu og einnig finnur hann fyrir mikilli skömm yfir því að stand- ast ekki freistingarnar. Getur skömm- in jafnvel leitt af sér þunglyndi, að sögn Björns. Þráir að losna undan stelsýkinni  Spennan rak mig áfram/10 Á HVERJUM degi eru helstu þjóðlífsmálin efst á baugi á rakarastofum landsins. Menn þreyt- ast aldrei á að heyra fréttir úr daglega lífinu en ungi maðurinn í rakarastólnum hjá Hinriki Haraldssyni á Akranesi hafði meiri áhyggjur af því að fá ekki hár í augun er hinn reyndi hárskeri lagði lokahönd á það sem þó er tæp- ast jólaklippingin. Litli skúrinn við Vesturgöt- una lætur ekki mikið yfir sér en ávallt er eitt- hvað í fréttum hjá viðskiptavinum enda var fyrsta símstöð bæjarins í þessu húsnæði á sín- um tíma og upplýsingaflæðið er enn til staðar. Morgunblaðið/RAX Drengjakollurinn klipptur og snyrtur VERÐ á íslenskum sjávarafurðum, mælt í SDR, hefur verið að lækka síðustu mánuði og er 4,5% lægra en það var í apríl þegar það var í há- marki. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að íslensk- ar sjávarafurðir eigi í harðri baráttu á erlendum mörkuðum og lækkun á verði sjávarafurða eigi ekki að þurfa að koma á óvart. „Við erum einfaldlega að fram- leiða matvæli sem eru í samkeppni við öll önnur matvæli og það er hörð samkeppni á matvælamarkaðinum. Það er ljóst að á þessu ári hefur komið inn á Evrópumarkað verulegt magn af karfaflökum sem eru unnin í Kína af nægum gæðum og það hef- ur valdið lækkun á karfaverði. Hluti af þessum karfa sem kemur frá Kína er veiddur á Reykjaneshrygg af svokölluðum hentifánaskipum. Ýsan hefur einnig lækkað vegna þess að framboðið hefur aukist og markaður fyrir hana er ekki stór,“ sagði Þorsteinn Már. Áfram gott verð fyrir sjófrystan fisk í Asíu Stjórnendur frystitogarans Þór- unnar Sveinsdóttur í Vestmanna- eyjum hafa ákveðið að hætta að frysta um borð en framleiða í stað- inn fersk flök. Þorsteinn sagði að stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi væru sífellt að reyna að taka mið af kröfum markaðarins. „Við höfum í gegnum árin verið að reyna að framleiða vöru sem neyt- endur á markaði vilja. Markaður fyrir sjófrystar afurðir, t.d. í Asíu, hefur verið gríðarlega sterkur lengi. Við höfum verið í viðskiptum við kaupendur sem eru kröfuharðir um gæði en eru jafn- framt tilbúnir að borga vel. Asíu- markaðurinn er áfram sterkur, en Evrópumarkað- urinn hefur gefið eftir. Hins vegar er ferskfisk- markaðurinn í Evrópu sterkari. Það er aftur á móti takmarkaður markaður og það er ekki rúm fyrir alla á honum,“ sagði Þorsteinn Már og benti jafn- framt á að í rússneskum togurum, þar sem fiskurinn var heilfrystur, væri farið að vinna flök sem væru sambærileg að gæðum og íslensk flök. Þar að auki væri kostnaður Rússanna við framleiðsluna minni en okkar. Verð á sjávaraf- urðum á niðurleið Þorsteinn Már Baldvinsson ÞAÐ fór margt í gegnum kollinn á karatekappanum Halldóri Svav- arssyni í æsispennandi bardaga á Ís- landsmótinu í karate á laugardaginn. Verja sig, sparka, kýla, verjast, hálf- leiðari. Já, ekki nóg með að Halldór, þrautreyndur Íslandsmeistari og landsliðsþjálfari með meiru, hafi þurft að stilla kollinn á bardagaham, heldur getur hann ekki alveg sleppt því að hugsa um hvernig hann eigi að verja doktorsritgerð sína í eðlisfræði eftir hálfan mánuð. Fleiri hálærðir menn komu við sögu á þessu móti. Ólafur Wallevik, formaður Karatesambandsins, er doktor í steinsteypufræði og yf- irdómarinn Helgi Jóhannesson er í meistaranámi í viðskiptafræðum. Halldór, sem er 36 ára, hefur stundað karate af kappi í að verða rúma tvo áratugi og hann hefur ekki tölu á hvað Íslandsmeistaratitlarnir eru margir. „Ég hef ekki hugmynd,“ sagði Halldór. „Ég vann óslitið minn þyngd- arflokk frá 1989 fyrir utan eitt ár sem ég var erlendis og svo einnig í liða- keppni og opnum flokki. Ætli það séu ekki um tuttugu skipti. Annars hef ég mest talið titla á erlendum mótum.“ Segja má að Halldór hafi ekki síður æft sig í hugarleikfimi. Hann er eðl- isfræðingur og eins og venjulega stefndi hann hátt. Bíður hann nú eftir að verja doktorsritgerð sína. „Mér finnst fagið skemmtilegt en það spilar inn í að það stangast á við gamla klisju um að góða íþróttamenn vanti eitthvað á öðrum sviðum,“ sagði Halldór. „Ég er búinn að vinna í þessari ritgerð síðan 1997. Hún er tilbúin, búið að senda hana til andmælenda og er að fara í prentun. Ritgerðin fjallar um hálf- leiðara, sem er grunneining í öllum tölvukubbum, farsímum og ljósgeislum í geislaspilurunum svo eitthvað sé nefnt. Ritgerðin er reyndar um örlítið svið fræða um hálfleiðara, um efnið GaAs og reyndar aðeins hluta af því efni.“ Á mótinu á laugardaginn gerðist það að Halldór tapaði sínum fyrsta bar- daga í liðakeppni í kumite. „Ég hef ekki tapað í mörg ár og átti alls ekki von á því. Ég gerði ráð fyrir auðveldum leik og það er alltaf hættulegt. Ég var farinn að hugsa um næsta bardaga en held að það hafi varla verið ritgerðin, ég var kominn skrefi of langt fram úr sjálfum mér og hefndist fyrir það. Þetta var gott hjá stráknum en ég bæti fyrir þetta næsta ár.“ / B8 Högg, spörk og hálfleiðarar Karatekappinn Halldór Svavarsson undirbýr að verja doktorsritgerð sína í eðlisfræði. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson MIKIÐ var um dýrðir á Ólafíuhá- tíð í Ósló um helgina sem haldin var til minningar um Ólafíu Jó- hannsdóttur, kvenréttindakonu og baráttukonu þeirra sem minna mega sín. Í ár eru 140 ár liðin frá fæðingu Ólafíu sem starfaði árum saman í Noregi meðal götukvenna, fátækra og sjúkra. Að sögn Dóru Þórhallsdóttur, eins skipuleggjenda hátíðarhald- anna í Ósló, hafa um 100 Íslend- ingar tekið þátt í undirbúningi þeirra á einn eða annan hátt. Dóra segir að fjölmiðlar í Noregi hafi veitt deginum heilmikla at- hygli. „Það er óneitanlega skemmtilegt að íslensk kona skuli hafa haft svona mikil áhrif hérna og nú er í raun verið að dusta rykið af minningu hennar.“ Fulltrúar sex stórra líknarstofn- ana í Noregi völdu síðan Tahirah Iqbal frá Pakistan „hversdags- hetju Noregs“ fyrir mikilsvert starf í nýju fjölþjóðasamfélagi Noregs, m.a. fyrir miðlun upplýs- inga til aðfluttra kvenna sem ekki skilja norsku. Vigdís Finnboga- dóttir afhenti verðlaunin. Hápunktur hátíðarhaldanna var í gærkvöld þegar uppfærsla af leik- sýningunni Ólafíu eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur var sýnd. Sýningin var þýdd á norsku og fóru Íslend- ingar í Noregi með öll hlutverk. Annir Íslendinga í Ósló

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.