Vísir - 20.10.1980, Side 1
Eining á Akureyri
reynlr sérsamnlngai
Bjóða sérviöræður á grundvelli sáttatíllögunnar
,,Við vorum með fund um helgina og höfum
ákveðið að bjóða atvinnurekendum hér viðræður
á grundvelli sáttatillögunnar”, sagði Jón Helga-
son formaður Einingar er Visir spurði hann i
morgun hvort félagið hygðist reyna sér-
samninga.
Sagði Jón, aö nú þegar væri vinnuveitenda þennan vilja
búið að tilkynna nokkrum félagsins, en t'ormleg tilkynning
yrði send út i dag, og hæfust við-
ræður bráðlega, ef vilji beggja
aðila væri fyrir hendi.
Aðspurður um, hvort verka-
lýðsfélagið iáining myndi þá
ekki taka þátt i aðgerðum Al-
þýðusambandsins 29. október
n.k. sagði Jón að svo yröi ekki
tækist aðsemja íyrir þann tima.
Ef viðræöur stæðu þá enn, yrði
tekin ákvörðun um hvort félagið
tæki þátt i eins dags allsherjar-
Jón Helgason: Bjóöa sérviöræður. verkfallinu. —JSS
Mikill kraftur var í gosinu á nyrsta svæöinu þegar GIsli Sigurgeirsson, blaðamaöur Vísis á Akureyri, flaug yfir gosstöðvarnar um heigina
í MEIBI
HÁTTAB
AÐGERÐIR?
Ákvöröun tekin á
fundi bókagerðar-
manna i dag
Tvær tiilögur verða væntanlega
lagðar fyrir almennan félagsfund
bókagerðarmanna, sem haldinn
verður i dag. Annars vegar að
taka þátt i eins dags allsherjar-
verkfalli Alþýöusambandsins og
hins vegar aö fara út i meiri hátt-
ar aðgerðir.
lim helgina var haldinn
stjórnarfundur hjá bókagerðar-
mönnum, þar sem þessi stefna
var mörkuð. Veröur hún lögð
íyrir félagsfund i dag, til að gefa
félagsmönnum kost á að koma
fram sinum skoöunum. Að fund-
inum loknum veröur tekin
ákvörðun um aðgerðir til að
knýja á um samninga um sér-
kröfur bókagerðarmanna. —JSS
Skipverji á
Náttfara
drukknaði
Ungur Reykvikingur féll fyrir
borð á Náttfara RE 75, sem var á
loönu N-A af Halamiðum.
Slysið átti sér staö um kl. 21.40
á föstudagskvöldið. Verið var aö
kasta, búið að setja út skott og
bauju þegar ljóst varð aö einn
skipverjanna hafði falliö út-
byrðis.
Þegar var ljóskösturum beint
að svæðinu og skömmu siöar voru
7-8skip komin, að, slógu hring um
svæðið og lýstu það upp. Leit bar
ekki árangur.
Sjórinn á svæði þessu mun vera
mjög kaldur og mönnum vart
hugaö lif i honum nema i um 15
minútur.
Leit var haldið áfram til kl. 02
um nóttina.
Náttfari kom inn i Akureyrar-
höfn um klukkan 19 á laugardag-
inn, til sjóprófa.
Ungi maðurinn var 33 ára gám-
all.búsettur i Reykjavik. Ekki
þykir rétt að birta nafn hans aö
svo stöddu. -AS.
ENN OYS I 700 METRA
SPRUNGU FYRIR N0R0AN
„flllip salla-
rölegir” í
Kröfluvlrkjun
,,Það er engin skjálftavirkni á
mælunum, sem þýðir aö svipað
magn fer upp úr kvikuhólfunum
og það sem rennur aö þeim,”
sagði Fáll Einarsson jarðfræð-
ingur i morgun, þegar Vlsir trufl-
aði hann við morgunkaffið i Hótei
Reynihlið. Fáll hafði ekki farið að
gosstöðvununum i morgun, en
sagði að sér sýndist allt vera við
það sama og þegar hann fór það-
an seint i gærkvödi. Þá var gosið
svipað og það hafði verið i allan
gærdag, gaus á um 700 m löngum
kafla, og á stuttum bút af þvi gaus
mjög ákaft.
„Gosið er nú i samskonar
ástandi og það var eftir fyrsta
daginn i júligosinu, þá gaus mjög
ákaft einn dagpart og náði siðan
jafnvægisstöðu. Það sama hefur
gerst núna.
Páll sagði, að hraunmagnið,
sem nú hefur runnið sé á bilinu
5-10 milljón rúmmetrar, en hann
sagði að útilokað væri að segja
það nákvæmar fyrr en það hefði
veriö mælt, en þaö yrði ekki fyrr
en gosinu lýkur og hægt verður að
taka loftmyndir.
„Það voru allir hér sallarólegir,
okkur finnst öryggið svo mikið,
aöengin ástæða ertil að vera með
neina taugaveiklun," sagði
Stefán Þórhallsson, vélstjóri i
Kröfluvirkjun, þegar Visir talaöi
við hann i morgun.
Hann sagði, að allur öryggis-
búnaður væri i besta lagi og Al-
mannavarnir væru alltaf i
viöbragðsstöðu, sem skapaði
fólkinu á staönum slika öryggis-
kennd að það héldi rósemi sinni
hvað sem á gengi.