Vísir - 20.10.1980, Blaðsíða 5
Mánudagur 20. október 1980.
5
VÍSIR
Vilja ekki log-
gilda óháðu verka-
lýðssamtökín
Leiötogar „Solidarity”, hinna
óháðu verkalýðssamtaka Pól-
lands, koma saman til fundar i
kolanámubænum Jastrzebie i Sil-
esiu til ihugunar um verkfallsað-
gerðir, eftir að dómstóil i Varsjá
hafnaði stofnskrá og regiugerð
samtakanna.
1 úrskurði réttarins kom ljóst
fram, að það voru fyrst og fremst
pólitiskar ástæður fyrir þvi, að
reglur hinna nýstofnuðu samtaka
fengust ekki samþykktar. Þar
sagði, að ekki væri unnt að sam-
þykkja reglugerð samtakanna,
þar sem i þær vantaði ákvæði um
leiðandi hlutverk pólska komm-
únistaflokksins.
Lech Walesa, leiðtogi verka-
lýöshreyfingarinnar, sem er á
ferðalagi um S-Pólland að hitta
vierkalýðsforustuna að máli,
segist ekki meðmæltur nýjum
Lech Walesa andvigur nýjum
verkföllum, en fær kannski ekki
haldið aftur af áköfum verkalýðs-
sinnum.
verkföllum. En tilkynningin um
niðurstöðu dómstólsins i Varsjá i
gær þykir likleg til þess að vekja
úlfúð verkalýðsins, sem kann að
knýja á forystumennina að gripa
enn til verkfalla.
Úrskurður réttarins dró einnig i
efa hugmyndir hinna óháðu
samtaka um verkfallsréttinn, og
taldi að fyrst þyrftu að koma til
breytingar á landslögum.
A ferð sinni um Krakow i gær
lýsti Walesa þvi yfir, að
Solidarity-samtök hans mundu
halda sinu striki, eins og væru
þau fyllilega lögleg, hvað sem liði
niðurstöðu réttarins. Kvaðst hann
leiöur orðinn á kerfisstiflunni og
bákninu, og sex milljóna manna
samtök væru of stór til þess að
verða fótumtroðin.
Aður en dómstóllin komst að
niðurstöðu, hafði hann þæft málið
i fjórar vikur.
Varsjarbandaiagiö
fundar í Varsjá
Utanrikisráðherrar austan-
tjaldsrikjanna komu saman i
Varsjá i gærkvöldi til fundar um
alþjóðamál, og búist við þvi, aö
þeir muni lýsa yfir áhyggjum
vegna versnandi sambúðar aust-
urs og vesturs og hvetja til kjarn-
orkuafvopnunar.
Eins er búist við þvi að ráð-
herrarnir undirstriki skyldur Pól-
lands við Varsjárbandalagið til
áréttingar eftir „meintar til-
raunir afturhaldsafla á vestur-
löndum til þess að færa sér i nyt
verkfallaólguna i Póllandi”.
Er þetta fyrsta tækifæri ráða-
menna hinna sex Varsjárbanda-
lagsrikja til þess að hitta að máli
ráðamenn i Póllandi eftir verk-
föllin i sumar, en stjórnir þeirra
hafa viðrað áhyggjur vegna þró-
unar i verkalýðshreyfingu Pól-
lands, þar sem upp hafa risið
samtök óháð pólska kommúnista-
flokknum.
Fundinum lýkur strax i dag og
er helsta dagskrárefni hans
undirbúningur fyrir Madrid-fund-
inn, þar sem endurskoðuð verða
mannréttindaákvæði Helsinki-
sáttmálans.
FRflSER HELT VELLI
I KOSNINGUM ASTRALIU
Stjórn Malcolms Frasers i
Astraliu hélt velli i kosningunum
um helgina, þvert ofan I allar
niðurstöður skoðanakannana og
kosningaspár, sem gerðu ráð
fyrir sigri verkamannaflokksins.
48 þingsæta meirihluti stjórnar-
flokkanna minnkaði þó, en hann
verður samt milli 17 og 27 þing-
sæti, eftir þvi hverjar niðurstöður
verða að lokinni talningu utan-
kjörstaðaatkvæða sumra kjör-
dæmanna.
Mest eftirvænting rikir vegna
lokatalningar i Nýja Suður-Wales
og Vestur-Astraliu, þar sem
stjórnarflokkarinir þurfa að
vinna bæði þingsætin til þess að
halda meirihluta i öldungadeild-
inni. Ella gæti stjórnarandstaðan
fellt i öldungadeildinni stjórnar-
frumvörp afgreidd af neðri mál-
stofunni, eða fulltrúadeildinni.
transkir hermenn sigurreifir með sovésk vopn sin á lofti, en tranar
hafa reynst þyngri fyrir i vörnum, en búist var við.
Nvjar vopnahlés-
tllraunir I slríð-
inu vlð Persaflða
Habib Chatti, framkvæmda-
stjóri samtaka múhammeðs-
rikja, kom til tran i gær i viðleitni
tilþess aö koma á friði milli írans
og traks.
Hann var fluttur fram i vfglin-
una I Khuzestan til aö hitta að
máli Bani-Sadr, forsætis-
ráðherra, sem þar hefur siðustu
dagana stappað stálinu i verj-
endur. — Attu þeir klukkustundar
fund, sem Chatti sagöi eftir á
vera mjög gagnlegan.
Chatti, sem heimsótti Bagdaö i
siðustu viku, er nú öðru sinni á
ferðinni til þess að reyna aö koma
á vopnahlé i fjögurra vikna löngu
striði traks og trans, en tran
hafnaðifyrri tillögum hans og Zia
Ul-Haqs, forseti Pakistans. Hefur
transstjórn itrekað lýst þvi yfir,
aö vopnahlé komi ekki til greina,
meðan nokkur óvinahermaður er
á iranskri grund.
Bardagar voru áfram hinir
hörðustu við Khorramshahr i
gær, og samkvæmt irönskum frá-
sögnum er nú barist I návigi þar á
strætum og mannfall mikið.
Teheran-útvarpiö segir, að sókn
traka i átt til Abadan hafi verið
stöðvuð. trakar eru sagðir halda
uppi öflugri stórskotahrið á Aba-
dan og Khorramshahr.
Khomeini æöstiprestur flutti
ræðu i útvarpi i gærkvöld og bað
irönsku þjoðina vera viðbúna
kalli „jihad” (heilags striös)
gegn traks, sem kalla mundi
hvern vopnfæran mann.
Gríski herlnn
aftur í NATO
Grikkland hefur samþykkt nýj-
ustu tillögur NATO um hlut
griska hersins I sameiginlegum
vörnum bandalagsins, en sex ár
eru liðin, slðan Grikkir tóku her
sinn undan sameiginlegri her-
stjórn NATOi mótmælaskyni við
innrás Tyrkja á Kýpur.
George Rallis forsætisráðherra
sagöi að Grikkland tæki nú aftur
þátt i hemaðarsamstarfinu með
þeim hætti, sem efla mundi varn-
ir Grikklands og tryggja réttindi
þess.
Dregist hefur aö Grikkir sneru
aftur til hernaöarsamstarfs
Natos, vegna andstöðu Tyrk-
lands. Milli Grikkja og Tyrkja
hafa staðið deilur um, hvor skuli
hafa yfirstjórn varna á Eyjahaf-
inu, en Tyrkir vildu sinn hlut
meiri þar.
Segjasamtök dýraverndara, að
störtækir veiðiþjófar hafi fært sig
sifellt meír upp á skaftið siðustu
mánuöi i Tansaniu, og sé nas-
hyrningum og filum mikil hætta
búin.
Þau vilja leggja fram fé til þess
að koma upp bilaflota og fjar-
skiptatækjum fyrir veiöiverði i
þjóðgörðum á þessu slóöum.
Samskonar aðgerðir eru I upp-
siglingu I Uganda, Súdan og
Kenya. Verst mun átandið vera f
Uganda, þar sem veiöi-
þjófar óöu uppi i stjórnartið Idi
Amius (8 ár) og hafa færst enn i
aukana i stjórnleysinu eftir
striöiö þar.
Nátlfatagoii
Bandariski golflcikarinn, Lee
Trevino, var eins og aörir á
Lancomc-golfmótinu I Frakk-
landi fyrir helgi aö krökna úr
kuida. Hann greip til þess ráös aö
vera f náttfötunum innan undir.
Reuterfréttastofan sagöi, aö þaö
heföi þó ekki veriö neitt syfjulegt
viðhandtök Trevinos á golfkylf-
unum fyrir þaö, þvi aö hann fór
fyrstu umferðina á fjórum högg-
um undir pari og tók þar forystu I
mótinu.
Fióttamanna-
mergð I Sómalfu
Sómaiia treystist ekki lengur til
að hjálpa vaxandi fjölda flötta-
manna þar i landi, en sú fram-
færsla gengur ört oröiö á landsins
gæöi, sem þar aö auki hafa oröiö
illa fyrir baröinu á þurrkum og
ótiö. Sómaiir hafa þar fyrir utan
æriö nóg á sinni könnu vegna
efnahagsþrenginga f kjölfar oifu-
kreppunnar.
1 Sómaiiu eru um þessar mund-
ir 848 þúsund flóttamenn i þrjátiu
ogtveim flóttamannabúöum. Enn
fleiri flóttamenn tvfstrast þar til
viöbótar meöal ættmenna og vina
i Sómaliu. — Daglega bætast
svona þúsund flóttamenn viö.
Flestir á flótta undan átökunum I
Eþiópiu.
Snýp ekkl heim
tll Tíbet f bráð
Dalai Lama, hinn útlægi trúar-
leiðtogi Tíbets, sagöi viö frétta-
menn I Montreal, aö hann eygöl
litilarvonir—eins og horföi—til
þess aö snúa heim til ættjarðar-
innar á næstunni.
Hann er I tiu daga heimsókn I
Kanada, þar sem búsettir eru um
400 Tibctar, en sjálfur hefur
Dalai Lama búiö i Indiandi siö-
an hann flúöi Tibet undan Kin-
verjum 1959.
Dalai Lama sagöist hafa
þrivegis sent fulltrúa til Kina á
siöustu þrem árum til aö
kanna möguleika á þvl, aö hann
snéri heim. Hann segir, aö hínir
kinversku ráöamenn reyni um
þessar mundir aö taka upp
frjálslyndari stefnu i Tlbet.
1
I
I