Vísir - 10.12.1980, Blaðsíða 1
Miövikudagur 10. des. 1980, 289. tbl. 70. árg.
Fjárlagafrumvarplð
rætt á morgun:
Hækkar
umtvo
millj-
arða!
„1 meðförum ijárveitinga-
nefndar hafa áætlaðar fjárfest-
ingar rikisins aukist um tvo
milljarða frá þvi sem gert var ráð
fyrir i fjárlagafrumvarpinu",
sagði Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra,þegar blaðamaður Visis
spurði hann um þær breytingar,
sem gerðar hafa verið á frum-
varpinu, en önnur umræöa um
það fer fram á Alþingi á morgun.
„Fjárveitinganefnd hefur fyrst
óg fremst fjallað um skiptingu á
ýmsum fjárfestingaliðum, svo
sem i heilbrigðismálum, mennta-
málum, hafna- og flugvallagerð
og þess háttar. Til þess að endar
næðu saman þurfti svo að bæta
tveim milljörðum við það sem
gert hafði verið ráð fyrir", sagði
Ragnar.
P.M.
Framkoma Hannesar
Jónssonar hja efta i
leiOara Vísis i dag:
Treyslír
Olafur
Hannesi
eflir Detta?
Sia bls. 8
Þótt menn séu ekki á eitt sáttir um réttmæti þess aö Þorshöfn fái
togara, þá var létt yfir Asgeröi Jóhannesdóttur i Hraðfrystistöðinni
á Þórshöfn, þegar blaðamaður Visis var þar á ferð fyrir helgina. t
opnu blaðsins í dag og á morgun er fjallað nánar um togaramálið á
Þórshöfn með viðtölum við heimamenn, sem ekki eru á eitt sáttir.
(Visismynd: G.S.)
Bankamenn að semla?
Viðræður
á lokastlgi
í morgun
Samningaviðræður banka-
manna og viðsemjenda þeirra
voru i fuilum gangi, þegar Visis-
menn litu viíi i húsnæði rikis-
sáttasemjara i morgun. Var að
heyra á mönnum að nú stæðu
vonir til að niðurstöður fengjust
hvað af hverju.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
sáttasemjari i deilunni, varðist
allra frétta og sagði að ekki væri
hægt að fullyrða neitt fyrr en
deiluaðilar væru sestir niður til að
skrifa undir, þvi alltaf gæti eitt-
hvað komið upp á.
Enn mun vera deilt um
prósentu orlofs, sem bankamenn
hafa hug á að fá hækkaöa til móts
við fyrri kröfur um launalið að
hluta. „Annars er rifist um allt"
sagði einn af samninganefndar-
mönnum i morgun. __jgs
Diplómafa má ekki handtaka:
ók niður konu
09 veifaðl svo
diplómalapassa!
ökumaður, sem ekið hafði á
konu á föstudag við gönguljós á
Miklubraut, veifaði frönskum
diplómatapassa framan i lög-
reglu og varð þvi lögreglan að
sleppa manninum. Konan liggur
hins vegar stórslösuð á Borgar-
sjúkrahúsinu.
Visir hafði samband við utan-
rfkisráðuneytið vegna máls sem
þessa til þess að leita upplýsinga
um hvaða reglur giltu um erlenda
diplómata sem hér eru á landi.
Umfjöllun um þá vernd, sem
menn njóta vegna diplómata-
skjalsins er i 29. grein Vinar-
samningsins um stjórnmálasam-
band, og kveður á um, að sendier-
indreka megi ekki á neinn hátt
handtaka eða kyrrsetja. Móttöku-
rikið skal sýna honum tilhlýöilega
virðingu og 'gera allar þær rað-
stafanir, sem nauðsynlegar eru
til þess að koma i veg fyrir hvers
konar tilræði við persónu hans,
frelsi eða sæmd. 1 41. grein er hins
vegar kveðið á um að það sé
skylda allra slikra aðila að virða
lög og reglur viðkomandi rikis.
—AS.
Fréttaritarar Vísis I Bandarlkjunum um viðbrðgðin við morðinu á Lennon:
„Mörgum finnst hetta vera
hneyksli íyrir Ameríku"
».Ég sat viö skriftir seint um
kvöldið og hlustaði á tónlist i ti t-
varpinu, þegar þulurinn rauf
dagskrána með þessa tilkynn-
ingu. Þegar þetta gerðist, hefur
klukkan Ifklega veriðmilli 3og4
að islenskum tima", sagði
Halldór Reynisson, fréttaritari
Vísis i Indiana.
„bulurinn var greinilega
mjög sleginn og eftir þessa
fregn voru leikin lög eftir
Lennon alla nóttina. Hins vegar
var þetta ekki i morgunblaðinu,
sem ég kaupi hér, daginn eftir,
en liklega var það vegna þess,
að búið hefur verið að ganga frá
blaðinu, þegar atburðurinn átti
sér stáð. Annars skilst mér, að
menn séu mjög slegnir yfir
þessu.
Mér þótti nokkuð merkilegt,
að þulurinn kom með þau
merkilegu ummæli um þetta, að
ef til vill yrði þetta til þess að
sameina Bitlana aftur", sagði
HalLdór Reynisson.
„Ég heyrði þetta i gærkvöldi i
útvarpi. Fréttin var fremur
stutt, og þess efnis, að Bitillinn
frægi hefði verið skotinn þrem-
ur skotum og væri dáinn", sagði
Anna Heiður Oddsdóttir, frétta-
ritari Visis i Kaliforníu.um við-
brögð þeirra Kaliforniubúa við
dauðafregninni. „Smám saman
skýrðist fregnin og i ljós kom,
að maðurinn, sem hafði skotið
S|á einnig Dis. 5
Lennon á leið i ibúðarhúsnæði
sitt i New York, hafði reynst bil-
aður á geðsmunum.
Amerikönum finnst mörgum
hverjum það vera hneyksli, að
Lennon skuli hafa verið myrtur
i Ameriku og segja jafnframt,
að hvergi annars staðar en i
Ameriku gæti annað eins hafa
gerst", sagði Anna Heiður.
AS.