Vísir - 10.12.1980, Side 3

Vísir - 10.12.1980, Side 3
Miðvikudagur 10. desember 1980. Forráðamenn „Miss Universe” hér á landi: Kynna sér aðstæður Fulltrúar fyrirtækisins Ungfrú alheimur, eru nú staddir hér á landi til þess að kynna sér möguleika á því að halda fegurðarsamkeppni ,,Miss Uni- verse”, eins og Visir hefur þegar sagt frá. t samráði við Flugleiðir og Ferðamálaráð hafa þeir athugað húsnæðisem i boði er, bæði undir keppnina sjálfa og einnig fyrir þá gesti er fylgja keppninni en það munu alls vera um 250 manns. Að sögn Franks L. Sweeney, vara- forseta fyrirtækisins, telja þeir Háskólabió fullnægja kröfum þeirra, en þá þarf að stækka svið- ið. Um 600 milljónir manna munu að öllum likindum horfa á keppn- ina, hvar sem hún verður haldin, og þvi er mest áhersla lögö á góða sviðsetningu, þar sem hinn mikli fjöldi mun sjá keppnina i gegnum sjónvarpstækisinium 50löndum. Kostnaðarhliðin er órædd, en vist er að gifurlegur kostnaður dæm- istá tslendinga verði af keppninni hér, en auglýsingagildi fyrir landið er ótvirætt mjög mikið. Forráðamenn „Miss Universe” lögðu áherslu á að þeir væru ekki aðeins að leita að landi fyrir keppni á næsta ári, heldur væri verið að kanna möguleika fyrir næstu ár. — AS Einn handlekinn vegna fíkniefna lslendingur var handtekinn i Gautaborg i siðustu viku fyrir smygl og fikniefnabrot. Maður þessi mun hafa oftar en einu sinni komið við sögu slikra mála hér á landi og hlotið sinn dóm vegna þeirra. Að sögn fikniefnalögregl- unnar hér á landi, virðist mál þetta ekki mikið umíangs. islend- ingurinn, sem ér 26ára gamall, er nú i haldi lögregluyfirvalda i Gautaborg. —AS Tekínn fyrir innbrot Þremur dögum eftir að hafa af- plánað 8 mánaða dóm var 27 ára gamall maður aftur kominn af stað við afbrotaiðju sina. Nú um helgina var hann handtekinn en hann hafði losnað úr haldi 19. nóvember siðast liðinn. Maðurinn var úrskurðaður i gæsluvarðjald til 16. janúar á næsta ári. Nú er verið að kapna afbrotaferil hans hann losnaði úr haldi i nóvember. — AS Landstjóri Kanada til islands Landstjóri Kanada, Hichard Schreyer, kemur i opinbera heimsókn til islands næsta sum- ar. Schreyer heimsækir öll Norð- urlöndin i þessari ferð sinni og endar á Islandi, dagana 3.-5. júni. Landstjóri Kanada verður hér i boði Vigdisar Finnbogadóttur, forseta islands. VÍSIR Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI 1437 H Heimilisborvél Mótor: 320 wött Patróna: 10 mm Stiglaus hraðabreytir í rofa: 0-2600 sn./mín. 1417 H. Heimilisborvél Mótor: 420 wött Patróna: I3mm Stiglaus hraðabreytir í rofa og tvær fastar hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn./mín. Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta, svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubburog limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja við borvélina með einkar auðveldum hætti, SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð uppfinning SKIL verksmiðjanna. Auk ofan- greindra fylgihluta eru á boðstólum hjólsagarborð, láréttir og lóðréttir borstandar, skrúfstykki, borar, vírburstar, skrúfjárn og ýmislegt fleira sem eykur stórlega á notagildi SKIL heimilisborvéla. Eigum einnig fyrirliggiandi margar fleiri gerðir og stærðir af SKIL rafmagnshandverkfærum. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboö á Islandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670 Komið og skoðið, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. Athugið hvort SKIL heimilisborvél og fylgihlutir eru ekki hagnýt gjöf til heimilis ykkar eða vina ykkar. AÐRIR ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK: SÍS Byggingavörudeild, Suðurlandsbraut 32. Verslunin Brynja, Laugavegi 29. HAFNARFJÖRÐUR: Rafbúðin, Álfaskeiði 31.. KEFLAVÍK: Stapafell h/f. ÞINGEYRI: Kaupfélag Dýrfirðinga ÍSAFJÖRÐUR: Straumur h/f. HÓLMAVÍK: Kaupfélag Steingrimsfjarðar. BLÖNDUÓS: Xaupfélag Húnvetninga SIGLUFJORÐUR: Rafbær h/f. AKURÉYRI: Verslunin Raforka Handverk, Strandgötu 23. HÚSAVÍK: Kaupfélag Þingeyinga VOPNAFJÖRÐUR: Kaupfélag Vopnfirðinga EGILSTAÐIR: Verslunin Skógar SEYÐISFJÖRÐUR: Stálbúðin NESKAUPSSTAÐUR: Eiríkur Asmundsson HÖFN: Kaupfélag Austur-Skaftfellinga VÍK: Kaupfélag Skaftfellinga HERERBOKIN! HVERJU MA EG TRUA? eftir Harold Sherman Þetta er einstök bók um lífsspeki eftir hinn mikla frömuð rannsókna á yfirskil- vitlegum fyrirbærum, höfund bókanna DULARMÖGN HUGANS, LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN og AÐ SIGRA ÓTTANN, — Þeir sem glata trúnni lifa í ótta og óvissu um framtíðina, þá skortir öryggi. En er mögulegt að endurheimta það, sem glatazt hefur? Og hvernig vita menn hverju þeir mega trúa? Þessi bók er hreinskilið, presónulegt svar Harold Sherman við þessum brennandi spurningum. SKUGGSJA Frá örófi alda hafa draumar og vökusýnir fylgt mannkyninu. Draumurinn er margslungið ævintýri, sem menn ráða á ýmsa vegu, jafnvel hefur hver ráðandi sína eigin lausn, sinn eigin lykil að leyndardóminum. Hér segir fjöldi kunnra manna frá draumum sínum og vökusýnum. Hver segir frá á sinn sérstæða hátt, en sem heild mynda frásagnir þeirra óvenjulega og forvitnilega bók, sem stór hópur lesenda mun fagna. BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SF SÝNIR í SVEFNI OG VÖKU eftir Halldór Pjetursson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.