Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 334. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
N†TT KORTA
TÍMABIL
ERHAFI‹
Taktviss
Steintryggur
Slyngir slagverksleikarar leggja saman
á nýjum geisladiski Fólk í fréttum
Að láta lífið rætast | Hlín Agnarsdóttir
ræðir um nýja bók sína
Svartir englar | Ævar Örn Jósepsson
segir frá nýrri gæpasögu sinni
BókablaðMeð vindinn
í seglin
Los Angeles Lakers gengur allt í
haginn um þessar mundir Íþróttir
UNNT væri að auka verulega vel-
ferðina í Danmörku með því að koma
á eðlilegri samkeppni í ýmsum
greinum verslunar, þjónustu og
framleiðslu og lækka opinberan
stjórnunarkostnað. Vill rík-
isstjórnin, að að þessu verði unnið
skipulega næstu sjö árin.
Var þetta megininntakið í skýrslu
Bendts Bendtsens, efnahags- og at-
vinnulífsráðherra, um hagvaxt-
arhorfur á næstu árum. Í henni seg-
ir, að því er fram kemur í
Jyllands-Posten, að í 65 greinum sé
samkeppnin alls ónóg og valdi því,
að danskir neytendur greiði 4%
meira fyrir vöruna en neytendur í
þeim Evrópuríkjum þar sem sam-
keppnin er meiri. Hér muni 240
milljörðum ísl. króna.
Stjórnunarkostnaður
lækki um fjórðung
Fram kemur, að stjórnunarkostn-
aður í Danmörku, hjá ríki og sveit-
arfélögum, er mikill en tækist að ná
honum niður á það plan, sem algeng-
ast er í öðrum ESB-ríkjum, mætti
spara um 300 milljarða ísl. króna.
Það þýddi hins vegar, að hann yrði
að lækka um 25% fram til 2010.
Leggur Bendtsen einnig áherslu á,
að útflutningur aukist, þótt ekki
verði nema um 2% fram til 2010.
Stjórnin hefur það markmið, að
94.000 ný störf verði til á næstu sjö
árum, og segir Bendtsen, að það sé
forsendan fyrir því, að hægt verði að
halda uppi núverandi velferðarkerfi.
Samkeppni sögð alls ónóg
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, fagn-
aði í gær úrslitum þingkosninganna á
sunnudag sem styrktu mjög stöðu hans í
dúmunni, neðri deild rússneska þingsins.
Alþjóðlegir eftirlitsmenn sögðu hins vegar
að kosningabaráttan hefði ekki farið fram
með sanngjörnum hætti.
Fylgi Sameinaðs Rússlands, stærsta
flokks stuðningsmanna Pútíns, og annarra
bandamanna forsetans jókst mjög á kostn-
að kommúnista og tveggja frjálslyndra
flokka, Jabloko og Bandalags hægri
aflanna. Síðarnefndu flokkarnir tveir fengu
ekki nógu mikið fylgi til að þeim yrði út-
hlutað þingsætum og er þetta í fyrsta sinn
frá hruni Sovétríkjanna sem þeir fá ekki
landskjörna þingmenn.
Óttast eins flokks kerfi
Pútín sagði að kosningarnar hefðu eflt
lýðræðið í Rússlandi en eftirlitsmenn Ör-
yggis- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) sögðu að kosningabaráttan hefði
ekki farið fram á sanngjarnan hátt. Þeir
sökuðu stjórnvöld í Kreml um að hafa mis-
notað ríkisfjölmiðlana og opinbert fé til að
styðja stuðningsmenn Pútíns. Þingmanna-
samkunda Evrópuráðsins komst að þeirri
niðurstöðu að kosningarnar hefðu verið
„frjálsar en alls ekki sanngjarnar“.
Stjórn Bandaríkjanna kvaðst hafa
áhyggjur af málinu og hvatti dúmuna til að
koma á efnahagslegum og lýðræðislegum
umbótum. Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti for-
seti Sovétríkjanna, kvaðst hafa áhyggjur af
ósigri frjálslyndu flokkanna og sagði úrslit-
in geta leitt til eins flokks kerfis líkt og í
Sovétríkjunum á valdatíma kommúnista.
Fjárfestar létu einnig í ljósi miklar
áhyggjur af ósigri frjálslyndu flokkanna og
sigri þjóðernissinna. Þeir sögðu að úrslitin
gætu orðið til þess að hægt yrði á efnahags-
legum umbótum í Rússlandi. Olga Kryshta-
novskaja, virtur sérfræðingur í rússneskum
stjórnmálum, lýsti úrslitunum sem pólitísk-
um landskjálfta. „Lýðræðissinnarnir eru
ekki lengur á þingi,“ sagði hún. „Lýðræð-
ishreyfingin hefur verið eyðilögð.“
„Frjálsar
en alls
ekki sann-
gjarnar“
Eftirlitsmenn gagn-
rýna kosningabar-
áttuna í Rússlandi
Moskvu. AFP.
Nýr keisari/29
VOPNAÐ rán var framið í verslun
Bónuss á Smiðjuvegi 2 laust fyrir
klukkan átta í gærkvöldi. Tveir
menn, vopnaðir afsöguðum hagla-
byssum og með andlitið hulið, rudd-
ust inn um vöruafgreiðslu verslunar-
innar eftir lokun og ógnuðu
starfsfólki. Vöruafgreiðsludyr versl-
unarinnar voru hálfopnar þar sem
starfsmenn voru að ganga frá rusli,
en mennirnir höfðu lagt bifreið sinni
bak við ruslagám verslunarinnar og
biðu færis.
Fjögur ungmenni voru við störf í
versluninni, tveir piltar og tvær
stúlkur. Piltarnir voru í vöruaf-
greiðslunni þegar ræningjarnir
þustu fram með byssur á lofti og
hrópuðu að um vopnað rán væri að
ræða. Annar neyddi drengina inn á
kaffistofu þar sem hann lét þá fara
niður á hnén og hélt byssunni yfir
höfði þeirra á meðan hinn hljóp inn í
búðina þar sem stúlkurnar voru að
ganga frá og lét greipar sópa.
Eftir um fimm mínútur kom ræn-
inginn aftur út í vöruafgreiðsluna
með peningapoka og báðir hlupu út í
bílinn. Annar starfsmannanna hljóp
þá á eftir og gat gefið lögreglu grófa
lýsingu á bílnum.
Þakklát fyrir að vera á lífi
Lögreglan hóf þegar umfangs-
mikla leit að mönnunum og voru öll
lögregluembætti á höfuðborgar-
svæðinu virkjuð í þeirri leit. Um
hálfri klukkustund eftir að ránið var
tilkynnt stöðvaði lögreglan í Reykja-
vík bifreið á Hafravatnsvegi er svip-
aði til lýsingarinnar og handtók tvo
menn sem í henni voru. Í bifreiðinni
fundust tvær afsagaðar haglabyssur,
haglaskot og peningar í poka merkt-
um Bónus. Mennirnir voru þegar
fluttir í fangageymslur lögreglunnar
í Kópavogi og yfirheyrðir.
Starfsfólk Bónuss var í miklu upp-
námi og geðshræringu og verður því
byssu,“ sagði einn starfsmanna.
Einn heimildamaður Morgun-
blaðsins sagði rán sem þetta bera
vitni harðari raunveruleika eitur-
lyfjaheimsins þar sem hart er gengið
að fólki við rukkun á eiturlyfjaskuld-
um. „Þessi mál verða sífellt harðari.“
veitt áfallahjálp. Sagðist það þakk-
látt fyrir að vera á lífi og um leið í
losti yfir því að hafa staðið augliti til
auglitis við skotvopn á Íslandi. „Það
er eins og svona rán séu komin í
tísku, en maður bjóst ekki við að
menn kæmu og ógnuðu manni með
Starfsmönnum ógnað með hlaupstýfðum haglabyssum í Bónus á Smiðjuvegi
Látnir krjúpa á kné með
byssuhlaup yfir höfði sér
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan í Reykjavík handtók mennina á Hafravatnsvegi. Fjölmennu liði var stefnt á staðinn til aðstoðar
lögreglumönnum sem fundið höfðu bílinn, þar sem tilkynnt var að mennirnir væru vopnaðir.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglumenn rannsaka vettvang við vörumóttökudyrnar þar sem
mennirnir ruddust inn vopnaðir hlaupstýfðum haglabyssum.
Tveir ránsmenn
handteknir á
Hafravatnsvegi
hálftíma síðar
JÓHANNES Jónsson, forstjóri
Bónuss, segir ránið sér mikið
áfall. „Þetta er nýtt fyrir okkur
og við þurfum að taka á því og
læra að lifa með þessu.“ Jóhannes
segir að ekki hafi verið farið að
fullu eftir öryggisreglum. „En
það er nú þannig að þegar ekkert
gerist verða menn kærulausari.
Þetta verður til þess að það verð-
ur tekið á öryggismálum. En það
er náttúrlega skelfilegt að geta
búist við vopnuðu ráni á okkar
friðsæla landi. Ég er búinn að
vera við þessa matvöruverslun í
fjörutíu ár og aldrei upplifað
þetta fyrr. Þetta verður til þess að
reglurnar verða hertar og gengið
ríkar eftir því að þeim verði fylgt.
Ég er samt alsæll, þrátt fyrir allt,
að enginn skyldi verða fyrir tjóni.
Það er fyrst og fremst sorglegt að
svona skuli gerast.“
Reglur hertar