Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
ota frá Icelandair er ný-
lega komin úr hnatt-
reisu fyrir sænska
Bingó-lottóið. Flogið var
með vinningshafa í
þessa hnattferð eftir um árs und-
irbúning hjá Loftleiðum leiguflugi
sem bauð í verkefnið og fékk. Flug-
stjóri var Tómas Dagur Helgason og
fyrsta flugfreyja Björg Jónasdóttir
og sögðu þau ferðina hafa verið að
sumu leyti erfiða en hún gengið að
óskum og verið sérstök og skemmti-
leg reynsla.
Ferðin hófst í Gautaborg laug-
ardaginn 1. nóvember og lauk þar
undir lok nóvember. Loftleiðir leigu-
flug skipulagði ferðina í samvinnu
við sænsku ferðaskrifstofuna Ask
Mr. Nilsson og leigði TF-FIN,
B757-200 þotuna Bryndísi frá Ice-
landair til ferðarinnar. Unnu ýmsar
deildir Icelandair einnig að und-
irbúningnum og á hverjum flugvelli
sem staðnæmst var á fengu flug-
mennirnir flugáætlun frá flug-
umsjón Icelandair á Keflavík-
urfluvelli.
Gríðarlegur undirbúningur
„Það kom kannski einna mest á
óvart hversu gríðarlegs undirbún-
ings svona ferð krefst, hversu marg-
ar deildir koma þar við sögu,“ sagði
Björg Jónasdóttir í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. Undir
það tók Tómas Dagur sem segir að
það krefjist sérstakts undirbúnings
hjá flugmönnum að fljúga um slóðir
sem þeir hafði ekki farið um áður.
„Til að undirbúa ferðina sem best
heimsótti ég bæði British Airways
og Cargolux til að fá sem gleggstar
upplýsingar, kort og annað um
ókunn svæði og flugvelli sem við höf-
um ekki farið til áður.“
Þá þurfi einnig að semja við aðila
á öllum viðkomustöðum um af-
greiðslu á vélinni, kaup á eldsneyti
og matvælum og annarri þjónustu
en frá því var gengið áður en lagt
var af stað. Nokkuð af birgðum var
tekið með frá Íslandi og ýmsir vara-
hlutir og búnaður fyrir vélina. Með í
för var Erling P. Erlingsson flug-
virki sem sá um að yfirfara vélina í
hverri höfn og skoða hana. Aðrir í
áhöfn voru Gunnar Örn Hauksson
flugmaður, flugfreyjurnar Guðrún
Valgarðsdóttir, Birna Katrín Sig-
urlaugsdóttir og Tinna Sigurð-
ardóttir og Axel Guðmundsson flug-
þjónn. En var ekki áhugi hjá
mörgum að komast í svo áhugavert
verkefni?
Sama fólkið allan tímann
„Þeir voru kannski ekki eins
margir og maður gat ímyndað sér,“
segir Björg. „Það var farið fram á
góða sænskukunnáttu eða í skandin-
avísku og ýmis önnur skilyrði og svo
geta ekki allir komið því við að vera
næstum því mánuð í burtu. Þegar
áhöfnin hafði verið valin hittumst við
öll tvisvar áður en lagt var upp til að
undirbúa okkur.“ Þau Björg og
Tómas eru sammála um að þetta
hafi verið sérstök reynsla og segja
ferðina að mörgu leyti hafa verið erf-
iða. „Það er sérstakt að fara af stað
með flugvélina og farþegana og
halda síðan alltaf áfram á næsta
áfangastað með sömu vél sem beið
meðan við hvíldumst og farþegar
skoðuðu sig um og sama fólkið, bæði
í áhöfn og farþega,“ segir Tómas
Dagur. „Venjulega fljúgum við út og
heim með sömu áhöfn en nýjum far-
þegum og í Ameríkufluginu fljúgum
við út með eina vél og tökum aðra vél
heim með öðrum farþegum eftir
stutt stopp og í næstu ferð er enn
önnur vél og enn aðrir í áhöfn. Það
er því ný reynsla að ferðast og starfa
með sama fólkinu allan tímann og
við svona verkefni reynir mjög á allt
samstarf. Það tókst hins vegar með
miklum ágætum og engin alvarleg
vandamál komu upp, hvorki varð-
andi vél né áhöfn og eini vandinn
með farþega var að skilja varð eftir
hjón á einum stað vegna matareitr-
unar.“
Flugstjórinn í mörgum
hlutverkum
Björg segir að þar sem ferðin var
svo löng um ókunna viðkomustaði
hafi þurfi að skipuleggja vel öll inn-
kaup og matseðil fyrir hvern legg og
þar hafi sænska ferðaskrifstofan
lagt fram ákveðnar hugmyndir sem
unnið var út frá. Síðan hafi á hverj-
um stað þurft að ganga frá
greiðslum vegna þjónustu sem
keypt var fyrir vélina og það hafi
Tómas Dagur séð um. „Hann var því
í margs konar verkefnum auk þess
að vera flugstjóri því hann var gjald-
keri og skrifstofumaður og stuðpúði
fyrir okkur í áhöfninni allan tím-
ann.“
Flugleggirnir voru mislangir og
tímamismunurinn var á alla enda og
kanta. „Þá var gott að hafa klukkuna
í vélinni sem sýnir alltaf GMT og
unnum við út frá henni,“ segir Tóm-
as. „Þegar mismunurinn var orðinn
10, 12 eða 13 tímar vorum við hætt
að henda reiður á því hvaða dagur
var eða hvað tímanum leið en þarna
var fastur punktur sem við gátum
unnið út frá.“ Þau sögðu það hafa
verið sérstæða reynslu að fara yfir
daglínuna þegar skrúfa þurfti klukk-
una 23 tíma afturábak – og öllu meiri
verði tímaruglingurinn varla á
mönnum.
Í fylgd með herþotum
Og í Suður-Afríku voru móttök-
urnar sérstæðar, tvær herþotur
flugu upp að vélinni þegar hún var
komin í lofthelgi landsins – og fékkst
raunar leyfi til að fljúga um æfing-
arsvæði hersins – og flugu með
henni í um 15 mínútur. Sögðu þau
Björg og Tómas að það hefði öllum
þótt tilkomumikið, áhöfn og farþeg-
um og líka flugmönnum herþotn-
anna.
Þota frá Icelandair í hnattflugi fyrir sænska ferðaskrifstofu í samvinnu við Loftleiðir leiguflug
Erfið ferð
en skemmti-
leg reynsla
Tvær þotur frá flughernum í Suður
Afríku tóku á móti íslensku þotunni
þegar hún kom í lofthelgi landsins.
Hér er áhöfnin í stiga við þotuna í Phuket í Taílandi. Efstur er Erling P.
Erlingsson flugvirki, þá Tómas Dagur Helgason flugstjóri og Björg Jón-
asdóttir flugfreyja, næstar eru flugfreyjurnar Guðrún Valgarðsdóttir og
Birna Katrín Sigurðardóttir og síðan þau Gunnar Örn Hauksson flug-
maður, Tinna Sigurðardóttir flugfreyja og Axel Guðmundsson flugþjónn.
Tinna Sigurðardóttir og Per Er-
iksson, forstjóri sænska Bingó-
Lottósins, bera birgðir inn í vélina.
!
" #
$#
% &
'
()*+ #
" #
FERÐIN hófst í Gautaborg og
þaðan lá leiðin til Dubai þar
sem staðnæmst var í sólar-
hring, til Bangkok í Taílandi
þar sem einnig var dvalið í sól-
arhring og svo til Phuket,
einnig á Taílandi, en þar var
fjögurra daga dvöl. Eftir það
var haldið til Singapúr og þar
var sólarhringsstopp, til Sydn-
ey þar sem dvalið var í tvo
daga, til þriggja daga dvalar á
Tahítí með viðkomu í Auck-
land vegna eldsneytistöku, til
Páskaeyjar þar sem var
staldrað við í 11 tíma til elds-
neytistöku og áhafnarhvíldar,
og síðan til Brasilíu. Fyrst til
Iguazu þar sem viðdvölin var
11 tímar og síðan Rio de Jan-
eiro þar sem var tveggja daga
uppihald. Þaðan var svo hald-
ið yfir Atlantshafið til Suður-
Afríku með viðkomu í Wind-
hoek í Namibíu vegna elds-
neytistöku. Fyrst var dvalið í
Kruger í tvo daga dvöl og síð-
an haldið til Höfðaborgar en
þar var einnig tveggja daga
dvöl. Síðasti áfanginn var síð-
an til Gautaborgar með við-
komu í Accra í Gana til að taka
eldsneyti.
Í Höfðaborg bættist í hópinn
aukaáhöfn fyrir lokaflugið,
Gunnar Arthursson flugstjóri,
Guðrún Clausen flugfreyja og
Kristján Steinsson flugþjónn,
sem flugu með lokaáfangann
heim en strangar reglur eru
um hámarks flugvakt og
hvíldartíma. Flugtíminn var
alls 73 klukkustundir og ferð-
in 54.950 km.
Yfir 54 þús-
und km flug
RON Davis, upphafsmaður Davis-kerfisins fyrir
lesblinda, hélt fyrirlestur á listahátíð lesblindra á
sunnudag og ræddi þar bæði sögu kerfisins og
kom einnig inn á hvernig myndræna hugsunin
sem hann segir orsök lesblindunnar er mikilvæg
þegar kemur að listum.
„Hann sagði hreinlega að hann gæti ekki
ímyndað sér afburðamenn í listum eða afburða-
mann í íþróttum, eða stærðfræði án þess að þeir
byggju yfir náðargáfu lesblindunnar,“ segir Axel
Guðmundsson, Davis-leiðbeinandi og einn af for-
svarsmönnum vefsíðunnar Lesblind.com, sem
stóð fyrir listahátíðinni.
„Þátttakan var líklega eitthvað um 200 manns,
sem ég tel góðan árangur miðað við allt annað sem
er í gangi á aðventunni,“ segir Axel. „Þetta gekk
eiginlega alveg frábærlega vel.“ Bæði fullorðnir
og börn mættu og hlustuðu m.a. á Ron Davis, Axel
Guðmundsson, eina íslenska Davis-leiðbeinand-
ann og Valgerði Snæland, skólastjóra Smáraskóla.
Í anddyri Háskólabíós var sett upp sýning þar
sem lesblindir listamenn sýndu verk sín, og segir
Axel það hafa tekist mjög vel.
Axel segist finna fyrir miklum áhuga á þessu
kerfi hér á landi, og segir Ísland hafa tekið forystu
í heiminum í notkun þess í grunnskólum, en um
6% grunnskóla landsins, 12 skólar, hafa tekið upp
kerfið, og er það hærra hlutfall en í nokkru öðru
landi. Það eru kennararnir sjálfir sem leiða breyt-
inguna, og að sögn Axels er mikil ánægja meðal
þeirra kennara sem hafa prófað það.
„Við reiknum með að þetta hlutfall fari upp í 10
til 20 prósent næsta vetur, ég er bjartsýnn með 20
prósent en er öruggur með 10 prósentin,“ segir
Axel. Hann segir að áætlaður kostnaður við að
innleiða kerfið í skólakerfið í heild sinni sé með
öllu um 60 milljónir króna, og segir það góða fjár-
festingu.
Áskorun fyrir skólana
Valgerður Snæland Jónsdóttir, skólastjóri
Smáraskóla í Kópavogi, segir Davis-kerfið muni
breyta miklu fyrir skólana og starfsfólk þeirra, en
hún hélt fyrirlestur á listahátíðinni. Aðferðirnar
sem beitt er til að hjálpa lesblindum geta einnig
gagnast þeim sem eru ofvirkir eða með athygl-
isbrest, og er það alls ekki síðra, segir Valgerður.
Eitt af því sem Valgerður segir jákvæðast við
þetta kerfi er að með þessu er verið að snúa áliti
manna á lesblindu á haus, í stað þess að vera galli
verður hún kostur, hæfileiki sem hægt er að nýta.
Ron Davis ávarpaði vel sótta listahátíð lesblindra á sunnudag
Myndræn hugsun lesblindra mikilvæg í list
Morgunblaðið/Sverrir
Ron Davis, höfundur bókarinnar Náðargáfan
lesblinda, ræddi myndræna hugsun.
NIÐURSTÖÐUR sérstakrar rann-
sóknarnefndar um flugslysið í
Skerjafirði eru væntanlegar en að
sögn formanns nefndarinnar, Sig-
urðar Líndal lagaprófessors, er erf-
itt að tímasetja það nánar. Hefur
Sigurður lokið 160 síðna skýrslugerð
og er hún til þýðingar fyrir erlenda
nefndarmenn. Að fengnum athuga-
semdum frá þeim verður skýrslan
send nokkrum aðilum til andmæla.
Nefndin var skipuð fyrir um ári af
Sturlu Böðvarssyni samgönguráð-
herra. Var henni ætlað að rannsaka
frekar flugslysið í Skerjafirði 7.
ágúst árið 2000. Aðrir í nefndinni eru
Kjartan Norðdahl, flugstjóri og lög-
fræðingur, eftirlitsmaður frá Dan-
mörku og ráðgjafar frá Noregi og
Bandaríkjunum.
Flugslysið í Skerjafirði
Styttist í niður-
stöðu rann-
sóknarnefndar