Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 18

Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 18
WELCOME TO THE EXCITING WORLD OF HOSPITALITY MANAGEMENT Hospitality is the largest single industry in the world. It employs more than 40 million people and generates revenues exceeding $7 trillion. The hotel and tourism sectors are forecasted to create 5.5 million new jobs each year at least until 2010. Get the “Les Roches Advantage”  International prestige & recognition associated with a Swiss Hotel Association diploma or degree  Worldwide accreditation  Safe, majestic, and peaceful campus, located in the heart of Switzerland  Strong link to the hospitality industry  Founded in 1954 Our programmes  Intensive Language and Preparatory Course  Swiss Hotel Association Hotel Management Diploma  Bachelor of Business Administration in (Hospitality)  Post Graduate Diploma in International Hospitality  Master of Business Administration in (Hospitality) www.les-roches.ch 11th December 2003 at 6.00 pm Presentation at the Radisson SAS Saga Hotel Hagatorg, Reykjavik Conference room B for any questions: Gudjon Valberg, Tel. (354) 820-9920 Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Tískusýning hjá Félagi eldri borgara, jólamarkaðir og jólatónleikar er meðal þess sem setur brag á bæinn nú á aðventunni. Segja má með sanni að þarna sé komin upp- skera frá félagsstarfi haustsins. Fram- undan eru aðventutónleikar kóranna á Sel- fossi, koma jólasveinanna í bæinn og fjölmargt sem fylgir aðventunni. Eitt af því er jólaútvarp en tveir ungir menn standa að Sunnlensku jólastjörnunni og útvarpa á FM 105,1.    Stækkun Sjúkrahússins er mikið rædd meðal manna og finnst mörgum sem fjár- hæðin til þeirrar framkvæmdar sé ekki í takt við loforð þingmanna fyrir kosningar og yfirlýsingar landbúnaðarráðherra um málið nú á haustdögum eru hafðar í flimt- ingum. 100 milljónir eru á fjárlögum til verksins og einhver viðbót úr fram- kvæmdasjóði aldraðra, kannski 40 millj- ónir, en verkið kostar þúsund milljónir. Fólki svíður að horfa upp á starfrækslu hjúkrunardeildar aldraðra á Ljósheimum í húsakynnum sem Heilbrigðiseftirlitið hefur dæmt óhæft til starfseminnar. Það má því búast við verulegri umræðu um málið en fólk er orðið óþolinmótt í garð þingmanna og sveitarstjórnarmönnum finnst lítið ganga.    Bæjarstjórn Árborgar undirbýr nú fjár- hagsáætlun sína en komið hefur í ljós að þar virðist lítið svigrúm vera til athafna, rekstrarkostnaður bæjarfélagsins tekur til sín 98% af tekjum. Það mun því reyna veru- lega á bæjarstjórnarmenn í hagræðing- arvinnu. Hinn stöðugi vöxtur byggðarinnar kallar á stofnframkvæmdir við þjón- ustustofnanir en nýr skóli er í byggingu ásamt því að verulegar gatnagerð- arframkvæmdir standa yfir. Mikil eft- irspurn er eftir lóðum og er hún talin halda áfram og ljóst er að næsta nýja bygging- arland verður í nágrenni við flugvöllinn. Það er dálítið kurrað á götuhornum yfir sérstakri stöðu í Ráðhúsi Árborgar en fyrir einhvern klaufaskap láðist að segja upp endurskoðendum bæjarreikningsins áður en nýr endurskoðandi var ráðinn og nú sit- ur bæjarstjórn uppi með tvær endurskoð- endaskrifstofur.    Selósmenn fagna 30 ára afmæli fyrirtækis síns en þarna er á ferðinni trésmíðaverk- stæði mannað einstökum hagleiksmönnum og framleiðsla þeirra er landsþekkt í inn- réttingasmíði og húsbyggingum. Hjá Selós vinna nú tíu manns. Úr bæjarlífinu SELFOSS EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA Bændur á Bjólu íRangárþingimunu hafa verið fyrstir íslenskra bænda til að fá sér sjálfvirkan, tölvustýrðan mjaltaþjón haustið 1999. „Við erum mjög ánægð með róbót- ann,“ segir Sæmundur B. Ágústsson, bóndi í Bjólu, á fréttavefnum Suður- land. „Nytin í kúnum hefur allavega aukist síðan við fengum hann, en þar geta líka fleiri þættir spilað inn í svo sem betri hey. Þær kýr sem mjólka mik- ið fara þrisvar til fjórum sinnum á dag í mjöltun. Þetta fer miklu betur með kýrnar, þær standa ekki troðjúgra og þeim líður betur,“ segir Sæ- mundur. Mjaltaþjónn Þrír nemendur í Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykj-um eru með 100% mætingu á haustönn 2003.Þetta þýðir að þau hafa mætt í hvern einasta tíma á önninni og aldrei komið of seint. Tæpast er þessi árangur einstæður, en er samt athyglisverður enda mikilvægt í skólastarfi sem öðrum störfum að mæta vel til þeirra verka, sem bíða á hverjum degi. Nemend- urnir þrír eru Haraldur Guðmundsson á skógrækt- arbraut, Unnur Guðmundsdóttir og Stefán Árnason, sem bæði eru á garðplöntubraut. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Til fyrirmyndar Við lok þriðju um-ræðu fjárlagaveitti Jón Bjarna- son Vinstri grænum and- svör við ræðu fjármála- ráðherra. Hann sagði hagvöxt ekki einhlítan mælikvarða um vel- gengni í þjóðfélaginu, t.d. yxi hann ef menn keyptu hesta eða seldu. En Jón er þingmaður Skagfirðinga eins og kunnugt er. Af þessu tilefni sendi Hall- dór Blöndal, forseti Al- þingis, Jóni þessa vísu: Braskið hagvöxt hækkar mest hæpið af því að raupa. – Kannski Jón á Hólum hest hugsi sér að kaupa? Enn er ort um drauga- lega ræðu biskups á Stokkseyri. Ræðan bannar myrkrið við að makka, mögnuð var hún, greinirðu ekki gráan blett í hnakka Garún, Garún. Hagvöxt hækkar pebl@mbl.is Fagridalur | Á Norður-Götum í Mýrdal er þetta gamla hlóð- areldhús, um einnar aldar gam- alt, enn þá uppistandandi og stendur það umkringt fallegum grenitrjám. Þegar snjór er yfir öllu dettur manni í hug gamalt jólakort. Í heimsókn fréttaritara að Norður-Götum fyrir rúmri viku fylgdi Saxi heimilishundur á Götum honum og stillti sér upp til myndatöku ánægður með at- hyglina. Snjó hefur að mestu tekið upp á þessum slóðum þó einstaka skaflar séu enn. Hvort jólin verða rauð eða hvít skal ósagt látið og þeim sem spá um veður í fjölmiðlum látið eftir að deila um slíkt. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Jólalegt á Norður-Götum Póstkort „SÍMINN hefur ekki tekið ákvörðun um að setja upp örbylgjusenda,“ segir Eva Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Símans, þegar hún var spurð hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu að Sím- inn bjóði upp á slíka þjónustu á lands- byggðinni. Nýlega var fyrsti örbylgjusendirinn sem gefur möguleika á sítengingu í gegn- um háhraða netsamband formlega tekinn í notkun, en fyrirtækin eMax, Toppnet í Þorlákshöfn og TRS á Selfossi settu send- inn upp í Grímsnes- og Grafningshreppi í samvinnu við sveitarfélagið. Eva bendir á að Síminn hafi lagt mikla vinnu í uppbyggingu á ADSL-þjónustu á landsbyggðinni og ekki sé um sambæri- legar lausnir að ræða. ADSL-þjónustan sé fyrst og fremst tæknilega sniðin fyrir þétt- býliskjarna en ekki fyrir dreifbýli. „ADSL- þjónustan nær til 93% þjóðarinnar og Sím- inn er eina fjarskiptafyrirtækið sem byggir upp þessa þjónustu á landsbyggðinni,“ segir hún. Örbylgju- sendar ekki á dagskrá Reykhólar | Fimm milljóna króna fjárveit- ing hefur verið sett inn í samgönguáætlun til að bæta götulýsingu í Reykhólaþorpi, en Reykhólahreppur óskaði eftir því við Vegagerðina fyrir rúmu ári að sett yrði upp götulýsing við Maríu- tröð. Fjárveitingin mun duga til að setja upp lýs- ingu frá kirkjunni og rétt upp fyrir Jónsbúð. Einnig á að bæta lýsingu á milli Hellisbrautar og Suðurbrautar. Götulýsingu hefur verið ábótavant í Reykhólaþorpi og kemur fram á heimasíðu Reykhólahrepps að götulýsingu vanti á þann hluta Hellisbrautar sem er óbyggður og síðan vanti lýsingu á Maríutröð frá kirkjunni að rimlahliðinu. Í þessum hluta þorpsins ríkir svartamyrkur í skammdeg- inu, segir á heimasíðunni, og er það talið mjög bagalegt, einkum og sér í lagi vegna þess að ekki er hægt að komast að einu versluninni á staðnum, Jónsbúð, nema fara eftir þessum myrkvuðu götum. Við bætist svo nær alger skortur á gangstéttum og göngustígum. Vegagerðin á að sjá um götulýsingu á Maríutröð en hreppurinn á að sjá um lýsingu á Hellisbraut. Skortur á götulýsingu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.