Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Kerruljós
Keflavík | „Passíusálmar Hall-
gríms Péturssonar voru hluti af
mínum uppvexti. Alltaf á föstunni
var hlustað á lestur Passíusálm-
ana í útvarpinu og sumir lásu með
í sínum bókum, sérstaklega móð-
urafi minn. Það hafði ekki síður
áhrif á mig þegar ég sat við
sjúkrabeð hans löngu síðar, að
hlusta á hann þylja upp pass-
íusálmana þegar allt annað var
honum horfið,“ sagði Sigurður
Sævarsson, tónskáld í Keflavík, í
samtali við Morgunblaðið en hann
vinnur nú að smíðum á Hallgríms-
passíu.
Fyrir skömmu fékk Sigurður
menningarstyrk frá Reykjanesbæ
til þess að ljúka við gerð Hall-
grímspassíu, sem hann hefur verið
með í smíðum í rúm tvö ár. Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfundur
fékk einnig styrk til að ljúka við
skráningu ævisögu Guðríðar Sím-
onardóttur, konu Hallgríms, og
nýverið sendi Úlfar Þormóðsson
frá sér sögulega skáldsögu um
Tyrkjaránið. Blaðamaður spyr
Sigurð um þennan áhuga á Hall-
grími og Guðríði. „Fyrir utan
mína persónulegu reynslu af Pass-
íusálmunum þá held ég að saga
þeirra og örlög veki áhuga. Fyrir
mér eru Passíusálmarnir mjög
merkilegt verk sem allir ættu að
kynnast, einhverntímann á lífsleið-
inni. Saga þeirra hjóna er stór
hluti af menningararfi okkar Suð-
urnesjamanna og ég held að við
viljum halda honum á lofti,“ sagði
Sigurður.
Tónelsk fjölskylda
Sigurður á ekki langt að sækja
tónlistaráhugann. Sem barn sat
hann á píanóbekk móður sinnar,
Ragnheiðar Skúladóttur, og hlust-
aði og horfði á hana spila. Píanó-
leikur Ragnheiðar hafði þó ekki
bara áhrif á Sigurð, því systkini
hans tvö, Sigrún og Jóhann Smári
starfa einnig við tónlist. „Ég fór
nú bara þessa hefðbundnu leið í
tónlistarnámi. Ég byrjaði að læra
á blokkflautu þegar ég var 6 ára
en fór svo að læra á fiðlu. Ég þótti
hafa gott tóneyra og var því send-
ur í fiðlutíma að beiðni skólastjór-
ans,“ sagði Sigurður. Hann breytti
svo yfir í saxófón á unglingsárun-
um og endaði í söngdeildinni um
tvítugt. Áttunda stigið kláraði
hann í Nýja tónlistarskólanum í
Reykjavík, hjá þeim Sigurði Dem-
etz og Alinu Dubik og hélt að því
loknu til Boston í framhaldsnám.
„Ætlun mín var að einbeita mér
að söngnum, mér fannst það
brýnna aldursins vegna. Ég hafði
hins vegar verið að fikta við tón-
smíðar í Tónlistarskóla Reykjavík-
ur og þar með var áhuginn vakinn.
Ég tók því tónsmíðar og tónfræði
samhliða söngnum í Boston og út-
skrifaðist með mastersgráðu í
söng árið 1996 og mastersgráðu í
tónsmíðum ári síðar.“
Eftir heimkomuna fór Sigurður
að kenna, bæði á Suðurnesjum og
í Reykjavík og fyrir árin tók hann
sér árs leyfi frá stjórn Tónlistar-
skóla Gerðahrepps til þess að
sinna störfum skólastjóra Nýja
tónlistarskólans, þar sem hann
starfar nú samhliða tónsmíðunum.
„Nú starfa ég með mínum gömlu
kennurum sem mér fannst í fyrstu
nokkuð einkennilegt.“
Sigurður segir að stykveitingin
hafi verið mikil hvatning en að
baki Hallgímspassíu er mikil vinna
sem að mestu hefur verið unnin í
kyrrþey. „Mesta vinnan hefur far-
ið í styttingu á sálmunum og ég
fékk við það góða aðstoð frá móð-
urbróður mínum, Ólafi Skúlasyni.
Ég hef að mestu leyti einbeitt mér
að sögulega hluta sálmanna, en
tek þó að einhverju leyti með út-
leggingar Hallgríms á sögunni.
Byggingin er ekki ósvipuð klass-
ískri óperu, sagan stöðvast á með-
an arían, eða í þessu tilfelli íhugun
Hallgríms, er flutt,“ sagði Sig-
urður, sem áður hefur unnið óperu
upp úr bókmenntaverki, Z-
ástarsögu eftir samnefndri skáld-
sögu Vigdísar Grímsdóttur, sem
frumflutt var á Ljósanótt í
Reykjanesbæ árið 2000. Hann
segist sjá fyrir sér að Hallgríms-
passía verði flutt á föstunni, þó
ekki þeirri næstu, þar sem mikið
verk sé enn óklárað og að gott sé
að leggja verkið frá sér í einhvern
tíma og skoða aftur með gagn-
rýnum hug.
Sérlegur aðstoðarmaður
Undir lok viðtals sest Sigurður
við píanóið, en þar fara tónsmíð-
arnar fram. „Patentinum“ hefur
verið komið fyrir á hljóðfærinu en
það er standur sem faðir hans,
Sævar Helgason, málari og lista-
maður, útbjó fyrir Sigurð, þegar
ljóst var að pappírsmagnið sem
smíðunum fylgdi var of mikið fyrir
píanóhilluna. Heimiliskötturinn
Mjása kemur sér líka haglega fyr-
ir á píanóbekknum, rétt eins og
Sigurður gerði hjá móður sinni
forðum. Að sögn Sigurðar er
Mjása sérlegur aðstoðarmaður við
smíðarnar, þótt heyrnarlaus sé.
Henni finnst líka gaman að láta
taka af sér myndir og stillir sér
upp um leið og hún sér myndavél.
Skýringuna er sjálfsagt að finna í
því að Mjása fór með hlutverk
dauða kattarins í kvikmyndinni
„Didda og dauði kötturinn“ og
kann því ýmislegt fyrir sér í þeim
efnum.
Sigurður Sævarsson tónskáld situr við að semja Hallgrímspassíu
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sérlegur aðstoðarmaður: Heimiliskötturinn Mjása er listamaður eins
og Sigurður tónskáld, hefur farið með hlutverk í kvikmynd.
Sterk upplifun allt frá bernskuSandgerði | Meirihluti bæjarstjórnarSandgerðis leggur til að leiga í fé-
lagslega íbúðarkerfinu hækki um
25% frá næstu áramótum. Leigan
hækkar við það um 10 þúsund krón-
ur á mánuði, í 51.510 krónur.
Í tillögu meirihlutans sem kynnt
var á bæjarstjórnarfundi fyrir
skömmu kemur fram að fyrirhuguð
hækkun er vegna halla á rekstri fé-
lagsíbúðakerfisins. Í greinargerð
kemur fram að húsaleiga hafi ekki
breyst í langan tíma og leigan hafi
verið og sé enn lægri en almennt
leiguverð íbúða á svæðinu. Jafn-
framt er lagt til að húsaleiga aldr-
aðra í Miðhúsum verði samræmd
leigu Búmanna. Þá er stefnt að því
að breytingar á húsaleigu sem kenn-
arar greiða og niðurgreiðslu hennar
taki gildi 1. ágúst næstkomandi.
Hækka húsaleigu
um 25%
ÁTTA bílar lentu í einni kös í
Kaupvangsstæti ofan við mót Eyr-
arlandsvegar eftir hádegi í gær.
Þorsteinn Pétursson lögreglu-
maður sem var á vettvangi sagði
að ekki lægi fyllilega ljóst fyrir
hver upptök árekstursins væru.
Hann varð skömmu eftir útför frá
Akureyrarkirkju og var margt
manna á leið frá kirkjunni og var
fjölda bíla lagt upp með Kaup-
vangsstræti svo sem vani er þegar
athöfn er í kirkjunni. Sagði Þor-
steinn að svo virtist sem einn
bílanna, sá fjórði í röðinni hefði
stansað og sá fimmti lent aftan á
honum. Við það hefði hrinan farið
af stað og endað með því að átta
bílar lentu saman. Að sögn Þor-
steins voru bílarnir misjafnlega
skemmdir, en allir lítið enda allir á
lítilli ferð. „Það er dapurlegt til
þess að vita að fólk sé að reyna að
aka Gilið við þær aðstæður sem
þarna voru, snjókoma og hiti við
núllið,“ sagði Þorsteinn, en hann
sagði bæjarbúa hafa um aðrar leið-
ir að ræða til að komast leiðar
sinnarmilli bæjarhluta, Brekku og
miðbæjar.
Morgunblaðið/Kristján
Lögregla og bílaeigendur skoða verksummerki á bílastæði í Gilinu, þar sem átta bílar runnu saman í mikilli hálku.
Átta bílar í einni kös
SAMNINGUR um innleiðingu á
sjúkraskrárkerfinu Sögu hefur
verið undirritaður á milli Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og
eMR hf.
Fyrirhugað er að setja hugbún-
aðinn upp á þremur deildum til
að byrja með, barnadeild, bækl-
unardeild og háls-, nef- og eyrna-
deild. Með þessu er verið að stíga
skref í þá átt að skráning sjúkra-
upplýsinga verði á rafrænu
formi.
Með því að taka upp rafrænt
sjúkraskrárkerfi ætlar stofnunin
að bæta gæði heilsufarsgagna, en
það leiðir til betri úrvinnslu-
möguleika sem nýtast í rannsókn-
arstarfi innan stofnunarinnar en
ekki síður sem grunnur fyrir
kostnaðargreiningu.
Síðast en ekki síst mun þetta
leiða til betri þjónustu við sjúk-
linga segir í frétt á heimasíðu
FSA.
Um er að ræða útbreidda hug-
búnaðarlausn sem er sérsniðin að
þörfum heilbrigðisstarfsemi og
því má gera ráð fyrir töluverðri
vinnuhagræðingu hjá starfsfólki.
FSA stefnir að því að vera í
fremstu röð hvað varðar upp-
byggingu á rafrænum upplýs-
ingakerfum í heilbrigðisþjónustu
og má í því sambandi nefna að
stofnunin hyggst vera í stakk bú-
in til að senda læknabréf rafrænt
innan tíðar, fyrst heilbrigðis-
stofnana á landinu.
Stefnt að rafrænum
læknabréfum innan
skamms
Jólatré stolið | Tilkynnt var til
lögreglu á sunnudag að 150 sentí-
metra háu jólatré hafði verið stol-
ið, en það stóð utan við aðal-
inngang að húsi við Klettaborg.
Var jólatréð ljósum prýtt og eru
allar upplýsingar um afdrif þess
vel þegnar, segir í dagbók lög-
reglu.
Rúða var brotin | í tengibyggingu
heimavistar MA um helgina. Sá er
tilkynnti um verkið sagði fjóra
drengi hafa komið þar að og einn
þeirra sparkað í hurð með þessum
afleiðingum.
Þá var ekið á fjóra bíla sem stóðu
við Bílasölu Toyota. Sá á framenda
þriggja þeirra og frambretti þess
fjórða. Lögregla biður þá sem geta
gefið upplýsingar um þessi mál að
hafa samband.
Tungumálakennsla| Auður
Hauksdóttir, dósent við Háskóla Ís-
lands og forstöðumaður Stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur, flytur er-
indi á fræðslufundi í kennaradeild
Háskólans á Akureyri í dag, þriðju-
daginn 9. desember.
Í erindi sínu mun Auður fjalla um
strauma og stefnur í tungumála-
kennslu á grundvelli rannsókna
sinna en doktorsverkefni hennar,
sem hún varði við Kaupmannahafn-
arháskóla 2001, laut að kennsluað-
ferðum tungumálakennara og færni
nemenda í dönsku. Fundurinn verð-
ur haldinn í Þingvallastræti 23 stofu
24 og hefst kl. 16.15.
SUÐURNES
Sveitarfélagið Garður | Örnefna-
nefnd mælir með nafninu Sveitarfé-
lagið Garður þegar formi Gerða-
hrepps verður breytt úr hreppi í
bæjarfélag sem stefnt er að um ára-
mót. Hreppsnefndin hafði spurst
fyrir um möguleika á að taka upp
nafnið Garður.
Hreppsnefnd Gerðahrepps gerði
ekki athugasemdir við þessa tillögu
á síðasta hreppsnefndarfundi. Sam-
þykkti hún að fela sveitarstjóra að
vinna að því að ljúka málinu.