Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 24
LANDIÐ
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vestmannaeyjar | Fundur var nýverið haldinn
hjá Ægisdyrum, áhugafélagi um jarðgöng
milli lands og Eyja. Rúmlega hundrað manns
mættu á fundinn þar sem dr. Ármann Hösk-
uldsson kynnti niðurstöður rannsókna á jarð-
laginu þar sem hugsanleg göng yrðu grafin.
Reyndar eru þetta ekki lokaniðurstöður en Ár-
mann er nú farinn til Bandaríkjanna þar sem
gengið verður frá skýrslu um málið.
Margt athyglisvert kom fram í máli Ár-
manns, m.a. nýjar hugmyndir um hvernig
svæðið varð til. Miðað við frumniðurstöður er
ekkert sem kemur í veg fyrir að hægt sé að
grafa göng milli lands og Eyja.
Ingi Sigurðsson, formaður stjórnar Æg-
isdyra, var mjög sáttur við fundinn. Ingi sagði
að næsta skref stjórnar væri að þrýsta á þing-
menn kjördæmisins að beita sér fyrir frekari
fjármögnun rannsókna. „Það skiptir höfuðmáli
í þessu verkefni að fá þær áttatíu milljónir sem
þarf til að klára rannsóknir strax enda hefur
það verið gefið út að ákvörðun um framtíð-
arsamgöngumáta við Vestmannaeyjar verður
tekin á árinu 2005 og þá höfum við aðeins eitt
sumar til að hafa jarðgöng með í þeim málum.“
Ingi leggur áherslu á það að ef af þessu verður
þýði það ekki að ríkið þurfi að leggja til nokkra
milljarða í verkefnið á einu bretti.
Framlagið í Herjólf fari í göngin
„Við höfum lagt þetta svoleiðis upp að fram-
lagið sem fer í rekstur Herjólfs í dag fari í
göngin. Síðan finnst okkur það sanngirnismál
að sú upphæð verði hækkuð sem svarar bygg-
ingu nýs Herjólfs, enda fer að koma tími á nú-
verandi skip.“ Ingi segir það grundvallaratriði
að málið sé vel kynnt og að göngin nýtist ekki
aðeins Vestmannaeyingum. „Þetta stækkar at-
vinnusvæðið á Suðurlandi til muna og verður
þetta þriðja stærsta atvinnusvæði landsins á
eftir Reykjavík og Reykjanesi.“
Spurður um hvað svona göng kosti segir
hann að í útreikningum sínum sé gert ráð fyrir
20 milljörðum. „Annars skiptir ekki höfuðmáli
hvort göngin kosta 17 eða 20 milljarða. Það
sem skiptir öllu og er í raun grundvall-
arforsenda þess að verkefnið gangi upp er að
við fáum ríkisábyrgð á lánum. Þá er vaxtapró-
sentan svo miklu lægri og hvert prósent í við-
bót þýðir tíu til fimmtán ára seinkun á því að
göngin borgi sig upp,“ sagði Ingi en áætlað er
að þau borgi sig upp á fimmtíu árum.
Stefna stjórnar Ægisdyra var frá upphafi að
ná þúsund manns inn í félagið sem stofnfélaga
og nálgast þau nú það markmið. Nú þegar eru
750 manns á félagsskrá en ennþá á eftir að
ganga frá nokkrum félögum inn í skrána. Ingi
er ekki alls kostar sáttur við frammistöðu
þingmanna kjördæmisins en fyrirhuguðum
fundi með þeim sem vera átti á föstudaginn
hefur verið frestað. „Það hefur gengið mjög
illa að fá fund með þingmönnunum,“ sagði Ingi
og bætti við að það væri langt síðan þau báðu
um fund með þingmannaliðinu.
Víða jákvæð viðbrögð
„Það eru ákveðnir þingmenn sem sýna
þessu máli meiri áhuga en aðrir.“ Ingi sagði að
það sem vakir fyrir þeim sé einfaldlega að fá
þingmenn kjördæmisins til að beita sér fyrir
þeim áttatíu milljónum sem þarf til að halda
rannsóknum áfram. „Hins vegar höfum við
fundið fyrir jákvæðum viðbrögðum víða úr
kerfinu og meðal annars frá samgöngunefnd
og samgönguráðherra sem hafa lýst ánægju
sinni með stöðu málsins og hrósuðu félaginu
fyrir það hvernig málið hefur verið kynnt,“
sagði Ingi að lokum.
Talið mögulegt að grafa göng milli lands og Eyja
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ingi Sigurðsson, fv. bæjarstjóri, flutti fram-
söguræðu um möguleika á jarðgöngum.
Sauðárkrókur | Í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 9. desember, munu nokkrir
rithöfundar lesa úr nýútkomnum
bókum sínum á Kaffi Króki á Sauð-
árkróki og hefst upplesturinn
klukkan 20. Eftirtaldir rithöfundar
lesa: Einar Kárason (Stormur),
Guðmundur Steingrímsson (Áhrif
mín á mannkynssöguna), Sig-
urbjörg Þrastardóttir (Túlípana-
fallhlífar), Vigdís Grímsdóttir (Þeg-
ar stjarna hrapar) og Þorgrímur
Þráinsson (Svalasta 7an). Aðgang-
ur er ókeypis.
Lesa úr bókum sín-
um á Sauðárkróki
Ísafjörður|Samkvæmt frum-
varpi fjárhagsáætlunar Ísa-
fjarðarbæjar fyrir næsta ár
verður hallinn á bæjarsjóði 362
milljónir króna. Heildartekjur
eru áætlaðar 1.844 milljónir en
útgjöld 2.206 milljónir króna.
Hæsti einstaki útgjaldaliðurinn
er launagreiðslur, en 44% af öll-
um útgjöldum Ísafjarðarbæjar
fara í greiðslur launa.
Fræðslumál fjárfrekust
Þeir málaflokkar sem mest
taka til sín í rekstri eru
fræðslumál með 666 milljónir
króna, æskulýðs- og íþróttamál
189 milljónir, félagsþjónustan
105 milljónir, umhverfismál og
almannavarnir 153 milljónir
króna og menningarmál 59
milljónir.
Helstu verkefni bæjarins eru
samkvæmt frumvarpinu fram-
kvæmdir við Grunnskólann á
Ísafirði, bygging nýs íþrótta-
húss á Suðureyri og kaup á
nýrri slökkvibifreið. Sérstakt
átak verður gert í malbikun
gatna og vatnsveitu- og hol-
ræsaframkvæmdum. Lokið
verður við fyrsta áfanga í end-
urbyggingu Ásgeirsbakka við
höfnina, kaup á nýjum hafn-
sögubáti og uppsetningu ör-
yggisgirðingar og staura-
bryggju í Sundahöfn.
Afgreitt 18. desember
Hefur bæjarstjórn þegar
tekið frumvarpið til fyrri um-
ræðu en það verður afgreitt á
fundi bæjarstjórnar 18. desem-
ber nk.
Fjárhagsáætlun
Ísafjarðarbæjar
Nær helm-
ingur út-
gjalda í
launamál
Hólmavík | Slagverkshópurinn Benda
heimsótti nemendur í Grunnskólanum á
Hólmavík og Drangsnesi á dögunum.
Heimsóknin var liður í verkefninu „Tónlist
fyrir alla“, sem býður upp á árlega heim-
sókn tónlistarmanna í skólana. Slagverks-
hópinn Bendu skipa þeir Eggert Pálsson,
Pétur Grétarsson og Steef van Oo-
osterhout. Dagskrá þeirra byggðist á ferð
yfir heimshöfin, þar sem tónar fjölbreyttra
slagverkshljóðfæra sem eru upprunnin frá
ýmsum heimshlutum fengu að njóta sín.
Óhætt er að segja að tónlistin hafi heillað
nemendur sem áttu auðvelt með að ferðast
í huganum og dilla sér í takt við tónlistina.
Fjölbreytileiki hljóðfæranna og tónanna
sem þau gáfu frá sér virtist óendanlegur
og þannig héldu börnin óskiptri athygli þá
40 mínútna kennslustund sem tónleikarnir
stóðu yfir. Á eftir höfðu tónlistarmennirnir
nóg að gera við að gefa eiginhandarárit-
anir og höfðu viðstaddir á orði að það væri
ekki á hverjum degi sem slagverksleikarar
stæðu í því að gefa eiginhandaráritanir.
Ferðast
í tónum
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Áhugasamir áheyrendur heilluðust af meðferð slagverkshópsins Bendu á slagverkshljóðfærum.
Laugarvatn | Hefð hefur skapast
fyrir því að tendra jólaskreytingar
á Laugarvatni laugardaginn fyrir
fyrsta sunnudag í aðventu. Þá
skapast svolítið andrými hjá skóla-
fólkinu sem er að undirbúa sig fyr-
ir prófatörnina eftir að kennslu
haustannarinnar lýkur. Heima-
menn setja þá upp skreytingar á
hús sín og garða. Kveikt er á trjám
við Grunnskólann og í lundi Bjarna
Bjarnasonar, fyrsta skólastjóra
Héraðsskólans. Jólamarkaður
kvenfélagsins er haldinn þennan
dag og endað með því að kveikt er
á skrautlýsingu á Héraðsskólanum
og kertum fleytt á kyrrlátu vatninu
við gufubaðið. Fjöldi fólks tók þátt
að þessu sinni í kyrrlátu vetrar-
veðri.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Jólin eru komin í listgalleríið á Laugarvatni og allt þorpið farið að skrýðast
jólaljósum. Í galleríinu eru nú handunnir listmunir, sem tengjast jólunum,
eftir fjölda listamanna víðsvegar af landinu til sýnis og sölu.
Laugarvatn í jólafötin
Flúðir|Flúðasveppir fengu umhverf-
isverðlaun Hrunamannahrepps fyrir
árið 2003 sem veitt voru á dögunum.
Það voru hjónin Mildrid Steinberg
og Ragnar Kristinn Kristjánsson
sem tóku við verðlaununum fyrir
hönd fyrirtækisins. Í umsögn um-
hverfisnefndar hreppsins segir að
þau hjón séu vel að viðurkenning-
unni komin enda sé umgengni við
Flúðasveppi til fyrirmyndar.
Viðurkenningin á að vera hvatn-
ing til íbúa og fyrirtækja í Hruna-
mannahreppi þar sem mikil mat-
vælaframleiðsla fer fram og
umgengni þarf að vera góð. Snyrti-
legt umhverfi í hreppnum er einnig
jákvætt fyrir ímynd svæðisins og á
sinn þátt í að styrkja vaxandi ferða-
mennsku.
Flúðasveppir voru stofnaðir árið
1984 og eru þar framleiddir mat-
sveppir fyrir innanlandsmarkað.
Starfsmenn eru 25 og er þeim þakk-
að fyrir sinn þátt í umhverfisverð-
laununum.
Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar-
stjóri og Ragnar Magnússon, for-
maður umhverfisnefndar, afhentu
verðlaunin sem eru útskorin plata
með tákni fegurri sveita. Þetta var í
fyrsta sinn sem umhverfisverðlaunin
voru veitt og jafnframt var þetta
fyrsta embættisverk Ísólfs Gylfa
Pálmasonar sem sveitarstjóra
Hrunamannahrepps.
Flúðasveppir verðlaunaðir
Umgengni við fyrir-
tækið til fyrirmyndar
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Mildrid og Ragnar hjá Flúðasveppum taka við umhverfisverðlaununum úr
hendi Ísólfs Gylfa Pálmasonar, nýráðins sveitarstjóra Hrunamannahrepps.