Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 32
MINNINGAR 32 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ E kki alls fyrir löngu var ég beðin að halda ræðu á fundi Samtaka herstöðva- andstæðinga. Það fannst mér svo sannarlega heiður enda hin bestu samtök. Þessi ræða fékk mig hins vegar til að velta því fyrir mér hvers vegna ég er á móti veru hersins hér á landi. Einu sinni var mér alveg sama og síðar var ég móti en vissi samt aldrei almennilega hvers vegna. Ég var lengi að samþykkja að halda þessa ræðu enda gerði ég mér grein fyrir að það tæki þó nokkurn tíma í und- irbúningi að fjalla um mál sem ég taldi mig hafa litla þekkingu á. Vitrunin kom þó einn daginn þegar ég brá mér úr blaðamanns- hlutverkinu til að kenna fimm ára börnum í einum skóla landsins. Þá varð mér hugsað til þeirra ótal leiðtogahlutverka sem ég hef tekið að mér og þá oftast með börnum og unglingum. Eitt er það sem hefur verið sameig- inlegt með starfi mínu sem leið- togi, sama hvaða hópa er um að ræða, og það er að mitt hlutverk er að passa upp á að börnunum líði vel í hópnum hverju sinni. Til þess að það gangi upp þarf að skiptast á með hlutina, koma fram við aðra af virðingu og kunna að segja fyrirgefðu. Öll börn sem ég þekki skilja mik- ilvægi þessara þátta og eru tilbú- in að leggja sitt af mörkum til þess að öllum líði vel. Þeim finnst rökrétt að ræða málin frekar en að grípa til ofbeldis og eru sann- færð um að peningar og ver- aldleg gæði færi okkur ekki ham- ingju ein og sér. Þetta átti líka við um mig þeg- ar ég var barn. Líkt og önnur börn átti ég mjög erfitt með að skilja að stríð skyldi geisa í heim- inum. Þegar ég varð eldri gerði ég mér grein fyrir því að stríð er ekki eins og náttúruhörmungar, sem við höfum enga stjórn á. Stríð er nefnilega mannanna verk og ástæðan fyrir því er ein- föld: Græðgi í peninga og völd. Öll óhamingjan sem býr í þessum heimi á upptök sín í misskiptingu auðsins og því valdaójafnvægi sem ríkir í heiminum. Stríð sprettur af því að menn kunna ekki þá einföldu hluti sem leik- skólabörnin mín eru fær um: Að skipta á milli sín og biðjast fyr- irgefningar í auðmýkt. Þegar ég óx úr grasi reyndi ég að benda fólki á þessar einföldu staðreyndir en fékk alltaf sama svarið: Þetta er ekki svona ein- falt. Með tímanum fór ég hrein- lega trúa því að þetta væri ekki svona einfalt en fann mér frið- þægingu í því að hugsanlega væru hlutirnir svona vondir úti í heimi en ekki á litla Íslandi enda er það lenska hér á landi að stað- setja allt vont í útlöndum. Ég man ekki hvenær ég gerði mér grein fyrir því að það væri her á Íslandi en það angraði mig svo sem ekkert. Ég tengdi her eflaust miklu frekar við bíómynd- ir en við raunveruleg stríðsátök og gat því auðveldlega haldið áfram að lifa í blekkingunni um að ég tilheyrði þjóð sem elskaði frið. Bakslagið kom í raun ekki fyrr en á þessu ári þegar for- svarsmenn ríkisstjórnar Íslands lýstu yfir stuðningi við stríðið í Írak. Stríð sem var háð af hroka- fyllstu þjóð þessa heims og þjóð- in mín sagði: Já, okkur finnst þetta góð hugmynd. Ég velti því lengi fyrir mér hvers vegna þessi afstaða var tekin enda hefði verið svo auðvelt fyrir okkur að fela okkur bak við hlutleysið og ástina á friði. Nið- urstaða mín er einfaldlega sú að þarna hafi búið að baki það afl sem hefur hvað sterkust tök á valdamönnum þessa heims: Pen- ingar. Grunurinn staðfestist þeg- ar Bandaríkjamenn vildu minnka herrekstur sinn í Keflavík og ís- lenskir ráðamenn lögðust á hnén og grátbændu um að svo skyldi ekki vera. Enda þarf Ísland nauðsynlega á þeim aurum að halda sem fylgja bandaríska hernum. Það er okkur ekki nóg að vera meðal ríkustu þjóða heims, við þurfum að vera ríkust. Valdapíramídinn sem herinn byggist á tákngerir valdaójafn- vægið sem ríkir í veröldinni. Þannig fer fólk hreinlega að trúa því að það sé fyllilega eðlilegt að sumir menn séu valdameiri en aðrir og megi jafnvel niðurlægja aðra og beita þá ofbeldi í skjóli valda. Her byggist nefnilega á furðulegri karlmennskuímynd sem felur í sér blóð og svita en engin helvítis tár. Innan hersins ríkja svo stjórnunarhættir sem leikskólabörnin mín myndu aldr- ei getað unað við. Þar geta menn falið sig á bak við nafnbót. Hvort sem það er óbreyttur hermaður, liðsforingi eða einhver virðulegri titill. Í skjóli þessarar nafn- leyndar eru framdir ógeðfelldir glæpir þar sem eini tilgangurinn virðist vera að sýna vald sitt með því að niðurlægja fólk. Þannig eru nauðganir nánast eðlilegt vopn í stríði. Vera bandaríska hersins á Ís- landi stendur fyrir allt sem er vont í þessum heimi: Misskipt- ingu auðsins, valdagræðgi, of- beldi og feðraveldishyggju. Per- sónugerving hersins er íhaldssamur, vel stæður karl- maður sem telur sig öðrum æðri. Hann er að sjálfsögðu hvítur og gagnkynhneigður, þolir ekki mis- munandi lífsgildi og stjórnast umfram allt af dýrslegum hvöt- um. Til þess að leysa vandamálin sem blasa við honum grípur hann til ofbeldis enda er það eina leið- in til þess að sýna kellingum, hommum og helvítis útlendingum hver ræður! Ég þori að fullyrða að öll þau börn sem ég þekki vilja ekki samþykkja veröld sem stjórnast af valda- og peningagræðgi. Börnin vilja frið, fyrirgefningu og mannsæmandi kjör fyrir allt fólk. Það er því okkar hlutverk að hætta að ljúga að þeim að hlut- irnir séu ekki svona einfaldir og styrkja þau í trú sinni á að þess- ari veröld sé hægt að breyta. Herinn burt! Stríð sprettur af því að menn kunna ekki þá einföldu hluti sem leikskólabörnin mín eru fær um: Að skipta á milli sín og biðjast fyrirgefningar í auðmýkt. VIÐHORF Eftir Höllu Gunnarsdóttur hallag@mbl.is ✝ Kristín SigríðurKristjánsdóttir fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1910 og ólst þar upp. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Eiri 29. nóvember síðastlið- inn. Faðir hennar var Kristján Guð- mundsson, f. 10. desember 1853, d. 30. ágúst 1931, verkamaður í Reykjavík. Móðir hennar var Rósa Kristjánsdóttir, f. 30. september 1870, d. 27. júní 1957. Systkini Kristínar eru: Sig- ríður, f. 7. júní 1893, d. 19. sept- ember 1977; Margrét, f. 1896, dó hálfs annars árs; Kristján, f. 31. október 1898, d. 28. apríl 1981; Guðrún, f. 10. mars 1900, d. 19. nóvember 1934; og Guðmundur, skildu, börn þeirra eru: a) Rósa Kristín, f. 9. júní 1962; b) Ólöf Anna, f. 21 júlí 1965; c) Hafdís Hrund, f. 31. mars 1974; að lokum á hann kjördóttur, Elínu Guðrúnu Jóhannesdóttir, f. 6. apríl 1958 sem Sólveig átti áður en þau gift- ust. Eiginkona í dag er Anna M. Jónsdóttir, f. 18. ágúst 1936. 3) Kristján, f. 4. nóvember 1940, d. 8. febrúar 1966, skrifstofustjóri, kvæntist Ingibjörgu Bjarnadótt- ur, f. 8. nóvember 1941. Synir þeirra eru tvíburarnir Hafliði framkvæmdastjóri og Bjarni markaðsstjóri, f. 9. september 1962. Sonur Kristjáns með Guð- rúnu Jónsdóttur er Jón Magnús, f. 30. maí 1962, viðskiptafræðing- ur. Kristín var heimavinnandi hús- móðir og eftir að börnin voru far- in að heiman fór hún að vinna ut- an heimilis, vann meðal annars við verslunarstörf og sem gæslu- kona á leikvöllum borgarinnar. Þau Hafliði bjuggu lengst af í Stórholti 20 í Reykjavík. Útför Kristínar verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. f. 8. ágúst 1907, d. í maí 1940. Kristín giftist 4. nóvember 1933 Haf- liða Gíslasyni bíl- stjóra, f. 9. október 1906, d. 19. febrúar 1993. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Þóra Hafliðadóttir, f. 6. júlí 1934, áfengisráðgjafi, gift Rúnari Guð- bjartssyni sálfræðingi og fyrrverandi flug- stjóra, börn þeirra eru: a) Hafdís, f. 2. ágúst 1956, hjúkrun- arfr. og ljósmóðir; b) Guðbjartur, f. 13. september 1958, flugmaður; c) Kristinn, f. 25. janúar 1961, d. 18. október 1988, tölvufræðingur, og d) Rúna, f. 7. apríl 1963, flug- maður. 2) Gísli Sævar, f. 12. mars 1938, múrarameistari, kvæntist Sólveigu Guðmundsdóttur en þau Mig langar að minnast tengda- móður minnar með nokkrum orðum. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kvænast einkadóttur hennar fyrir tæpum fimmtíu árum, þannig að kynni okkar eru orðin löng. En sam- band Kristínar og dóttur hennar hefur alla tíð verið náið alveg til síð- asta dags. Kristín var dæmigerð Reykjavík- urmær, fæddist þar og ól þar allan sinn aldur. Þegar aldurinn var far- inn að segja til sín og Kristín gat ekki lengur farið ferða sinna sjálf og ef farið var með hana í ökuferð og hún spurð hvert eigum við að aka, þá var óskin oftast sú að aka niður Laugaveginn. Var gaman að aka með henni og ræða um allar versl- anirnar sem voru þarna og ekki síst þær sem höfðu verið við Laugaveg- inn meðan hún var upp á sitt besta og gekk Laugaveginn næstum dag- lega. Kristín telst til aldamótakynslóð- arinnar og varð vitni að hinum miklu breytingum sem urðu á högum Ís- lendinga. Hún elst upp í litlu rykugu og skítugu þorpi eins og Reykjavík var fram á miðja síðustu öld og fær að sjá hana breytast í fallega og lík- legast hreinustu höfuðborg í heimi. Ekki er hægt að minnast Krist- ínar öðruvísi en að minnast manns hennar Hafliða Gíslasonar. Þau giftu sig 1933 og áttu aðeins nokkra mán- uði í að geta haldið upp á sextíu ára brúðkaupsafmæli sitt þegar Hafliði lést fyrir tíu árum. En hún og æsku- vinkona hennar Elín Gunnarsdóttir hittu vinina Hafliða og Jens Guð- jónsson og giftust þær þeim félögun- um og myndaðist með þeim hjónum ævilöng vinátta. Voru þau ferða- félagar bæði innanlands og utan og marga rúbertuna tóku þau saman. En Kristín er síðust í þessum hópi til að kveðja þetta jarðlíf. Nokkrum árum eftir að þau hófu búskap eignuðust þau íbúð í Stór- holti 20 og bjuggu þar öll sín bú- skaparár eða þar til þau fluttu á dvalarheimili fyrir aldraða á Dal- braut. Kristín var heimavinnandi húsmóðir og góð hannyrðakona og hún átti fallegt heimili sem var prýtt munum sem að hún hafði unnið. KRISTÍN SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Signý Ólafsdóttirfæddist á Litlu- Borg í Vestur-Hópi í V-Húnavatnssýslu 11. desember 1913. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 30. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Sigurlaug Stefáns- dóttir frá Litlu- Hlíð í Víðidal, f. 5. janúar 1887, d. 1970, og Ólafur Dýrmundsson frá Litladalskoti í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, f. 24. nóvember 1889, d. 1973. Systkini Signýjar eru Dýrmundur, f. 8. desember 1914, Margrét Ingunn, f. 16. ágúst 1923 og Haukur, f. 4. janúar 1927. Dóttir Signýjar er Ingibjörg Signý Frímannsdóttir, f. 34. októ- ber 1932, d. 24. júní 1988, maki Ole Aadnegard og eignuðust þau þrjú börn og átta barnabörn. Signý giftist Ingólfi Jóni Þór- arinssyni frá Kollsvík við Pat- reksfjörð, f. 20. febrúar 1909, d. 22. október 2000, þau skildu. Börn þeirra eru fjögur, þau eru: 1) Þórólfur Guðmundur, f. 29. ágúst 1935, d. 1959, maki Unnur Bergsveinsdóttir, f. 1938, þau eiga dóttur og tvö barnabörn. 2) Elín, f. 17. mars 1941, maki Guð- mundur Þór Jónsson, f. 8. októ- ber 1935, d. 1992. Þau eiga sex börn og eru nú fimm á lífi, fjórtán barnabörn og fjögur barnabarna- börn. 3) Örn, f. 7. ágúst 1945. Maki I, Sigríður Guðjónsdóttir, f. 1949, d. 1984, þau skildu, þau eiga tvö börn og fimm barna- börn. Maki II, Lovísa Guðrún Jó- hannsdóttir, f. 1951, þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. 4) Bjarni, f. 19. ágúst 1950, maki Erna Agnarsdóttir, f. 1953, þau eiga þrjú börn og eitt barna- barn. Sambýlismaður Signýjar frá 1962, var Reynir Ludvigs- son, f. 29. janúar 1924, d. 2000. Signý sinnti margvíslegum störfum um ævina, m.a. almenn- um sveitastörfum, sjómannsstörf- um, fiskverkun og verslunar- störfum. Á Patreksfirði rak hún verslun með eiginmanni sínum um árabil, eða fram til 1950. Þá fluttu þau ásamt tengdaforeldr- um að Hliði á Álftanesi í Bessa- staðahreppi. Þar bjuggu þau í þrjú ár, uns þau fluttu til Reykja- víkur. Um 1955 hóf hún að vinna hjá Prentsmiðjunni Eddu og síðar bætti hún við sig vinnu hjá Dag- blaðinu Tímanum og varð það skömmu seinna hennar aðalstarf, en hjá Tímanum starfaði hún í ein 30 ár. Lengst af bjó hún í Efstasundi 3, eða þar til að hún flutti á Hrafnistu í Reykjavík en þar dvaldi hún síðustu ár ævi sinnar. Útför Signýjar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30 Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskaut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár, en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðja hljómar, svo hrygg við erum því við söknum þín. Í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér verður vísi sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfug minning okkur heilög er. (G. E. V.) Hafðu þökk fyrir allt og allt, friður guðs þig blessi. Unnur Bergsveinsdóttir. Í dag verður föðuramma mín, Signý Ólafsdóttir, til moldar borin. Það var sunnudaginn 30. nóvember sem hún kvaddi þennan heim. Mig langar til þess að minnast hennar með nokkrum orðum. Signý amma tók öllum hlutum með æðruleysi og yfirvegun þrátt fyrir töluvert mót- læti í lífinu. Hún átti auðvelt með að sjá björtu hliðarnar á hlutunum enda stutt í kímnina og glettnina hjá henni. Umhyggjusöm var hún og góðhjörtuð og vildi alltaf gera gott út öllu. Hún krafðist ekki mikils af veraldlegum gæðum en andleg gæði mat hún mikils enda var hún víðlesin og mjög ljóðelsk. Hún flíkaði ekki til- finningum sínum heldur var hrein- skiptin og heiðarleg. Signý amma var ræktarsöm við vini og vanda- menn. Það var ekki síst fyrir hennar tilstuðlan að ég kynntist föðurfólk- inu mínu en faðir minn lést langt fyr- ir aldur fram og er ég henni æv- inlega þakklát fyrir. Í gegnum hana og frásagnir hennar af stórum hópi ættmenna, sem hún kunni góð skil á þrátt fyrir háan aldur, fékk ég að kynnast fólkinu mínu. Signý amma var nefnilega með kollinn í lagi þrátt fyrir háan aldur og fylgdist vel með öllu en hún hefði orðið níræð hinn 11. desember. Þegar ég hitti hana viku fyrir andlátið var eins og hún vissi að hún ætti ekki langt eftir, enda sár- lasin. En kímnina vantaði ekki þegar hún tjáði mér ást sína á lækninum sínum. „Það er bara eitt vandamál,“ sagði hún og glettnin skein úr aug- unum hennar, „hann á víst konu,“ og svo ískraði í henni hláturinn. Mér fannst ég alltaf verða ríkari eftir heimsóknir til hennar. Ég mun minnast Signýjar ömmu minnar með söknuð og þakklæti í huga. Blessuð sé minning hennar. Dagný Þórólfsdóttir. SIGNÝ ÓLAFSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.