Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lukku Láki
Risaeðlugrín
framhald ...
HVAÐ ER LISTA-
MAÐUR EINS OG ÞÚ
AÐ GERA Í ÞESSUM
GUÐSVOLAÐA BÆ,
LÁRA? ...
ÞEGAR ÉG NAUT
EKKI LENGUR
VERNDAR JACK-
SONS VARÐ ÉG
AÐ SJÁ UM MIG
SJÁLF ...
ÖLLARA
FYRIR
FRÚNA
LÍKA
STRÁKARNIR HÉR LÁTA
MIG EKKI Í FRIÐI! SONUR
RÍKASTA BÚGARÐSEIGAND-
ANS ER HRIFINN AF MÉR ...
OG ÞAÐ ER FARIÐ AÐ VERÐA
SVOLÍTIÐ ÞREYTANDI ...
NEI SKO ... GÖNGUR RISASNIGLANNA
VIRÐAST VERA BYRJAÐAR ...
© DARGAUD
© DARGAUD
ÉG SÉ HVAÐ ÞÚ
ÁTT VIÐ ...
EINMITT!
ÞUNDERFÍLDARNIR RÁÐA HÉR UM
SLÓÐIR, KÚREKI! OG ÉG HEITI
ALEXANDER
ÞUNDERFÍLD!MÍN ER
ÁNÆGJAN ...
ÞAR SEM ÞÚ ERT UTANBÆJARMAÐUR
ÆTLA DRENGIRNIR AÐ LÁTA SÉR
NÆGJA AÐ GEFA ÞÉR GÓÐ RÁÐ! OG
ÉG SPLÆSI TÓNLIST!
NEI VÁ!
ÞETTA ER
ÞJÓÐSÖNGURINN!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
HEILIR og sælir kæru vinir og
vandamenn fyrir vestan og aðrir
aðdáendur vestfirskrar menningar
og náttúrufegurðar.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að Vestfirska forlagið stefnir
markvisst að því, að gera jólin ennþá
gleðilegri með sínum fjölbreyttu,
fyndnu og fróðlegu bókum, sem virð-
ast falla í góðan jarðveg hjá lands-
mönnum. Já vestfirska jólabókaflór-
an vekur verðskuldaða athygli og
sumir segja að hún hitti í mark, svo
notað sé íþróttamál, en Hallgrímur
Sveinsson á Hrafnseyri, fræðimaður
og íþróttamaður á árum áður, skor-
aði einmitt eitt mark á sínum farsæla
fótboltaferli, svo annað er greinilega
á leiðinni! Þá verður mikill fögnuður
í Fellasókn og hver veit nema þá
verði Biskupi fórnað fyrir Hrók, alls
fagnaðar!
Það bíða fjölmargir í ómældri
spennu eftir bókinni um séra Baldur,
sem kemur á markað upp úr næstu
helgi, og sú bók svíkur engan, geislar
af gullkornum af öllum stærðum og
gerðum. Hér í höfuðborginni fyrir
sunnan eru allir að skrýðast jóla-
stressi, sem við Vestfirðingar leiðum
hjá okkur, en hér syðra fylgir komu
jólanna svo mikill erill að ærir óstöð-
ugan. Hins vegar er hér látlaus bíla-
umferð í bókabúðir og um hvað er
spurt? Jú, mikið rétt, oftar en ekki
um bækurnar að vestan! Einhverra
hluta vegna þykir nú orðið fínt og
flott að geta rakið ættir sínar til
Vestfjarða, það finn ég hvar sem ég
fer. Hjá Vestfirska forlaginu kaupir
enginn köttinn í sekknum, því við
bjóðum upp á góð og óvenjuleg til-
boð, sem svíkja engan. Má þar nefna
sérstaka gulrót, þar sem þú kaupir
eina nýja bók og færð eina af þeim
eldri og góðu í kaupbæti. Þá eru sér-
stök tilboð á ritröðum og öðrum bók-
um á sprenghlægilegu verði. Rúsín-
an í pylsuendanum er svo auðvitað
Jólapotturinn okkar, en hann er
vægast sagt kraumandi og einstak-
ur. Ef þú kaupir bækur frá Vest-
firska forlaginu fyrir aðeins 12 þús-
und krónur, þá færðu sérstakt
boðskort, sem gildir fyrir tvo. Jú,
boðið verður upp á kaffi eða kakó
með vöfflum og heilmiklu af vest-
firskum eðalrjóma og í eftirrétt eða
bragðbæti huggulegt harðfisk-
strengsli frá harðfiskunum á Þing-
eyri. Hvar gildir svo þetta boðskort?
Auðvitað í Burstabænum á Hrafns-
eyri næsta sumar og vitanlega heil-
mikið af léttu spjalli! Já, forlagið ætl-
ar að draga sem flesta landsmenn
vestur í paradísina og leggja þannig
verulega sitt af mörkum til aukning-
ar á ferðaþjónustu í þessu best varð-
veitta leyndarmáli landsins. Já, hver
veit nema ferðamálaverðlaunin fari í
Arnarfjörð á næsta ári! Eins og ég
nefndi áður, þá fara Vestfirðingar
með varúð inn í jólastemmninguna,
enda flas ei til fagnaðar, nema hjá
þeim sem hafa örlitla flösu.
Hallgrímur biskup í Fellasókn fer
að öllu með gát, sást á bifreið sinni á
20 kílómetra hraða á Þingeyri, enda
jólaösin mikil, þrír bílar á ferð og all-
ir sluppu klakklaust á leiðarenda.
Jæja kæru vinir, við bara heyrumst
svo fljótlega, enda hugur minn
vestra í svefni sem vöku.
Ykkar einlægur,
HEMMI GUNN.
Vestfirska forlagið
hittir í mark
Frá Hermanni Gunnarssyni
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
orðið gjörbylting í boðskiptum milli
manna, hvort sem er fréttamiðlun
eða einföld bréfaskipti. Það sem áður
tók sendibréf vikur og jafnvel mán-
uði að berast milli fjarlægra staða,
fer nú á örskotshraða ljóshraðans.
Margir bera virðingu fyrir þessari
miklu tækni sem að baki stendur og
rita þess vegna Internetið eða stytt-
ingu á þessu víðbreidda fyrirbæri,
Netið, með stórum upphafsstaf.
Eðlilegt er þegar um e-ð nýja-
brum er að ræða, ríki mikil aðdáun
og tækninni sýnd allt að því guðdóm-
leg virðing. Þá freistast margur til að
líta á gripinn slíkum augum. En er
internetið sérnafn? Morgunblaðs-
menn skrifa yfirleitt Internetið eða
Netið – með stóru I-i og stóru N-i.
Þjóðverjar hafa sama hátt á, enda
hníga réttritunarreglur þýskra í þá
átt, að öll nafnorð skuli rituð með
stórum upphafsstaf.
Nú má einnig færa gild rök fyrir
því, að internetin séu fleiri en eitt.
Þau eru margvísleg eftir eðli og að-
stæðum, notendum og jafnvel lönd-
um, ekki er um eitt allsherjar int-
ernet í heiminum að ræða því víða
eru sérkerfi, takmarkanir eða annað
sem greinir það í sundur, þar kemur
pólitík og jafnvel prestar við sögu.
Hástaf eða lágstaf? Eigum við að
líta á internetið sem sérheiti ? Int-
ernetið er fyrirbrigði sem ákveðin
þekking og tækniaðferð stendur að
baki. Við getum horft til fjölbreyttr-
ar flutninga- og samgöngutækni til
samanburðar í þessu sambandi.
Ekki minnist eg þess við lestur gam-
alla blaða og tímarita þegar rætt var
um símann, bifreiðar, flugvélar, rat-
sjána, sjónvarpið og fleiri slík tækni-
undur, hafi verið stafsett sem sér-
heiti á sínum tíma. Minnist nokkur
þess að þessi tækni hafi nokkurn
tímann verið rituð með stórum upp-
hafsstaf? Hvernig var t.d. með raf-
magnið? Ekki er það sérheiti en olli
heilabrotum hjá mörgum börnum
sem vildu gjarnan kynnast því með
fikti sem gat endað með martröð og
jafnvel slysi.
Er ekki margt líkt með þessum
mikilsverðu uppfinningum sem hafa
auðveldað daglegt líf okkar allra
nánast á hvaða sviði sem er?
Annað mál er, þegar við tölum um
Símann og eigum þá við Landssím-
ann eða Sjónvarpið og eigum þá
væntanlega flest við þá deild Ríkis-
útvarpsins sem sér um sjónvarps-
reksturinn o.s.frv.
Mér finnst því öll rök mæla með
því að rita þessa nýjung sem inter-
netið er með litlum upphafsstaf enda
fyrirbærið sem slíkt ekki sérheiti.
GUÐJÓN JENSSON,
Arnartanga 43,
270 Mosfellsbæ.
Internetið: með stórum
eða litlum upphafsstaf?
Frá Guðjóni Jenssyni