Morgunblaðið - 09.12.2003, Side 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANN B. Guðmundsson er
hættur hjá norska knattspyrnu-
félaginu Lyn og æfir með sínu
gamla félagi, Keflavík, þessa dag-
ana. Hann hefur hug á að leika
áfram erlendis og fer í næsta mán-
uði til reynslu hjá sænska úrvals-
deildarfélaginu Örgryte.
Jóhann gekkst undir aðgerð á
fæti 8. október og missti þar með
af síðustu sjö umferðum norsku
úrvalsdeildarinnar. Hann hafði
spilað alla leiki Lyn í deildinni
fram að því.
„Ég var búinn að vera slæmur í
hásininni í meira en ár, var með
stöðugar bólgur, og það var ekki
annað að gera en að láta laga
þetta. Nú er ég búinn að æfa með
Keflvíkingum í eina viku og það er
mikill munur að geta spilað fót-
bolta á ný án þess að finna fyrir
einhverjum verkjum,“ sagði Jó-
hann við Morgunblaðið í gær.
Jóhann, sem varð 26 ára síðasta
föstudag, hefur leikið erlendis frá
1998, fyrst með Watford í Eng-
landi og síðan með Lyn undanfarin
þrjú ár. Hann segir að það sé efst
á blaði hjá sér að leika áfram er-
lendis. „Ég fer til Örgryte og reyni
að standa mig vel þar, en annars
er allt opið hjá mér. Ég hef ekki
hugleitt það að ráði að snúa aftur
til Íslands, en ef það gerist yrði
mitt félag, Keflavík, að sjálfsögðu
ofarlega á blaði,“ sagði Jóhann B.
Guðmundsson.
Jóhann B. fer til
reynslu hjá Örgryte
FÓLK
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 10 mörk fyrir Tvis Holstebro,
Hanna G. Stefánsdóttir 7 og Inga
Fríða Tryggvadóttir 3 þegar liðið
sigraði Skjern á útivelli, 31:26, í vest-
urriðli dönsku 1. deildarinnar í hand-
knattleik á sunnudaginn. Tvis Holste-
bro er í þriðja sæti með 14 stig,
Silkeborg hefur 15 í öðru sæti og
Esbjerg er á toppnum með 16 stig.
ALEXANDERS Petersons, lettn-
eski Íslendingurinn, skoraði 5 mörk
fyrir Düsseldorf sem tapaði fyrir
Aue, 31:28, í þýsku 2. deildinni í hand-
knattleik á sunnudaginn. Þetta var
fyrsti leikur Alexanders eftir nokk-
urt hlé vegna meiðsla.
KRISTIAN Gjessing leikmaður
Skjern í Danmörku mun ganga í rað-
ir þýska liðsins Flensburg á næstu
leiktíð. Fyrir hjá Flensburg eru fjórir
landar Gjessings, Lars Christiansen,
Sören Stryger, Joachim Boldsen og
Lars Krogh Jeppesen.
PÓLSKI markvörðurinn Jerzy
Dudek verður að öllum líkindum sett-
ur á sölulista hjá Liverpool. Gerard
Houllier, knattspyrnustjóri Liver-
pool, er búinn að setja Pólverjann út í
kuldann og hefur Chris Kirkland tek-
ið stöðu hans á milli stanganna. Dud-
ek var ekki einu sinni í leikmannahópi
Liverpool á móti Newcastle um
helgina en varamarkvörður liðsins í
þeim leik var Patrice Luzi.
ÅGE Hareide, nýráðinn landsliðs-
þjálfari Norðmanna í knattspyrnu,
fær 5,5 milljónir króna í bónus-
greiðslu ef honum tekst að tryggja
Norðmönnum sæti í úrslitakeppni
HM í Þýskalandi 2006. Norðmenn
drógust í riðil með Ítölum, Slóvenum,
Skotum, Hvít-Rússum og Moldövum
í undankeppni HM og segir Hareide
að Norðmenn eigi ágæta möguleika
gegn þessum þjóðum.
CHRISTOPH Dugarrry, leikmað-
ur Birmingham, er ekki í góðum mál-
um. Frakkanum var vikið af leikvelli í
síðari hálfleik í leik Birmingham og
Blackburn á laugardag vegna
tveggja gulra spjalda. Aganefnd
enska knattspyrnusambandsins ætl-
ar hins vegar að skoða atvik sem
gerðist í fyrri hálfleiknum en þar gaf
Dugarry varnarmanninum Craig
Short olnbogaskot í andlitið með
þeim afleiðinum að Short nefbrotn-
aði.
DANY Verlinden, markvörður
belgíska knattspyrnuliðsins Club
Brügge, slær met í Meistaradeild
Evrópu í kvöld en hann verður þá
elsti leikmaðurinn frá upphafi sem
leikur í keppninni. Verlinden er 40
ára, þriggja mánaða og 24 daga gam-
all í dag, sjö dögum eldri en Grikkinn
Tasos Mitropoulos sem lék með
Olympiakos árið 1997. Club Brügge
á í höggi við Ajax á heimavelli sínum.
VERLINDEN, sem leikur í kvöld
sinn 74. Evrópuleik, segir að heilbrigt
líferni og ást hans á íþróttinni sé að
þakka að ferill hans sé svo langur.
Stóra fréttin í deildinni það semaf er viðkemur að sjálfsögðu
gengi stórstjarnanna hjá Los Ang-
eles Lakers. Árang-
ur Lakers það sem
af er hefur farið
framúr björtustu
vonum forráða-
manna og áhangenda liðsins. Und-
irritaður var á leik Lakers gegn
Utah hér í Staples Center á
sunnudagskvöldið þar sem Lakers
átti í erfiðleikum með sprækt lið
Jazz. Jerry Sloan, þjálfari Utah,
lætur ekki á sig fá þótt hann hafi
misst bæði John Stockton og Karl
Malone (sem var reyndar í leik-
banni hjá Lakers). Utah spilar
sem fyrr agaðan leik og baráttan
er ávallt í fyrirrúmi hjá öllum lið-
um Sloan.
Lakers náði 21 stigs forystu
fljótlega í seinni hálfleiknum, en
Utah jafnaði leikinn og náði eins
stigs forystu á lokamínútunni, eftir
að Lakers tók fótinn af bensíngjöf-
inni. Það var síðan Devean George
sem vann leikinn fyrir heimaliðið
þegar 24 sekúndur voru til leiks-
loka með þriggja stiga körfu.
Lakers náði að verja forystuna í
lokin og vann 94:92. Lakers er nú
með langbesta árangurinn í deild-
inni og ekki verður séð að nokkuð
annað lið komi til með að ógna for-
ystu Lakers í deildarkeppninni,
sérstaklega þar sem Rick Fox mun
bætast í lið Lakers strax eftir ára-
mótin. Með komu hans breikkar
leikmannahópurinn enn. Lakers
hefur nú unnið níu leiki í röð og 12
af síðustu 13.
Gengi Lakers hefur mest hvílt á
herðum stórstjarnanna fjögurra,
sem spila kannski ekki ávallt sam-
kvæmt leikkerfum Phil Jackson,
en þeir Shaq O’Neal, Kobe Bryant,
Karl Malone og Gary Payton hafa
fundið leið til að vinna hvern leik-
inn af fætur öðrum.
Óeigingirnin og góð liðssam-
vinna hefur verið í fyrirrúmi hjá
Lakers sem af er. Gary Payton
hefur tekið yfir leikstjórnun með
látum og keyrt upp hraðann. Karl
Malone hefur verið sérstaklega
óeigingjarn í sókn, en hreinsað öll
fráköst sem til hans koma. Kobe
Bryant hefur náð að finna næg
tækifæri til að sýna listir sínar, án
þess að vera eigingjarn (sjálfsagt
þakklátur Michael Jackson fyrir
að hafa tekið sviðsljósið af honum í
bili!).
Loks hefur Shaquille O’Neal
aldrei leikið betri vörn síðan hann
kom til Lakers, enda alfarið hætt-
ur að nöldra um að hann fái bolt-
ann ekki nógu mikið í sókninni!
„Varnarleikurinn hjá okkur er það
sem ég hef verið ánægðastur með
þar sem við erum með nýja lyk-
ilmenn,“ sagði Phil Jackson í vik-
unni. „Sóknarleikurinn er enn í
endurskipulagningu, en ég er
ánægður með að við höfum náð
forskoti á næstu lið. Við munum
eflaust þurfa á því að halda þegar
útileikirnir koma meira inn í
myndina,“ bætti hann við.
Sacramento hefur einnig byrjað
vel og virðist líklegasta liðið til að
veita Lakers samkeppni eins og
staðan er nú. San Antonio hefur
átt erfitt uppdráttar það sem af er,
enda einnig mikið um nýja leik-
menn þar. Ef ég þekki Gregg
Popovich þjálfara rétt á hann eftir
að ná liðinu á siglingu að nýju áður
en langt um líður. Reyndar hefur
Denver komið mest á óvart og á
þar nýliðinn Carmelo Anthony
stórann þátt, en hann skorar um
19 stig í leik.
Hann hefur byrjað heldur betur
í stigaskorun en Lebron James hjá
Cleveland, en báðir þessir nýliðar
geta verið hreyknir af leik sínum
það sem af er.
Í Austurdeildinni er það Indiana
Pacers sem hefur náð góðri for-
ystu og hefur Rick Carlisle gert
það gott þar sem nýr þjálfari í
stað Isiah Thomas.
Detroit Pistons eru einnig á
góðu flugi, en varnarleikurinn er
ennþá aðalsmerki liðsins. New
Jersey var hinsvegar það lið sem
flestir veðjuðu á í Austurdeildinni
fyrir keppnistímabilið, en stórt
skarð kom í liðið eftir að Mourning
lagði skóna á hilluna og án sterks
miðherja verður ekki séð hvernig
Nets ætla sér í lokaúrslitin. Ég er
hræddur um að nú fari að hitna
undir þjálfarastöðunni hja Byron
Scott ef liðið tekur ekki góðan
kipp á næstunni.
Reuters
Gary Payton og Kobe Bryant fagna, en þeir hafa leikið mjög vel með Lakers að undanförnu.
Lakers á blússandi siglingu
EFTIR fimm fyrstu leikvikurnar er nú loks komið mynstur í stöðu lið-
anna í NBA-deildinni. Um helgina höfðu ellefu af fjórtán liðum Vest-
urdeildar unnið fleiri leiki en þau höfðu tapað, en einungis fimm af
fimmtán liðum Austurdeildar. Besta von Austurdeildarliðanna fauk
út í veður og vind um daginn þegar Alonzo Mourning hjá New Jers-
ey lagði skóna á hilluna vegna þráfellds nýrnasjúkdóms.
Það þýðir þó ekki að önnur lið muni gefast upp og hætta leik. Liðin
eiga enn eftir 60 leiki í deildarkeppninni.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Staples Center
KEFLVÍKINGAR hafa ekki
tekið ákvörðun um hvort þeir
bjóði danska markverðinum
Morten Olesen samning. Hann
dvaldi hjá þeim í fjóra daga til
reynslu og hélt aftur heim á
leið á sunnudaginn. Rúnar Arn-
arson, formaður knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur,
sagði við Morgunblaðið að það
kæmi vel til greina að ræða
frekar við Olesen.
„Hann er tvímælalaust væn-
legur kostur en við ætlum að
flýta okkur hægt og munum
nota þessa viku til að fara vel
yfir málin. Hann stóð sig ágæt-
lega og bauð af sér góðan
þokka í alla staði. Við ætlum þó
að svipast aðeins betur um, við
höfum fengið ýmsar ábend-
ingar um markverði frá Bret-
landi og meginlandi Evrópu og
viljum sjá hvað er í boði.
Olesen er þrítugur og leikur
með danska 1. deildarliðinu
Brönshöj, með Keflvíkingnum
Guðmundi Steinarssyni.
Olesen
kemur til
greina hjá
Keflavík