Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 45

Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 45 ÓLAFUR H. Kristjánsson, aðstoðarþjálfari danska úrvalsdeildarliðsins AGF, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagið muni gera varnarmanninum Bjarna Þor- steinssyni tilboð í vikunni en hann kom til Ís- lands í gær eftir að hafa verið til reynslu hjá danska liðinu í nokkra daga. „Bjarni kom vel út úr þeim æfingum sem hann var hjá okkur og ég býst ekki við öðru en að honum verði sent tilboð í vikunni,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær. Bjarni er laus allra mála hjá Molde í Nor- egi en hann ákvað að taka ekki nýju tilboði félagsins sem fól í sér verulega launalækk- un. Verði ekki af samningum Bjarna og AGF bíða KR-ingar handan við hornið en Íslands- meistararnir hafa gert Bjarna tilboð um að ganga í raðir síns gamla félags á nýjan leik. Bjarni fær tilboð frá AGF KOMIÐ er grænt ljós frá lánastofnunum um að Arsenal geti hafist handa við byggingu nýs 60.000 manna leikvangs við Ashburton Grove í Lundúnum. Royal Bank of Scotland hefur samþykkt 260 milljóna punda lán til verksins en talið er að það kosti um 400 milljónir punda, eða sem nemur 50 millj- örðum króna. Forráðamenn félagsins vonast til að fram- kvæmdir geti hafist fljótlega upp úr áramót- unum og ef allt gengur að óskum er ætlunin að taka nýja leikvanginn í notkun í upphafi tímabilsins 2006/07. Arsenal hefur talið mik- ilvægt að fá nýjan stóran leikvang til að eiga möguleika á að halda í við Manchester Unit- ed og eins hefur því verið haldið fram að menn eins og Wenger, Vieira og Henry hefðu sett það sem skilyrði fyrir því að vera áfram hjá félaginu að nýr völlur yrði gerður.Tölvumynd af Ashburton Grove, hinum nýja velli Arsenal. Grænt ljós á nýj- an völl Arsenal FÓLK Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara í16-liða úrslitin og fyrir liggur að þangað komast Mónakó, Juventus, Stuttgart, Manchester United, Real Madrid, Porto, Chelsea og AC Milan. Í kvöld er lokaumferðin spiluð í E-, F-, G- og H-riðlum en annað kvöld í A-, B-, C- og D-riðlum. A-riðill Aðeins eitt stig skilur að liðin fjögur í A-riðli því Celtic, Anderlecht og Lyon eru með 7 stig hvert og Bayern München 6. Þarna eru því tveir úr- slitaleikir annaðkvöld, Lyon gegn Cel- tic og Bayern gegn Anderlecht, og sigurliðin fara í 16-liða úrslit. Celtic og Anderlecht nægir jafntefli, Lyon og Bayern verða að vinna. Það er ljóst að það yrði mikið áfall fyrir meistaralið Bayern, ef það kæmist ekki áfram. B-riðill Spennan er svipuð því Lokomotiv Moskva er með 8 stig, Arsenal 7, Inter Mílanó 7 og Dynamo Kiev 6. Arsenal fær Lokomotiv í heimsókn og Inter fer í austurveg og mætir Kiev. Rúss- unum nægir jafntefli gegn Arsenal á Highbury og Arsenal myndi sleppa áfram með þau úrslit ef einnig yrði jafntefli í leiknum í Kiev. Annars eru það sigurvegararnir í leikjunum sem halda áfram í Meistaradeildinni. Arsenal hefur oft átt í erfiðleikum á heimavelli sínum, þar sem mótherjar liðsins leggjast yfirleitt í vörn er þeir leika á Highbury. C-riðill Hollenska liðið PSV Eindhoven og Deportivo La Coruna frá Spáni mæt- ast í hreinum úrslitaleik í Eindhoven um hvort liðið fylgir Mónakó áfram og PSV verður að vinna leikinn með þremur mörkum. Annars fara Spán- verjarnir áfram. Mónakó og Deport- ivo eru með 10 stig og PSV 7 en AEK Aþena er með 1 stig og lýkur sinni Evrópuvertíð annað kvöld með heimaleik gegn Mónakó. D-riðill Spánska liðið Real Sociedad og Galatasaray frá Tyrklandi eigast við í úrslitaleik um annað sætið og Spán- verjunum nægir jafntefli á heimavelli. Juventus er þegar komið áfram með 10 stig, Sociedad er með 8, Galat- asaray 6 og Olympiakos 4. Til að Grikkirnir í Olympiakos komist í UEFA-bikarinn verða þeir að vinna Juventus á Ítalíu og treysta á að Galatasaray vinni ekki á Spáni. E-riðill Hið unga lið Stuttgart, sem hefur komið liða mest á óvart í Meistara- deildinni, og Manchester United eru þegar komin áfram með 12 stig og mætast á Old Trafford þar sem í ljós kemur hvort vinnur riðilinn. Stuttgart nægir jafntefli. Rangers er með 4 stig og Panathinaikos 1 fyrir leik liðanna í Glasgow. Rangers dugir jafntefli til að komast í UEFA-bikarinn. F-riðill Real Madrid með 13 stig og Porto með 10 eru komin áfram. Þau mætast í Madríd og Portúgalarnir verða að vinna með þremur mörkum til að koma í veg fyrir sigur Real í riðlinum. Marseille er með 3 stig og Partizan Belgrad 2 og leikur þeirra í Belgrad ræður úrslitum um UEFA-sætið. G-riðill Chelsea er komið áfram með 10 stig en Besiktas með 7, Sparta Prag með 5 og Lazio með 5 bítast um annað sætið. Besiktas þarf að leika heimaleik sinn við Chelsea í Þýskalandi og vinnur riðilinn með sigri. Jafntefli gæfi Lazio möguleika á öðru sætinu, en ef Chelsea sigrar Besiktas verður það sigurvegarinn í leik Sparta og Lazio í Prag sem kemst í 16-liða úrslit. H-riðill Ítalska meistaraliðið AC Milan er eitt liða 100 prósent öruggt með sigur í sínum riðli. Evrópumeistararnir eru með 10 stig, Ajax 6, Celta Vigo 6 og Club Brugge 5. AC Milan fær Celta Vigo í heimsókn en í Brugge verður Niðurlandaslagur þar sem Ajax kem- ur í heimsókn. Ajax stendur best að vígi, nær öðru sætinu með sigri, sama hvernig fer hjá Celta Vigo. Lokaumferðin í Meistaradeild Evrópu í kvöld og annaðkvöld Reuters Thierry Henry, hinn mark- sækni leikmaður Arsenal, gat ekki leikið með liðinu um sl. helgi vegna meiðsla. Það verður allt gert í her- búðum Lundúnaliðsins til að gera hann leikfæran fyrir hinn þýðingarmikla leik gegn Lokomotiv Moskva á Highbury annað kvöld. Reuters Roy Makaay, markahrókur Bayern München, og Oliver Kahn, fyrirliði liðsins. Það verður mikið áfall fyrir Bæjara ef þeir kom- ast ekki í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. SÍÐASTA umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu er leikin í kvöld og annaðkvöld. Átta lið hafa þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum en átján lið bítast um þau átta sæti sem eftir eru. Fimm lið til viðbótar setja stefnuna á þriðja sætið í sínum riðli sem þýðir áframhaldandi keppni í UEFA-bikarnum seinnipart vetr- ar, en aðeins eitt lið af þeim 32 sem skipa riðlana átta er endanlega úr leik í Evrópumótunum í vetur. Átján lið slást um átta sæti  MARKUS Baur, handknattleiks- maður, leikstjórnandi Þýskalands- meistara Lemgo og þýska landsliðs- ins hefur framlengt samning sinn við Lemgo til ársins 2007. Baur, sem er 32 ára gamall, er af mörgum talinn einn besti miðjuspilarinn í heimi.  CHRISTIAN Fitzek var í gær rek- inn úr starfi þjálfara þýska hand- knattleiksliðsins Göppingen en með liðinu leikur íslenski landsliðsmaður- inn Jaliesky Garcia. Göppingen tap- aði um helgina fyrir Stralsunder og situr á botni þýsku 1. deildarinnar með aðeins 6 stig eftir 14 leiki. Króatinn Milomir Mijatovic hefur verið ráðinn til að stýra liði Göpp- ingen út leiktíðina.  WBA, toppliðið í ensku 1. deildinni í knattspyrnu, er á höttunum eftir danska framherjanum Morten Skoubo. Leikmaðurinn er á mála hjá Borussia Mönchengladbach en WBA hefur óskað eftir því að fá þennan 23 ára gamla spilara að láni.  HERNAN Crespo getur ekki leik- ið með Chelsea í kvöld þegar liðið leikur við Besiktas í Meistaradeild- inni en leikurinn fer fram á heima- velli Schalke í Þýskalandi. Crespo meiddist á kálfa í leik Chelsea á móti Leeds á laugardaginn.  EIÐUR Smári Guðjohnsen, Juan Sebastian Veron og Emmanuel Pet- it fóru heldur ekki með Chelsea lið- inu til Þýskalands en þeir eru allir á sjúkralistanum.  ULI Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern München, sagði í gær að hans lið legði Anderlecht að velli á Ólympíuleikvanginum í München annað kvöld og kæmist í 16-liða úr- slit Meistaradeildar Evrópu. „Róð- urinn verður mjög erfiður, en við náum takmarki okkar.“  OLIVER Kahn, markvörðurinn litríki – fyrirliði Bæjara, segir að pressan sé mikil á leikmönnum fyrir leikinn. „Ef við leikum eins og við gerðum í síðasta leik okkar gegn Werder, þá vinnum við.“ Bæjarar gerði jafntefli við Werder Bremen á útivelli um sl. laugardag, 1:1.  RUUD Van Nistelrooy framherji Manchester United er næsta stór- stjarnan sem Florentino Perez for- seti Real Madrid hyggst kaupa til fé- lagsins. Spænska dagblaðið Marca greinir frá þessu en blaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að Perez ætli sér að fá Hollendinginn fyrir næstu leiktíð.  VAN Nistelrooy er fjórði sóknar- leikmaðurinn sem hefur verið orðað- ur við Real Madrid á síðustu vikum – hinir eru Thierry Henry, Michael Owen og Ítalinn Francesco Totti.  RÚMENINN Dan Petrescu, fyrr- um leikmaður Chelsea, var í gær ráðinn þjálfari rúmenska knatt- spyrnuliðsins Rapid Búkarest í stað Mircea Rednik. Rapid er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir Steaua Búkarest og Dinamo Búkarest.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.